Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Canada Gose hefur framleitt hágæða útivistar- fatnað í Kanada fyrir erfiðustu aðstæður síðan 1957 og er nú leiðandi á því sviði á heimsvísu. CanadaGoose fæst í Nordic Store Lækjargötu Allar Canada Goose dúnúlpur eru framleiddar úr bestu fáanlegu hráefnum á vistvænan hátt og þeim fylgir lífstíðarábyrgð. Okkar verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum. Lækjargötu 2 www.nordicstore.is Opið kl . 9 -22 alla daga Mens Expedition Parka 129.990 kr. Ladies Expedition Parka 129.990 kr. Nordic Store er viðurkenndur söluaðili Canada Goose á Íslandi. Í verslun okkar í Lækjargötu 2 er mesta úrval af Canada Goose vörum fyrir herra og dömur á landinu. Hugarþjálfun, eins og nafnið bendir til, snýst um að þjálfa hugann til að takast á við álag og/eða að- stæður af ýmsu tagi. Þjálfarar og íþrótta- fólk trúa mismikið á gildi hugarþjálfunar og eru þar af leiðandi ekki að leggja áherslu á þá þjálfun. Erfitt getur verið að skilja nákvæmlega hvernig þessi þjálfun nýtist þeim beint í keppnum vegna þess að þetta er í raun ósýnilegt. Ef einstaklingur ákveður að byrja á skynsömum styrktaræfingum þá er hægt að sjá mun á líkamanum eftir nokkra mánuði og því er auðveldara að „trúa“ á gildi styrktaræfinga. Hugarþjálfun er, eins og áður segir ósýnileg, en viðkomandi ein- staklingar sem ákveða að leggja rækt við hana finna mikinn mun og sjálfstraust þeirra eykst gífur- lega. Sjálfstraust eykst vegna þess að það sem hugarþjálfun gerir fyrst og fremst er að auka trú íþróttamanns á sína eigin getu, trú á að hann sé undirbúinn fyrir verkefnið sem er fram undan (t.d. ákveðin keppni) og að hann geti framkallað sitt allra besta þegar það skiptir mestu máli. Efasemdir (og jafnvel for- dómar) gagnvart andlegri þjálfun í íþróttum og keppnum eru ekki óalgengar og von mín er sú að þessi grein upplýsi keppnisfólk og ekki síst þjálfara þeirra um gildi hugarþjálfunar og af hverju tíma, sem er fjárfestur í þeirri þjálfun, sé vel varið. Fimm ástæður fyr- ir því að íþróttafólk stundar ekki hug- arþjálfun: 1. Það áttar sig ekki nákvæmlega á því hvernig hugar- þjálfun getur hjálpað. 2. Það vill ekki eyða peningum í hug- arþjálfun eða að ekki er til nægur peningur til að fjárfesta í þann- ig þjálfun. 3. Það er með fordóma gagnvart hugarþjálfun og trúir ekki á gildi hennar. 4. Það prófar hugarþjálfun en hættir áður en það upplifir árang- ur. 5. Það hættir hugarþjálfun of snemma því það nær ekki að nýta hana í keppnum. „Vandamál“ Sumir íþróttamenn halda að hugarþjálfun sé einungis gagnleg þegar/ef eitthvað er að eða þegar það er „vandamál“ hjá þeim og líta þá á hugarþjálfun sem veik- leikamerki, sem „sönnun“ þess að þeir sé ekki „nógu góðir“. Auðvit- að eru tilfelli þar sem íþróttamenn íhuga hugarþjálfun bara þegar frammistaðan í keppnum er orðin mun verri en áður eða mun verri í keppnum en á æfingum. Stað- reyndin er að ef tveir aðilar eru að æfa sömu íþrótt, báðir æfa jafn vel tæknilegu og líkamlegu hliðina en annar þeirra leggur stund á hugarþjálfun, þá er sá aðili mun sterkari þegar kemur að keppn- um. Það að geta undirbúið sig fyrir kvíða, stress, væntingar, neikvætt sjálfstal og margt annað sem kemur upp hjá keppnisfólki, er oftar en ekki það sem aðskilur meistarana frá hinum. Hversu verðmætt er það þegar íþrótta- manni finnst hann 100% tilbúinn í keppni? Hversu betur hvíldur og mjúkur ætli hann sé þegar hann hefur ekki verið með kvíða og stress þegar kemur að keppnis- degi (svo ekki sé minnst á lakari svefn í kjölfarið á því), ætli hann sé með betri einbeitingu eða verri einbeitingu? Þegar keppnir eru yfirleitt yfir heila helgi þá skipta þessi atriði öllu máli (minni vöðvaspenna, betri svefn og betri einbeiting undir álagi). Hugar- þjálfun tryggir ekki sigur í öllum keppnum, alls ekki, en hún há- markar líkurnar á því að hver einstaklingur nái sinni bestu frammistöðu. Það er engin spurning að hug- arþjálfun skilar árangri en íþróttafólk og þjálfarar verða að hafa þolinmæði til að stunda hana í einhvern tíma til að upplifa ár- angurinn sem þeir sækjast eftir. Þetta er alveg eins og með lík- amsrækt, það er enginn að upp- lifa árangur eftir 1-2 skipti, það þarf ekki bara að stunda líkams- ræktina reglulega yfir ákveðinn tíma heldur þarf að stunda hana rétt yfir þennan tíma. Það er ekki tilviljun að flestir af besta íþróttafólki allra tíma, í ótal íþróttum, stunda hugar- þjálfun. Þessir einstaklingar hafa áttað sig á því hvernig hugar- þjálfun bindur saman alla aðra þjálfunarþætti. Einstaklingar eins og Michael Jordan (körfu- bolti), Kobe Bryant (körfubolti), Tiger Woods (golf), Andy Murray (tennis), Micheal Phelps (sund) og ótal annað heimsklassa- afreksfólk, þakkar andlegri þjálf- un mikið fyrir sinn árangur. Lærður eiginleiki Það er mikilvægt að íþróttafólk viti að andleg harka, einbeiting, agi, vinnusemi, viðhorf, og aðrir jákvæðir eiginleikar sem heims- klassaíþróttafólk býr yfir, eru að langmestum hluta lærðir eigin- leikar. Það geta allir byggt upp þessa eiginleika með sjálfum sér sem nýtist ekki bara í íþróttum heldur í lífinu í heild. Það er bá- bilja að sumir fæðist með þessa eiginleika og þurfi að hafa mikið minna fyrir hlutunum en aðrir og að aðrir geti ekki orðið eins góðir í þeim eins og þeir sem fæðast með þessa „guðsgjöf“. Þetta er bara þjálfunarþáttur eins og hver annar, en þetta er hins vegar þáttur sem bindur saman alla aðra þætti og á það sérstaklega við þegar kemur að keppnum þar sem pressan er sem mest. Hugarþjálfun – til hvers? Eftir Ástvald Frí- mann Heiðarsson »Einstaklingar sem ákveða að leggja rækt við hugarþjálfun finna mikinn mun og sjálfstraust þeirra eykst gífurlega. Ástvaldur Frímann Heiðarsson Höfundur er ráðgjafi í íþróttasálfræði og hluti af fagteymi innan ÍSÍ. afrekpsych@gmail.com hlutfalli fasteignaskatts óbreyttu. Með þessari aðferð má skófla inn meira og meira fé í gegnum fast- eignaskattinn um leið og hægt er að segja að skattar hafi ekki verið hækkaðir, enda hlutfall þeirra óbreytt. Enn ein vinsæl en óbein leið er að leggja gjaldskrár á opinbera þjónustu sem ætti í raun að vera margborguð í gegnum skattkerfið. Þannig má rukka sjúklinginn á sjúkrahúsinu um brauðsneiðina sína, í fyrstu með vægu gjaldi sem síðar er hækkað og hækkað. Sjúk- linga má krefja um komugjöld þótt þeir geti ekki valið um að koma ekki, og byrja á lágri fjár- hæð sem síðan má hækka um leið og heimsóknartíminn hjá lækn- inum er styttur. Hvernig ætli færi fyrir hárgreiðslustofu sem hegðaði sér á sama hátt? Ríkiseinokun á rekstri er óend- anleg uppspretta af fé almennings. Sumir muna hvernig farsímagjöld hrundu þegar fyrirtækjum var leyft að keppa við Símann á fjar- skiptamarkaði. Aðrir muna hvað var erfitt að fá heyrnatæki áður en einkaaðilum var leyft að koma inn á þann markað, í samkeppni við ríkisvaldið. Þar sem hið opin- bera hefur sleppt takinu hefur orðið til val, samkeppni og mark- aðsaðhald. Þar sem hið opinbera rígheldur í eitthvað, t.d. sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu, þar rýrnar þjónustan um leið og hún hækkar í verði, og það er tekjulind fyrir hið opinbera sem fer fram hjá flestum í dægurþrasinu. Þú hugsar kannski ekki „ónýtt- ur skattstofn“ þegar þú lítur á þig í spegli, en það gera flestir stjórn- málamenn. Það er því ráð að koma þeim út úr sem flestu svo þeir geti féflett þig sem minnst. Höfundur er verkfræðingur. geirag@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.