Morgunblaðið - 01.11.2018, Qupperneq 65
leiðin í Myndlistar- og handíða-
skóla Íslands. Eftir fornám stund-
aði hún nám í nýstofnaðari Text-
íldeild skólans. Segir hún að helstu
áhrifavaldar hennar þar hafi verið
Hörður Ágústsson og Sigríður
Halldórsdóttir vefnaðarkennari.
Hún stundaði nám við Hochschule
für angevandte Kunst í Vínarborg
í Austurríki og tók BA-próf hjá
Herbert Tasquil. Síðar var hún
nemandi í meistaranámi í textíl í
þrjú ár hjá prófessor Rader-
Soulek. „Fyrir mig voru árin í Vín
ómetanleg,“ segir Ingibjörg Styr-
gerður. „Samnemendur mínir
komu úr ólíkum áttum en við urð-
um samt mjög eftirminnilegt
teymi. Í skólanum hafði ég aðgang
að vel menntuðum tæknimönnum
sem var mjög góður grunnur og
hefur gert það að verkum, að ætíð
síðan hef ég verið sjálfbjarga og
hef getað leyst öll tæknileg mál í
vefnaði mínum. Í Austurríki var og
er mjög sterk þjóðernisvitund sem
hafði mikil áhrif á mig og varð til
þess að ég fór að vega og meta ís-
lensk þjóðareinkenni sem hefur
mótað mig og hefur haft áhrif á
mitt lífsstarf. Eftir að ég kom heim
hófst ég handa um að rækta hör
þrátt fyrir mikla vantrú margra
aðila. Ræktunin tókst alltaf mjög
vel. Strax í upphafi notuðum við
hitaveituvatn til feygingar (rotn-
unar) á hörnum sem tókst mjög
vel. Á Íslandi þarf hörplantan
lengri tími til að vaxa heldur en á
meginlandi Evrópu sem gerir að
verkum, að hún verður töluvert
sterkari. Við það að taka plöntuna
inn í upphitaða geymslu heldur
plantan áfram að þroskast og því
hefur mér tekist að sá fræjum af
henni. Ég hef handunnið og hand-
spunnið hörinn í línþráð sem ég
hef notað í listvefnaðinn. Þetta hef-
ur verið mjög gaman, fjölskyldan
hefur unnið þetta með mér svo ég
á nú nóg af hör til þess að vinna úr
næstu árin.“
Ingibjörg Styrgerður hefur
starfað sem myndlistarmaður og
tekið þátt í mörgum samsýningum
hérlendis og erlendis. Hún rak
Myndlistarskóla Garðabæjar í fé-
lagi við Margréti Kolka í 13 ár.
Síðustu 13 starfsárin starfaði hún
við Þjóðminjasafn Íslands, þ.á m. í
nokkur sumur sem bæjarvörður á
Keldum á Rangárvöllum. Hún hef-
ur tvívegis hlotið starfslaun mynd-
listamanna og nokkur verka henn-
ar eru í opinberri eigu.
Eiginmaður Ingibjargar er
Smári Ólason tónlistarfræðingur, f.
10. júlí 1946.
Foreldrar hans voru hjónin
Bárður Óli Pálsson forstjóri, f.
27.8. 1910, d. 26.4. 1986, og Anna
Tómasdóttir húsmóðir, f. 9.3. 1905,
d. 13. febrúar 1974. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Börn Ingibjargar og Smára eru:
1. Stefán Steinar vélvirki hjá VHE,
f. 13.7. 1967. Kona hans er Krist-
jana Guðný Helgadóttir bókari, f.
3.12. 1971. Hans börn eru a) Smári
Steinar, f. 6.1, 1999. b) Natan
Steinar, f. 4.12. 2000. c) Styrmir
Steinar, f. 6.9. 2004. d) Númi
Steinar, 7.6. 2013. 2. Bárður, raf-
virki, f. 7.4. 1975. Sambýliskona
hans er Halla Eyberg Þorgeirs-
dóttir flugfreyja, f. 28.3. 1978.
Börn hennar eru: a) Ciara Margrét
Eyberg, nemi, f. 17.8. 2000. b)
Áróra Eyberg, nemi, f. 16. maí
2006. c) Jökull Eyberg, nemi f.
14.12. 2008. 3. Anna Aðalheiður,
grafískur hönnuður hjá Ableton í
Berlín, f. 10.12. 1980.
Systkini Ingibjargar eru: Björn
Haraldsson, kaupmaður í Grinda-
vík, f. 15.12. 1943. Gísli Rúnar
Haraldsson trésmiður, Kópavogi,
27.11. 1950. Guðbjörg Haralds-
dóttir, húsmóðir í Reykjavík, f.
23.1. 1954.
Ingibjörg Styrgerður
Haraldsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir
húsmóðir frá Arngeirsstöðum
Árni Pálsson
barnakennari og útvegsbóndi í Narfakoti
Ingibjörg Jónheiður Árnadóttir
starfaði við heimahjúkrun í Bandaríkjunum
Sigríður Björnsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Björn Björnsson
kennari og gullsmiður
Sigríður María Þorláksdóttir
húsmóðir á Ísafirði
Björn Árnason
gullsmiður á Ísafirði
Ársæll Árnason bókaútgefandi
Þórhallur Árnason sellóleikari
Ásta Árnadóttir málari
Magnús Á. Árnason myndlistarmaður
Guðbjörg Árnadóttir
Steinunn J. Árnadóttir
Baldvin Björnsson
listmálari og
gullsmiður
Björn Th. Björnsson
listfræðingur og
rithöfundur
Guðbjörg Filippusdóttir
húsmóðir frá Bjólu
Jóhann Þorsteinsson
bóndi í Köldukinn
Styrgerður Jóhannsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Gísli Kristjánsson
bátasmiður í Reykjavík
Halldóra Þórarinsdóttir
húsmóðir á Álftanesi
Kristján Jónsson
hafnsögumaður á Álftanesi
Úr frændgarði Ingibjargar Styrgerðar Haraldsdóttur
Haraldur Kristján Gíslason
húsasmíðameistari og kaupmaður
ÍSLENDINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Sigurður Einarsson, útgerðar-maður og forstjóri Ísfélagsinsí Vestmannaeyjum, fæddist í
Reykjavík 1.11. 1950, sonur hins
kunna útgerðarmanns, Einars Sig-
urðssonar, og k.h., Svövu Ágústs-
dóttur húsfreyju. Einar var sonur
Sigurðar, formanns á Heiði í Vest-
mannaeyjum, í beinan karlegg frá
Sigurði, pr. á Ólafsvöllum, bróður
Sæmundar, föður Tómasar Fjöln-
ismanns. Svava var dóttir Ágústs,
verkamanns í Reykjavík Guðmunds-
sonar, fulltrúa bæjarfógeta og kaup-
manns í Reykjavík Guðmundssonar.
Eftirlifandi kona Sigurðar er Guð-
björg Matthíasdóttir kennari og
eignuðust þau fjóra syni, Einar, Sig-
urð, Magnús og Kristin. Sigurður
lauk stúdentsprófi frá MR 1970,
embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1974
og öðlaðist hdl.-réttindi 1983. Hann
var framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
stöðvar Vestmannaeyja hf. 1974-92
og forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja
eftir sameiningu Hraðfrystistöðvar-
innar og Ísfélagsins, frá ársbyrjun
1992 og til dauðadags. Sigurður
gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, var í forsvari
fyrir sjávarútvegsnefnd hans, var
bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum frá
1986 og til dauðadags, formaður
bæjarráðs um skeið og var oddviti
lista sjálfstæðismanna. Sigurður sat
lengi í stjórn SÍF, SH, Coldwater
Seafood í Bandaríkjunum, Icelandic
Freezing Plants Ltd. í Bretlandi og
LÍÚ, í stjórn Félags íslenskra fiski-
mjölsframleiðenda, í stjórn Fisk-
markaðar Vestmannaeyja, Vinnu-
veitendasambands Vestmannaeyja
og formaður þess um skeið, sat í
stjórn Útvegsbændafélags Vest-
mannaeyja, var stjórnarformaður
Tryggingamiðstöðvarinnar, sat í
stjórn Skeljungs og fleiri fyrirtækja
í Vestmannaeyjum og Reykjavík.
Sigurður var vinfastur, yfirlætislaus
og farsæll stjórnandi, bjó yfir mikilli
þekkingu á íslenskum sjávarútvegi
og bar mjög hag Vestmannaeyja fyr-
ir brjósti. Hann lést langt um aldur
fram, 4.10. árið 2000.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Einarsson
102 ára
Hildur Solveig Pálsdóttir
90 ára
Magnús Björnsson
Valgerður Ólöf Jónsdóttir
Vigfús Ingvarsson
Þórey Ólafsdóttir
80 ára
Aðalbjörg K. Haraldsdóttir
Ásta G. Þórarinsdóttir
Sverrir Ólafsson
75 ára
Arndís Gná Theódórs
Arnór Sveinsson
Arthur Ross Moon
Baldur Skúlason
Elín Þrúður Theódórs
Guðrún E. Björgvinsdóttir
Gunnar B. Eydal
Helgi Magnússon
Jenný Ásgeirsdóttir
Jóhanna Valdimarsdóttir
70 ára
Eva Andersen
Ingibjörg S. Haraldsdóttir
Þröstur Júlíus Karlsson
60 ára
Anna Wilkos
Bragi Sverrisson
Guðbjörn Samsonarson
Guðmundur Þ. Magnússon
Íris Baldursdóttir
Svanhildur Agnarsdóttir
Þorgerður K. Halldórsdóttir
50 ára
Adil Karim Mohammad
Aðalheiður Helgadóttir
Birna Sigurðardóttir
Elín María Stefánsdóttir
Fjóla Bláfeld Stefánsdóttir
Gunnar Ingólfur Gíslason
Magnús H. Hinriksson
Mijo Antunovic
Ólöf Haraldsdóttir
Rebekka Þráinsdóttir
Sigurður Lárusson
Sigurður Sv. Stephensen
Þóra Stefánsdóttir
40 ára
Berglind G. Sigurðardóttir
Brynjar Svanbjörnsson
Daníel Sigurðsson
Dmitrij Denisenko
Herdís Kr. Heiðarsdóttir
Hjalti Þór Heiðarsson
Hrólfur Knakan Valdimarsson
Ingunn Ósk Svavarsdóttir
Irena Dögg McCabe
Ketill Indriðason
Kriangkrai Yodsongtrakul
Marcin Kowalewski
Riley Jay Welshman
Sæunn K. Guðmundsdóttir
30 ára
Alexandra Guðjónsdóttir
Andrea Skúladóttir
Aron Gauti Birgisson
Berglind Ösp Jónsdóttir
Birna Pétursdóttir
Brynhildur Guðjónsdóttir
Dagný Yrsa Eyþórsdóttir
Diljá Guðjónsdóttir
Edgars Pakalns
Elín Edda Pálsdóttir
Elín Guðjónsdóttir
Karitas Anna Vignir
Kinga Natalia Ulamek
Krzysztof S. Stachura
Lárus Sverrisson
Linda Le
Magnús Þór Jónsson
Marcin Nowakowski
Nikulás Chatchai Ólafsson
Tinna Dögg Benediktsdóttir
Viktor Bertil Gylfason
Til hamingju með daginn
30 ára Tinna Dögg er
Reykvíkingur en flutti á
Akranes í sumar. Hún
starfar hjá Skaganum 3X
og er menntuð sem
einkaþjálfari og í hönnun.
Maki: Þórhallur Andri Jó-
hannsson, f. 1982, starfar
við álverið á Grundar-
tanga.
Barn: Freyja Lilja, f. 2015.
Foreldrar: Agnes Karen
Ástþórsdóttir, f. 1964, og
Benedikt Jón Guð-
laugsson, f. 1961.
Tinna Dögg
Benediktsdóttir
30 ára Karitas Anna býr í
Hafnarfirði, er hár-
greiðslumeistari að
mennt og starfar hjá Ið-
unni – fræðslusetri.
Maki: Styrmir Sigurðs-
son, f. 1986, sem starf-
rækir ferðaþjónustu-
fyrirtæki.
Foreldrar: Anna Ragn-
heiður Vignir, f. 1960,
starfsmaður lífeyrissjóðs
og Pétur Stefánsson, f.
1938, starfar hjá Pípu-
lagnaverktökum ehf.
Karitas Anna
Vignir
30 ára Dagný fæddist í
Svíþjóð. Hún er næringar-
fræðingur að mennt og
starfar nú við gæðaeftirlit
hjá Gæðabakstri/
Ömmubakstur.
Maki: Hagalín Ásgrímur
Guðmundsson f. 1987,
verkfræðingur hjá Marel.
Barn: Magnea Lind, f.
2016.
Foreldrar: Ingunn Þor-
steinsdóttir f. 1961 og Ey-
þór Björnsson f. 1959,
bæði læknar.
Dagný Yrsa
Eyþórsdóttir