Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Ekkert er mikil-
vægara fyrir menn-
ingu okkar og tilvist
sem sjálfstæðrar
þjóðar heldur en
tungumálið okkar, ís-
lenskan. Fyrir hvern
einstakling er góð
kunnátta í móðurmál-
inu og lesskilningur
líka mikilvægari enn
allt annað nám, sjálf-
ur grunnurinn í öllu
öðru námi. Sígild sannindi, sem
standa þarf vörð um, nú sem aldrei
fyrr. Það er því sannarlega ástæða
til þess að fagna þeirri víðtæku
samstöðu sem náðst hefur um að
gera sérstakt átak í að efla móð-
urmálskennsluna í skólum lands-
ins. Hvort tveggja er að sú kynslóð
sem nú vex úr grasi lifir í alþjóð-
legu málaumhverfi þar sem áhrif
enskrar tungu eru miklu sterkari
nú en áður var og eins hitt að ís-
lenskan er í stöðugri þróun þar
sem ný og ný orð verða til. Sum
nýyrðin urðu reyndar ekki langlíf,
þar til önnur betri orð tóku við.
Má til gamans nefna hér tvö dæmi:
Við sem eldri erum orðin munum
eftir því að sum góð orð, sem mik-
ið eru notuð í daglegu máli, báru
allt annað heiti í upphafi. Þannig
lifði orðið þrýstiloftsflugvél í þó
nokkur ár, áður en orðið þota kom
til og „rafeindaheili“ var orðið sem
notað var á undan tölvu. Það mun
hafa verið Högni Torfason, sem þá
var fréttamaður hjá RÚV, sem
datt í huga að nota orðið þota í
stað þrýstiloftsflugvélar. Í samtali
við undirritaðan eitt sinn kvaðst
hann hafa hringt í Sig-
urð Nordal prófessor
og borið þetta orð und-
ir hann. Þota! Það er
mjög gott orð, það
mun þjóta inn í málið,
hafði prófessorinn
svarað honum. Það
mun svo hafa verið
Sigurður Nordal sjálf-
ur sem fann upp orðið
tölva. Sannarlega þaut
það orð inn í málið
líka, enda mjög snjöll
lausn.
Lesum og lesum
Íslenskunámið byrjar auðvitað
þegar barnið lærir sín fyrstu orð.
Og á næstu 3-4 árum þar á eftir er
námshraðinn ótrúlegur, ekki bara í
að læra málið heldur á öllum svið-
um, þar á meðal í notkun á tölvu!
Á þessu stutta tímabili ævinnar
nær barnið að vinna stærra náms-
afrek heldur enn nokkurn tímann
síðar á lífsleiðinni. Það gefur því
augaleið að foreldrar þurfa að
nota, sem allra best, þetta ein-
stæða tækifæri til þess að hjálpa
barninu í að ná sem mestum skiln-
ingu og kunnáttu í málinu. Þar
gilda bæði samtöl og ekki síður að
lesa fyrir barnið. Að enda daginn á
að lesa fyrir barnið fyrir svefninn
er gullvæg regla. Jafnvel að lesa
sömu söguna aftur og aftur er vel
þegið (samkvæmt gamalli
reynslu!), enda er hugur barnsins
svo frjór að líkast til verður alltaf
til nýr og nýr veruleiki í hvert
sinn.
Frábær kennari
Er þá komið að tilefni þessa
greinarkorns, sem er að minnast
frábærs kennara í íslensku. Sá
kennari var Þorsteinn Valdimars-
son skáld, sem kenndi íslensku við
Stýrimannaskólann í Reykjavík um
langt árabil. Það sem eftir situr er
kennslaaðferðir Þorsteins. Það var
augljóst að það sem fyrir honum
vakti framar öllu öðru, var að
vekja áhuga okkar á íslenskri
tungu, sem hann sjálfur dáði svo
mjög. Í þeim tilgangi beitti hann
kennsluaðferðum svo áhrifaríkum
að þær verða þeim er hér skrifar
ætíð minnisstæðar.
Ósjaldan byrjaði Þorsteinn
kennslustundina á að skrifa eitt
orð á töfluna. Upp í hugann kemur
stund þar sem hann byrjaði á að
skrifa upp sögnina að bregða. Síð-
an tók við áhugaverð umræða um
öll þau orð sem tengjast þessu orði
og orðatiltæki líka og umræða um
raunverulega merking þeirra:
Öðruvísi mér áður brá – nú bregð-
ur mér í brún – svo bregðast
krosstré sem önnur tré – og margt
fleira. Á slíkum stundum kom vel í
ljós hve mikla þekkingu Þorsteinn
hafði á íslensku máli. Hann lagði
sig fram um að útskýra sérkenni
íslenskrar tungu, skyldleika orða
og gegnsæja merkingu þeirra, sem
einkennir íslenskt mál. Þorsteini
Valdimarssyni verður ekki lýst í
fáum orðum. Hann var mjög til-
finningaríkur maður, friðarsinni og
mikill náttúruunnandi. Upp í hug-
ann kemur minnisstætt og
skemmtilegt atvik sem bregður
upp svipmynd af því hvernig Þor-
steinn var. Kennslustofan okkar
var við suðurhlið skólans. Glugg-
arnir vísuðu því til suðurs og undir
þeim var bílaplanið. Þar var að
jafnaði lítið að sjá í frímínútunum,
nema stundum bar við að við sáum
fríðan hóp föngulegra meyja úr
Kennaraskólanum ganga fyrir
framan planið á leið í skólann eða
úr. Það þótti okkur alltaf áhuga-
verð sjón. Og ekki skemmdi fyrir
ef við fengum vink!
„Sjáið þið, drengir mínir“
Einn sólbjartan apríldag árið
1966 kemur Þorsteinn inn í stof-
una, býður góðan dag, gengur síð-
an að gluggunum, horfir út og seg-
ir síðan stundarhátt: Dásamleg
sjón! Við létum auðvitað ekki segja
okkur það tvisvar, heldur þustum
allir út í gluggana – en þar var
ekkert að sjá, nema bílana á plan-
inu! Í því heyrum við að kennarinn
okkar segir með aðdáunarhreim í
röddu: „Sjáið þið, drengir mínir,
hvað sólin skín dásamlega“! Þor-
steinn áttaði sig strax á misskiln-
ingi okkar og við hlógum allir og
höfðum gaman af. Þorsteinn Valdi-
marsson skáld var einstakur ljúf-
lingur, frábær kennari og snill-
ingur í meðferð íslenskrar tungu.
Hinn 31. október nk. verður ein
öld liðin frá fæðingu hans. Þess er
vert að minnast.
Íslenskan – okkar mál
Eftir Óskar Þór
Karlsson » Þorsteinn Valdi-marsson skáld var
einstakur ljúflingur, frá-
bær kennari og snill-
ingur í meðferð ís-
lenskrar tungu. Hinn
31. október nk. verður
ein öld liðin frá fæðingu
hans.
Óskar Þór
Karlsson
Höfundur er eldri borgari.
Fækkaðu
hleðslu-
tækjunum
á heimilinu,
skrifstofunni
eða sumar-
bústaðnum.
Tengill með USB
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir ör-
yggi í samskiptum milli starfs-
fólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á
aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is.
Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerf-
ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.
Bílar