Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Umfjöllun um aðbúnað erlends starfsfólks sem kemur hingað í gegnum starfsmannaleigur gefur ekki rétta mynd af markaðnum. Þvert á móti er um undantekningar að ræða á íslenskum vinnumarkaði. Þetta segir Arthúr Vilhelm Jó- hannesson, framkvæmdastjóri Elju starfsmannaþjónustu, sem kveðst fagna umræðu um þessi mál. Á hinn bóginn vilji hann gera athugasemd við að allar starfs- mannaleigur séu settar undir einn hatt í þessu efni. Þau atriði sem gerðar voru at- hugasemdir við í umfjöllun frétta- skýringarþáttar- ins Kveiks á RÚV fyrr í haust eigi á engan hátt við starfsemi Elju. Um sé að ræða stærstu starfsmannaleigu landsins sem hafi haft milligöngu um ráðningu á um 2.000 starfsmönnum frá stofnun hennar haustið 2015. Víða væri pottur brotinn Ýmislegt aðfinnsluvert var dregið fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti. Dæmi voru tekin af erlendum starfs- mönnum sem bjuggu við slæman að- búnað og greiddu hátt hlutfall lágra launa í gistingu og fyrir afnot af bíl, án þess að hafa um það nokkurt val. Töldu viðmælendur sig svikna. Þeir hefðu verið blekktir til Íslands. Jafnframt var rætt við einstak- linga sem héldu því fram að brotið hefði verið á ýmsum rétti þeirra. Arthúr Vilhelm segir slík vinnu- brögð ekki liðin hjá Elju. Ráðningarferlið sé þannig að fyrst komi beiðni frá fyrirtæki sem þarf starfsfólk. Því næst setjist fulltrúar Elju niður með fulltrúum notenda- fyrirtækisins og fari yfir fjölda starfsmanna, í hversu langan tíma á að ráða þá, hver vinnustaðurinn er og vinnutími. Síðan er leitað að starfskrafti fyrir umrædda stöðu. „Við auglýsum ekki sjálf á Face- book, eða eitthvað slíkt, heldur erum við í samskiptum við ráðningarstofur sem miðla starfsfólki til Noregs, Þýskalands og annarra landa. Síðan gerum við mjög ítarlegt atvinnutil- boð, þar sem tilgreind eru laun fyrir dagvinnu, yfirvinnu, greiðslur í stéttarfélag og hvað er útborgað eftir að búið er að greiða skatta og skyldur til íslensks samfélags. Síðan senda ráðningarstofurnar umsóknir til okkar,“ segir Arthúr Vilhelm. Fara yfir starfskjörin Því næst kynni ráðningarfulltrúar Elju viðkomandi starfskröftum starfskjörin. Það sé gert jafnvel þótt ráðningarstofan erlendis eigi líka að kynna þeim málið. „Við förum í gegnum þessa hluti með umsækjendum. Við öflum svo allra nauðsynlegra gagna sem þarf. Við fáum til dæmis sakavottorð frá öllum og afrit af þeim gögnum sem óskað er, svo sem ökuskírteini og varðandi námsferil. Þegar við erum komin með gögnin bókum við flug fyrir starfsmann og sækjum hann við komuna. Það er keppikefli að blekkja engan til að koma til Íslands með gylliboðum því óánægður starfsmaður uppfyllir síð- ur þær kröfur sem fyrirtækin gera til okkar. Flestir koma hingað til að bæta lífskjör sín, breyta til og leita að nýjum áskorunum. Það er okkur í hag, starfsmönnunum og fyrirtækj- unum sem leita til okkar að allir séu sáttir við hlutskipti sitt. Ef starfs- maðurinn kýs að leigja af okkur hús- næði bjóðum við honum það, þótt það sé ekki skilyrði fyrir vinnu held- ur viðbótarþjónusta. Svo kemur hann hingað á skrifstofuna í skjala- gerð,“ segir Arthúr Vilhelm. Hann áætlar að 75-80% umsækj- enda kjósi að leigja húsnæði af Elju. Fyrirtækið sé með tvö fjölbýlishús á Ásbrú og húsnæði í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Húsaleigan sé 55 þúsund á mánuði á Ásbrú og 75 þúsund á höfuðborgar- svæðinu. Að jafnaði séu tveir í her- bergi nema annars sé óskað. Vel sé búið að starfsfólkinu. Eins og á gistiheimilum „Það má segja um allt þetta hús- næði að það sé eins og gistiheimili. Þar bíða starfsmanna uppábúin rúm. Þeir þurfa því aðeins að mæta. Inni- falið er húsbúnaður, internet, hiti, rafmagn, öll eldhúsáhöld, þvottavél og þurrkari. Það er allt til staðar.“ Spurður hvort þetta sé sanngjörn leiga kveðst Arthúr Vilhelm skilja ef einhverjir telji þetta háa leigu, sér- staklega þegar fólk kemur frá lönd- um þar sem þessi kostnaður er hlut- fallslega mun lægri. Staðreyndin sé hins vegar sú að Elja stjórni ekki leigumarkaðnum. Gjöldin séu hér umfram tekjur þar sem nýtingin á húsnæðinu sem Elja greiðir fyrir er mjög misjöfn eftir árstíma. Stundum standi herbergi auð. Fyrirtækið leigi húsnæði af leigufélögum. Tekjurnar verði að standa straum af því. Elja hafi fengið á sig hækkanir en ekki velt þeim yfir í leiguna. Hjá Elju sé hvorki kveðið á um lágmarks leigutíma né óskað sér- stakrar tryggingar og starfsmönn- um sé alltaf frjálst að segja upp hús- næðinu með mánaðar fyrirvara. Slík uppsögn hafi engin áhrif á ráðn- ingarsambandið. Spurður um gæði húsnæðisins segir Arthúr Vilhelm að um sé að ræða hefðbundið íbúðarhúsnæði. Sóttir í sumum tilvikum Spurður um samgöngumál segir Arthúr Vilhelm að Elja kynni það alltaf í sínum atvinnutilboðum að launþegi beri sjálfur ábyrgð á að koma sér til og frá vinnu. Í sumum tilfellum séu starfsmenn sóttir að morgni og þeim ekið heim í lok dags, til dæmis ef vinnutími hefst áður en Strætó fer að ganga. Elja bjóðist til að hafa milligöngu um að kaupa strætókort hafi viðkomandi áhuga. Elja bjóði ekki upp á þann valkost að fyrra bragði að leigja starfsmönnum bifreið til sameiginlegra afnota. Arthúr Vilhelm segir fyrirtæki eins og Elju standa rétt að hlutun- um. Þau ráði ekki hingað til lands menn á fölskum forsendum. Þá séu þau ekki að draga hin og þessi gjöld af launum starfsmanna, eða að hýsa þá í óviðunandi húsnæði. Fram kom í áðurnefndum þætti Kveiks að dæmi séu um að erlendir starfsmenn starfsmannaleiga starfi við hættulegar aðstæður. Þá væri misbrestur á því að starfsfólkið hefði aðgang að salernisaðstöðu. Arthúr Vilhelm segir slíkt ekki eiga við starfsmenn á vegum Elju. „Almennt eru fyrirtækin sem eru í viðskiptum hjá okkur flott fyrirtæki sem er annt um sína ímynd og sína starfsmenn. Það kemur skýrt fram í okkar ráðningarsamningum milli starfsmanna og notendafyrirtækis að starfsmenn eiga að njóta ná- kvæmlega sömu aðstöðu og aðrir. Þá m.a. varðandi aðgang að mötuneyti og öllu slíku, áður en við hefjum sam- skipti. Starfsmaður úr starfsmanna- deild okkar keyrir starfsmenn til vinnu fyrsta daginn og er í samskipt- um við verkstjóra á staðnum. Þá er farið í gegnum hefðbundin mál og út- skýrt fyrir viðkomandi hvernig mat- armál eru á vinnustað, hver kostn- aðurinn er af því og svo framvegis. Starfsmaðurinn tekur svo upplýsta ákvörðun um hvort hann kjósi að taka þátt í matarbökkum, eða því fyrirkomulagi sem er við lýði.“ Bjóðast bónusgreiðslur Að sama skapi bjóðist erlendu starfsfólki sömu kjör og íslensku. Greitt sé fyrir yfirvinnu samkvæmt kjarasamningum. Allir ráðningar- samningar séu yfirfarnir af Vinnu- málastofnun, sem geri m.a. reglu- lega úttektir á tímaskýrslum, og Elja hafi fengið það staðfest frá stéttarfélögum að engin mál séu til skoðunar sem varða starfsmenn fyrirtækisins og hagsmuni þeirra. Mikið sé lagt upp úr góðu samstarfi við alla hagsmunaaðila. Það stuðli enda að starfsánægju starfsmanna og ánægðum viðskiptavinum. „Við óskum eftir því og spyrjum, þegar við hefjum samningaviðræður, hvort einhverjir sérkjarasamningar séu í gangi, sem eru þá ekki sjáan- legir á heimasíðum stéttarfélaga. Þá upplýsa fyrirtækin okkur um það. Margir starfsmenn hjá okkur fá alls- kyns bónusa, til dæmis fyrir mæt- ingu og afköst. Við höfum til dæmis verið með sölumenn hjá bílaleigum á Keflavíkurflugvelli og þar er verið að greiða bónusa,“ segir Arthúr. Vel hugsað um starfsfólkið  Framkvæmdastjóri Elju starfsmannaþjónustu fagnar umræðu um starfsmannaleigur  Umræðan undanfarið endurspegli þó ekki markaðinn í heild  Elja bjóði erlendu starfsfólki sömu kjör og innlendu Morgunblaðið/Ómar Uppgangur Margir erlendir ríkisborgarar hafa flutt til Íslands síðustu ár. Arthúr Vilhelm Jóhannesson Alþýðusamband Íslands og Sam- tök atvinnulífsins gerðu síðast- liðið vor með sér samkomulag um að koma upp sérstöku vottunar- kerfi um laun og starfskjör starfs- manna starfsmannaleiga. Við það tilefni var bent á að starfsmenn starfsmannaleiga væru nær undantekningarlaust er- lendir. Því væri ríkari þörf fyrir eftirlit með kjörum. Síðastliðið vor voru 30 starfsmannaleigur skráð- ar hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt samkomulaginu gefst starfsmannaleigum nú kost- ur á að undirgangast launaeftirlit af hálfu stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins, sem felur í sér margvísleg skilyrði. Arthúr Vilhelm segir að til að fá viðurkennda vott- un þurfi að sýna fram á að starfs- menn njóti réttra kjara, starfs- mannaleigurnar þurfa að hafa starfað í minnst 12 mánuði og ekki hafa brotið lög eða kjarasamninga í þrjú ár. Til að uppfylla skilyrðin þurfi fyrirtækin að afhenda afrit af yfirliti yfir fjölda starfsmanna, ráðningarsamninga, vinnutíma- skýrslur, launaseðla og annað. Arthúr Vilhelm rifjar aðspurður upp að keðjuábyrgð feli í sér að notendafyrirtæki, sem sé efst í keðjunni, beri ábyrgð á undir- verktökum sem starfa fyrir það. Sé ekki rétt farið að lögum og reglum geti sá kostnaður fallið á notenda- fyrirtækið. Þegar ofangreint samkomulag ASÍ og SA var kynnt hafi Elja því strax sótt um að vera viðurkennd starfsmannaleiga. „Tilgangurinn með þessu hjá ASÍ og SA er að reyna að ná ákveðinni sátt um þessa starf- semi. Viðurkennt er að hún sé komin til að vera og reynt að stuðla að góðum vinnubrögðum með þessari viðurkenningu. Þar með myndu til dæmis SA og önnur samtök vísa á Elju sem samþykkta starfsmannaleigu, enda séu hlut- irnir hér í lagi,“ segir Arthúr. Skv. tölum Vinnumálastofnunar voru 1.400 skráðir hjá starfs- mannaleigum í september, eða um 30% færri en september í fyrra. Þurfa að uppfylla margvísleg skilyrði til að fá vottun VOTTUNARKERFI OG STARFSMANNALEIGUR Morgunblaðið/Eggert Framkvæmdir Vinnumarkaður hefur vaxið ört á undanförnum árum. BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.