Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umfjöllun um aðbúnað erlends
starfsfólks sem kemur hingað í
gegnum starfsmannaleigur gefur
ekki rétta mynd af markaðnum.
Þvert á móti er um undantekningar
að ræða á íslenskum vinnumarkaði.
Þetta segir Arthúr Vilhelm Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri Elju
starfsmannaþjónustu, sem kveðst
fagna umræðu um þessi mál. Á hinn
bóginn vilji hann
gera athugasemd
við að allar starfs-
mannaleigur séu
settar undir einn
hatt í þessu efni.
Þau atriði sem
gerðar voru at-
hugasemdir við í
umfjöllun frétta-
skýringarþáttar-
ins Kveiks á RÚV
fyrr í haust eigi á
engan hátt við starfsemi Elju. Um sé
að ræða stærstu starfsmannaleigu
landsins sem hafi haft milligöngu um
ráðningu á um 2.000 starfsmönnum
frá stofnun hennar haustið 2015.
Víða væri pottur brotinn
Ýmislegt aðfinnsluvert var dregið
fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti.
Dæmi voru tekin af erlendum starfs-
mönnum sem bjuggu við slæman að-
búnað og greiddu hátt hlutfall lágra
launa í gistingu og fyrir afnot af bíl,
án þess að hafa um það nokkurt val.
Töldu viðmælendur sig svikna. Þeir
hefðu verið blekktir til Íslands.
Jafnframt var rætt við einstak-
linga sem héldu því fram að brotið
hefði verið á ýmsum rétti þeirra.
Arthúr Vilhelm segir slík vinnu-
brögð ekki liðin hjá Elju.
Ráðningarferlið sé þannig að fyrst
komi beiðni frá fyrirtæki sem þarf
starfsfólk. Því næst setjist fulltrúar
Elju niður með fulltrúum notenda-
fyrirtækisins og fari yfir fjölda
starfsmanna, í hversu langan tíma á
að ráða þá, hver vinnustaðurinn er
og vinnutími. Síðan er leitað að
starfskrafti fyrir umrædda stöðu.
„Við auglýsum ekki sjálf á Face-
book, eða eitthvað slíkt, heldur erum
við í samskiptum við ráðningarstofur
sem miðla starfsfólki til Noregs,
Þýskalands og annarra landa. Síðan
gerum við mjög ítarlegt atvinnutil-
boð, þar sem tilgreind eru laun fyrir
dagvinnu, yfirvinnu, greiðslur í
stéttarfélag og hvað er útborgað
eftir að búið er að greiða skatta og
skyldur til íslensks samfélags. Síðan
senda ráðningarstofurnar umsóknir
til okkar,“ segir Arthúr Vilhelm.
Fara yfir starfskjörin
Því næst kynni ráðningarfulltrúar
Elju viðkomandi starfskröftum
starfskjörin. Það sé gert jafnvel þótt
ráðningarstofan erlendis eigi líka að
kynna þeim málið.
„Við förum í gegnum þessa hluti
með umsækjendum. Við öflum svo
allra nauðsynlegra gagna sem þarf.
Við fáum til dæmis sakavottorð frá
öllum og afrit af þeim gögnum sem
óskað er, svo sem ökuskírteini og
varðandi námsferil.
Þegar við erum komin með gögnin
bókum við flug fyrir starfsmann og
sækjum hann við komuna. Það er
keppikefli að blekkja engan til að
koma til Íslands með gylliboðum því
óánægður starfsmaður uppfyllir síð-
ur þær kröfur sem fyrirtækin gera
til okkar. Flestir koma hingað til að
bæta lífskjör sín, breyta til og leita
að nýjum áskorunum. Það er okkur í
hag, starfsmönnunum og fyrirtækj-
unum sem leita til okkar að allir séu
sáttir við hlutskipti sitt. Ef starfs-
maðurinn kýs að leigja af okkur hús-
næði bjóðum við honum það, þótt
það sé ekki skilyrði fyrir vinnu held-
ur viðbótarþjónusta. Svo kemur
hann hingað á skrifstofuna í skjala-
gerð,“ segir Arthúr Vilhelm.
Hann áætlar að 75-80% umsækj-
enda kjósi að leigja húsnæði af Elju.
Fyrirtækið sé með tvö fjölbýlishús á
Ásbrú og húsnæði í Reykjavík,
Kópavogi og Hafnarfirði.
Húsaleigan sé 55 þúsund á mánuði
á Ásbrú og 75 þúsund á höfuðborgar-
svæðinu. Að jafnaði séu tveir í her-
bergi nema annars sé óskað. Vel sé
búið að starfsfólkinu.
Eins og á gistiheimilum
„Það má segja um allt þetta hús-
næði að það sé eins og gistiheimili.
Þar bíða starfsmanna uppábúin rúm.
Þeir þurfa því aðeins að mæta. Inni-
falið er húsbúnaður, internet, hiti,
rafmagn, öll eldhúsáhöld, þvottavél
og þurrkari. Það er allt til staðar.“
Spurður hvort þetta sé sanngjörn
leiga kveðst Arthúr Vilhelm skilja ef
einhverjir telji þetta háa leigu, sér-
staklega þegar fólk kemur frá lönd-
um þar sem þessi kostnaður er hlut-
fallslega mun lægri.
Staðreyndin sé hins vegar sú að
Elja stjórni ekki leigumarkaðnum.
Gjöldin séu hér umfram tekjur þar
sem nýtingin á húsnæðinu sem Elja
greiðir fyrir er mjög misjöfn eftir
árstíma. Stundum standi herbergi
auð. Fyrirtækið leigi húsnæði af
leigufélögum. Tekjurnar verði að
standa straum af því. Elja hafi fengið
á sig hækkanir en ekki velt þeim yfir
í leiguna. Hjá Elju sé hvorki kveðið á
um lágmarks leigutíma né óskað sér-
stakrar tryggingar og starfsmönn-
um sé alltaf frjálst að segja upp hús-
næðinu með mánaðar fyrirvara. Slík
uppsögn hafi engin áhrif á ráðn-
ingarsambandið.
Spurður um gæði húsnæðisins
segir Arthúr Vilhelm að um sé að
ræða hefðbundið íbúðarhúsnæði.
Sóttir í sumum tilvikum
Spurður um samgöngumál segir
Arthúr Vilhelm að Elja kynni það
alltaf í sínum atvinnutilboðum að
launþegi beri sjálfur ábyrgð á að
koma sér til og frá vinnu. Í sumum
tilfellum séu starfsmenn sóttir að
morgni og þeim ekið heim í lok dags,
til dæmis ef vinnutími hefst áður en
Strætó fer að ganga. Elja bjóðist til
að hafa milligöngu um að kaupa
strætókort hafi viðkomandi áhuga.
Elja bjóði ekki upp á þann valkost að
fyrra bragði að leigja starfsmönnum
bifreið til sameiginlegra afnota.
Arthúr Vilhelm segir fyrirtæki
eins og Elju standa rétt að hlutun-
um. Þau ráði ekki hingað til lands
menn á fölskum forsendum. Þá séu
þau ekki að draga hin og þessi gjöld
af launum starfsmanna, eða að hýsa
þá í óviðunandi húsnæði.
Fram kom í áðurnefndum þætti
Kveiks að dæmi séu um að erlendir
starfsmenn starfsmannaleiga starfi
við hættulegar aðstæður. Þá væri
misbrestur á því að starfsfólkið hefði
aðgang að salernisaðstöðu.
Arthúr Vilhelm segir slíkt ekki
eiga við starfsmenn á vegum Elju.
„Almennt eru fyrirtækin sem eru í
viðskiptum hjá okkur flott fyrirtæki
sem er annt um sína ímynd og sína
starfsmenn. Það kemur skýrt fram í
okkar ráðningarsamningum milli
starfsmanna og notendafyrirtækis
að starfsmenn eiga að njóta ná-
kvæmlega sömu aðstöðu og aðrir. Þá
m.a. varðandi aðgang að mötuneyti
og öllu slíku, áður en við hefjum sam-
skipti. Starfsmaður úr starfsmanna-
deild okkar keyrir starfsmenn til
vinnu fyrsta daginn og er í samskipt-
um við verkstjóra á staðnum. Þá er
farið í gegnum hefðbundin mál og út-
skýrt fyrir viðkomandi hvernig mat-
armál eru á vinnustað, hver kostn-
aðurinn er af því og svo framvegis.
Starfsmaðurinn tekur svo upplýsta
ákvörðun um hvort hann kjósi að
taka þátt í matarbökkum, eða því
fyrirkomulagi sem er við lýði.“
Bjóðast bónusgreiðslur
Að sama skapi bjóðist erlendu
starfsfólki sömu kjör og íslensku.
Greitt sé fyrir yfirvinnu samkvæmt
kjarasamningum. Allir ráðningar-
samningar séu yfirfarnir af Vinnu-
málastofnun, sem geri m.a. reglu-
lega úttektir á tímaskýrslum, og
Elja hafi fengið það staðfest frá
stéttarfélögum að engin mál séu til
skoðunar sem varða starfsmenn
fyrirtækisins og hagsmuni þeirra.
Mikið sé lagt upp úr góðu samstarfi
við alla hagsmunaaðila. Það stuðli
enda að starfsánægju starfsmanna
og ánægðum viðskiptavinum.
„Við óskum eftir því og spyrjum,
þegar við hefjum samningaviðræður,
hvort einhverjir sérkjarasamningar
séu í gangi, sem eru þá ekki sjáan-
legir á heimasíðum stéttarfélaga. Þá
upplýsa fyrirtækin okkur um það.
Margir starfsmenn hjá okkur fá alls-
kyns bónusa, til dæmis fyrir mæt-
ingu og afköst. Við höfum til dæmis
verið með sölumenn hjá bílaleigum á
Keflavíkurflugvelli og þar er verið að
greiða bónusa,“ segir Arthúr.
Vel hugsað um starfsfólkið
Framkvæmdastjóri Elju starfsmannaþjónustu fagnar umræðu um starfsmannaleigur Umræðan
undanfarið endurspegli þó ekki markaðinn í heild Elja bjóði erlendu starfsfólki sömu kjör og innlendu
Morgunblaðið/Ómar
Uppgangur Margir erlendir ríkisborgarar hafa flutt til Íslands síðustu ár.
Arthúr Vilhelm
Jóhannesson
Alþýðusamband Íslands og Sam-
tök atvinnulífsins gerðu síðast-
liðið vor með sér samkomulag um
að koma upp sérstöku vottunar-
kerfi um laun og starfskjör starfs-
manna starfsmannaleiga.
Við það tilefni var bent á að
starfsmenn starfsmannaleiga
væru nær undantekningarlaust er-
lendir. Því væri ríkari þörf fyrir
eftirlit með kjörum. Síðastliðið vor
voru 30 starfsmannaleigur skráð-
ar hjá Vinnumálastofnun.
Samkvæmt samkomulaginu
gefst starfsmannaleigum nú kost-
ur á að undirgangast launaeftirlit
af hálfu stéttarfélaga og Samtaka
atvinnulífsins, sem felur í sér
margvísleg skilyrði. Arthúr Vilhelm
segir að til að fá viðurkennda vott-
un þurfi að sýna fram á að starfs-
menn njóti réttra kjara, starfs-
mannaleigurnar þurfa að hafa
starfað í minnst 12 mánuði og ekki
hafa brotið lög eða kjarasamninga
í þrjú ár. Til að uppfylla skilyrðin
þurfi fyrirtækin að afhenda afrit af
yfirliti yfir fjölda starfsmanna,
ráðningarsamninga, vinnutíma-
skýrslur, launaseðla og annað.
Arthúr Vilhelm rifjar aðspurður
upp að keðjuábyrgð feli í sér að
notendafyrirtæki, sem sé efst í
keðjunni, beri ábyrgð á undir-
verktökum sem starfa fyrir það. Sé
ekki rétt farið að lögum og reglum
geti sá kostnaður fallið á notenda-
fyrirtækið.
Þegar ofangreint samkomulag
ASÍ og SA var kynnt hafi Elja því
strax sótt um að vera viðurkennd
starfsmannaleiga.
„Tilgangurinn með þessu hjá
ASÍ og SA er að reyna að ná
ákveðinni sátt um þessa starf-
semi. Viðurkennt er að hún sé
komin til að vera og reynt að
stuðla að góðum vinnubrögðum
með þessari viðurkenningu. Þar
með myndu til dæmis SA og önnur
samtök vísa á Elju sem samþykkta
starfsmannaleigu, enda séu hlut-
irnir hér í lagi,“ segir Arthúr.
Skv. tölum Vinnumálastofnunar
voru 1.400 skráðir hjá starfs-
mannaleigum í september, eða um
30% færri en september í fyrra.
Þurfa að uppfylla margvísleg
skilyrði til að fá vottun
VOTTUNARKERFI OG STARFSMANNALEIGUR
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir Vinnumarkaður hefur
vaxið ört á undanförnum árum.
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is