Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Glæsilegt úrval
af trúlofunar- og
giftingarhringapörum
Gullsmiðir
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S:587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
VERNDUM
VIÐKVÆM AUGU
BLUE
STOP
Bluestop er vörn gegn skaðlegum blágeislum sem er
að finna í símum, spjaldtölvum, flúorljósum og víðar.
Bluestop hjálpar okkur að vernda augun fyrir geislum
sem þessi tæki gefa frá sér, vinnur gegn augnþreytu
og virkar sem forvörn gegn hrörnum í augnbotnum
og skýi á augasteini.
Hlustendur Ísland vaknar tóku þátt í skemmtilegum leik á dögunum.
Leikurinn heitir Leitin að Magga rafvirkja. Tilurð leiksins er þannig til-
komin að Jón Axel Ólafsson, einn þáttarstjórnenda, stendur í fram-
kvæmdum heima hjá sér og Maggi rafvirki hefur tekið að sér að reka
smiðshöggið á framkvæmd-
irnar. „Þó ég telji mig hafa
ágætis verkvit hef ég lært af
biturri reynslu að þegar kemur
að því að setja upp ljós á heim-
ilinu getur verið stórhættulegt
að gera það sjálfur. Sjáðu til
dæmis Ásgeir Pál (annan
þáttarstjórnanda Ísland
vaknar). Hann reyndi einu
sinni að skipta um ljósaperu á
baðherberginu hjá sér. Þess
vegna er hann sköllóttur,“
segir Jón Axel hlæjandi.
Við upphaf áðurnefndra
framkvæmda hafði Jón Axel samband við Magga rafvirkja sem mætti og
tók út verkið. „Svo hefur hann ekki sést í fleiri daga,“ segir Jón Axel
áhyggjufullur. Hlustendur hafa verið duglegir að taka þátt í leiknum og
nokkrar ábendingar hafa borist um hvar Magga gæti mögulega verið að
finna, en hingað til hefur engin þeirra leitt til þess að Maggi finnist.
Í ljósi þess að iðnaðarmenn hafa oft mikið á sinni könnu getur verið erf-
itt að fá þjónustu þeirra. Hlustendum „Ísland vaknar“ hefur í vikunni orð-
ið tíðrætt um margumrætt skrepp iðnaðarmanna og hafði einn orð á því
að tímaskyn þeirra væri bæði loðið og teygjanlegt. „Ég fékk til mín pípu-
lagningamann um daginn til að gera við leka undir eldhúsvaskinum. Hann
skaust út í bíl til að sækja töng og sást ekki aftur fyrr en níu mánuðum
seinna,“ sagði einstæð móðir á miðjum aldri sem hringdi í þáttinn.
Aðspurður segir Jón hins vegar að hann sé alls ekki pirraður út í
Magga rafvirkja og efist alls ekki um heilindi hans. „Ég hef bara tals-
verðar áhyggjur af karlgreyinu. Þegar hann var orðinn meira en klukku-
tíma of seinn reyndi ég að hringja, en þá svaraði ekki síminn hjá honum
og þannig leið dagurinn. Ég hef orðið að bjóða konunni minni út að borða
á hverju kvöldi þar sem ekkert rafmagn er á eldhúsinu og raunar ekki
svefnherberginu heldur. Nú er komin rúm vika síðan þetta gerðist og það
er bókstaflega eins og jörðin hafi gleypt karlinn,“ segir Jón Axel og bætir
við að þrátt fyrir þungbærar áhyggjur af rafvirkjanum missi hann ekki
svefn yfir þessu. „Ég nota þá bara vasaljósið á meðan ég bíð.“
Leikurinn „Leitin að Magga rafvirkja“ heldur áfram í Ísland vaknar
allt þar til hann kemur í leitirnar og sá aðili sem kemur með vísbendingu
sem leiðir til þess að Maggi finnist vinnur glæsileg verðlaun. „Í boði er
glæsilegt ljósaperusett af flottustu gerð í boði Magga sjálfs,“ segir Jón
Axel kíminn.
Uppfært: Eftir fjölda vísbendinga fannst Maggi rafvirki síðdegis í gær.
Hann var önnum kafinn uppi í stiga í einbýlishúsi í Grafarholtinu. Þáttar-
stjórnendur Ísland vaknar kunna öllum sem komu að leitinni bestu þakkir
islandvaknar@k100.is
Leitin að
Magga rafvirkja
Í stuði Leitin að Magga rafvirkja.
Úr hugarheimi Ísland vaknar
Bríet Ísis Elfar
Bríet Ísis Elfar var fyrsti gestur
Sigga í Lögum lífsins. Hún hefur
vakið mikla athygli á árinu fyrir tón-
listina sína en hún sagði Sigga m.a.
frá því að hana hefði alltaf dreymt
um að vera poppstjarna. „Allt sem
mann dreymdi um þegar maður var
lítill er bara að gerast akkúrat
núna,“ segir Bríet í samtali við Sigga
en hún ætlaði alltaf að verða popp-
stjarna. „Ég var alltaf að fara í hæla-
skóna hjá mömmu, setja disk í spil-
arann og dansa.“ Bríet er aðeins 19
ára gömul og stundar nám við
Menntaskólann við Hamrahlíð og
það getur oft reynst krefjandi að
samræma skólann og tónlistina.
„Það sem fólk kannski skilur ekki
við það er að þegar maður er tón-
listarmaður er það ekki níu til fimm
vinna. Þú ert stöðugt með eitthvað á
heilanum,“ segir Bríet. „Ég var að
tala við kennarana mína um hvort
það væri eitthvað hægt að hjálpa
mér með tónlistina og námið,“ segir
Bríet sem mætti ekki miklum skiln-
ingi. „Þau sögðu að þú þyrftir bara
að velja, þetta væri bara eins og að
vera í 100% vinnu með skóla.“
Björgvin Franz
Björgvin er landsþekktur leikari
sem glatt hefur mörg börn í hlut-
verkum sínum í Stundinni okkar eða
sem Benedikt búálfur. Björgvin
ræddi m.a. um bernskuárin og að
fátt annað hefði komið til greina en
að fara út í leiklist en eins og flestir
vita er Björgvin sonur leikaranna
Eddu Björgvins og Gísla Rúnars en
þau reyndu ekki að halda honum frá
leiklistinni. „Þau sáu bara að það var
ekkert annað. Ég var allan sólar-
hringinn að. Þegar hinir strákarnir
fóru út að leika í fótbolta klæddi ég
mig í kjóla og setti á mig hárkollur.
Það átti sérstaklega við þegar ég fór
á Rocky Horror-tímabilið. Ég er
með svakalega flotta fætur. Mér er
sagt að ef í harðbakka slái geti ég
leikið í sokkabuxnaauglýsingu,“
sagði Björgvin glettinn þegar hann
var spurður hvort hann tæki sig vel
út í korseletti. Björgvin sagði einnig
frá því þegar hann fluttist ásamt
fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna
árið 2011 sem var mjög lærdóms-
ríkt. „Í Bandaríkjunum lærðum við
að eiga ekki pening og við höfum
aldrei verið hamingjusamari. Þú
veist, að nota þetta litla sem maður
hefur og þá fattar maður að maður
þarf ekki pening til þess að vera
hamingjusamur.“
Svala Björgvinsdóttir
Svala sagði frá því í Lögum lífsins
að hún hefði ekki hugleitt af alvöru
fyrr en hún var um 15 ára að leggja
tónlist fyrir sig en hún hefði fram að
því verið í dansi sem hefði átt hug
hennar allan. „Ég var meira bara
svona að syngja með pabba þegar ég
var lítil og það var bara svona hobbí
af því að ég ætlaði ekkert endilega
að fara út í söng. Ég var í ballett og
dansinn var bara númer 1, 2 og 3. Ég
byrjaði að syngja með skólaböndum
þegar ég var í gagnfræðaskóla og þá
fattaði ég að ég gæti farið að gera
mína eigin tónlist,“ segir Svala sem
datt í kjölfarið inn á íslensku dans-
senuna og gaf út í kjölfarið tónlist
með m.a. hljómsveitinni Scope og
má segja að það sé upphafið að ferli
hennar sem tónlistarkonu. Svala er
flutt aftur heim til Íslands eftir
langa dvöl í Los Angeles og ræddi
hún m.a. um sterka samstöðu söng-
kvenna hér á landi. „Mér finnst mik-
ilvægt að konur séu að styðja konur.
Strákarnir eru alltaf að styðja hver
annan, alltaf að gera lög saman, voða
mikið einhver svona „bro’s“-
stemning en stelpurnar gleyma að
við þurfum að gera þetta líka. Ég
gerði lag með Reykjavíkurdætrum
sem snýst einmitt um að styðja aðr-
ar konur og lyfta þeim upp í staðinn
fyrir að vera úti í horni afbrýðisöm
að stinga aðrar í bakið. Stundum er
sagt að konur séu konum verstar en
konur eru konum bestar og við þurf-
um að vera það og vera fyrirmyndir
fyrir yngri stelpur,“ sagði Svala.
Áhugaverðar sögur
af skemmtilegu fólki
Lög lífsins eru nýr dagskrárliður í þætti Sigga Gunnars á K100. Hann
er jafnframt hlaðvarpsþáttur sem er aðgengilegur á K100.is vikulega.
Í hverri viku kemur nýr gestur sem daglega velur eitt lag sem tengist
lífi sínu á einhvern hátt ásamt því að segja sögur tengdar lögunum
og lífi sínu. Síðastliðinn mánuð hafa skemmtilegir gestir litið inn.
Bríet
Ísis Elfar
Svala
Björgvinsdóttir