Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 24
VIÐTAL
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Jöfn tækifæri er leiðarstefið í starfi TUFF Ís-
land-samtakanna. TUFF vinnur fyrir öll börn,
en lögð er sérstök áhersla á að hjálpa börnum
sem hafa sökum félagslegra eða efnahagslegra
aðstæðna ekki tækifæri til þess að taka þátt í
íþróttum eða tómstundum. Einnig hefur verið
horft til þess að jafna hlut barna sem eru af er-
lendum uppruna þegar kemur að ástundun
íþrótta. Eins hefur verið lögð áhersla á verkefni
sem miða að því að koma í veg fyrir eða upp-
ræta öfgahyggju.
Verkefnið byrjaði sem tilraunaverkefni í
Breiðholti og er nú komið inn í allt íþróttastarf í
Kópavogi og er Tuff að hefja verkefni í öðrum
hlutum Reykjavíkur og stefnt er að því að næsti
viðkomustaður verði Akureyri.
TUFF-samtökin (The Unity of Faiths
Foundation) voru stofnuð í Bretlandi árið 2011
en Hrund Hafsteinsdóttir, sendifulltrúi í
utanríkisráðuneytinu, heyrði fyrst af verkefn-
inu í fyrirlestri dr. Shamender Talwar félags-
sálfræðings í London og fékk hann til liðs við sig
til að kynna Íslendingum verkefnið. Auk þeirra
er Friðjón Friðjónsson, framkvæmdastjóri
KOM ráðgjafar, í stjórn TUFF Ísland. Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Frans páfi
eru verndarar TUFF. Barack Obama, fyrrver-
andi forseti Bandaríkjanna, lýsti einnig form-
lega yfir stuðningi við samtökin.
Ætlað að koma í veg fyrir
félagslega einangrun
Hrund segir að TUFF eigi að koma í veg fyr-
ir félagslega einangrun barna og fjölskyldna
þeirra og stuðla að þátttöku þeirra í samfélag-
inu.
Shamender Talwar segir að þegar Hrund
sýndi áhuga á að kynna Íslendingum verkefnið
hafi hann strax séð mörg tækifæri hér. Ísland
væri lítið land, með álíka marga íbúa og hverfi í
London, innflytjendum væri að fjölga og á
stefnuskrá stjórnvalda að taka á móti hópum
flóttafólks.
Staðan hér minnti hann mjög á London á átt-
unda áratugnum. Á þeim tíma hafi innflytj-
endum fjölgað í Bretlandi og margir Bretar hafi
óttast áhrifa þess á breskt samfélag. Hann segir
að Ísland geti lært af reynslu annarra þjóða og
komist hjá því að gera sömu misstök og Bret-
land og önnur nágrannaríki hafi gert en um leið
tekið upp það sem hefur reynst vel í öðrum
löndum.
Hrund segir að þau hafi ákveðið að kanna
áhuga Reykjavíkurborgar á þátttöku í verkefn-
inu með Breiðholt í huga vegna fjölbreyttrar
samsetningar íbúa hverfisins. Hugmyndin kom
fyrst fram hjá Guðlaugi Þór Þórðarsyni utan-
ríkisráðherra, sem hefur sýnt verkefninu mik-
inn áhuga líkt og Guðni Bergsson hjá KSÍ,
Michael Nevin, sendiherra Breta á Íslandi, og
fleiri hafa gert.
40% taka ekki þátt í
tómstunda- og íþróttastarfi
Hún segir að 40% barna af erlendum upp-
runa sem búsett eru í hverfinu taki ekki þátt í
tómstunda- og íþróttastarfi, einkum stúlkur, oft
vegna þess að fjölskyldur þeirra hafa litlar upp-
lýsingar um starfsemi íþróttafélaganna og eða
gera sér ekki grein fyrir því góða starfi sem þar
er unnið.
Samkomulagið við Reykjavíkurborg var til
þriggja mánaða og eru þau Hrund, Shamender
og Friðjón sammála um að það sé of stuttur
tími. Verkefni sem þetta þurfi að vera til nokk-
urra ára.
Lagt var af stað með að bjóða börnum upp á
að æfa án endurgjalds hjá tveimur íþrótta-
félögum í Breiðholti, ÍR og Leikni, í þrjá mán-
uði. Jafnframt voru foreldrum kynntir kostir
frístundakortsins en það er minna nýtt af fjöl-
skyldum í Breiðholti en í öðrum hverfum borg-
arinnar.
Shamender segir að verkefnið njóti góðs
stuðnings frá yfirvöldum í Reykjavík og Kópa-
vogi og stefnt sé á að fara af stað með TUFF á
Akureyri fyrir árslok. Hann segir að þrátt fyrir
náið samstarf með íþróttafélögum sé hlutur
skólanna ekki minni og eins félagsmálayfirvalda
og félagsmiðstöðva. TUFF tryggi samþættingu
þessara þriggja kerfa þar sem hagur barna og
unglinga er hafður að leiðarljósi.
„Við fáum krakkana til að taka þátt í verkefn-
inu í gegnum íþróttir og tómstundir líkt og við
höfum gert annars staðar, svo sem í Bretlandi.
Við leggjum áherslu á að verkefnið standi öllum
börnum til boða en höfum reynt að ná sér-
staklega til barna af erlendum uppruna þar sem
mesta hættan er á félagslegri einangrun hjá
þeim,“ segir Shamender.
Hann segir að á Íslandi séu kennarar, þjálf-
arar og starfsmenn frístunda- og félagsmið-
stöðva í daglegum samskiptum við börn en sam-
skipti þeirra á milli, það er þeirra sem vinna
með börnunum, af skornum skammti.
„Við reynum að tengja þessa aðila saman og
tryggja að ef eitthvað bjátar á hjá barni þá sé
auðvelt fyrir þá að hafa samband sín á milli.
TUFF er brúin sem tengir þá saman. Við reyn-
um að kenna börnum samfélagsleg gildi og að
þau geri sér grein fyrir því að þrátt fyrir ólíkan
menningarlegan bakgrunn þá eigi þau það sam-
eiginlegt að búa á Íslandi. Að þau eigi að vera
stolt af bæði uppruna og Íslandi,“ segir Sha-
mender.
Shamender segir að TUFF sé hér til þess að
auka við það frábæra starf sem þegar sé unnið
hérlendis, skerpa fókus á nokkur atriði og efla
samþættingu.
Upplifa sig ekki sem hluta
af íslensku samfélagi
Að þeirra sögn hafa börn sem eru af pólskum
uppruna en eru fædd á Íslandi og hafa aldrei
búið annars staðar upplifað sem þau séu ekki
hluti af íslensku samfélagi. Þessu vilji þau
breyta í gegnum TUFF, með aðkomu allra
þeirra sem koma að lífi barnanna, hvort heldur í
skóla, á heimili eða í félagsstarfi.
Þau segja að þátttakan í TUFF-verkefninu
hér á landi hafi verið mjög góð þessa fyrstu
mánuði sem það hefur verið starfrækt en búið
sé að kynna það í öllum skólum Kópavogs og í
Breiðholti. Vegna þess hve gott orðspor TUFF
sé fái þau að koma inn í grunnskólana á skóla-
tíma og kynna nemendum það eftir að búið er
að kynna skólastjórnendum og kennurum
TUFF.
Félögin sem eru þátttakendur í TUFF Ísland
í dag eru: Valur, HK, ÍR, Gerpla, KR, Breiða-
blik, Tennisfélag Kópavogs, Dansíþróttafélag
Kópavogs, Dansfélagið Hvönn, Hestamanna-
félagið Sprettur og GKG golfklúbbur.
Í byrjun var einkum horft á aldurshópinn 6-
15 ára en með samstarfi við Samfés, samtök fé-
lagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi á
landsvísu er einnig horft á 15 ára og eldri. Sá
hópur er oft að hætta í formlegu íþróttastarfi en
hefur kannski áhuga á að stunda íþróttir einu
sinni til tvisvar í viku án þess að keppa eða
koma að starfi TUFF á annan hátt en í gegnum
íþróttir. TUFF er að undirbúa tilraunaverkefni
um umhverfismál sem gæti einmitt höfðað til
þessa aldurshóps.
Kynnast foreldrum vinanna
Hrund og Friðjón segja að forsvarsmenn
íþróttafélaga sjái einnig að með TUFF er hægt
að auka samskipti meðal foreldra barna sem
æfa íþróttir. Til að mynda er lögð áhersla á
þetta í starfi Vals – að tengja foreldrana saman.
Því það skiptir miklu máli fyrir fólk sem er af
erlendum uppruna að kynnast foreldrum vina
barnanna. Oft er ekki auðvelt að koma inn á full-
orðinsárum í samfélag eins og það íslenska þar
sem fólk þekkist jafnvel allt frá því á leikskóla-
aldri. Oft er auðveldara að tengjast í stór-
borgum á fullorðinsárum en á minni svæðum
eins og Íslandi þar sem fjölskylduböndin eru
sterk.
Eins og áður sagði er Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands, verndari TUFF Ísland og segir
Friðjón að Guðni hafi strax áttað sig á þessum
mikilvægu skilaboðum sem TUFF er með – að
tengja börn úr ólíku umhverfi saman í gegnum í
íþróttir. Að koma í veg fyrir mismunun og skila-
boðin eru skýr – að tækifæri allra barna séu þau
sömu. Mjög mikilvægt sé að finna áhuga forseta
landsins á málefnum barna því þetta er málefni
sem eigi erindi við alla, ekki bara einstaka ráð-
herra heldur íslensk stjórnvöld sem heild. Að
tryggja jöfn tækifæri barna.
Auk þess að kynna TUFF í grunnskólum þá
hafa þau kynnt það í Pólska skólanum og þeim
spænska. Mikill áhugi er meðal pólskra nem-
enda en alls sækja 340-350 börn Pólska skólann
á laugardögum.
Spurð hvers vegna íþróttir og tómstundir
urðu fyrir valinu til að laða að börn og ungmenni
segja þau að þar sé hægt að kenna börnum við-
urkenndar reglur samfélagsins með því að
tengja þær við og yfirfæra reglur íþróttanna.
Þannig séu margar reglur sem eigi við bæði inn-
an og utan vallar. Í knattspyrnu er t.d. gula eða
rauða spjaldið, en í samfélaginu er sekt eða al-
varlegri afleiðingar.
Eða eins og segir í kynningarbæklingi TUFF
Ísland í Breiðholtinu: Auðveldara er fyrir börn
að tileinka sér skilaboðin í gegnum leikinn.
Áhersla er lögð á að kenna gagnkvæma virð-
ingu, umburðarlyndi og samkennd, óháð upp-
runa, þjóðerni, stétt, tungumáli, litarhætti,
trúarbrögðum, lífs- og stjórnmálaskoðunum,
kyn- og kynhneigð og annarri stöðu.
Áhersla á kynjajafnrétti
Sérstök áhersla var lögð á kynjajafnrétti og
eflingu stúlkna í gegnum íþróttir og segja þau
Hrund og Shamender að þar hafi mátt bæta
verulega úr, því mjög fáar stúlkur af erlendum
uppruna æfðu íþróttir í Breiðholtinu. „Þetta er
eitthvað sem við viljum breyta með TUFF,“
segir Hrund en alls konar mýtur séu í gangi um
aðgengi að íþróttum.
Þau segja einnig að mikilvægt sé að hafa í
huga að þátttaka í íþróttum geri ekki kröfu um
að viðkomandi sé framúrskarandi heldur hafi
gaman af og njóti þess að vera samvistum við
aðra krakka á sama reki.
Til þess að tryggja að þeim líði vel eru þjálf-
ararnir meðvitaðir um að fylgjast með þeim, að
þau eigi búnað sem þarf til og hafi möguleika á
að taka þátt í æfinga- og keppnisferðum þrátt
fyrir að þau búi við minni efni.
Aðstandendur TUFF á Íslandi segja íþrótta-
og tómstundafélögin gegna mikilvægu sam-
félagslegu hlutverki og með því að tengja saman
fleiri hópa verði vonandi hægt að draga úr
brottfalli framhaldsskólanema af erlendum
uppruna. Síðast en ekki síst – að koma í veg
fyrir að hér verði lagskipt samfélag eftir 10-20
ár.
„TUFF Ísland er án efa mikilvægasta mennt-
unar- og samfélagsverkefni sem framkvæmt er
hérlendis. Við vitum hvað það er mikilvægt að
börn og unglingar, burtséð frá bakgrunni eða
uppruna, upplifi sig sem hluta af heild. Það
styrkir sjálfsmynd þeirra, tryggir betri árangur
í námi og gefur þeim góðan grunn fyrir lífið. Í
raun erum við að tala um sameiginlega hags-
muni þjóðfélagsins í heild til framtíðar,“ segja
þau.
Morgunblaðið/Eggert
Stjórn Hrund Hafsteinsdóttir, Shamender Talwar og Friðjón Friðjónsson eru í stjórn TUFF.
Bessastaðir Guðni Th. Jóhanneson forseti brá sér í boltaleik við nokkra krakka á lóðinni fyrir framan forsetasetrið, þegar verkefnið var kynnt.
Jöfn tækifæri fyrir öll börn
TUFF-samtökin
sporna við fordómum
og brúa menningarlegt
bil milli barna af fjöl-
breyttum uppruna
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018