Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Valdataflið ræðst í fulltrúadeildinni
FRÉTTASKÝRING
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Á þriðjudaginn í næstu viku ganga
Bandaríkjamenn að kjörborðinu.
Kosið verður m.a. um 35 þingsæti í
öldungadeildinni, 39 ríkisstjórastóla,
öll 435 þingsæti í fulltrúadeildinni og
fjölmarga bæjar- og héraðsstjóra-
stóla. Augu flestra verða hins vegar
á fulltrúadeildinni á þriðjudaginn en
samkvæmt könnunum er þar að
finna stærsta möguleika demókrata
til að ná einhverjum völdum í þinginu
að nýju. Talnasnillingum vestanhafs
brást þó heldur betur bogalistin í
forsetakosningunum 2016 og því má
ekki útiloka óvæntar niðurstöður.
Áhugi kjósenda er síðan í sögulegu
hámarki. Í sameiginlegri könnun
NBC News og The Wall Street
Journal sögðust 65% svarenda hafa
mikinn áhuga á kosningunum í ár.
Slíkar tölur eru sjaldséðar en áður
var áhugi mestur árið 2006 þegar
61% svarenda höfðu mikinn áhuga á
þingkosningunum. Andstaða við
Íraksstríð og óvinsældir George W.
Bush forseta áttu þar stóran þátt í að
demókratar unnu báðar deildir
þingsins sem og fjölda ríkisstjóra-
stóla.
23 þingsæti til að velta húsinu
Samkvæmt pólitíska gagna-
fyrirtækinu TargetSmart hafði 8,1
milljón kjósendur kosið utankjör-
fundar þegar tvær vikur voru til
kosninga. Það eru um 200 þúsund
fleiri en höfðu kosið á sama tíma fyr-
ir forsetakosningarnar 2016. Sam-
kvæmt TargetSmart hafa Georgía,
Tennessee og Texas séð meira en
500.000 fleiri utankjörfundaatkvæði
hvor í ár en í þingkosningunum 2014.
Ómögulegt er að segja hvað áhrif
þessi atkvæðafjöldi mun hafa en allt
stefnir í að erfitt verður að kenna lé-
legri kjörsókn um niðurstöðu þing-
kosninganna. Kjörsókn í Bandaríkj-
unum er mun minni en við þekkjum á
Íslandi en að meðaltali kjósa um 60%
þeirra sem eru á kjörskrá í forseta-
kosningum og um 40% í þingkosn-
ingum.
Í fulltrúadeildinni eru 435 þing-
sæti og þarf því 218 þingsæti til að ná
meirihluta. Repúblikanaflokkurinn
er með meirihluta með alls 235 þing-
menn á móti 193 þingmönnum demó-
krata. Samkvæmt Cook Political Re-
port eru ríkir óvissa um 75 þingsæti.
Hafa ber í huga að þessi tala getur
tekið breytingum en það þýðir að
rúmlega einn sjötti Bandaríkja-
manna mun hafa úrslitavald um
hverjir fara með meirihluta í full-
trúadeildinni. Þingmenn repúblik-
ana sitja í 70 af þessum 75 þingsæt-
um en demókratar þurfa einungis að
vinna 23 sæti til að ná meirihluta.
Afskastalítið þing almúgans
Það er oft talað um fulltrúadeild-
ina sem „hús fólksins“ í Bandaríkj-
unum. Sögulega er hún mjög af-
kastalítil þingdeild enda báru feður
stjórnarskrár Bandaríkjanna ekki
mikið traust til almúgans. Þá ber að
hafa í huga að á síðustu árum hafa
bæði þing verið sögulega afkastalítil
og því ekki jafn mikill munur á þeim
fjölda lagafrumvarpa sem verða að
lögum í deildunum tveimur.
Þingmenn fulltrúadeildarinnar
þurfa að sæta endurkjöri á tveggja
ári fresti og er neðri þingdeildin því
líklegri til að taka þátt í samfélags-
legum sveiflum. Sást það vel með te-
boðshreyfingunni í tíð Obama. Fjöldi
þingsæta í fulltrúadeildinni skiptist
oftast mjög ójafnt milli flokka. Þar
sem einungis þarf hreinan meiri-
hluta til að samþykkja lagafrumvarp,
sem veldur þetta því að lítil þörf er á
samvinnu flokkanna hverju sinni.
Stærsta valdið sem fulltrúadeildin
fer með er fjárveitingavald fyrir
ríkið. Í daglegu tali í Bandaríkjunum
er þetta oft nefnt „valdið yfir vesk-
inu“ sem sögulega hefur valdið pólit-
ískum átökum milli forseta Banda-
ríkjanna og fulltrúadeildarinnar.
Á þessum tímapunkti eru demó-
kratar taldir líklegir til að vinna allt á
bilinu frá 20 til 40 þingsæti í full-
trúadeildinni og því skiptir síðasta
vikan miklu máli.
1. kjördæmi Wisconsin
Kjörseðill 1. kjördæmis Wiscons-
in-ríkis mun í fyrsta sinn síðan 1998
ekki hafa Paul Ryan sem valmögu-
leika. Ryan, forseti þingdeildarinnar
og fyrrverandi varaforsetaefni Mitt
Þingkosningar í Bandaríkjunum næsta þriðjudag Eina leið demókrata að völdum virðist vera
fulltrúadeildin Orrustuflugmaður, stálverkamaður og sigurvegari í lottóinu reyna að ná þingsæti
AFP
Frambjóðendur Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er meðal þeirra sem hafa stutt Randy Bryce (f.m.) opinberlega. Á myndinni má sjá Dan
Kohl (t.v.) frambjóðanda til 6. kjördæmis Wisconsin, Bryce, Obama og Gwen Moore sitjandi þingmann 4. kjördæmis Wisconsin á kosningaviðburði.
AFP
Lukkunnar pamfíll Gil Cisneros, vann um 300 milljónir dala í Mega millions-
lottóinu. Hann er núna í framboði fyrir demókrata í 39. kjördæmi Kaliforníu.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3