Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 14
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það verður ekki lengur haldin sér- stök skrá yfir þá einstaklinga sem hafa samþykkt að vera líffæragjafar. Þess í stað verður einungis haldin skrá yfir þá sem vilja ekki gefa líf- færi sín,“ segir Alma D. Möller land- læknir í samtali við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til þess að Alþingi samþykkti 6. júní síðast- liðinn breytingu á lögum um brott- nám líffæra, nr. 16/1991. Breytingin er á þann veg að allir verða nú sjálf- krafa líffæragjafar við andlát, hafi þeir ekki áður lýst sig andvíga líf- færagjöf. Gerir frumvarpið þannig ráð fyrir „ætluðu samþykki“ í stað „ætlaðrar neitunar“ vegna líffæra- gjafar líkt og kveðið er á um í núgild- andi lögum. Nýju lögin munu taka gildi 1. janúar 2019. Af því tilefni var í gær haldinn fræðslufundur með heilbrigðisstarfsfólki á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru yfirlæknir og læknir á Landspítala auk fulltrúa landlæknis. Í takt við flestar þjóðir Evrópu Embætti landlæknis fagnar þess- ari lagabreytingu og segir Íslend- inga þar með að stíga sama skref og allflestar þjóðir í Evrópu sem byggja löggjöf sína um líffæragjafir á ætluðu samþykki einstaklinga. Alma segir hins vegar einnig mik- ilvægt að standa vörð um sjálfs- ákvörðunarrétt fólks um eigin lík- ama með því að gera óheimilt að nema brott líffæri úr líkama látinna einstaklinga hafi þeir lýst sig and- víga því. „Þessir einstaklingar geta skráð vilja sinn í rafrænan gagnagrunn Heilsuveru, en einnig reiknum við með að læknar geti aðstoðað fólk við að skrá vilja sinn í sjúkraskrárkerfi Sögu. Er það einkum hugsað fyrir þá sem ekki geta farið sjálfir inn á vefsvæði Heilsuveru,“ segir Alma. Aðspurð segir hún reynslu ná- grannaríkja okkur góða af „ætluðu samþykki“ til líffæragjafar. „Mér skilst að flestir séu viljugir til þess að gefa. Þetta var kannað á sínum tíma hér á landi og þá kom í ljós að 84% vilja gefa líffæri. En auðvitað er til hópur sem ekki vill gefa og þá er mjög mikilvægt að virða vilja hans.“ Mikilvægt að taka umræðuna Fræðslufundurinn á Akureyri var vel sóttur, en einn þeirra sem fluttu þar erindi var Runólfur Pálsson, læknir á Landspítala, og fjallaði ávarp hans um líffæraígræðslur á Íslandi. Hann segir mikla kynning- arherferð nú vera í gangi á vegum Embættis landlæknis þar sem fyr- irhuguð lagabreyting er kynnt heil- brigðisstarfsfólki um land allt. „Það þarf að kynna þetta vel fyrir heilbrigðisstarfsfólki um land allt því fólk kann að leita til þeirra. Svo þarf einnig að fræða almenning um þetta,“ segir Runólfur. Aðspurður segir hann nauðsyn- legt að upplýsa fólk um líffæragjafir til að auka líkur á því að sem flestir vilji gerast gjafar. „Við viljum náttúrulega helst að allir séu gjafar. En til að það mark- mið náist þarf að upplýsa fólk og ræða þessi mál, ekki síst innan fjöl- skyldunnar. Við eigum von á því að mjög fáir skrái sig andvíga, en það er ekki hægt að vita með vissu vilja einhvers sem fellur frá í blóma lífs- ins. Þá er leitað til fjölskyldunnar og þá er mjög mikilvægt að þessi um- ræða hafi verið tekin,“ segir Run- ólfur, en þörf Íslendinga fyrir líffæri til ígræðslu hefur aukist mjög á und- anförnum árum og er nýju lögunum m.a. ætlað að svara þeirri þörf. Allir sjálfkrafa gjafar eftir áramót  „Ætlað samþykki“ til líffæragjafar tekur gildi í lögum um brottnám líffæra 1. janúar næstkomandi  Embætti landlæknis fagnar breytingunni og segir hana í takt við allflestar þjóðir Evrópu Akureyri Frá vinstri má sjá þau Gunnar Þór Gunnarsson, yfirlækni á Akureyri, Ölmu D. Möller landlækni og fund- arstjóra, Runólf Pálsson, lækni á Landspítala, og Kristin Sigvaldason, yfirlækni á gjörgæslu Landspítala. Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson Húsfyllir Vel var mætt á fundinn sem haldinn var á sjúkrahúsinu. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Hvar á ég heima? Málþing á Icelandair hótel Reykjavík Natura, Þingsal 2, þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.30-15.30 Setning málþings Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna Öldrunarheimili fyrir alla? Björn Bjarki Þorsteinsson, varaformaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og framkvæmdastjóri Brákarhlíðar Allskonar fólk Hrönn Ljótsdóttir, forstöðumaður Hrafnistu í Garðabæ Heimilið mitt og samfélagið þar Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar Einstaklingurinn í fyrirrúmi Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands Að fá örugga þjónustu – sýn sveitarfélags Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar Dagskrá: 13.30 – 13.40 13.40 – 13.55 13.55 – 14.10 14.10 – 14.25 14.25 – 14.45 14.45 – 15.05 Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Að framsögum loknum verða pallborðsumræður. Fundarstjóri: Ellert B. Schram, fyrrv. alþingismaður og formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni. Ellert B. Schram Pétur Magnússon Björn Bjarki Þorsteinsson Hrönn Ljótsdóttir Halldór Guðmundsson Þuríður Harpa Sigurðardóttir Berglind Magnúsdóttir Er það rétt stefna að ungt fólk flytji inn á hjúkrunarheimili fyrir aldraða og búi þar áratugum saman? Eiga allir að geta búið á hjúkrunarheimilum óháð þjónustuþörf og sjúkdómsástandi og hver eru þolmörk aldraðra íbúa þeirra? Atvinnutekjur á hvern íbúa hækk- uðu í öllum landshlutum á milli ár- anna 2008 og 2017. Hæstar voru þær á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi en lægstar á Norður- landi vestra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Byggða- stofnunar um atvinnutekjur 2008- 2017 eftir greinum og landshlutum. Heildaratvinnutekjur 2017 námu 1.218 milljörðum kr. en námu 1.134 milljörðum kr. 2016 á verðlagi árs- ins 2017. Það þýðir hækkun upp á 7,4%. Frá 2008 hafa atvinnutekjur aukist um 186 milljarða kr. eða ríf- lega 18%. Mest aukning á tímabilinu 2008- 2017 varð í greinum sem tengjast ferðaþjónustu, en næst þar á eftir koma heilbrigðis- og félagsþjón- usta og fræðslustarfsemi. Sam- dráttur varð í þremur greinum á tímabilinu. Mestur var hann í fjár- mála- og vátryggingastarfsemi. En einnig í mannvirkjagerð þrátt fyrir verulega aukningu á milli áranna 2016 og 2017 og í fiskveiðum þar sem samfelldur samdráttur hefur verið í atvinnutekjum frá 2012, að árinu 2015 undanskildu. Mikil hækkun á Suðurnesjum Á árunum 2008-2012 lækkuðu heildaratvinnutekjur á öllum svæð- um nema í Vestmannaeyjum þar sem þær jukust um 13%. Þá lækk- uðu þær óverulega í Grindavík, á Snæfellsnesi og í Skaftafells- sýslum. 2012-2017 hækkuðu heildar- atvinnutekjur á öllum svæðum nema Vestmannaeyjum þar sem þær drógust saman um 1%. Mest hækkuðu þær á Suðurnesjum eða um 71%. Atvinnu- tekjur 1.218 milljarðar  Hafa hækkað alls staðar frá 2008

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.