Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 13

Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 13
Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg Ófærð Björgunarsveitarmenn að störfum uppi á Mosfellsheiði. veður og annað. Reynslan af því sé góð. Jón Svanberg minnir á að í tím- ans rás hafi Slysavarnafélagið Landsbjörg og þó einkum fyrirrenn- arar þess haft frumkvæði að ýmsum mikilvægum verkefnum til almanna- heilla. Þar megi nefna Umferðarráð, Tilkynningaskyldu íslenskra skipa og starfsemi Slysavarnaskóla sjó- manna sem sé stærsta forvarnar- verkefni félagsins frá upphafi. Þetta allt hafi skilað árangri sem enginn vefengir. „Árin 2008, 2011, 2014 og 2017 fórst enginn á sjó við landið sem er afar gleðilegt og ekki nokkur vafi að öryggisvitund sjómanna og fræðsla Slysavarnaskólans á þar ríkan þátt, svo miklar voru mannfórnirnar fyrr á tíð. Í dag stöndum við svo andspænis því að umferðarslysin eru mörg og alvarleg og því eðlilegt að setja meiri þunga í forvarnir þar,“ segir Jón Svanberg. 93 björgunarsveitir Björgunarsveitir Slysavarna- félagsins Landsbjargar eru alls 93 talsins og eru í flestum byggðum landsins. Einnig er á fjórða tug slysa- varnadeilda innan samtakanna en þær hafa verið björgunarsveitunum ómetanlegt bakland auk þess að sinna ýmsum afmörkuðum verk- efnum á sínu heimasvæði og á lands- vísu. „Fyrir fámennar byggðir er af- ar mikilvægt að björgunarsveit sé til staðar, sérstaklega ef langt er í næstu aðstoð,“ segir Jón Svanberg og heldur áfram. „Þessar sveitir eiga í vök að verjast þar sem nýliðun er ekki mikil og spilar byggðaþróun mikið inn í. Mikilvægi þessara mörgu en jafnvel fámennu sveita skiptir fé- lagið og almannavarnir í landinu þó gríðarlega miklu máli og í raun mun stærra máli heldur en umfang og stærð sveitanna segir til um. Sveit- irnar í stærri byggðarlögunum, eins og til dæmis á höfuðborgarsvæðinu eru sterkar og nýliðar áhugasamir um þátttöku. Þeir eru meðal annars fólkið sem verður úti um borg og bæi næstu daga að selja Neyðarkallinn og verður vonandi vel tekið eins og fyrri ár.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hafið Nemendur í Slysavarna- skóla sjómanna á æfingu á Sundunum við Reykjavík. Einbýli | Tvíbýli | Parhús | Raðhús | Fjölbýlishús Hafnarfjarðarbær auglýsir lóðir í fjölskylduvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Svæðið liggur sunnan og vestan Ásfjalls. Úthlutunarlóðir Einbýlishúsa-, parhúsa-, raðhúsa-, tvíbýlishúsa- og fjölskylduhúsalóðir eru lausar til úthlutunar til einstaklinga og lögaðila. Einstaklingar ganga fyrir við úthlutun einbýlis- og parhúsalóða. Tveir eða fleiri einstaklingar þurfa að sækja sameiginlega um þær lóðir sem telja fleiri en eina íbúð. Hjón og sambúðarfólk teljast sem einn einstaklingur. Sótt er um rafrænt áMÍNAR SÍÐUR Tilboðslóð Óskað er eftir tilboðum lögaðila í fjölbýlishúsalóð fyrir 32 íbúðir að Hraunskarði 2. Búið er aðmarka lágmarks- verð í lóðina og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild. Tilboðum ásamt viðeigandi fylgigögnum skal skilað til Þjónustuvers, Strandgötu6 fyrir kl. 10 þann19. nóvember n.k. Tilboð verða opnuð kl. 10 sama dag á sama stað. Sjá skipulagsuppdrátt, skilmála, gjaldskrá, yfirlit yfir lausar lóðir og fleira á hafnarfjordur.is Vekjum athygli á að samkv. samkomulagi við Landsnet verður færslu háspennulína lokið fyrir mitt ár 2019. Helstu upplýsingar Ítarefni á hafnarfjordur.is Leitarorð: Lausar lóðir Tilboðslóð - frestur Til kl. 10 þann19. nóv. n.k. Fylgigögn Upptalning áhafnarfjordur.is Fyrirspurnir hafnarfjordur@hafnarfjordur.is 585 5500 SANNKÖLLUÐ NÁTTÚRUPERLA Á FRÁBÆRUM STAÐ! Í dag, fimmtudag- inn 1. nóvember, mætir rithöfund- urinn og sagna- þulurinn Einar Kárason í Borgar- bókasafnið í Ár- bæjarhverfi í Reykjavík og les úr bók sinni Stormfuglar og segir frá glímunni við sögu og sjó. Bókin lýsir, segir í tilkynningu, vel öllu því sem lýtur að sjómennsku, bæði vinnubrögðum, samskiptunum um borð í skipinu og háskanum sem alltaf er nálægur. Einar gekk með hugmynd að bókinni lengi en skrifaði svo í einni lotu. Stormfuglar hafa vakið mikla athygli en bókin byggist á sönnum atburðum. Les úr Stormfuglum Einar Kárason Fjórir blaðamenn kynna nýút- komnar bækur sínar í Gunnars- húsi við Dyngju- veg í Reykjavík í kvöld og hefst upplestrarstundin kl. 20. Bergrún Ír- is Sævarsdóttir les úr Langelstur í leynifélaginu. Guðrún Guðlaugsdóttir les úr sög- unni Erfðaskráin sem er 5. bók henn- ar um Ölmu blaðamann. Páll Bene- diktsson les úr bókinni Kópur - Mjási, Birna og ég og fjallar um hvolp sem Páll fékk á sl. ári. Sigurður Hreiðar les úr Meðan ég man. Bækur blaðamanna Guðrún Guðlaugsdóttir Morgunblaðið/Hari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.