Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 38

Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 ✝ Margrét Braga-dóttir var fædd 22. maí 1942 á Þórs- höfn á Langanesi. Hún lést 13. nóv- ember 2018 á Dval- arheimilinu Brák- arhlíð í Borgarbyggð. Margrét var dóttir hjónanna Braga Jónssonar verkamanns, f. 26. janúar 1914, d. 26. nóvember 1994, og Signýjar Sigurlaugar Margrétar Þorvaldsdóttur, verkakonu og matráðskonu, f. 27. desember 1916, d. 7. septem- ber 2009. Eftirlifandi bræður hennar eru Hermann Jónsson Braga- son, Ágúst Þorvaldur Bragason og Vilhjálmur Hallbjörn Braga- son. Látin eru Ari Guðmar Hall- grímsson og Dóróthea Hall- grímsdóttir. Árið 1960 giftist Margrét Kristján Jóhannsson, f. 15. janúar 1968, kjörforeldrar Jó- hann Ólafsson og Jóna Björg Georgsdóttir, maki Svanhildur Eiríksdóttir, f. 4. maí 1968, eiga þau þrjú börn. Stúlka Margrétardóttir, f. 26. júní 1970, d. 28. júní 1970. Margrét giftist Kristjáni Jóni Arilíussyni, f. 12.júní 1946, 26. desember 1974 á Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi. Börn þeirra eru: Arilíus Borgfjörð, f. 24. desember 1973, maki Anna Elsa Eggertsdóttir, f. 22. októ- ber 1983, hann á fjögur börn, Kristín Halldóra, f. 22. maí 1981, hún á eitt barn, Jón Þór, f. 8. nóvember 1982, maki Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir f. 13. júní 1987. Þau eiga fjögur börn. Margrét ólst upp á Norðfirði þar til hún fluttist í Garð á Suðurnesjum með foreldrum sínum. Þar vann hún ýmis fisk- vinnslustörf þar til hún flutti vestur á Stóra-Hraun 1972. Þar bjó hún þangað til hún flutti til Borgarness 2009 vegna heilsu- brests. Dvaldi hún á Brákarhlíð síðustu þrjú árin. Útförin fer fram frá Kolbeins- staðakirkju í dag, 24. nóvember 2018, klukkan 14. Einari Sigurfinns- syni úr Vestmanna- eyjum. Þau slitu samvistum. Með honum eignaðist hún tvo syni. Þeir eru: Bragi Einars- son, f. 7. júní 1960, maki hans er Guð- rún Filippía Stef- ánsdóttir, f. 1. des- ember 1960. Þau eiga þrjú börn. Jóhannes Ágúst Stefánsson, f. 22. júní 1961, d. 23. júní 2011. Utan hjónabands átti Mar- grét: Grétar Sigurbjörn Miller f. 4. október 1963, maki hans er Gunnlaug María Björnsdóttir f. 18. október 1978. Hann á þrjú börn. Guðmund Jón Erlendsson, f. 16. ágúst 1965, kjörforeldrar Erlendur Vilmundarson og Helga Sigurðardóttir, maki Ragnhildur Magnúsdóttir, f. 3. júlí 1975. Hann á fjögur börn. Elsku tengdamamma hefur fengið hvíldina. Ég man vel þeg- ar ég hitti Möggu tengdamömmu í fyrsta sinn um páskana 1981. Auðvitað var maður dálítið kvíð- inn en það breyttist fljótt því móttökurnar hjá Möggu og öll- um á Stóra-Hrauni gátu ekki verið betri. Samt þorði ég nú ekki annað en að borða kjöt og karrí þegjandi og hljóðalaust þó að mér líkaði alls ekki sá matur. Hún hló mikið þegar ég sagði henni frá því nokkrum árum seinna. Það var alltaf gott að koma í heimsókn í sveitina og sitja og spjalla eða horfa á hand- bolta með Möggu ef svo bar undir. Hún gat alveg tapað sér yfir spennandi landsleik hér á ár- um áður. En við áttum líka annað sameiginlegt áhugamál, Euro- vision. Gátum við setið og horft eða spjallað um ágæti laganna, söngsins eða þess vegna um fatn- að þátttakendanna og var minni hennar með ólíkindum. Þessi áhugi hefur heldur betur smitast til dætra okkar Kristínar og Steinunnar Bjarkar sem ólust upp við þessi ósköp. Börnin okk- ar Braga sóttust öll í að fara í sveitina til Möggu ömmu og Stjána afa og undu sér mjög vel þar við leik og störf enda frænd- systkinin Kristín og Jón Þór ekki mjög langt frá þeim í aldri. Síð- ustu árin hafa verið erfið fyrir tengdamömmu, líkaminn farinn að gefa sig en hún hélt andlegri heilsu fram undir það síðasta og alltaf var hægt að ræða við hana um líðandi stund eða rifja upp gamla tíma. Vil ég að lokum þakka tengdamömmu fyrir sam- ferðina í rúm 37 ár og senda Kristjáni og öllu ástvinum inni- legar samúðarkveðjur. Hvíl í friði. Þín tengdadóttir Guðrún Filippía Stefánsdóttir. Elsku amma mín, nú hefurðu fengið hvíldina. Magga amma var kvenskörungur mikill, hún var ófeimin að segja sína skoðun á hlutunum og tók það ekki í mál að fólk væri með einhvern derr- ing við hana og get ég þakkað henni fyrir stóran part af því hvernig persóna ég er í dag. Annað sem ég get þakkað Möggu ömmu fyrir er hinn óbilandi áhugi á Eurovision en hún á mjög stóran þátt í því að sú keppni er eitt aðaláhugamál mitt í dag. Ég mun seint gleyma öll- um stundunum sem við sátum saman uppi á Stóra-Hrauni og horfðum á gamlar keppnir og körpuðum ósjaldan um gæði hinna ýmsu laga, enda vorum við ekki alltaf sammála og þá sér- staklega vorum við ósammála nú í seinni tíð. Einnig get ég þakkað henni elsku ömmu einfaldlega fyrir það að vera góð amma og ekki síst góð manneskja, sérstaklega í ljósi þess að hún elsku amma fór ekki alltaf auðveldustu leiðina í gegnum lífið. Ekkert kom í veg fyrir ást ömmu á barnabörnum sínum og þá skipti engu máli hvort barnabarnið var komið yfir þrítugt eða hvort það væri þriggja ára. Elsku amma mín, ég vona að þú sért nú á góðum stað og að þér líði vel. Þín sonardóttir, Steinunn Björk Bragadóttir. Elsku Magga. Mikið er ég fegin að hafa kynnst þér. Þú varst alltaf mjög góð við mig. Ég á eftir að sakna þín, faðmlags, kossanna og brossins þíns. Alltaf þegar við hittumst og kvöddumst faðmaðir þú mig og kysstir. Mér leið alltaf svo vel hjá þér, einn daginn fór ég að kalla þig mömmu, þú varst ánægð með það. Enda leit ég á þig sem hina mömmu mína og hef alltaf gert. Ég naut þess þegar ég kom með Kristínu eitt sinn í sveitina, þú lást uppí rúmi að lesa bók. Ég og Kristín lögðumst hjá þér, þar spjölluðum við í svolitla stund og færðum okkur svo inní eldhúsið. Ég fann að ég var alltaf velkom- in, einnig að þér þótti vænt um mig eins og mér þótti og þykir vænt um þig. Þú dýrkaðir jólin varst algert jólabarn. Ég mun bráðum fara setja upp jólaljósin og þegar ég geri það, mun ég hugsa til þín með bros á vör. Einnig fannst þér gaman að horfa á Eurovision, veit ekki hvað margar spólur þú áttir sem þú varst búin að taka upp á. Þú gast horft á keppnirnar aftur og aftur. Eitt sinn varstu að horfa á eina keppnina þegar ég kíkti til þín. Við sátum saman og horfð- um í smá stund, fórum svo að spjalla saman. Þegar ég sagði þér að ég hefði ákveðið að fara aftur í skóla, þú varst svo ánægð með mig. Ekki var það verra að við Kristín fórum saman í skóla og útskrifuðumst saman. Þegar ég hitti þig eftir útskriftina faðmaðir þú mig og sagðir mér hversu stolt þú værir af mér. Mér þótti mjög vænt um það. Mikið er ég ánægð með að hafa kíkt til þín, spjallað við þig og fengið síðasta faðmlag og koss frá þér. Ég á eftir að sakna þín, elsku Magga mamma. Minning þín er ljós í lífi okkar allra. Nú skil ég það fullvel hver auðlegð mín er, er öðlast ég gjafirnar þínar. Með fátækum orðum, sem finn ég hjá mér, ég færi þér þakkirnar mínar. Þú vaktir það besta, sem blundaði í mér, svo bjartir mér lífsgeislar skína. Með ástríku hjarta svo auðnaðist þér að umbera brestina mína. Það veitist margt örðugt, sem við er að fást, í veröld með óþreyju ríka. Þar fyndum við meira af friðsæld og ást ef fleiri þú ættir þér líka. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga) Kveðja, Íris Júlía. Margrét Bragadóttir Elsku Pálmi, tengdapabbi og vinur. Mikið á ég eft- ir að sakna þín. Þú tókst á móti mér inn í fjölskyldu þína opnum örmum fyrir 14 árum og nú skilur leiðir. Þó að aðdragandinn að þessum Pálmi Pálmason ✝ Pálmi Pálma-son fæddist 23. apríl 1951. Hann lést 25. október 2018. Úförin fór fram 7. nóvember 2018. skilnaði hafi verið sjö ár var ég engan veginn tilbúinn þeg- ar læknirinn sagði að nú væri komið að því. Að nú værir þú að fara. Þetta er bú- ið að vera tilfinn- ingaríkt ferðalag frá því að fréttirnar af veikindum þínum komu sem þruma úr heiðskíru lofti, að þú ættir bara stuttan tíma eftir með okkur og værir með alvarlegt krabbamein á háu stigi. Þessa daga síðan þú kvaddir hef ég rifjað upp tíma okkar sam- an og hvernig ég vilji minnast þín. Fyrstu hugsanirnar sem koma upp eru strax hversu góður vinur þú varst og allur sá stuðningur og hjálp sem þú hafðir að veita. Þú talaðir alltaf við mig sem jafn- ingja. Gafst þér alltaf tíma til að veita ráðgjöf, eða bara hlusta og þegja þegar ég þurfti bara að blása eða var með svarið sjálfur en þurfti einungis að segja það upphátt. Eftir að þú fórst hafði fólk á orði að nú þyrftir þú ekki að líða þjáningar meir. Það sló mig fyrst. Þú kvartaðir aldrei undan verkj- um og sársauka. Þú kveinkaðir þér aldrei. Jafnvel þegar þú varst spurður út í líðanina var svarið svo léttvægt að hlusta varð vel á hvert orð og reyna að lesa á milli línanna. Það var eins og þú vildir ekki gera of mikið úr því sem þú gekkst í gegnum svo fólkinu þínu liði ekki verr í vonleysi yfir ástandinu. Það rifjast upp fyrir mér þegar þú hjálpaðir okkur Völu að gera upp Skaftahlíðina og svo endur- bætur á Stuðlaselinu, bara 2-3 ár- um fyrir greininguna á krabba- meininu. Þú vannst hörðum höndum með okkur og samt varstu þetta mikið veikur. Þrátt fyrir að vera þetta langt leiddur í veikindunum sem við þá vissum ekki af keyrðirðu þig áfram til að hjálpa. Annað var ekki tekið í mál. Þú varst ótrúlega sterk sál. Það beit ekkert á þig. Sannkallað heljarmenni. Þú varst einstaklega skap- góður. Skiptir aldrei skapi. Tókst öllu með jafnaðargeði og alltaf til í glens og að hlæja með okkur. Ég man þegar þú hélst á kett- inum okkar, honum Múfasa vini þínum. Þú hélst honum upp að andlitinu á þér eins og þú varst vanur og skyndilega sló hann þig í framan og klóraði svo allir tóku andköf, en ekki þú. Þú lagðir hann rólega frá þér og sagðir að þetta væri nú allt í lagi. Strax í næstu heimsókn var Múfasa vel- kominn beint aftur á nefið á þér og sama brosið frá þér. Allt var fyrirgefið. Það voru ótrúleg lífsgæði að eiga þig að í lífinu. Að geta alltaf leitað til þín fyrir ráð og aðstoð. Leita í handlagni þína og útsjón- arsemi. Hugmyndaríki. Aðstoð þín við að koma fyrirtæki mínu á koppinn var ómetanleg. Trúin á mig, að mér væru allir vegir færir og hvernig þú gerðir flókin vandamál að einföldum lausnum svo ég gæti haldið ótrauður áfram. Ég á eftir að sakna þess- ara stunda þar sem við erum að pæla saman, eða ræða pólitík yfir kaffi. Minningarnar um mál- þingin sem við sóttum saman, ferðirnar út í Úthlíð að bardúsa eða bara sitja saman og þegja. Þú varst frábær vinur og ég mun sakna þín sárt. Þinn tengdasonur, Ingólfur Bjarni Sveinsson. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts ÁRNA ÍSLEIFSSONAR. Sérstakar þakkir til þeirra tónlistarmanna sem heiðruðu minningu hans með söng og hljóðfæraleik. F.h. aðstandenda, Kristín Axelsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna fráfalls og útfarar okkar ástkæra ÓLAFS AXELS JÓNSSONAR, Fornósi 13, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 1 á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks ásamt sjúkraflutningamönnum. Guð blessi ykkur öll. Bára Þ. Svavarsdóttir Hafdís Ólafsdóttir Jón Stefán Karlsson Guðbjörg Ólafsdóttir Finnur Kristinsson Ragnheiður H. Ólafsdóttir Birgir Þórðarson barnabörn og fjölskyldur þeirra Okkar ástkæri BIRKIR SKARPHÉÐINSSON, Skálateigi 1, Akureyri, lést mánudaginn 19. nóvember. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 29. nóvember klukkan 13.30. María Einarsdóttir Hildur Birkisdóttir Laufey Birkisdóttir Friðrik Karlsson Guðrún M. Birkisdóttir Jóhannes R. Jóhannesson Skarphéðinn Birkisson afa- og langafabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSTU EMILÍU FRIÐRIKSDÓTTUR, Dalsgerði 7h, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar fyrir einstaka umhyggju og alúð. Guðríður Þórhallsdóttir Hallgrímur Jónsson Stefán Arngrímsson Guðbjörg Theresisa Einarsd. barnabörn og barnabarnabörn Elsku yndislega vinkona, hjartans þakkir fyrir allar ógleymanlegu stundirnar sem við áttum sam- an. Ég er eilíflega þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig fyrir vinkonu, með þitt stóra hjarta sem endalaust gaf af sér þrátt fyrir margra ára veikindi. Takk, elsku Stúlla mín, fyr- ir öll góðu kvöldin sem við sát- um og spjölluðum saman, stundum jafnvel til morguns, takk fyrir alla hjálpina sem þú veittir mér og fjölskyldu minni, ferðalögin, hláturinn, Ingibjörg Bjarnadóttir ✝ IngibjörgBjarnadóttir fæddist 11. desem- ber 1950. Hún lést 4. nóvember 2018. Útför Ingibjarg- ar fór fram 16. nóvember 2018. matarboðin og óteljandi skemmti- legar stundir. Sakna þín svo sáran, mín kæra vinkona. Ég kveð þig með ljóði, sem okkur báðum þótti fallegt og við töluðum um eitt sinn þegar við spjölluðum um ljóð. Þá var fagur sumardagur og þú hughreystir mig eftir andlát Ellenar systur minnar. Þín augu mild mér brosa á myrkri stund og minning þín rís hægt úr tímans djúpi sem hönd er strýkur mjúk um föla kinn þín minning björt (Ingibjörg Haraldsdóttir) Margrét Steinunn Thorarensen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.