Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 1
Þegar ljósiðkemst ekki inn Áhrif frááttundaáratugnum Andleg veikindi eru dimmargardínur og þegar verstlætur kemst ljósið ekki innsegir Valur Freyr Einarssonleikari sem hefur hlotið mikið lof fyrir einleikinn Allt sem er frábært. Í verkinu segir af ungum dreng sem bregst við sjálfsvígstilraun móður sinnarmeð því að gera lista yfir alltsem er frábært í heiminum.Valur leggur til að allir gerislíkan lista 12 25. NÓVEMBER 2018SUNNUDAGUR Skortur á hæfustarfsfólki Rifflað flauelsnýr aftur ásamthandverkinumacramé 22 Börn þá og nú Viðhorf til barnahefur gjörbreystsíðustu áratugi ogaldir. Umhyggjaþykir mikilvægarien möglunar-laus hlýðni viðyfirvald 16 Brýnt þykir að auka vægiverkgreina í grunnskólum 4L A U G A R D A G U R 2 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  277. tölublað  106. árgangur  SÝNA LIST ÚR ÍSLENSKUM KIRKJUM LEIÐIN LIGGUR UPP Á VIÐ KÆLAN MIKLA 49LILJA ÁRNADÓTTIR 18  Farnar hafa verið þúsundir ferða frá Keflavíkurflugvelli til áfanga- staða í Austur-Evrópu frá árs- byrjun 2016. Rúmlega helmingur þeirra til Póllands. Þetta kemur fram í samantekt Isavia fyrir Morgunblaðið. Töl- urnar ná til síðustu mánaðamóta. Næst á eftir Póllandi kemur Ung- verjaland og svo Tékkland. Átta flugfélög hafa flogið frá Keflavíkurflugvelli til Austur- Evrópu á tímabilinu. Ungverska flugfélagið Wizz Air er lang- umsvifamest í þessu flugi. Með því er Wizz Air orðið einn stærsti við- skiptavinur Keflavíkurflugvallar. Til marks um umsvifin hefur Wizz Air flogið til fimm borga í Pól- landi. Þannig þjónar flugfélagið m.a. fjölmennum hópi fólks af pólskum ættum á Íslandi. »10-11 Morgunblaðið/Eggert Vöxtur WOW air flýgur til Varsjár. Þúsundir flugferða til Austur-Evrópu á síðustu árum  Börn náttúr- unnar, kvik- mynd Friðriks Þórs Friðriks- sonar, verður sýnd á kvik- myndarás kín- verska sjón- varpsins á besta útsendingar- tíma 1. desem- ber. Þá verða ís- lensku kvikmyndirnar Bíódagar, Mamma Gógó, Eldfjall, Fúsi og fleiri einnig sýndar í kvikmynda- húsi í Kína. Er þetta liður í íslenskri kvikmyndahátíð í Kína sem hefst 30. nóvember. »16 Börn náttúrunnar í kínverskt sjónvarp Sumarið 1929 var haldin óvenjuleg sýning á Austurvelli en þar voru í fjóra heila daga saman komnir sjö sauðnautskálfar sem fluttir höfðu verið til landsins með mótorbátnum Gottu VE 108. Fólk dreif víða að til að berja fyrirbrigðin augum enda höfðu fáir Íslendingar séð sauðnaut á þessum tíma. Gripunum var lítið um athyglina gefið og reyndu af veikum mætti, svo sem eðlið bauð þeim, að mynda varnarvegg. Gotta hélt í mikla ævintýraför til austurstrandar Grænlands tæpum tveimur mánuðum áður í því augna- miði að fanga nokkur sauðnaut sem orðið gætu fyrsti vísir að slíkri ræktun hér á landi, en af þessu hermir Halldór Svavarsson í nýrri bók, Grænlandsför Gottu. Fljótlega kom í ljós að fjar- skiptatæki bátsins virkuðu ekki og fyrir vikið spurðist ekkert til ellefu manna áhafnar í um mánuð, eða þangað til Gotta rakst á danskt skip úti fyrir austurströnd Grænlands. Sendi það loftskeyti til Íslands sem birt var í Morgunblaðinu sem keypt hafði einkaleyfi á fréttaflutningi af ferðinni. Vísi til nokkurs ama. Gottumenn lentu í ýmsum hremmingum á leiðinni, báturinn klemmdist til að mynda á milli ís- jaka skammt frá Grænlandi og varð síðar innlyksa í lóni sem myndast hafði innan um ísinn. Þá felldi áhöfnin ellefu hvítabirni og fjöl- mörg fullvaxin sauðnaut en þegar á hólminn var komið áttuðu menn sig á því að þeir réðu ekkert við þessi 400 kg flikki. Til að komast að kálf- unum þurfti að fella fullorðnu dýrin sem slógu skjaldborg um afkvæmi sín. Kálfarnir sjö komust alla leið til landsins en týndu einn af öðrum töl- unni um haustið, að því er virðist af ýmsum ástæðum. Nánar er fjallað um málið í Sunnudagsblaðinu. Sauðnaut á Austurvelli  Óvenjuleg sending kom með báti til Íslands árið 1929 Gríðarleg aukning er á nýjum óverð- tryggðum útlánum heimilanna með veði í íbúðarhúsnæði samkvæmt töl- um Seðlabankans. Hafa þau aldrei verið hærri, um 10,3 milljarðar, og jukust um 37% frá fyrri mánuði. Í októbermánuði einum eru ný útlán heimilanna með veði í íbúð rétt rúm- lega 2% lægri en þau voru fyrstu níu mánuði ársins 2017 í heild sinni. Samtals námu ný útlán heimila með veði í húsnæði tæpum 13 millj- örðum króna í október og nemur hlutfall óverðtryggðra lána 79% á móti 21% hlutfalli verðtryggðra. Að sögn sérfræðings óttast fólk verðbólgu, lækkandi gengi og mikla óvissu í kjarasamningum sem verða lausir um áramót. Trúverðugleikavandi „Seðlabankinn á við trúverðug- leikavandamál að stríða sem hefur birst í auknum verðbólguvæntingum að undanförnu,“ segir Ingólfur Ben- der, aðalhagfræðingur Samtaka iðn- aðarins, í grein í Morgunblaðinu í dag. Segir Ingólfur að svo virðist sem kjölfesta verðbólguvæntinga við markmið peningastefnunnar hafi veikst umtalsvert. »22 & 27 Gríðarleg aukning óverðtryggðra lána „Ég er farinn að sakna Teresu úr vinnustofunni. Ég byrjaði að mála andlitið. Ef andlitið er ekki gott þá verður hitt lítils virði. Það fyrsta sem ég sá á hverjum morgni var brosið hennar og ég sakna þess,“ sagði Baltasar Samper listmálari. Hann málaði mynd af heilagri Teresu frá Lisieux fyrir systurnar í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Skrín með helgum dómum Teresu var í klaustr- inu í gær við mynd Baltasars af henni. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Saknar heilagrar Teresu úr vinnustofunni Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áætla má að þrjótum sem senda fölsk fyrirmæli frá stjórnendum fyrirtækja og félaga um greiðslur inn á erlenda reikninga takist að svíkja út hundruð milljóna króna í ár. Bönkunum tekst að stöðva eða endurheimta nærri jafnháa fjár- hæð áður en glæpamenn ná pen- ingunum. Þá eru ótalin þau svik sem aldrei eru tilkynnt en þau eru talin veru- leg. Hrina svokallaðra stjórnenda- svika eða fyrirmælafalsana virðist ríða hér yfir. Komið hefur fram að hún beinist nú að íþróttafélögum, foreldrafélögum grunnskóla og fleiri félögum en fyrirtæki eru allt- af vinsæll skotspónn slíkra svika. Lögreglan og bankarnir segja að besta leiðin til þess að koma í veg fyrir þessi svik sé að gjaldkeri sem fær skilaboð í tölvupósti um óvana- legar greiðslur til útlanda hringi í yfirmanninn eða fari til hans til að athuga hvort fyrirmælin séu raun- verulega frá honum. Hægt er að stöðva greiðslurnar ef hratt er brugðist við en sjaldn- ast er hægt að endurheimta féð ef það er komið á reikninga erlendis. Svíkja út hundruð milljóna  Hrina stjórnendasvika ríður yfir landið  Fölsk skilaboð yfirmanna um greiðslur inn á erlenda reikninga berast gjaldkerum  Erfitt getur verið að endurheimta Hnitmiðaðar árásir » „Þetta hefur aukist mikið eft- ir að gjaldeyrishöftin voru af- numin […] Að undanförnu hafa verið gerðar hnitmiðaðar árásir á fyrirtæki og íþróttafélög,“ segir Hákon Lennart Aakerlund netöryggissérfræðingur. MFölsun fyrirmæla … »4 Friðrik Þór Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.