Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 27

Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Veðurblíða Nú viðrar heldur betur víða vel fyrir sauðfé og annan búsmala sem kann miklu betur við að vera utandyra en innilokaður. Þessi kind var á vappi í blíðunni á dögunum í Borgarbyggð. Eggert Seðlabankinn á við trúverðugleika- vandamál að stríða sem hefur birst í auknum verðbólgu- væntingum að undan- förnu. Sést þetta í verðbólguvæntingum aðila á fjármála- markaði, stjórnenda fyrirtækja og almenn- ings. Verðbólguvænt- ingar eru nú yfir 2,5% verðbólgu- markmiði bankans á alla mælikvarða. Hefur verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hækkað um tæplega 1½ prósentu frá því fyrir ári og var álagið til fimm og tíu ára 4,1-4,2% rétt fyrir fund peningastefnu- nefndar fyrr í þessum mánuði, langt yfir verðbólgumarkmiði bankans. Virðist því sem kjölfesta verð- bólguvæntinga við markmið peninga- stefnunnar hafi veikst umtalsvert. Mætir niðursveiflu með vaxtahækkun Ef peningastefnan hefði trausta kjölfestu í trúverðugu verðbólgumarkmiði þá ætti verð- bólguskot, eins og nú er, ekki að hafa áhrif á verðbólguvæntingar til lengri tíma. Við slíkar aðstæður gæti Seðlabankinn sleppt verð- bólguskotinu í gegn án hækkunar stýrivaxta. Það er hins vegar ekki staðan nú. Vegna aukinna verðbólguvænt- inga finnur bankinn sig knúinn til að hækka stýrivexti á tíma og hag- kerfið er að sigla inn í niðursveiflu en peningastefnunefnd bankans hækkaði stýrivexti um 0,25 pró- sentustig fyrr í þessum mánuði. Raunar vildi einn aðili nefndarinnar hækka stýrivexti enn frekar eða um 0,5 prósentur samkvæmt fundargerð vaxtaákvörðunarnefnd- arinnar. Boðar nefndin frekari hækkun stýrivaxta ef staðan breyt- ist ekki en samkvæmt sömu fund- argerð segir nefndin að ef verð- bólguvæntingar haldi áfram að aukast og festast í sessi umfram markmið muni það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Með öðrum orðum: frekari hækkun stýrivaxta. Áhættusöm blanda Verðbólgan er að aukast en ekki vegna þess að eftirspurn er meiri en framleiðslugetan í hagkerfinu heldur vegna þess að gengi krón- unnar hefur lækkað umtalsvert frá síðastliðnu sumri. Gengi krónunnar er að veikjast, líkt og nefndin bend- ir á í fundargerð sinni, vegna tíma- bundinna fjárhagslegra erfiðleika í WOW air, versnandi viðskiptakjara, hægari útflutningsvaxtar ásamt vaxandi áhyggjum af komandi kjarasamningum. Allt eru þetta þættir sem tengjast hægari vexti hagkerfisins með einum eða öðrum hætti. Slíka verðbólgu getur verið afar varasamt að berja niður með tækjum peningastjórnunarinnar þar sem aðhald peningastefnunnar getur við þessar aðstæður aukið enn frekar á niðursveifluna og gert hana lengri en ella. Óvægin beiting stýrivaxta ofan í snöggkólnun hag- kerfisins er því áhættusöm blanda. Eftir Ingólf Bender » Seðlabankinn á við trúverðugleika- vandamál að stríða sem hefur birst í auknum verðbólguvæntingum að undanförnu. Ingólfur Bender Höfundur er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Trúverðugleikavandi Seðlabankans Ég þáði boð Gríms Hákonarsonar í liðinni viku um að koma á frumsýningu kvik- myndar hans sem ber heitið „Litla-Moskva“. Hann hefur síðan um myndina fjallað í út- varpi og blöðum (Morgunblaðið 15. nóv., Fréttablaðið 17. nóv.). Ég sá á sínum tíma „Hrúta“, kvik- mynd eftir sama höfund, og þótti hún ágæt, enda vakið verðskuldaða athygli. Ég hafði því fyrirfram góðar væntingar um þessa nýju kvikmynd hans, þótt mér þætti fyrirsögnin kyndug. Svo fór hins vegar að ég varð fyrir verulegum vonbrigðum með verkið, þátt fyrir stöku góða myndræna spretti. Ástæðan er gloppótt og í veigamiklum atriðum röng túlkun Gríms á hálfrar aldar valdatíma sósíalista og Alþýðu- bandalagsins í þessu umtalaða sveit- arfélagi. Myndataka og söguþráður Fyrst hins vegar nokkur orð um jákvæðar hliðar myndarinnar. Myndatakan er á köflum góð, þótt gjarnan hefði mátt bregða upp bjartari hliðum af fögru umhverfi og glæstum fjallahring Norðfjarðar ásamt með vetrarmyndunum. Best skila sér viðtalskaflarnir við Guð- mund Sigurjónsson og Stellu Steinþórsdóttur, en myndatakan af Guð- mundi Bjarnasyni sem nú er látinn er óboðleg, og daufleg þótti mér sviðsetning af viðtali við Kristin V. Jóhanns- son, fyrrum bæjarfull- trúa. Það er þó sögu- þráðurinn sem Grímur spinnur og staðhæf- ingar hans um nánast trúarleg viðhorf meiri- hluta kjósenda í bæn- um til Sovétríkjanna sem ekki standast hlutlæga skoðun. Til hvaða tímabils er hér verið að vísa? Glæpir Stalínstímans urðu lýð- um ljósir 1956, þ.e. fáum árum eftir að sósíalistar fengu meirihlutafylgi í bæjarfélaginu. Og þótt enn fyndust gamlir forystumenn sem vonuðu að Eyjólfur hresstist, var það ekki lengur ráðandi viðhorf. Alþýðu- bandalagið í Neskaupstað var stofn- að 1965 og bauð fram til bæjar- stjórnar út öldina. Sem formlegur stjórnmálaflokkur á landsvísu frá 1968 hafnaði það öllum pólitískum samskiptum við ráðandi komm- únistaflokka í ríkjum Austur- Evrópu sem stóðu að innrásinni í Tékkóslóvakíu það sama ár. Til- raunir til að sniðganga þá afstöðu flokksins voru kveðnar niður, m.a. með formlegri miðstjórnarsamþykkt 1976. Félagsskapurinn MÍR (Menn- ingartengsl Íslands og Ráðstjórnar- ríkjanna) var með öllu ótengdur Al- þýðubandalaginu, þótt reynt sé að gefa annað til kynna í kvikmyndinni. Hugmyndaleg afstaða einstaklinga eins og Guðmundar „stalíns“ og fleiri gagnvart Sovétríkjunum var auðvitað einkamál viðkomandi sem margir brostu að og höfðu í flimt- ingum. Sérstök afstaða Stellu „stóru“ á hinum vængnum var á sama hátt vel þekkt, en ekki er ég viss um að liðsoddar Sjálfstæðis- flokksins í bæjarfélaginu hafi al- mennt samsamað sig með hennar viðhorfum. Hallærisheitið Litla-Moskva Heiti myndarinnar „Litla- Moskva“ er nafngift sem ég heyrði ekki í Neskaupstað á meðan Sov- étríkin voru við lýði, og ekki minnist ég þess heldur úr dagblöðum eða vikublöðum þess tíma. Hitt gerðist hins vegar á 10. áratugnum að nýir forystumenn í bæjarstjórn eins og Smári og Einar Már fundu upp á því að láta reisa stóra vörðu við inn- keyrsluna í bæinn og setja á hana skjöld með áletruninni Litla- Moskva, og ör sem vísaði í austur og á stóð Moskva 2000 km (sagt eftir minni). Þetta átti að þeirra sögn að vekja athygli á kaupstaðnum og trekkja að ferðamenn! Ég gerði strax athugasemd við þetta tiltæki og mannvirkið var horfið innan fárra daga! Í stíl við þetta stóðu þeir hinir sömu undir aldamót og lengi síðar fyrir föstum skemmtiþætti á þorra- blótum, klæddir einkennisbúningum frá tíð Sovétsins. Í þessu opinber- aðist grunnhyggni og flónska, sem var að mínu mati óviðeigandi í sögu- legu samhengi og gagnvart íbúum Neskaupstaðar. Það er dapurlegt að Grímur skuli nú velja skrípanafn- giftina Litla-Moskva sem heiti á það sem hann kallar heimildarmynd. Iðnaðarkommar og álver Í viðtali við Fréttablaðið um síð- ustu helgi segir Grímur m.a.: „Kommarnir í Neskaupstað voru iðnaðarkommar. Þeir gerðu allt til að skapa atvinnu. Þeir fóru í það að biðla til álvers að koma þangað og eru aðalhvatamenn að þessu álveri og Kárahnjúkavirkjun líka.“ Hér er um sérkennilega alhæfingu að ræða. Til hverra er hér vísað? Varla til Lúðvíks Jósepssonar, Helga Seljans eða undirritaðs, sem var kjörinn á þing 1978 og háði harða rimmu við Alusuisse og Alcoa, síðast fyrir Hæstarétti eftir aldamót. Alþýðu- bandalagið markaði sér skýra orku- stefnu 1976, bæði varðandi orku- freka stóriðju og umhverfismál. Þeirri stefnu var fylgt eftir til um 1990, en þá var af nýrri forystu Al- þýðubandalagsins á landsvísu farið að slaka á gagnvart erlendri stór- iðju. Um það og margt fleira var síð- an deilt innan flokksins og leiddi að lokum til stofnunar Vinstri grænna 1998-99, á meðan aðrir skriðu saman við Alþýðuflokkinn í Samfylking- unni. Það var fyrst rétt fyrir kosn- ingar til sveitarstjórna vorið 1998 að Smári, Guðmundur bæjarstjóri og Einar Már sýndu á álspilin og gerð- ust meðhlauparar í lest sem aðrir flokkar drógu kappsamlega. Eftir sem áður voru fjölmargir fyrrver- andi stuðningsmenn Alþýðu- bandalagsins eystra andsnúnir ál- bræðslu á Reyðarfirði og stór- virkjun í hennar þágu. Þetta með öðru sýnir hversu fjarstætt það er að líta á þessa kvikmynd sem gilda heimild um stjórnmálastarf Alþýðu- bandalagsins í Neskaupstað á seinni hluta síðustu aldar. Grímur segist hafa „vitað rosalega lítið um bæinn“ þegar hann hóf vinnu að kvikmynd sinni en stað- hæfir hins vegar að sósíalistar í Nes- kaupstað hafi alltaf verið að bíða eft- ir byltingunni. Sú fjarstæðukennda fullyrðing endurspeglast ekki í störfum þeirra að hagsmunum íbú- anna á umræddu tímabili, oft við erf- iðar ytri aðstæður. Þannig er þessi „heimildarmynd“ full af mótsögnum og fjarri þeim veruleika sem höfund- urinn væntanlega ætlaði sér að varpa ljósi á. Eftir Hjörleif Guttormsson » Það er dapurlegt að Grímur skuli velja skrípanafngiftina Litla- Moskva sem heiti á það sem hann kallar heim- ildarmynd, en margt fleira er eftir því. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Ótrúverðug „heimildarmynd“ um Neskaupstað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.