Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 30

Morgunblaðið - 01.11.2018, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 Afar lág tilboð bárust í jarðvinnu við nýbyggingu Byggðastofnunar á Sauðárkróki, en þau voru opnuð 23. október sl. Fjögur tilboð bárust í verkið og voru þau öll undir 50% af kostn- aðaráætlun, sem telst til tíðinda. Vinnuvélar Símonar ehf. buðu krónur 12.376.400 eða 32,10% af kostnaðaráætlun, sem var kr. 38.557.000. Karína ehf. bauð kr. 12.730.650 (33,0% af kostnaðar- áætlun), Þórður Hansen ehf. kr. 16.539.275 (42,9%) og Víðimels- bræður ehf. kr. 17.819.050 (46,2%). Framkvæmdasýsla ríkisins fer nú yfir tilboðin. Hið nýja hús Byggðastofnunar mun standa í Sauðármýri 2 á Sauð- árkróki. Byggingin verður 998 fer- metrar á tveimur hæðum og með kjallara undir hluta hússins. sisi@mbl.is Lág tilboð í jarðvinnu Byggðastofnun Hin nýja bygging verður tæpir þúsund fermetrar. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Þjóðræknisfélag Íslendinga stendur fyrir fræðslufundi í dag í húsakynnum utanríkis- ráðuneytisins. Þar flytja erindi þær Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Sandra Björg Ernudóttir, þjóðfræðingur og stjórnar- maður í félaginu. Fundurinn hefst kl. 17 og er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. „Hvað er ég núna? Sjálfsmyndarsköpun ungra Vestur-Íslendinga á 21. öld“ er yfirskrift erindis Söndru. Þar kynnir hún helstu niður- stöður BA-ritgerðar sinnar í þjóðfræði. Hún fór utan til Kanada á síðasta ári, í tengslum við Snorraverkefnið sem Þjóð- ræknisfélagið hefur staðið fyrir mörg undan- farin ár. Þar ræddi hún við nokkur ungmenni sem öll áttu það sameiginlegt að hafa komið til Íslands á vegum sama verkefnis. Frá 1870 til 1914 fluttist fjöldi fólks frá Ís- landi vestur yfir haf í leit að betri lífsgæðum en buðust á Íslandi. Flestir settust að í Kanada en einnig á öðrum stöðum í Norður-Ameríku. Eft- ir því sem afkomendum þessa fólks fjölgar verður sífellt erfiðara að viðhalda íslenskri arf- leifð þess. Breytti sýn þeirra Í erindi sínu beinir Sandra sjónum beint að því hvernig ungir Vestur-Íslendingar skil- greina íslenska sjálfsmynd sína, hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf þeirra og hvaða áhrif það hefur að koma á slóðir forfeðranna á Ís- landi. „Upplifun þeirra á að koma hingað til lands og kynnast íslenskum rótum breytti sýn þeirra á sjálfsmynd sína. Sjálfsmyndin varð sterkari á eftir, það er helsta niðurstaða mín,“ segir Sandra. Ungmenni í Snorraverkefninu dvelja jafnan hjá ættingjum sínum hér á landi og það finnst þeim mjög merkilegt, segir Sandra, sér- staklega ef skyldleikinn er mikill. Viðmælendur hennar hafa mismunandi bak- grunn þó að öll búi ungmennin í Alberta-fylki, þangað sem Sandra ferðaðist í fjórar vikur á síðasta ári. „Þau eru mismikið tengd Íslandi og sum hafa fjölþjóðlegan bakgrunn. Það hefur eðlilega áhrif á sjálfsmynd þeirra,“ segir hún. Einn viðmælandi talar íslensku en tungu- málið lærði hann einmitt eftir að hafa verið hér á landi á vegum verkefnisins. Önnur viðtöl Söndru fóru alfarið fram á ensku. „Hann heill- aðist af landi og þjóð og tók upp á því sjálfur að læra íslensku. Það eina sem tengdi hann við landið var nafnið hans og hann gat sagt eitt og eitt orð á íslensku, annað var það ekki. Hann hefur síðan viðhaldið kunnáttunni,“ segir Sandra, en öll vesturíslensk ungmenni sem hingað koma á vegum Snorraverkefnisins sækja tveggja vikna íslenskunámskeið í Há- skóla Íslands. Þegar heim er komið er allur gangur á því hve vel ungmennin halda íslensku tengslunum. Þau eru t.d. misjafnlega virk í starfsemi Ís- lendingafélaganna í Vesturheimi. „Ég fann það alveg klárlega að þau halda ís- lensku tenginguna í heiðri, eru stolt af því að vera Vestur-Íslendingar. Um leið fann ég það líka að þau eru hrædd um að með tímanum geti þessi tengsl dofnað. Þess vegna eru svona verkefni eins og Snorraverkefnið gríðarlega mikilvæg,“ segir Sandra. Hún segist reikna með að skoða þetta við- fangsefni nánar, hún láti ekki þar við sitja eftir BA-ritgerðina. „Mér fannst áhugavert að sjá hvað Ísland stóð þeim nærrri eftir Snorraverkefnið. Allt í einu eru sögurnar, sem þau fengu að heyra á uppvaxtarárum, gæddar lífi og þau geta sett sig betur inn í þær. Áður en þau komu hingað voru þau ekki mjög meðvituð um íslenskar rætur sínar. Þegar heim kom spurði ein sig: Hvað er ég núna?“ Fagleg tengsl við söfn Erindi Margrétar nefnist „Menningararfur íslenskra landnema í Vesturheimi. Þjóðminjar, minningar og veganesti.“ Mun Margrét m.a. greina frá samvinnu Þjóðminjasafns Íslands og nýju norrænu safni í Seattle í Bandaríkj- unum, Nordic Museum, sem var opnað sl. vor. Einnig segir hún frá heimsóknum sínum til Seattle og Norður-Dakóta í Bandaríkjunum og Vancouver og Winnipeg í Kanada þar sem markmiðið var að styrkja fagleg tengsl við söfn og einstaklinga um varðveislu, rannsóknir og miðlun sameiginlegs menningararfs. Þá grein- ir hún frá hugleiðingum sínum sem vöknuðu um menningartengsl og sameiginlegar rætur, og leitast við að setja í samhengi við aðstæður í nútímanum á tímum aukins hreyfanleika fólks. „Ég mun einnig beina sjónum að þeim breyt- ingum sem hafa orðið frá því að Íslendingar námu land í Vesturheimi. Þjóðminjasafn Ís- lands var stofnað árið 1862, á þeim tíma þegar stór hluti Íslendinga flutti búferlum til Vestur- heims í leit að betra lífi. Ég mun fjalla um sam- félagsbreytingar síðan, fullveldisafmæli og sjálfstæðisbaráttu og hlutverk Þjóðminjasafns Íslands í þeirri vegferð. Síðast en ekki síst mun ég beina sjónum að aðstæðum okkar í dag og hvernig við tökum á móti flóttamönnum sem hingað koma í leit að frelsi og betra lífi,“ segir Margrét. Morgunblaðið/Golli Vestur-Íslendingar Á undanförnum árum hafa fjölmörg ungmenni af vesturíslenskum ættum komið til Íslands í tengslum við Snorraverkefnið. Einnig hafa íslensk ungmenni farið vestur. Heimsókn á slóð for- feðra breytti miklu  Ný rannsókn meðal ungra Vestur-Íslendinga kynnt  Þjóðræknisfélagið með fræðslufund í dag Sandra Björg Ernudóttir Margrét Hallgrímsdóttir Þjóðræknisfélag Íslendinga (ÞFÍ) fagnar 80 ára afmæli á næsta ári og stendur margt fyrir dyrum á afmælisárinu, að sögn Hjálmars W. Hannessonar formanns. Meðal viðburða er hópferð til Winnipeg í maí nk. en á næsta ári verður Þjóðræknisfélag Íslendinga í N- Ameríku 100 ára. Fræðslufundurinn í dag er hluti af reglulegri starfsemi ÞFÍ, sem heldur fræðslufundi að vori og hausti. Þjóðræknisþing er haldið ár- lega. Á síðasta þingi, í ágúst sl., var Svavar Gestsson, fv. sendiherra, heiðraður fyrir formannsstörf í heiðursráði félagsins, sem og Sunna Furstenau, fráfarandi forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í N- Ameríku. Meðal ræðumanna á þjóðræknisþinginu var Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra, þá nýkomin frá hátíðarhöldum á Íslend- ingaslóðum í Norður-Dakóta og Gimli. Félagið heldur úti vefsíðu, inl.is, og sendir frá sér 2-4 fréttabréf á ári. Félagsmenn eru um 500 talsins. Undirbúa hópferð til Winnipeg ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGIÐ VERÐUR 80 ÁRA Á NÆSTA ÁRI Hjálmar W. Hannesson Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Síðumúli 13 • 108 Reykjavík • 552 9641 • seimei.is seimeiisland • seimei.is Opið mánud.-fimmtud. kl. 12-18, föstud. og laugard. kl. 12-16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.