Morgunblaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.11.2018, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Sagt er að mjög gott sé að búa á Íslandi. Ekki er alveg augljóst hver á í hlut sem þykir gott að búa hér á landi en mjög misjöfn reyn- ast kjör fólks. Fyrir ungt fólk á lágmarkslaunum blasir ekki við björt framtíð. Þegar foreldrahúsin eru yfirgefin þá þarf að finna húsnæði og það er ekki gefið að finna hentuga íbúð. Uppsprengd leiga er á húsnæð- ismarkaði. Íbúðaverð hefur hækkað mikið á undanförnum árum sem er ekki auðvelt fyrir ungt fólk að höndla. Vaxtakjör hér á landi eru með þeim óhagstæðustu í gjörvallri Evrópu og jafnvel víðar enda býður krónusamfélagið upp á óstöðugt verðlag og þar með kjöraðstæður fyrir kaupahéðna. Eldri borgarar og öryrkjar flestir hverj- ir lepja dauðann úr skel. Á dögunum ræddi eg við miðaldra mann sem nýlega hef- ur misst sjónina. Hann ber sig ekki vel eftir viðskipti sín við það opinbera. Trygg- ingastofnun fylgist vel með að enginn aldr- aður né öryrki hafi það of gott og ef einhverjar greiðslur koma fram, t.d. úr lífeyrissjóði eða sjúkrasjóði, er tafarlaust farið að reikna og kanna hvort ekki sé unnt að endurheimta sem mest fé til baka. Á Íslandi er þannig kerfi að aðeins auðmenn geti lifað vel og í allsnægtum en þurftarlaun hafa verið yfirskatt- lögð. Sjálfur hefi ég reynslu af þessu ferli. Fyrir rúmlega þremur árum greindist ég með alvarlegt krabba- mein á háu stigi en var svo heppinn að njóta góðra lækna og hjúkr- unarfólks. Unnt var að fjarlægja meinsemdina við fyrstu hentugleika eftir geisla- og lyfjameðferð. Þá fór ég í eftirlyfjameðferð sem hafði mikil áhrif á mig til sálar og líkama en sú meðferð miðast við að eyða öllum frumum líkamans sem eru í skiptingu. Auk þess hafði sú með- ferð áhrif á starfsemi blóðkorna sem og hormóna og jafnvægis- skynið raskaðist varanlega. Sjúkra- sjóður Leiðsagnar, félags leiðsögu- manna, veitti mér mikilsverða fjárhagsaðstoð. Hið opinbera tók með sköttum ríflegan hluta af þessu fé. Þær bótagreiðslur sem eg hafði fengið frá Tryggingastofnun bar mér að endurgreiða að verulegu leyti og er fyrst núna í haust laus við þær endurgreiðslur. Ég tel mig ekki vera með þeim alverst settu í samfélaginu en hvers vegna er skattastefna yfirvalda þannig rekin að hér á landi séu þurftarlaun skattlögð? Byrðar þeirra sem höllum fæti standa í samfélaginu eru óþarflega þungar miðað við mjög góða stöðu þeirra sem betur mega sín og hafa meira að segja fengið léttari skattbyrði í boði hægri manna. Fjármálaráðherrann okkar verð- ur seint talinn á flæðiskeri staddur. Hann hefur með fjölskyldu sinni komið ár sinni óvenjulega vel fyrir borð og sankað að sér óhóflega miklum fjármunum. Sennilega þarf hann aldrei að óttast skort af neinu tagi nema helst að hafa betri skiln- ing fyrir þeim sem minna hafa milli handanna og þurfa að greiða óhóf- lega háar skattgreiðslur af lítilfjör- legum tekjum. Sjálfsagt er að biðja fyrir þeim sem höllum fæti standa en mætti ekki biðja sérstaklega fyrir fjár- málaráðherranum sem og öðrum stjórnmálamönnum á hægri kanti stjórnmála að uppljúkist augu þeirra fyrir kjörum okkar minnstu og smæstu í samfélaginu? Í þágu hverra? Eftir Guðjón Jensson Guðjón Jensson » Á Íslandi er þannig kerfi að aðeins auð- menn geti lifað vel og í allsnægtum en þurftar- laun hafa verið yfir- skattlögð. Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Þar sem ég hef fengið góðar undir- tektir við skrif mín er mér ekkert að vanbún- aði að halda áfram. Af mörgu er að taka – en mig langar að byrja á hrósi. Við háttvirtu Ís- lendingar höfum til allrar hamingju séð að okkur í orðanotkun að einhverju leyti. Dönskuskotna íslenskan frá því á fyrri hluta síðustu aldar hefur „þróast“ í rétta átt. Í ellefu ár bernsku og æsku minnar ólst ég upp við Lækjargötu í Reykjavík, nánar tiltekið í húsinu næst tjörninni, nr. 14 B. Þar hét gangstéttin fortó: „Komum upp á fortóið í parís!“ sögð- um við. Veit nokkur nú lengur hvað fortó er? Vonandi fáir. Okkur er ekki alls varnað fyrst við gátum útrýmt þessu danska (fortov) orði. En við erum því miður enn með sjampó-ið – sem auðvitað er hár- sápa, strætó – fyrir strætisvagn. Og eitthvað fleira kúrir hér enn. Í mörgum auglýsingum tengdum félagsstarfi er sagt að: Húsið opnar kl. eitthvað, bókasafnið opnar o.s.frv. Þetta er undarlegt orðalag, hús getur ekki opnað eitt né neitt, ekki heldur sjálft sig. Húsið verður opnað, bókasafnið er opið frá kl., húsið verður opið á tilteknum tíma – við opnum sýninguna, sýningin verður opnuð Er þetta ekki fremur einfalt? Margir segja frá því að þeir séu að gera skemmtilega hluti, en svo kem- ur í ljós að þeir búa ekki til neina hluti. Hlutir – eru það ekki sýnilegir hlutir, áþreifanlegir hlutir, kannski leirmunir, flíkur og fleira hlutlægt? Séu menn (hvort sem eru karlmenn eða kvenmenn) að gera eitthvað óhlutlægt, eins og að halda námskeið, leika í leikverki, syngja, dansa eða hvaðeina slíkt eru þeir ekki að gera hluti. Þeir eru áreiðanlega að gera eitthvað mjög áhugavert og skemmti- legt, en ekki að gera/ búa til hluti. Í frásögn þeirra er eðlilegast að segja: Ég er að gera svo margt skemmtilegt – gera það sem mér finnst skemmtilegast – sæmir ekki að bæta einhverjum hlutum við – einkum ef engir eru. Er það nokkuð? Undanfarið hef ég heyrt setningar eins og: Mamma kynnti mig fyrir sveitinni – og – vinir mínir kynntu mig fyrir fjallgöngum! Er þetta ekki eitthvað öfugt? Mamma hlýtur að kynna sveitina fyrir mér og vinir mínir að kynna gönguferðir fyrir mér – og eru þetta þó ærin verkefni. Eða þau kynna mér sveitina. Sveitin eða fjöllin sýna væntanlega engin viðbrögð við slíkum kynningum, enda orðalagið oftast notað um kynningar persóna hverja fyrir ann- arri. Svo er það litla meinleysislega orðið ansi. Það er ansi oft notað, ein- hver segist vera ansi góður í ein- hverju, – veðrið var ansi slæmt um helgina, – það er ansi lítið eftir í kaffikönnunni! Orðið er býsna oft notað í sjónvarpsviðtölum og hvar sem er heyrist þetta orð. Líka frá þeim sem annars heyrast aldrei blóta! Ætlum við bara alveg að taka það í sátt? Ansans!! Þetta sakleys- islega orð er nefnilega stytting á blótsyrðinu andskotans. Og við eig- um þetta ágæta orð býsna sem nær merkingunni vel, orðið nokkuð má líka nota – eða talsvert – eða mjög. Mig langar að vitna í orðalag Þór- arins Eldjárns sem einhvern tíma skrifaði í grein (vona að ég muni rétt og megi þetta): „Gerið það fyrir mig að hætta að segja/nota“ mig langar til að nota þennan setningarhluta og bæta við: orðin basicly, actually og structur þegar þið talið íslensku. Fyrir alla muni, já. Þessi orð koma oft fyrir í íslenskum setningum hjá fólki í samtölum fjölmiðla eða bara í daglegu tali fólks. Ótrúlegt og afar hvimleitt á að hlýða. Íslensku orðin eru vel nothæf: Undirstaða, grund- völlur, í aðalatriðum (basicly), – í raun og veru, raunverulega, raunar (actually) og fyrir structure : sam- setning, formgerð, bygging. Við þurfum í raun að forðast að eins fari fyrir okkur og Dönum, sem hafa nánast alltaf að minnsta kosti eitt enskt orð (með enskum framburði eins og þeirra er háttur) í hverri setningu. Ég horfi oft á danska sjón- varpið og er slegin yfir því hvernig danskan er orðin. Verum varkár, vörumst slysin. Við erum komin áleiðis í sama pytt og þurfum að taka okkur verulega á. Og svo að lokum: Undirrituð var alin upp á dönsku og tala hana (eins og hún var). Ég kom fyrir um 20 árum í heimsókn til frænda míns í Kaupmannahöfn og var spurð: „Vil du have en toast (frb. tóst)?“ Ég skildi ekki hvað var í boði og hváði. Hann endurtók „En toast!“ Þegar ég áttaði mig á enska orðinu sagði ég honum að þetta hefði ég haldið að héti „ristet brød“. Njótið dagsins. Vörumst málfarsslysin Eftir Rúnu Gísladóttur Rúna Gísladóttir » Við háttvirtu Íslend- ingar höfum til allr- ar hamingju séð að okk- ur í orðanotkun að einhverju leyti. Höfundur er myndlistarmaður og fyrrverandi kennari. Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borg­ ina svo sérstaka. Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna­ yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd­ aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW BÚDAPEST NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.