Morgunblaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018
Bandaríska geimfarið InSight, sem
á að lenda á Mars á mánudaginn
kemur, verður fyrsta geimfarið til
að lenda þar frá árinu 2012. Geim-
vagninn Curiosity var þá sendur
þangað með það að meginmarkmiði
að rannsaka hvort aðstæður á Mars
væru eða hefðu verið heppilegar
fyrir örverur.
Alls hefur 43 Mars-förum verið
skotið á loft og aðeins átján þeirra
hafa komist heilu og höldnu til
reikistjörnunnar, eða um 40%
þeirra, að sögn AFP. „Það er mjög,
mjög erfitt að koma geimfari til
Mars,“ hefur fréttaveitan eftir
Thomas Zurbuchen, einum stjórn-
enda Mars-leiðangra Geimvís-
indastofnunar Bandaríkjanna,
NASA.
Meginmarkmiðið með leiðangri
InSight er að gera jarðeðlis-
fræðilegar mælingar á Mars og
veita vísindamönnum innsýn í þró-
un bergreikistjarna sólkerfisins.
Leiðangurinn er einnig liður í
áformum NASA um að leysa ýmis
tæknileg vandamál sem hindra að
geimvísindastofnunin geti sent
mannað geimfar til Mars. AFP hef-
ur eftir embættismönnum NASA og
öðrum sérfræðingum að það tæki
líklega 25 ár að leysa þessi vanda-
mál og gera geimvísindastofnun-
inni kleift að senda geimfara til
Mars.
NASA hyggst senda geimvagn á
yfirborð Mars árið 2020 til að leita
að vísbendingum um hvort líf hafi
þrifist þar, kanna hugsanlegar auð-
lindir og meta hætturnar sem Mars-
farar gætu staðið frammi fyrir.
Aðeins 40% Mars-leiðangranna hafa heppnast
ISRO:
Á braut um Mars
Kom þangað 2014
ESA/Roscosmos:
ExoMars
2016
ESA:
Mars Express
2003
MAVEN
2013
Mars
Reconnaissance
Brautarfar
2006 Mars
Odyssey
2002
NASA:Geimvagnar, gervihnettir og brautarför sem hafa verið send til Mars
NASA: Geimvísindastofnun Bandaríkjanna
ESA: Geimvísindastofnun Evrópu
Roscosmos: Geimvísindastofnun Rússlands
ISRO: Geimvísindastofnun Indlands
Leiðangrar til Mars
Phoenix
Lenti í 2008
Viking 1
Júlí-ágúst
1976
Viking 2
Júlí-ágúst
1976
Pathfinder
September 1997
Opportunity
Janúar 2004
Spirit
Janúar 2004
Geimvagnar og
lendingarför
sem eru óvirk
Geimvagnar og
lendingarför í notkun nú
InSight
Á leið til Mars
Á að lenda á
mánudaginn kemur
Schiaparelli
Október 2016
Brotlenti
Heimild: NASA/VSSC/ESA
Mars 3
1971
Beagle 2
2003
Curiosity
Ágúst 2012
Talið er að Geimvísindastofnun Bandaríkjanna geti sent geimfara til Mars eftir um það bil aldarfjórðung
Konur taka þátt í göngu til að mótmæla ofbeldi gegn
konum í Santiago, höfuðborg Chile. Alþjóðlegur bar-
áttudagur gegn kynbundnu ofbeldi verður á morgun.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað í desember
1999 að 25. nóvember yrði helgaður baráttunni gegn
slíku ofbeldi til minningar um þrjár systur, Mirabal-
systurnar, sem voru myrtar þann dag árið 1960 í Dóm-
iníska lýðveldinu vegna baráttu sinnar gegn kúgun.
Alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi á morgun
AFP
Ofbeldi gegn konum mótmælt
Forseti sænska þingsins, Andreas
Norlén, skýrði í gær frá því að hann
hygðist leggja til að Stefan Löfven,
leiðtogi Sósíaldemókrataflokksins,
yrði næsti forsætisráðherra Sví-
þjóðar.
Norlén hyggst tilnefna Löfven í
embættið formlega mánudaginn 3.
desember. Þingið á síðan að greiða
atkvæði um tilnefninguna innan
fjögurra daga eftir það. Atkvæða-
greiðslan fer því fram áður en þing-
ið greiðir atkvæði um fjárlög næsta
árs 12. desember.
Áður hafði þingforsetinn lagt til
að Ulf Kristersson, leiðtogi hægri-
flokksins Moderaterna, yrði for-
sætisráðherra. Flokkurinn hefur
verið í bandalagi með þremur
flokkum og tveir þeirra felldu til-
löguna með því að greiða atkvæði
gegn henni. Þeir neituðu að styðja
ríkisstjórn sem þyrfti að reiða sig á
stuðning Svíþjóðardemókratanna,
flokks sem á rætur að rekja til nas-
istahreyfinga.
Hafni þingið tillögum þingforset-
ans um forsætisráðherra fjórum
sinnum þarf að efna til nýrra þing-
kosninga.
FORSETI SÆNSKA ÞINGSINS FELUR LEIÐTOGA SÓSÍALDEMÓKRATA AÐ REYNA AÐ MYNDA STJÓRN
Leggur til að Löfven verði forsætisráðherra
AFP
Áfram forsætisráðherra? Stefan Löf-
ven í þinghúsinu í Stokkhólmi í gær.
Fallegt 4ra-5 herbergja endaraðhús á eftirsóttum stað í Mosfellsbæ. Húsið er í
heildina 179,6 fm, þar af bílskúr 29,6 fm. Mjög rúmgott risloft með óskráðum fm nýtt
í dag sem sjónvarpsherb. og skrifst. Bílskúr er með góðri lofthæð og geymslulofti
(óskráður gólfflötur). Bílaplan með hitalögn. Húsið var málað að utan
sumarið 2017.
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 25. NÓV. KL. 14.00-14.30
Opið Hús
s 570 4800
gimli@gimli.is
www.gimli.is
Spóahöfði 2 - Endaraðhús 179,6 m2
Nánari uppl.: Elín Urður, aðstm. elin@gimli.is, s. 690 2602 eða halla@gimli.is
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK