Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 8

Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Reykjavíkurborg ætlar aðþröngva 32 íbúðum upp á Furu- gerði, næst Bústaðavegi. Íbúarnir í Furugerði hafa mikl- ar áhyggjur af vænt- anlegum þrenging- um, en Dagur B. Eggertsson segir skipulagi borgar- innar lítast vel á þær.    En hann hveturlíka íbúana til að koma at- hugasemdum sínum á framfæri í því auglýsingaferli sem framundan sé. Það verði „auðvitað farið málefna- lega yfir“ þær athugasemdir.    Ekki þarf að efast um það og svoverður ekkert gert með at- hugasemdirnar, ekki frekar en at- hugasemdir annarra íbúa sem þurft hafa að þola þrengingar borgarinnar á undanförnum árum.    Og íbúarnir í Furugerði hafa raun-ar þegar komið rökstuddum at- hugasemdum sínum á framfæri án þess að borgarstjóri hafi hlustað.    ÍMorgunblaðinu hefur verið greintfrá þeim, meðal annars athuga- semd um það að þessum 32 íbúðum eigi aðeins að fylgja 24 bílastæði í kjallara og að aðkoman verði um þrönga íbúðagötu.    Einn íbúanna bendir á að eftirþrengingu verði mikill bíla- stæðavandi og „að íbúar 8 íbúða, gestir þeirra og aðrir, munu ekki hafa nein bílastæði til afnota í göt- unni“.    En borgaryfirvöld gera ekkertmeð slíkar athugasemdir. Gest- ir og íbúar þessara átta íbúða geta bara ferðast á hjólum eða með borg- arlínu. Það hlýtur að henta öllum og alltaf. Dagur B. Eggertsson Auðvitað málefnalega STAKSTEINAR Kynningarherferðin er styrkt af Evrópusambandinu – The European Union‘s Rights, Equality and Citizenship Programme (2014-2020) Á fundinum verður fjallað um grunnreglur persónuverndarlaganna sem allir þurfa að kunna skil á, þýðingu þeirra fyrir einstaklinga og þær kröfur sem lögin gera til fyrirtækja, stjórnvalda og annarra sem vinna með persónuupplýsingar. Allir velkomnir! Nánari upplýsingar og skráning á www.personuvernd.is OPINN KYNNINGARFUNDUR MEÐ PERSÓNUVERND Fundaröð Persónuverndar um nýja persónuverndarlöggjöf 2018 Mánudaginn 26. nóvember kl. 13-15 Hótel Reykjavík Natura, við Nauthólsveg Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Benedikt Gabríel Val- garður Gunnarsson, list- málari og dósent í myndlist við KHÍ, lést á líknardeild Landspítal- ans í Kópavogi 22. nóv- ember sl., 89 ára að aldri. Benedikt fæddist 14. júlí 1929. Foreldrar hans voru Gunnar Hall- dórsson verkamaður og Sigrún Benediktsdóttir húsmóðir. Benedikt lauk gagn- fræðaprófi frá Núps- skóla við Dýrafjörð 1945, stundaði nám við Handíða- og myndlistarskól- ann í Reykjavík 1945-48, við Listahá- skólann í Kaupmannahöfn og við teikniskóla P. Rostrup Bøyesens, list- málara á Statens museum for kunst í Kaupmannahöfn 1948-50, var við nám og listsköpun í París 1950-53, m.a. við Académie de la Grande Chaumiére, og í Madrid 1953-54, og stundaði myndfræðilegar rannsóknir við Louvre-listasafnið í París og Prado- listasafnið í Madrid. Þá lauk hann myndlistarkennaraprófi frá Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands 1964. Benedikt kenndi myndlist til margra ára, m.a. vi Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1959-68 og við Kennaraskóla Íslands, síðan Kenn- araháskóla Íslands, frá 1965. Hann var lektor við KHÍ frá 1977 og dósent þar frá 1998. Benedikt hélt á þriðja tug einka- sýninga hérlendis og eina í París, í La galer- ie Saint-Placide, 1953. Hann tók þátt í 23 sam- sýningum víða um heim, m.a. á öllum Norðurlöndunun. Málverk hans prýða veggi margra lista- safna hér á landi og er- lendis. Hann gerði stórar veggmyndir og steinda glugga í nokkr- ar opinberar byggingar hérlendis, m.a. í Há- teigskirkju. Árið 2002 var Benedikt útnefndur heiðurslistamaður Kópa- vogs. Benedikt sat í stjórn FÍM og í stjórn Norræna listbandalagsins 1958-60 og í sýningarnefnd FÍM 1965-72. Hann var prófdómari við MHÍ 1975-77. Hann myndskreytti og gerði kápur á fjölda bóka og tímarita, m.a. listtímaritið Birting. Benedikt var kvæntur Ásdísi Ósk- arsdóttur hjúkrunarfræðingi, f. 1933, en hún lést árið 2016. Foreldrar hennar voru Óskar Jónsson, skrif- stofumaður og alþingismaður, og Katrín Ingibergsdóttir húsmóðir. Benedikt og Ásdís eignuðust tvö börn, Valgerði, f. 1965, sem vinnur við bókaútgáfu, og Gunnar Óskar, f. 1968, en hann lést árið 1984. Maki Valgerðar er Grímur Björnsson jarð- eðlisfræðingur og þeirra börn eru Gunnar og Sóley. Andlát Benedikt Gunnarsson Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra hefur ákveðið að fela Landspítalanum að annast rekstur sjúkrahótelsins við Hringbraut tímabundið til tveggja ára. Áður hafði verið miðað við að Landspít- alanum yrði falið að bjóða rekstur- inn út í samvinnu við Ríkiskaup. Svandís segir ákvörðun sína um að fela Landspítala þetta verkefni ekki síst byggjast á því að það sé málinu til framdráttar að koma í veg fyrir mögulegar tafir á opnun hótelsins þegar þar að kemur vegna óvissu um rekstur þess. Landspítalinn mun reka sjúkrahótelið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.