Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 80
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Enska tónlistarkonan Nadine Shah
er rísandi stjarna í heimalandi sínu
og var tilnefnd til Mercury-tónlistar-
verðlaunanna í ár fyrir þriðju breið-
skífu sína, Holiday Destination. Hún
hlaut ekki verðlaunin en tilnefningin
er samt sem áður mikill heiður fyrir
hana og afar góð kynning fyrir ung-
an tónlistarmann. Shah kemur hing-
að til lands í næstu viku og treður
upp á tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves á fimmtudaginn.
Shah er 32 ára, ólst upp í sjávar-
þorpinu Whitburn á norðaustur-
strönd Englands en býr nú og starf-
ar í London. Fyrstu stuttskífuna,
Aching Bones, sendi hún frá sér fyr-
ir sex árum en fyrstu breiðskífuna,
Love Your Dum and Mad, ári síðar.
Skífan sú innihélt myrkar og tilfinn-
ingaþrungnar píanóballöður en
næstu tvær, Fast Food og Holiday
Destination, eru rokkaðar.
Tónlistartímaritið Pitchfork lýsti
tónlist Shah, í gagnrýni sinni um
fyrstu breiðskífu hennar, með þeim
hætti að hún væri eins og bræðingur
af PJ Harvey og Nick Cave og það
er ágætislýsing, að mati blaða-
manns. Hún var enda beðin um að
hita upp fyrir Cave og hljómsveit
hans The Bad Seeds fyrr á þessu ári.
Poppstjörnudraumar
Shah hóf tónlistarferil sinn á tán-
ingsaldri þegar hún hélt til London
og gerðist djasssöngkona. Hún seg-
ist hafa orðið leið á djasssöngnum
býsna fljótt. En hvers vegna ákvað
hún að gerast tónlistarmaður? „Ég
hef alltaf verið með ágæta söngrödd,
alveg frá barnsaldri, en það er svo
skrítið að margar tónlistarkonur –
sérstaklega af minni kynslóð – voru
ekki hvattar til að læra á hljóðfæri
eða semja lög. Þær voru bara hvatt-
ar til þess að gerast söngkonur og
það gerði ég. Ég var söngkona lengi
vel, tók þátt í söngkeppnum og söng
þá lög með Mariuh Carey og þess
háttar lög. Þegar ég var yngri lang-
aði mig að verða poppstjarna,“ segir
Shah og hlær við.
„Svo fór ég að hlusta á djasstónlist
og varð hugfangin af henni, sérstak-
lega Ninu Simone. Ég flutti til Lond-
on 16 ára í þeim tilgangi að verða at-
vinnudjasssöngkona og var ekki í
neinum flottheitum, bara að syngja á
veitingastöðum og reyna að slá í
gegn. Ég varð fljótlega leið á því að
syngja lög eftir aðra og settist í helg-
an stein, 17 ára!“ segir Shah og hlær
innilega að þessu orðalagi. Hún hélt í
myndlistarnám við Camberwell-
listaháskólann og var þar hvött af
kennara til að nýta tónlistarhæfileik-
ana í tiltekið listaverk. Shah segir
kennarann hafa beðið hana að velja
sér eitthvert hljóðfæri sem hún ótt-
aðist að leika á og spila á það í verk-
inu. „Ég valdi píanó og komst að því
að það væri auðveldara að leika á pí-
anó en ég hélt. Maður nær góðum
hljómi úr píanói ef tónlistin er nógu
einföld,“ segir Shah. Hún hafi í fram-
haldi byrjað að semja á píanó, hætt í
skólanum eftir eins árs nám en num-
ið listasögu í eitt ár til viðbótar.
Sér eftir að hafa hætt
„Ég gerði fyrstu plötu mína ekki
fyrr en mörgum árum síðar. Ég
hefði því getið lokið myndlistarnám-
inu og sé eftir að hafa ekki gert það
því maður lærir svo margt í mynd-
listarnámi sem getur nýst við sköp-
un tónlistar. Ég hefði getað unnið að
verkum sem innihalda tónlist,“ segir
Shah og hvetur alla til að klára há-
skólanám, standi þeim það til boða.
„Tónlistin fer ekkert, ég gæti hafa
lært svo margt sem myndi nýtast
mér í dag, t.d. að gera tónlistar-
myndbönd, veggspjöld og fleira.“
–Ertu ef til veill ein af þessum
listamönnum sem vilja gera allt
sjálfir?
„Já, ég vil gera margt sjálf og var
mjög þrjósk hvað það varðar í upp-
hafi ferilsins. En svo áttaði ég mig á
að best væri að ég einbeitti mér að
því sem ég gerði best og ég nýt þess
að starfa með öðrum, fólki sem er í
hópi þeirra færustu á sínu sviði,
hvaða grein sem það svo sem er. Ég
vinn með framleiðanda – framleiði
ekki tónlistina mína sjálf – því þar
liggur hans færni en mín í laga-
smíðunum. En ég hef ekki enn fund-
ið rétta myndbandaleikstjórann þó
að ég hafi unnið með ágætum leik-
stjórum,“ segir Shah kímin.
Walker og Simone í uppáhaldi
Shah er spurð að því hvort breið-
skífur hennar þrjár séu mjög ólíkar
hver annarri. Jú, hvað hljóminn
varðar, segir hún, en einnig þegar
kemur að yrkisefnum. „Ég er mjög
heppin hvað það varðar að þeir sem
dáðust að fyrstu plötunni héldu
tryggð við okkur sem gerðum hana,
þrátt fyrir að hinar tvær væru öðru-
vísi og það fjölgaði líka í hlustenda-
hópnum,“ segir hún.
–Ég hef verið að hlusta á lögin þín
á YouTube og þau virðast vera
býsna ólík hvert öðru, í einu þykist
ég til dæmis greina sterk áhrif frá
Massive Attack …
„Já, það er lagið „Aching Bones“,“
segir Shah sposk og veit greinilega
um hvaða lag er að ræða.
–Hefur Massive Attack haft áhrif
á þig sem tónlistarmann?
„Já, hún hefur gert það,“ svarar
Shah og er í framhaldi beðin að
nefna fleiri áhrifavalda. „Ég á mér
tvo uppáhaldstónlistarmenn, Scott
Walker og Ninu Simone og hlustaði
mikið á þau þegar ég gerði fyrstu
plötuna mína. Sumir þykjast greina
dálítil áhrif frá Walker í söng mín-
um, sérstaklega á fyrstu plötunni en
ég hef hlustað á svo margbreytilega
tónlist að erfitt er að benda á ein-
hvern einn áhrifavald á hverri
plötu.“
Ógnvekjandi þróun
Talið berst að Mercury-verðlaun-
unum og segir Shah að það sé auð-
vitað afrek í sjálfu sér að hljóta til-
nefningu og samgleðst innilega
hljómsveitinni sem hlaut verðlaunin,
Wolf Alice. „Við höfum eignast svo
marga aðdáendur til viðbótar,“ segir
hún, „og þar sem platan er svo póli-
tísk vildi ég að hún næði til þúsunda
hlustenda.“
–Talandi um þennan pólitíska boð-
skap þá skilst mér að á plötunni
sértu að fjalla um ákveðna hnignun á
samkennd í heiminum …
„Já, það er heimsvandamál, þjóð-
ernisstefna fer vaxandi á heimsvísu
og samhliða henni dregur úr sam-
kennd, sem er uppskrift að hörm-
ungarástandi. Það er sorglegt að
horfa upp á þessa þróun í mörgum
löndum, þessa vaxandi þjóðernis-
stefnu og þá sérstaklega af því ég er
af blönduðum kynþætti. Pabbi minn
er múslimi og ég er með mjög al-
gengt múslímskt eftirnafn. For-
dómar gagnvart múslimum fara ört
vaxandi og við lifum á ógnvekjandi
tímum sem við tónlistarmenn verð-
um að tjá okkur um,“ svarar Shah,
en faðir hennar á ættir að rekja til
Pakistan og móðir hennar til Eng-
lands og Noregs.
Shah segir andúð á innflytjendum
fara vaxandi í heimalandi sínu og að
þeir séu m.a. sakaðir um að hafa
störf af innfæddum. Eitthvað þykir
blaðamanni það kunnuglegur
söngur.
„Eyðileggja fríið“
Plötutitillinn Holiday Destination,
þ.e. Sumarleyfisáfangastaður, er
kaldhæðni. Hugmyndina að honum
fékk Shah þegar hún sá viðtöl við
fólk sem var í fríi á grískri sólar-
strönd. Hafði þar mikill fjöldi flótta-
manna komið að landi og voru sum-
arleyfisgestir spurðir álits á því.
„Sumir sögðu auðvitað að þeim þætti
þetta hræðilegt og að þeir vildu
gjarnan hjálpa fólkinu en margir
sögðu hins vegar að flóttamennirnir
væru að eyðileggja fyrir þeim fríið.
Þetta er algjörlega galið og það sem
ég er að tala um, síminnkandi samúð
með öðrum,“ segir Shah.
Hún rifjar upp ljósmyndina sem
tekin var árið 2015 af þriggja ára
sýrlenskum dreng, Alan Kurdi, þar
sem hann lá á grúfu á strönd í
Bodrum í Tyrklandi. Drengurinn
hafði drukknað á flótta með fjöl-
skyldu sinni yfir Miðjarðarhafið.
„Þetta vakti fólk til meðvitundar um
stund, það gat tengt við það sem það
sá. Þetta var lítið barn, gæti verið
barnið mitt eða þitt eða litli bróðir
minn. Mig langaði að sýna fáránleika
þessa alls með því að kalla plötuna
þessu nafni, Holiday Destination og
á umslaginu er ljósmynd sem vinur
minn tók á Gasaströndinni af pilti
sem stendur í byggingu sem hefur
augljóslega eyðilagst í stríðsátökum.
Hann myndir friðarmerki með fingr-
um annarrar handar og mér finnst
þessi ljósmynd hvort tveggja í senn
stórkostleg og ískyggileg,“ útskýrir
Shah. Ljósmyndin, eins og platan í
heild sinni, eigi bæði að vekja fólk til
umhugsunar, fá það til að bregðast
við ástandinu en einnig að vekja von.
Allar konseptplötur
Spurð að því hvort hún líti á plöt-
una sem konseptplötu segist Shah
gera það og í raun líta þannig á allar
plötur sínar. „Ég sé ekki fyrir mér
að nálgast plötugerð með öðrum
hætti. Sú sem ég er að semja núna er
líka konseptplata. Ég er mikill aðdá-
andi hljómplötunnar sem listforms,
ef til vill vegna þess að ég var í lista-
háskóla en sem tónlistarunnandi hef
ég alltaf verið himinlifandi þegar ég
fæ í hendurnar margra laga safn, 10
til 14 lög, frá tónlistarmanni sem ég
dáist að, lög sem saman mynda eitt
heilsteypt verk unnið út frá einni
grunnhugmynd,“ segir Shah.
Í upphafi greinar var þess getið að
Shah hefði verið beðin um að hita
upp fyrir Nick Cave á tónleikum fyrr
á þessu ári. Hún segist hafa leikið
fyrir hann og hljómsveit hans á
tvennum tónleikum. „Hann er einn
af uppáhaldstónlistarmönnum mín-
um og það var mikill heiður að fá að
deila með honum sviði og hanga með
honum eftir tónleika. Ég bjóst við
því að hann væri mjög alvörugefinn
maður en hann var bráðfyndinn, lék
á als oddi og mér leið ákaflega vel í
návist hans. Þetta var virkilega
ánægjuleg reynsla,“ segir Shah.
Að lokum fær hún skylduspurn-
inguna um hvort hún hlakki til að
koma til Íslands. „Ég hlakka til að
spila en í sannleika sagt er ég
spenntari fyrir dögunum sem ég
verð í fríi. Ég ætla að vera þarna í
viku og á marga vini sem eru að fara
á hátíðina. Ég ætla því að njóta þess
að vera í Reykjavík með vinum
mínum.“
„Við lifum á ógnvekjandi tímum“
Nadine Shah kemur fram á Iceland Airwaves Fjallar um fordóma og skort á samkennd á nýj-
ustu breiðskífu sinni, Holiday Destination Var tilnefnd til Mercury-verðlaunanna fyrir plötuna
Á Gasaströndinni Umslag breið-
skífu Shah, Holiday Destination.
AFP
Glæsileg Shah mætti
á Mercury-verðlaunin
í sínu fínasta pússi.
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018