Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 22

Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 24. nóvember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.3 123.88 123.59 Sterlingspund 159.08 159.86 159.47 Kanadadalur 93.21 93.75 93.48 Dönsk króna 18.868 18.978 18.923 Norsk króna 14.44 14.526 14.483 Sænsk króna 13.64 13.72 13.68 Svissn. franki 124.01 124.71 124.36 Japanskt jen 1.0912 1.0976 1.0944 SDR 170.96 171.98 171.47 Evra 140.81 141.59 141.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.9279 Hrávöruverð Gull 1228.25 ($/únsa) Ál 1944.0 ($/tonn) LME Hráolía 63.6 ($/fatið) Brent milljörðum en þau voru 5,7 milljarð- ar í september og dragast því saman um 3 milljarða, eða um 53%. Samtals námu ný útlán innláns- stofnana til heimila með veði í hús- næði tæpum 13 milljörðum króna í október síðastliðnum. Hlutfall óverð- tryggra lána nemur því 79% og rýk- ur upp frá 49% meðaltali fyrstu níu mánaða ársins en hlutfallið nam 57% í septembermánuði, sem var það hæsta sem það hefur náð á árinu. Hlutfall nýrra verðtryggra lána í október er aftur á 21% og töluvert fyrir neðan 51% meðaltalshlutfall fyrstu níu mánaða ársins. Að sögn Magnúsar Árna Skúla- sonar hjá Reykjavík Economics virð- ist vera sem svo að fólk sé á varð- bergi gagnvart verðbólgunni. „Bæði út af gengissiginu sem átt hefur sér stað undanfarið og það er ljóst að innfluttar vörur munu hækka í verði. Svo er líka þessi óvissa með kjarasamninga. Ef kaup- gjald hækkar umfram framleiðni- aukningu er líklegt að það komi nið- ur á verðbólgu. Þeim sem eru að taka lán virðist bara vera umhugað um þetta,“ segir Magnús sem segir aðspurður að það sé að mörgu leyti skiljanlegt. „Það er það. Það er mikil óvissa og kjarasamningar eru lausir eftir áramót. Svo hefur fólk brennt sig á verðtryggingunni.“ Óverðtryggð lán rjúka upp Morgunblaðið/Ómar Útlán Fólk óttast verðbólguskot og sífellt fleiri taka frekar óverðtryggð lán með veði í íbúð en hlutfall óverðtryggðra lána nemur 79% í október. Ný útlán til heimilanna » Hlutfall nýrra óverðtryggðra lána með veði í íbúð nemur 79% í októbermánuði. » Óverðtryggð lán hækka um 37% á milli mánaða og eru að- eins um 2% lægri en þau voru fyrstu níu mánuði ársins 2017 í heild sinni. » Fólk hræðist verðbólgu og óvissu í kjaramálum.  Ný óverðtryggð útlán heimila með veði í íbúðarhúsnæði aukast um 37% á milli mánaða  Ný útlán til heimila nema 13 milljörðum og þar af eru 79% óverðtryggð BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Gríðarleg aukning er á nýjum óverð- tryggðum útlánum heimilanna með veði í íbúðarhúsnæði. Þetta segja nýjar tölur sem Seðlabanki Íslands hefur birt en tölurnar sýna ný útlán að frádregnum upp- og umfram- greiðslum inn á eldri lán. Ný óverðtryggð útlán heimilanna með veði í íbúð hafa raunar aldrei verið hærri en nú, en í október námu útlánin 10,3 milljörðum króna. Er það 37% aukning frá septembermán- uði sem jafnframt sló öllum mæling- um við en þær ná aftur til ársins 2013. Ný óverðtryggð útlán með veði í húsnæði námu 4,8 milljörðum króna í október í fyrra og því er um tæp- lega 116% aukningu að ræða á milli ára. Til þess að setja hlutina í enn frekara samhengi eru ný óverð- tryggð útlán heimilanna með veði í íbúð í októbermánuði einum rétt rúmlega 2% lægri en þau voru fyrstu níu mánuði ársins 2017. Ný verðtryggð útlán til heimil- anna með veði í íbúð dragast að sama skapi mikið saman á milli mánaða. Í október námu ný verðtryggð lán 2,7 Á hluthafafundi sem haldinn verður í Icelandair Group næstkomandi föstudag kallar stjórn félagsins eftir heimild til þess að efna til hlutafjár- útboðs sem nemi 625 milljónum króna að nafnvirði, jafnvirði um 7,3 milljarða króna m.v. núverandi gengi bréfa félagsins í Kauphöll Íslands. Útboðið verður tvískipt. Í fyrri hluta þess, sem verður lokað, mun núverandi hluthöfum Icelandair Gro- up gefast kostur á að skrá sig fyrir nýjum bréfum að nafnvirði 499 millj- óna króna og verður lágmarksþátt- taka miðuð við kaup sem jafngildi að lágmarki 100 þúsund evrum, eða um 14 milljónum króna. Ætlunin er að áskriftir í þessum hluta útboðsins verði komnar fram fyrir 14. desem- ber næstkomandi. Í síðari hluta útboðsins, sem verð- ur almennt, mun hluthöfum og eftir atvikum öðrum gefast tækifæri til að skrá sig fyrir sem svarar 126 millj- ónum hluta að teknu tilliti til niður- stöðunnar í lokaða hlutanum. Ólíkt fyrri hlutanum verður skráningarlýs- ing gefin út fyrir þessum hluta og því verður ekki unnt að ljúka við að ganga frá honum fyrr en á nýju ári, líkast til í marsmánuði. Stjórn félags- ins mun ákveða útboðsgengið í fyrri hluta útboðsins, hið minnsta þremur dögum fyrir útboðsdag. Sama gengi verður á bréfum í síðari hluta útboðs- ins. Samkvæmt upplýsingum frá Ice- landair Group nemur kostnaður við fyrri hluta útboðsins 100 milljónum króna en síðari hlutann 50 milljónum. Á fyrrnefndum hluthafafundi sæk- ist stjórnin einnig eftir heimild til að hækka hlutafé félagsins um allt að 334,9 milljónir hluta. Ætlunin er að nota þá hluti, í heild eða að hluta, til að greiða fyrir kaupverð á öllu hlutafé WOW air. Áreiðanleikakönn- un sem nú er unnið að mun leiða í ljós hversu mikið hlutafé Icelandair Gro- up mun þurfa að reiða af hendi fyrir félagið. Morgunblaðið/Eggert Fjármögnun Icelandair stefnir að því að sækja aukið fjármagn til hluthafa. Kaupi fyrir minnst 14 milljónir  Tvískipt hluta- fjárútboð hjá Ice- landair Group STUTT ● Tunna af Brent hráolíu lækkaði um allt að 5,9% á heimsmarkaði í gær. Fór verð á tunnu niður fyrir 60 bandaríkja- dali, eða í 58,9 dali, og nemur verð- lækkunin frá því í byrjun október vel yfir 30%. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Hækkunina má rekja til væntinga um minni hagvöxt og yfirstandandi við- skiptastríða sem aftur minnkar eftir- spurn eftir olíu að því er fram kemur í The Guardian. Hefur olíuverð ekki verið jafn lágt í meira en ár eða síðan í októ- ber 2017. Í frétt FT segir að fjárfestar efist um að Sádi-Arabía geti haldið aft- ur af framboði en bandarísk stjórnvöld hafa pressað stíft á að halda verðinu niðri. Donald Trump Bandaríkjaforseti hrósaði Sádi-Arabíu á dögunum fyrir það hlutverk sem landið hefur leikið í lækkun olíuverðs. Kemur þó einnig fram að Sádi-Arabar telji að þörf sé á að draga úr framleiðslu þar sem verðlækk- anir þrengja að ríkisfjárhagnum. Banda- ríkin hafa aftur á móti kallað eftir öðru og segja sérfræðingar að stuðningur Trumps við krónprins landsins, Moham- med bin Salman, í morðmálinu á arab- íska blaðamanninum Jamal Khashoggi flæki málið. peturhreins@mbl.is Olíverð hefur ekki verið lægra síðan í október 2017 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Askalind 4 201 Kópavogur Sími 552 8400 www.valfoss.is Glæsilegar gjafir til starfsmanna og viðskiptavina Þú velur gjöfina Við pökkum gjöfinni inn Við komum gjöfinni til þín

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.