Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
„Framlag Kiwanishreyfingarinnar í
þetta verkefni gerir JCI kleift að
kaupa að minnsta kosti fjögur tonn
af vatni handa íbúum Indónesíu og
vonum við að fleiri fylgi í kjölfarið og
gefi framlag fyrir vatn,“ segir Eyþór
K. Einarsson, umdæmisstjóri Kiw-
anisumdæmisins Ísland-Færeyjar,
en Kiwanismenn afhentu nýverið
400 þúsund króna framlag í söfnun
JCI á Íslandi, „Gefðu von –– Indó-
nesía“.
Söfnunin er til styrktar íbúum
Indónesíu eftir náttúruhamfarir sem
þar urðu 29. september síðastliðinn.
Eyðileggingin er gríðarleg eftir
þessar náttúruhamfarir og þörf fyrir
aðstoð mikil. Yfir 200 þúsund manns
þurfa á bráðri neyðaraðstoð að halda
og er það markmið þessarar söfn-
unar að safna fyrir vatni sem fer til
þeirra svæða sem komu verst út úr
hamförunum.
Borgirnar Palu og Donggala eru
báðar í sárri þörf fyrir hreint vatn.
Talið er að lífsskilyrði verði léleg og
fjöldi látinna aukist áfram ef ekkert
verður að gert. „Við Íslendingar höf-
um sem betur fer aldrei þekkt vatns-
skort, en það þýðir samt ekki að
hann komi okkur ekki við. Þess þá
heldur kemur hann okkur enn frek-
ar við,“ segir Eyþór og hvetur alla til
að leggja söfnuninni lið.
Styrkur Frá afhendingu styrks Kiwanishreyfingarinnar í söfnun JCI á Ís-
landi vegna náttúruhamfaranna í Indónesíu í lok september síðastliðinn.
Kiwanis styrkir bág-
stadda íbúa Indónesíu
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Til leigu 468 fm. iðnaðar- og lagerhúsnæði á jarðhæð við Stangarhyl í Reykjavík. Stór innkeyrsluhurð og gott
útisvæði. Laust strax. Húsnæðið er mest opið rými. Þeir veggir sem eru til staðar eru léttir og því auðvelt að
taka niður. Kaffistofa og skrifstofa til staðar.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL LEIGU
Stangar ylur 7, 110 Rvk
Gerð: Iðnaðar- og
lage húsnæði
Stærð: 468 m2
Leiguverð: Tilboð
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur,
löggiltur fasteignasali og
löggiltur leigumiðlari
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
EON arkitektar fyrir hönd eigenda
að Grandagarði 8, Brimgarða ehf.,
hafa sent Reykjavíkurborg erindi
þess efnis hvort leyft verði að byggja
eina hæð ofan á húsið, 4. hæð norð-
austanmegin. Jafnframt hvort leyft
verði að byggja við húsið að suð-
vestanverðu, gegnt stórhýsinu
Mýrargötu 26. Þá hafa eigendurnir
hug á að breyta notkun hluta hússins
úr skrifstofustarfsemi í hótel.
Ofanábyggingin er áætluð alls 833
fermetrar og viðbyggingin 2.100 fer-
metrar. Eftir stækkun yrði húsið
samtals 10.605 fermetrar. Erindið er
nú til meðferðar hjá skipulags-
yfirvöldum borgarinnar.
Í Grandagarði 8 er nú að finna
margvíslega starfsemi. Þar eru tveir
veitingastaðir, Messinn og Bryggjan
brugghús og Sjóminjasafnið. Þá hef-
ur tölvuleikjafyrirtækið CCP verið
þarna til húsa um langt skeið en til
stendur að það flytji í Vatnsmýrina.
Fram kemur í erindinu ósk um að
breyta skipulagsheimildum fyrir lóð-
ina að Grandagarði 8, sbr. stækkun
byggingar og breytt nýting á efri
hæðum byggingarinnar (beggja hús-
hluta í atvinnuhúsnæði), úr skrifstofu
og lagerhúsnæði, í hótel. Ferða-
mannastraumur til landsins hafi
margfaldast á síðustu árum og mikil
þörf sé á auknu gistirými, 4-5 stjörnu
hóteli, sérstaklega vel útbúnu hús-
næði í námunda við miðbæinn.
Grandagarður 8 vel staðsettur
„Nú eru uppi áform um að byggja
ofan á og við núverandi byggingu þ.e.
byggingin í heild sinni falli betur að
því byggðamunstri sem miða skal við
samkvæmt nýju aðalskipulagi/þróun
svæðisins og ásýnd hafnarbakkans.“
Grandagarður 8 sé einkar vel stað-
settur með tilliti til almennings-
samgangna, hjólastíga og leigubíla-
stöðva. Miðborgin, útivistarsvæði,
menning og næturlíf sé í göngufæri.
Nægum hjólastæðum fyrir gesti og
starfsfólk verði komið fyrir á lóðinni.
Í göturými Grandagarðs séu stæði
við götu.
Sú breyting sem fyrirhuguð er,
þ.e. hótelstarfsemi, kalli í raun á
færri bílastæði en sú starfsemi sem
nú er í húsinu. Eigendur hafa einnig
þann fyrirvara á að komi það í ljós að
vanti stæði þegar að reynsla verði
komin á starfsemina, þá verði gert
ráð fyrir bílastæðum í og við bygg-
ingar á aðliggjandi og nálægum reit-
um skv. samþykktu deiliskipulagi.
Verði þá samið um afnot og/eða kaup
á stæðum.
Skammt frá Grandagarði 8 er svo-
kallað Alliance-hús, sem borgin
hyggst semja um sölu á til þróunar-
félags. Nýir eigendur hafa áform um
hótelstarfsemi í húsinu.
Milli Grandagarðs og Slippsins,
þ.e. í Vesturbugt, mun á næstu árum
rísa íbúðahverfi með mörg hundruð
íbúðum. Þar verða einnig byggðar
bílageymslur.
Sjóminjasafnið Eigendur að Grandagarði 8 hafa hug á að byggja eina hæð ofan á safnið og einnig viðbyggingu.
Skrifstofurými á Granda-
garði verði breytt í hótel
Eigendur að Grandagarði 8 hyggjast byggja við húsið
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna
samþykktu á fundi í Ósló í gær að lýsa
fullum stuðningi við Dani og þær að-
gerðir sem þeir hafi gripið til vegna
ráðagerða írönsku leyniþjónustunnar
um að ráða íranska stjórnarandstæð-
inga, sem dveljast í Danmörku, af
dögum.
Anders Samuelsen, utanríkis-
ráðherra Dana, gerði norrænum koll-
egum sínum grein fyrir lögreglu-
aðgerðum sem komu í veg fyrir
morðið. Fram kom í vikunni að Danir
hafa kallað sendiherra sinn í Íran
heim vegna málsins en dönsk stjórn-
völd hafa örsjaldan gripið til slíkra að-
gerða.
„Við lítum þetta mál mjög alvar-
legum augum,“ segir í sameiginlegri
yfirlýsingu norrænu utanríkis-
ráðherranna. „Slíkt athæfi er alger-
lega óviðunandi. Við fordæmum
hverskonar ógnun við öryggi Norður-
landanna. Það er mikilvægt að löndin
á Norðurlöndum standi þétt saman
þegar slík ógn steðjar að samfélögum
okkar.“
Full samstaða
Í tilkynningu frá íslenska utanríkis-
ráðuneytinu er haft eftir Guðlaugi Þór
Þórðarsyni utanríkisráðherra að lönd-
in á Norðurlöndum sýni dönskum yf-
irvöldum fulla samstöðu vegna til-
ræðis írönsku leyniþjónustunnar,
enda sé það árás á norrænt samfélag
og þau gildi sem það stendur fyrir.
Dönsk stjórnvöld greindu frá því í
vikunni að hópur íranskra leyniþjón-
ustumanna hefði ætlað að ráða af
dögum þrjá Írana, sem eru búsettir í
Ringsted, um 60 km suðvestur af
Kaupmannahöfn. Talið er að menn-
irnir þrír tengist aðskilnaðarsamtök-
unum Al-Ahvaziya, sem stjórnvöld í
Íran líta á sem hryðjuverkasamtök
en íranski herinn sakar Al-Ahvaziya
um að bera ábyrgð á hryðjuverka-
árás á skrúðgöngu hermanna í borg-
inni Ahvaz í september þar sem 25
létust.
Leiðtogi Al-Ahvaziya í Danmörku
er sagður hafa verið aðalskotmarkið.
Norskur ríkisborgari af írönsku
bergi brotinn var handtekinn 21.
október þegar hann var að taka
myndir af dvalarstað Írananna í
Ringsted.
Rannsókn málsins hefur staðið yfir
mánuðum saman. Í september lokaði
danska lögreglan í skyndi brúm milli
Danmerkur og Svíþjóðar. Nú í vik-
unni kom fram að þær aðgerðir
tengdust þessari rannsókn.
Danskir sendimenn gerðu sendi-
herrum annarra Evrópusambands-
ríkja grein fyrir málinu í gær á fundi í
Brussel. Eftir fundinn sagði tals-
maður ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins, að ráðið fordæmdi athæfi
Írana í Danmörku en legði jafnframt
áherslu á að málið yrði ekki til að
grafa undan stuðningi Evrópuríkja
við kjarnorkusamninginn við Íran.
AFP
Stuðningur Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, greinir frá
málinu. Norrænir ráðherrar lýstu stuðningi við Dani í gær.
Ráðherrar lýsa
stuðningi við Dani