Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 30

Morgunblaðið - 24.11.2018, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið/Jóhann Ásmundsson Jóhanna Björg Jóhannsdóttir var meðal þeirra sem náðu góðum úrslit- um í 1. deild Íslandsmóts skákfélaga. Með tíunda jafntefliMagnúsar Carlsen ogFabiano Caruana áfimmtudaginn er sleg- ið met í sögu heimsmeistara- einvígja hvað varðar fjölda jafnt- efla í upphafi einvígis og bendir margt til þess að tveim síðustu skákunum með venjulegum um- hugsunartíma ljúki einnig þannig. Röð jafntefla er ekki óþekkt í heimsmeistaraeinvígjum og metið á því sviði var 17 jafntefli Karpovs og Kasparov haustið 1984 og í því sama einvígi stigu þeir síðan inn í nýja árið 1985 með 14 jafntefli í röð á samviskunni. Ellefta skákin er á dagskrá í dag og sú tólfta á mánudaginn. Verði jafnt munu þeir tefla fjórar atskákir, 25 10, á miðvikudag. Verði enn jafnt tefla þeir tvær hraðskákir, 5 3. Verði enn jafnt munu þeir tefla fjögur slík hraðská- keinvígi til viðbótar og verði enn jafnt verða málin útkljáð með „Armageddon- skák“. Í því tilviki nægir þeim sem hefur svart jafntefli til að vinna einvígið en hefur minni tíma, 4 3 á móti 5 3. Þær fjórar atskákir sem Magnús tefldi við Karjakin í New York fyrir tveim árum voru að margra mati há- punktur þess einvígis. Voru þær sýndar í beinni útsendingu á risa- tjaldi á Times Square í New York og á Rauða torginu í Moskvu og var síðasti leikur Magnúsar ógleyman- legur. 10. skák: Fabiano Caruano – Magnús Carlsen Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Rd5 Rxd5 8. exd5 Rb8 9. a4 Be7 10. Be2 0-0 11. 0-0 Rd7 12. b4 Fram að þessu hafa leikir fallið eins og í 8. skák en þá lék Caruana 12. a5. Hann hefur ekki áhuga á að sjá endurbætur Magnúsar. 12. … a6 13. Ra3 a5 14. bxa5 Hxa5 15. Rc4 Ha8 16. Be3 f5 17. a5 f4 18. Bb6 De8 19. Ha3 Dg6 20. Bc7 e4 21. Kh1 21. … b5! Snilldarleikur í miðtafli sem býð- ur upp á framhjáhlaup, 22. axb6 en þá kemur 22. … Hxa3 23. Rxa3 f3! 24. gxf3 Re5 25. Hg1 Dh6! með ýmsum hótunum. 22. Rb6 Rxb6 23. Bxb6 Dg5?! Vafasamur leikur sem Caruana gat nýtt sér með 24. Bxb5 t.d. 24. … f3 25. gxf3! o.s.frv. 24. g3? b4 25. Hb3 Bh3 26. Hg1 f3 27. Bf1 Bxf1 28. Dxf1 Dxd5 29. Hxb4 De6 30. Hb5 Bd8 31. De1 Bxb6 32. axb6 Hab8 33. De3 Dc4 34. Hb2 Hb7 35. Hd1 De2 36. He1 Dxe3 37. Hxe3 d5 38. h4 Hc8 39. Ha3 Kf7 40. Kh2 Ke6 41. g4 Hc6 42. Ha6 Ke5 43. Kg3 h6 44. h5! Eftir þetta blasir jafnteflið við. Svartur getur ekki þokað peðum sínum áleiðis. 44. … Kd4 45. Hb5! Hd6 46. Ha4 Ke5 47. Hab4 Ke6 48. c4 dxc4 49. Hxc4 Hdxb6 50. Hxe4 Kf7 51. Hf5 Hf6 52. Hxf6 Kxf6 53. Kxf3 Kf7 54. Kg3 – jafntefli. Caruana sá ekki ástæðu til að tefla þetta frekar þó að hann væri peði yfir. Fjölnir í efsta sæti á Íslandsmótinu Fyrri umferð Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór í Rima- skóla 8.-11. nóvember bauð upp á fjölmörg óvænt úrslit og er sú staða uppi eftir fimm umferðir af níu að skákdeild Fjölnis er efsta sæti. Fjölnir vann stórsigur strax í 1. umferð og hélt uppteknum hætti þar til í fjórðu umferð er liðið tapaði fyrir reyndri A-sveit Hugins, 3:5, missti þá forystuna en náði henni aftur á lokadegi. Staðan: 1. Fjölnir 31 v. (af 40) 2. Huginn 30½ v. 3. Víkingaklúbburinn 28½ v. 4. TR (a-sveit) 24½ v. 5. Taflfélag Garðabæjar 21½ v. 6. Breiða- blik, Bolungarvík og Reykjanes 19 v. 7. SA 15½ v. 8. Huginn (b- sveit) 12½ v. 9. TR (b-sveit ) 11½ v. 10. Skákdeild KR 5½ v. Líkur á að HM-einvígið verði útkljáð með atskákum Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ríkisstjórn undir forustu VG er eins árs um þessar mundir. Auk VG eru í stjórn- inni Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar- flokkur. Ríkisstjórnin var mynduð í lok nóv- ember 2017. Margir verkalýðssinnar, aldr- aðir og öryrkjar bundu miklar vonir við for- ustu VG fyrir ríkis- stjórninni, þar eð VG gaf kosninga- loforð fyrir kosningar 2017 um að bæta ætti kjör aldraðra með hækk- un ellilífeyris. Og VG er afsprengi Alþýðubandalagsins sem var verkalýðsflokkur. En þessir aðilar hafa orðið fyrir miklum von- brigðum. VG eða ríkisstjórnin hef- ur ekki hækkað lífeyri um eina krónu að eigin frumkvæði. Sú litla hækkun sem varð á lífeyri um síð- ustu áramót var ákveðin af ríkis- stjórn Framsóknar og Sjálfstæð- isflokks 2016. Verkalýðshreyfingin samdi 2015 um hækkun lægstu launa í 300 þúsund á þremur árum og Landssamband eldri borgara fór fram á hliðstæða hækkun lífeyris 2016. Ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks varð við því, eða taldi sig verða, við því 2016. Líf- eyrir átti að hækka í 300 þúsund 2017. En að eigin frumkvæði hefur VG ekkert gert til þess að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja ennþá. Lífeyrir aldraðra og öryrkja mjög lágur Lífeyrir aldraðra og öryrkja frá almanna- tryggingum er í dag 204 þúsund kr á mán- uði eftir skatt hjá gift- um og sambúðarfólki (eingöngu lífeyrir frá TR) og 243 þúsund kr. á mánuði eftir skatt hjá einhleypum (eing. lífeyrir frá TR). Fyrir skatt er lífeyrir sem hér segir: Sambúðarfólk og giftir: 239 þúsund á mánuði, einhleypir 300 þús. á mánuði. Einhleypir aldraðir eru um 25% svo loforðið um 300 þúsund á mánuði nær aðeins til lít- ils hluta eldri borgara. Og sama er að segja um öryrkja. Aðeins 29% þeirra fá 300 þúsund á mánuði; hin- ir fá 239 þúsund á mánuði. Ráðgerð hækkun lífeyris minni en verðbólgan! Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 3,4% hækkun lífeyris 2019. Bankarnir spá 3,5% verð- bólgu næsta ár svo ekki er verið að lofa neinni raunhækkun.3,4% dugar ekki einu sinni fyrir verðbólgunni. Hvað þarf lífeyrir að vera mikill til þess að dugi til mannsæmandi lífs; eldri borgarar geti átt áhyggjulaust ævikvöld og öryrkjar þurfi ekki að kvíða morgundeg- inum? Ég mun nú svara því. Að mínu mati þarf lífeyrir þeirra sem eingöngu hafa lífeyri frá almanna- tryggingum að vera 420 þúsund kr. fyrir skatt á mánuði, 311 þúsund kr. eftir skatt. Ég tel þetta algert lágmark til þess að hafa fyrir fram- færslukostnaði og til þess að eldri borgarar geti gefið barnabörnum og barnabarnabörnum smágjafir. Það er ekki forsvaranlegt að skammta eldri borgurum minna en þetta, Ísland hefur efni á þessu. Af- greiðsla meirihluta fjárlaganefndar á fjárlagafrumvarpi gefur ekki góð- ar vonir. Meirihlutinn leggur til að framlög til öryrkja verði skorin nið- ur um 1,1 milljarð. Vonir stóðu til að framlög til öryrkja yrðu aukin, m.a. til þess að afnema krónu móti krónu skerðinguna. Þær vonir brugðust. Ríkisstjórnin stendur á bak við afgreiðslu meirihlutans. Margir skrifuðu undir kröfu um bætt kjör Nýlega var efnt til undirskrifta- söfnunar til stuðnings kröfu eldri borgara og öryrkja um bætt kjör. Einn eldri borgari, kona yfir átt- rætt, stóð fyrir undirskriftasöfn- uninni. Á sex vikum skrifuðu tæp 8000 undir. Það var stærsta undir- skriftasöfnun á vegum þjóðskrár. Upphafsmaður og ábyrgðarmaður undirskriftasöfnunarinnar var Erla Magna Alexandersdóttir. Hún gerði þetta nokkurn veginn ein síns liðs; hafði ekkert félag eða fyrir- tæki á bak við sig, ekkert fjármagn en samt skrifuðu svona margir undir. Það sýnir, að eldri borgarar, öryrkjar og stuðningsmenn þeirra vilja knýja fram kjarabætur enda kjörin hjá þeim lægst launuðu óásættanleg. Væntanlega tekur Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra sig á í kjaramálum aldraðra og öryrkja. Hún hefur ekki gert það enn. En það hlýtur að vera orðið ljóst ráð- herrum og þingmönnum, að 204- 243 þúsund kr. eftir skatt á mánuði dugar ekki til framfærslu, þegar ekki er um aðrar tekjur að ræða. Katrín verður að hafa forustu fyrir því í ríkisstjórninni, að þessi smán- arkjör verði leiðrétt. Það þolir enga bið. Réttlætinu verður ekki frestað. Réttlætinu verður ekki frestað Eftir Björgvin Guðmundsson »Katrín verður að hafa forustu fyrir því í rík- isstjórninni að þessi smánarkjör verði leið- rétt. Það þolir enga bið. Björgvin Guðmundsson Höfundur er fv. borgarfulltrúi. vennig@btnet.is Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Vogir sem sýna verð á vörum eftir þyngd Löggiltar fyrir Ísland og tilbúnar til notkunar ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum VERSLUNAR- VOGIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.