Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 6

Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 ustu freskur og málverk og falleg- asta tónlistin tengjast gjarnan trúarlegum fyrirmyndum. Þegar maður vinnur verk sem tengjast því andlega þá verður útkoman það besta sem maður getur gert. Þetta verður svo einlægt og persónulegt.“ Kristjana sagði að þau væru ekki mjög kirkjurækin en hefðu kynnst systrunum í Karmelklaustrinu vel undanfarið. „Þær gleymast okkur aldrei systurnar hér. Við höfum átt með þeim svo ánægjulegar stundir, þær eru svo ótrúlega skemmti- legar,“ sagði Kristjana. Málverkið af hl. Teresu verður varðveitt í Karmelklaustrinu þar sem allar systurnar sjá það daglega. sagði Kristjana. Þau hjónin lásu um hl. Teresu og bók hennar Saga sálar til að kynnast sögu hennar. Baltasar sagði að erfiðast hefði verið að móta hugmyndina, hvernig myndin ætti að vera. En svo fann hann lausnina. „Þegar talað er um Teresu finnst mér eins og það sé verið að lýsa nunnunum hérna í klaustrinu. Þessi bros og hvernig þær hjálpa öðrum. Það hjálpaði mér að gera þetta,“ sagði Baltasar. Hann þekkti aðeins til hl. Teresu því foreldrar hans áttu litla styttu af henni. Baltasar hefur málað mörg verk sem skreyta kirkjur landsins. „Þetta er hluti af ferli mínum sem listamað- ur. Ef til vill er ástæðan sú að falleg- Guðni Einarsson gudni@mbl.is Rauð rósablöð skreyttu stéttina framan við kapelluna í Karmel- klaustrinu í Hafnarfirði og þegar inn var komið fyllti rósailmur loftið. Haf af rauðum, bleikum og hvítum rós- um var í kringum altarið og innan við grindurnar sem aðskilja svæði systranna frá svæði almennings. Erindið var að hitta Baltasar Samper listmálara og skoða nýtt málverk hans af heilagri Teresu af Jesúbarninu sem hann málaði fyrir Karmelnunnurnar. Skrín með helg- um dómum Teresu er hér á landi og var í kapellunni í gær. Systurnar sungu og léku á hljóðfæri og klöpp- uðu svo fyrir Baltasar og þökkuðu fyrir málverkið. Það ríkti mikil gleði og þakklæti í kapellunni. Heilög Teresa sagði áður en hún dó, aðeins 24 ára gömul, að eftir dauða sinn myndi hún láta rósum rigna niður af himnum. Hennar himnaríki yrði að gera gott á jörðu. Þess vegna er hún ævinlega sýnd með rósir og eru rósir nátengdar henni og minningu hennar. Baltasar sagði að systir Agnes hefði haft samband fyrir tæplega þremur mánuðum og beðið hann að mála mynd af hl. Teresu. Kristjana Samper, eiginkona Baltasars, sagði að vel hefði staðið á svo Baltasar gat strax hafist handa. Hann vann að málverkinu í tíu vikur. „Það hefur veitt okkur mikla ham- ingju að uppfylla óskir systranna,“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Karmelklaustrið rósum skreytt Kristjana og Baltasar Samper með systrunum sem sungu og léku á hljóðfæri. Rósaregn og góðilm- ur af himnum ofan  Baltasar málaði mynd af hl. Teresu fyrir Karmelsystur Morgunblaðið/Árni Sæberg Kapellan F.v.: Anny Marconot, Kristjana Samper, systir Agnes og Baltasar Samper. Í baksýn er skrínið með helgum dómum Teresu og málverkið. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það hefur ekki verið gerð nein breyting á reglugerð um skotelda. Innflutningur og sala verður því með hefðbundnu sniði,“ segir Jón Svan- berg Hjartarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, við Morgunblaðið, og bendir á að flestir skoteldar sem seldir verða um komandi áramót séu þegar komnir til landsins. Á fyrri hluta þessa árs var mjög fjallað um þá miklu loftmengun sem lagðist yfir allt höfuðborgarsvæðið um síðastliðin áramót. Sýndu niður- stöður rannsókna m.a. að svifryk hefði mælst afar hátt um áramótin og var stór hluti þess mjög fínn, það var málmríkt, kolefnisríkt, brenni- steinsríkt og klórríkt. Slík mengun er sögð afar varasöm fólki. Í viðtali við Morgunblaðið í apríl síðastliðn- um sagði Guðmundur Ingi Guð- brandsson, umhverfis- og auðlindar- áðherra, mengunina áhyggjuefni og ekki ásættanlega. „Við verðum vitanlega að bregðast við,“ sagði ráð- herrann í áðurnefndu viðtali. Leggja inn pöntun í mars Jón Svanberg segir reglugerð um skotelda kveða á um að halda skuli fund með innflytjendum skotelda fyrir lok febrúar ár hvert um mögu- legar breytingar á sölu. Slíkt var ekki gert og því verður fyrirkomulag óbreytt í ár. „Við pöntum okkar flug- elda í byrjun mars svo flugeldaver- tíðin hjá okkur nær yfir allt árið,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum frá ráðu- neytinu er nú „verið að fara vandlega í saumana á flugeldum, loftmengun og til hvaða aðgerða sé mögulegt að grípa, bæði til skamms tíma og til lengri tíma.“ Þá var samráðsfundur um skotelda haldinn í ráðuneytinu í október sem hafði það að marki að ræða leiðir til úrbóta, en á fundinn mættu fjölmargir hlutaðeigandi að- ilar. Engin breyting á sölu skotelda þrátt fyrir loftmengun  Verðum vitanlega að bregðast við, sagði ráðherra snemma á þessu ári Morgunblaðið/Hari Mengun Skoteldaþoka lagðist yfir öll hverfi höfuðborgarinnar. Eyrarrósin er viðurkenning sem er veitt framúrskarandi menningarverkefnum utan höfuðborgarsvæðisins. Til þess að koma til greina þurfa verkefni að hafa fest sig í sessi, vera vel rekin, hafa skýra framtíðarsýn og hafa haft varanlegt gildi fyrir lista- og menningarlíf í sínu byggðarlagi. Sex verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og þrjú þeirra hljóta svo tilnefningu til sjálfrar Eyrarrósarinnar sem verður afhent við hátíðlega athöfn í febrúar næstkomandi. Eyrarrósinni fylgja peninga- verðlaun að upphæð 2.000.000 krónur. Hin tvö tilnefndu verkefnin hljóta einnig peningaverðlaun; 500 þúsund hvort. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar afhendir verðlaunin. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL MIÐNÆTTIS 7. JANÚAR 2019 Upplýsingar og umsóknarform má finna á vef Eyrarrósarinnar WWW.LISTAHATID.IS/EYRARROSIN Öllum umsóknum verður svarað. AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Ríkisstjórnin mun verja 5,6 millj- ónum króna af ráðstöfunarfé sínu í desemberuppbót til umsækjenda um alþjóðlega vernd hér á landi. Þetta var samþykkt á ríkisstjórn- arfundi í gær. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi hafa undanfarin ár fengið viðbótargreiðslu í des- ember frá íslenska ríkinu. Alls eru 618 umsækjendur um alþjóðlega vernd nú í þjónustu hjá Útlendingastofnun og sveit- arfélögunum Reykjavík, Hafn- arfirði og Reykjanesbæ, þar af 138 börn. Flóttamenn fá desemberuppbót frá ríkinu „Það er ótrúlega gott að komin sé lausn. Við erum búin að bíða í þrjá mánuði eftir niðurstöðu og erum því mjög fegin,“ segir Sæunn Káradóttir, bóndi í Norðurhjáleigu í Álftaveri, en VÍS hefur samþykkt að greiða bænd- unum bætur vegna tjóns sem þeir urðu fyrir í ágúst þegar skýstrókar gengu yfir. Tjón varð á sjö eða átta húsum, sem sum eyðilögðust, og lausafjár- munum. Byggingarfulltrúi Skaftár- hrepps áætlaði að tjónið næmi 7-8 milljónum króna. Enginn taldi sér skylt eða heimilt að greiða tjónið þegar bændurnir könnuðu réttarstöðu sína eftir ham- farirnar. Tryggingafélagið bar því við að bændurnir væru ekki með óveð- urstryggingu og Náttúruhamfara- trygging Íslands og Bjargráðasjóður töldu sér ekki heimilt að bæta tjónið. Matsmaður frá VÍS skoðaði skemmd- irnar í gær og mun meta tjónið. Húsin verða lagfærð Sæunn segir að væntanlegar tjóna- bætur verði notaðar til að lagfæra það sem hægt er að laga og rífa það sem talið er ónýtt. En þetta komi í ljós þegar matið liggi fyrir. helgi@mbl.is VÍS tekur tjónið á sig  „Gott að komin sé lausn,“ segja bændur í Norðurhjáleigu Ljósmynd/Sæunn Káradóttir Norðurhjáleiga Mikið tjón varð þegar skýstrókurinn gekk yfir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.