Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 24.11.2018, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 ✝ Eva var fæddað Einhamri í Hörgárdal 26. apríl 1929. Hún lést að dvalarheimilinu Hlíð 9. nóvember 2018. Foreldrar henn- ar voru Steinunn Friðrika Guð- mundsdóttir, f. 1901, d. 1990 og Aðalsteinn Jónas Tómasson, f. 1899, d. 1980. Eva var ein tólf systkina, en hin voru: Hersteinn f. 1920, lát- inn, Helgi, f. 1922, látinn, Jó- hanna, f. 1923, Guðmundur Halldór, f. 1925, Ragna, f. 1926, Hermann, f. 1927, látinn, Heim- ir, f. 1930, látinn, Hreiðar, f. 1931, Haukur Otterstedt, f. 1933, látinn, Haukur, f. 1940 og Sigurrós, f. 1941. Eva kvæntist Sigurgeiri Sigurpálssyni, f. 12. júlí 1929, d. 2012, þann 29. júlí 1951 að Bakka í Öxnadal. Um haustið 1949 hófu þau þeirra eru; a) Guðmundur, b) Einar Logi, c) Eva Björk. Þau eiga fimm barnabörn. 6) Halla Sólveig, f. 1959, gift Vali Knútsyni, f. 1959. Börn þeirra eru; a) Elvar Knútur, b) Sigurgeir, c) Ingibjörg Lind, d) Sigrún Eva. Þau eiga sex barna- börn 7) Sigurgeir Heiðar, f. 1967, maki Ásgerður Hrönn Hafstein, f. 1973. Börn þeirra eru; a) Sig- urður Tryggvi, b) Sigurgeir Andri, c) Berglind Lára. Fyrir á Sigurgeir soninn Val Hólm. Eva ólst upp að Einhamri fyrstu árin og flutti svo með foreldrum sínum til Akureyrar þar sem hún bjó til æviloka. Þegar almennri skólagöngu lauk stundaði hún nám í hús- mæðraskólanum á Akureyri í einn vetur. Auk þess að sjá um stórt heimili vann hún utan heimilis áratugum saman, m.a. á leikskóla og verslunum, lengst af í Hagkaupum á Akureyri þar sem hún starfaði í um 20 ár. Þau hjónin störfuðu um árabil í bindindishreyfingunni á Akur- eyri. Eva var félagslynd og tók mikinn þátt í félagsstarfi eldri borgara á Akureyri. Útför Evu fór fram í kyrrþey þann 23. nóvember að ósk hinn- ar látnu. búskap á Akureyri og bjuggu þar alla tíð. Börn Evu og Sigurgeirs eru; 1) Aðalsteinn, f. 1949, kvæntur Önnu Grétu Halldórs- dóttur, f. 1950. Synir þeirra eru; a) Sigurpáll Árni, b) Geir Kristinn, c) Heiðar Þór. Þau eiga ellefu barnabörn og eitt barnabarnabarn. 2) Indíana, f. 1950, d. 1950. 3) Páll, f. 1952, kvæntur Aðalbjörgu Maríu Ólafsdóttur, f. 1953. Börn þeirra eru; a) Aðalsteinn Ingi, b) Heiða Sig- rún. Þau eiga sjö barnabörn. 4) Hanna Indíana, f. 1954, gift Ragnari Daníelssyni, f. 1952. Börn þeirra eru; a) Eva Daney, b) Harpa, c) Ragnar Þór. Þau eiga átta barnabörn. 5) Svanhildur, f. 1957, giftist Benedikt Guðmundssyni, f. 1952. Þau slitu samvistum. Börn Jæja mamma mín, þá er komið að kveðjustund og minningabrot um lífið líða í gegnum hugann á augabragði. Í æsku upplifði ég þig í raun sem klettinn í lífi mínu. Hún er mjög sterk minningin frá því þegar þið fóruð í siglinguna til Cuxhaven í Þýskalandi. Ég var fimm ára og ég veit núna að þú fórst meðal annars í þessa ferð til að kaupa eitthvað fallegt í jólagjöf handa okkur systkinunum. Þið komuð ekki heim fyrr en á Þor- láksmessu. Það var mjög löng bið fyrir lítinn dreng en því meiri gleði þegar þið birtust. Gleðin varð ekki minni þegar ég opnaði pakkann og ég á enn minn krana- bíl þó að hann sé orðinn svolítið laskaður sem er nú bara eðlilegt eftir sextíu ár. Þessar góðu minn- ingar rifjast upp í hvert skipti sem ég horfi á þennan bíl. Þú hafðir mikinn áhuga á íþróttum og horfðir hvenær sem tækifæri gafst. Manstu þegar fjöl- skyldan var að keppa í handbolta. Þú varst í marki og sendir boltann á pabba sem var í þínu liði. Hann snéri sér snöggt við og skoraði glæsilegt sjálfsmark hjá þér og þú grést úr hlátri. Pabbi var ekki al- veg alltaf með á nótunum varð- andi íþróttir. Þannig var það bara. Margs er að minnast, allar frá- bæru samverustundirnar, útileg- urnar, ferðirnar í Vaglaskóg þar sem þið áttuð ykkar sælureit og ótal margt annað sem gefur lífinu lit. Hreyfing var þér ofarlega í huga. Það átti því vel við þig að vera í sólinni og ganga þér til heilsubótar og skoða þig um. Þær voru frábærar ferðirnar með ykk- ur, til Lúxemborgar á sínum tíma og til Löllu systur í Danmörku. Þið Lalla voruð svo miklir vinir, eins og þið Didda. Engin orð geta lýst því hve ég verð ævinlega þakklátur Diddu fyrir allt það sem hún var þér, ekki síst í veik- indum þínum, ómetanlegt. Þú varst félagslynd og glaðlynd og þótti gaman að vera með fólki. Fyrir fáum árum kom ég í heim- sókn til þín og spurði hvað þú hefðir verið að gera fyrr um dag- inn. Þú svaraðir eins og ekkert væri sjálfsagðara, komin hátt á ní- ræðisaldur, að þú hefðir verið að skutla gömlu konunum í bæinn. En ég veit að sumar voru yngri en þú. Þú varst alltaf til staðar fyrir alla. Þannig man ég þig. Það var því mikið áfall þegar þú þurftir að hætta að keyra, naust ekki lengur þess frelsis sem bíllin veitti þér. Við vorum mjög tengd og að mörgu leyti mjög lík í okkur. Mér leið betur ef ég vissi hvar þú varst og hvernig dagurinn lagðist í þig og reyndi að fylgjast með þér sem oftast. Það var frábært að fá tæki- færi til að spjalla nánast daglega um alla heima og geima, annað- hvort í hlýjunni í Mýrarvegi eða að skreppa úr húsi til tilbreyting- ar. Það var líka gaman að fara á tónleika með þér því þér þótti mjög gaman að söng. Það stóð einmitt til að fara á eina slíka núna fyrir jólin sem verður af augljós- um ástæðum ekki. En elsku mamma mín, ég veit að þú varst orðin södd lífdaga og hvíldinni fegin, komin á annan stað til pabba. Góðu stundirnar sem ég átti með þér eru ómetan- legar. Minningarnar um góða mömmu getur enginn frá mér tekið, þær eru fjársjóður sem ég mun eiga alla tíð. Takk fyrir allt og allt, þinn sonur, Páll Sigurgeirsson. Það síðasta sem ég sagði við þig þegar ég heimsótti þig í síðasta skipti var „sjáumst á morgun, ég elska þig“. En þannig varð það ekki, elsku mamma. Hringt var frá Hlíð snemma morguninn eftir, þar sem þú varst í hvíldarinnlögn, og sagt að þú hefðir kvatt þennan heim skömmu áður. Þú varst kona með hjarta úr gulli eins og einhver sagði. Þú varst einstök kona og ekki var nú vesenið í kringum þig enda alltaf gestkvæmt hjá ykkur pabba og síðan hjá þér eftir að hann hvarf á braut. Og þvílíkar kræsingar sem bornar voru fram alltaf þegar einhver kom í heim- sókn og þýddi lítið að segja við þig að maður vildi bara kaffisopa eins og maður gerði oft. Nokkrum mínútum eftir að maður kom var alltaf búið að hlaða í veisluborð og það ekki af verri endanum. Ég sagði stundum við þig að ég væri í aðhaldi og vildi ekki neitt en það hreinlega virkaði ekki því allt- af fór maður pakksaddur frá þér. Það var gaman að fylgjast með því hvað barna- og barnabörnin voru hænd að þér og þótti vænt um Lóu ömmu sína. „Er ekki allt gott að frétta af þínu fólki?“ var yfir- leitt það fyrsta sem þú spurðir um þegar við hittumst. Þú fylgdist vel með íþróttum alveg fram á síðasta dag og í minni síðustu heimsókn horfðum við á enska boltann sam- an. Í fjölskyldunni hefur alla tíð verið margt íþróttafólk og þú fylgdist sko mjög vel með þínu fólki alla tíð og vissir allt um hvað hver skoraði mörg mörk í leikjum og stöðunni hjá viðkomandi liðum. Maður kom ekki að tómum kof- anum þegar rætt var um íþróttir almennt og alla landsleiki Íslands í handbolta og fótbolta horfðir þú á í sjónvarpinu fram á síðasta dag. Í minningunni voru það líka dásamlegar stundir þegar maður heimsótti ykkur í Vaglaskóg þar sem þið pabbi höfðuð komið fyrir hjólhýsi í unaðsreit einum og þar leið ykkur vel. Ekki vantaði nú kræsingarnar þar heldur og ég veit ekki hvernig í ósköpunum þú fórst að þessu. Ykkur pabba fannst alla tíð gaman að ferðast bæði innanlands og erlendis og fylgja því góðar minningar fyrst hér innanlands og síðan áttum við Anna Gréta eftir að ferðast með ykkur nokkrum sinnum erlendis og þær ferðir gleymast seint. Því- líkir ferðafélagar eru vandfundnir og vandamál voru ekki til í ykkar orðabók. Eftir að pabbi kvaddi hélst þú áfram að ferðast í sólina og þá með þínu vinafólki en þetta var þér mikils virði. Nú er komið að ferðalokum í þessu jarðlífi en þú heldur ferðalaginu áfram með pabba hinum megin við. Takk fyrir allt sem þú varst mér og mínum, elsku mamma. Aðalsteinn Sigurgeirsson. Hvernig skrifa ég minningar- grein um konu sem mér finnst ennþá vera meðal okkar. Mér finnst eins og þú hafir bara skroppið frá og munir birtast ein- hvern daginn. En svoleiðis er það ekki. Aldrei framar mun ég eiga þess kost að vera í návist þinni, heyra þennan róm, njóta glettn- innar og finna góðvildina sem frá þér skein. Það eru að verða fimmtíu ár síðan ég kynntist þér og ég minn- ist þess aldrei að okkur hafi orðið sundurorða öll þessi ár. Þegar við ræddum þetta fyrir stuttu sagðir þú mér að það hefði nú bara aldrei verið ástæða til þess. Ánægjulegt að heyra það. Við ræddum margt þegar við vorum tvær einar, ým- islegt sem ekki hafði áður borið á góma, tilfinningar okkar og skoð- anir um lífið og tilveruna. Þá var ég svo lánsöm að ná að segja þér hve innilega mér þótti vænt um þig og þú hefðir ekki getað verið mér betri tengdamóðir. Og víst er að fleirum leið vel í návist þinni. Það er óhætt að segja að að þér hændust börnin, sama hvaða börn það voru, þín eða annarra. Þú varst óþreytandi að leika við þau, skreiðst jafnvel um gólfin hlæjandi með þeim, gerðir grín eða huggaðir. Þið töluðuð svo sannarlega sama mál. Þú fórst jafnvel í leik með þeim þegar þú varst búin að dekka upp veislu- borð fyrir okkur hin. Ótrúlegt annars hvernig þú gast alltaf fyllt borðið af brauði og ýmsum kræs- ingum á engum tíma, sama hvar þú varst, heima eða í útilegu. All- ur var maturinn sérlega góður og fallega fram borinn. Og börnin elskuðu muffinsið hennar Lóu ömmu. Þú kunnir þetta svo sann- arlega. Þetta var auðvitað brauðið sem þú hafðir verið að baka þegar við vorum hvergi nærri. Þér leið illa ef þú áttir ekki fulla frystikistu til að leita í ef gest bar að garði. Það var alltaf verulega gaman að koma til þín um helgar og reyndar á hvaða degi sem var, eða skreppa í bíltúr sem þú naust fram á síðasta dag. Að spjalla við þig um daginn og veginn og fá fréttir af stórfjölskyldunni hvar sem fólkið þitt var statt í heim- inum. Að ekki sé nú talað um að hlusta á umræður ykkar mæðg- inanna, þín og Palla þegar þið röktuð ættartengslin mann fram af manni svo ótrúlega langt og út um víðan völl að ég dró ég mig í hlé, alveg mát. Og víst var minnið alveg í lagi hjá þér. En veikindin voru að hrella þig undir það síðasta og það er erfitt að horfa upp á fólkið sitt glíma við veikindi sem heftir það til þeirra hluta sem hugurinn stendur hvað mest til. Þannig var með þig. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku Lóa mín. Það voru svo sannarlega forréttindi að fá að kynnast þér og njóta samverunnar þennan tíma sem við fengum saman og þess kærleiks og umhyggju sem þú veittir mér í gegnum árin. Ómetanlegt. Það er mikill sökn- uður sem fylgir þessari stund. Þín tengdadóttir, Aðalbjörg María (Adda). Mig langar í fáeinum orðum að minnast góðrar konu sem ég unni mjög. Tengdamóðir mín, hún Lóa, var kona sem ég fékk þann heiður að vera samferða stóran hluta ævi minnar. Þegar ég ung kynntist Lóu sá ég strax að þar fór afar vönduð kona, yndisleg í alla staði. Kona sem ekki bar tilfinningar sínar svo glatt á torg og aldrei man ég eftir að hafa heyrt Lóu kvarta yfir nokkrum sköpuðum hlut. Lóa hafði áhuga á ýmsu en þó sérstaklega á öllu því sem hennar nánustu tóku sér fyrir hendur hverju sinni. Alltaf spurði hún frétta af fjölskyldunni þegar sest var yfir kaffibolla. Íþrótta- áhugi Lóu var því líklega óumflýj- anlegur en hún vissi hreinlega allt um það sem fram fór hjá stórfjöl- skyldunni, jafnt á hinu stóra sviði íþróttanna sem og í öðrum verk- efnum, allt til dauðadags. Lóa og Geiri voru alltaf yndisleg heim að sækja og kræsingarnar hennar Lóu þekkja allir sem hana hafa heimsótt. Jólaboðin munu alltaf verða eftirminnileg en þau sam- einuðu stórfjölskylduna til margra ára í skemmtilegum leikj- um í bland við góðar veitingar og skemmtilegar sögur, jafnt sannar sem lognar. Í seinni tíð hafa sam- verustundirnar verið með öðru sniði en sérstaklega þykir mér vænt um alla bíltúrana sem við fórum með Lóu um sveitirnar hér allt um kring. Mér þykir sérstak- lega vænt um þær ferðir vegna þess að ég veit að Lóa hafði af þeim mikið yndi. Lóa var afar handlagin. Eftir hana liggja ýmsir dýrgripir, stytt- ur, kirkjur og ekki má gleyma jólasokkunum sem eru löngu orðnir hluti af jólunum hjá börn- unum hennar Lóu og fjölskyldum þeirra. En dýrmætasta minning okkar sem eftir standa er sú að hafa hlotið þá gæfu að fá að kynn- ast Lóu. Minningin um yndislega konu mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Anna Gréta Halldórsdóttir. Ég kvaddi Lóu tengdamóður mína á dvalarheimilinu Hlíð mið- vikudaginn 7. nóvember í stuttri heimsókn með þeim orðum að við mundum sjást um helgina þar á eftir. Hún hafði þá dvalið á Hlíð um skeið vegna erfiðra veikinda sem komu í veg fyrir að hún gæti búið ein í sinni íbúð. Ekkert varð af frekari heimsóknum þar sem hún kvaddi lífið rúmum sólar- hring seinna. Okkur varð vel til vina strax þegar ég kynntist Sollu minni og fór að venja komur mínar í Höfð- ahlíðina. Þar var alltaf líf og fjör og fjölmargt fólk en mér var strax vel tekið og varð einn af stórri fjöl- skyldu sem ég á mikið að þakka. Heimili Lóu og Geira stóð okk- ur alltaf opið og þangað var gam- an að koma, sérstaklega um helg- ar þegar sunnudagskaffið var á borðum, hópurinn hittist þar og ræddi málin og krakkarnir hittu afa og ömmu. Lóa hélt vel utan um hópinn sinn og tók virkan þátt í öllu sem verið var að sýsla. Þegar börnin okkar uxu úr grasi var Lóa amma einn þeirra besti vinur. Hún lærði þeirra leiki og lék við þau á gólfinu um leið og hún kenndi þeim að spila á spil og sitthvað annað sem hún vissi að gott væri fyrir þau að þekkja. Nú í seinni tíð þegar barna- börnin komu í heimsókn til okkar var ávallt fastur liður að heim- sækja Lóu ömmu á Mýrarveginn og upplifa það sem foreldrar þeirra og afar og ömmur höfðu reynt, þ.e. að leika með Lóu ömmu og njóta hennar frábæru gestrisni. Í áratugi hafði það verið hefð hjá okkur að halda upp á jólin og áramótin með Lóu og Geira á heimili okkar í Sunnuhlíðinni. Í huga okkar voru þau hluti af jólahátíðinni og sama gildir um barnabörnin. Þeim fannst reynd- ar skrýtið að Lóa amma fékk allt- af flesta pakkana en það sýnir bara hve ríkan sess hún skipaði í huga allrar fjölskyldunnar. Það verður því skrýtið á komandi jól- um að þar verður engin Lóa amma, nema í hugum okkar þar sem hún mun búa um alla framtíð. Ef Lóa hefði verið upp á sitt besta í nútímanum hefði hún verið í hópi íslenskra ofurkvenna. Alla sína tíð vann hún úti og rak sam- hliða stórt heimili. Dugnaðurinn í henni var aðdáunarverður og oft á tíðum virtist sólarhringurinn hjá henni vera lengri en hjá mörgum öðrum. Hún var mamman, amm- an og síðar langamman og langa- langamman sem tók fullan þátt í áhugamálum barnanna og var vel inni í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Fráfall Lóu snertir okkur því öll, yngri sem eldri, því hún lék stórt hlutverk í okkar lífi. Ofur- konan sem gaf svo mikið af sér og var okkur svo mikill og góður vin- ur. Nú þegar við kveðjum Lóu ömmu og þökkum fyrir allt það sem hún gaf okkur hefur hún haldið í sína hinstu ferð. Við hæfi er að vitna í lokaerindi í ljóði Jón- asar Hallgrímssonar, Ferðalok, sem var í miklu uppáhaldi hjá henni: Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Valur Knútsson. Við kveðjum ömmu okkar, ömmu Lóu eins og hún var alltaf kölluð. Við minnumst allra góðu stundanna og þeirrar ánægju sem samveran með henni færði okkur. Amma Lóa var ekki aðeins góð amma, heldur var hún einnig ein- staklega góð fyrirmynd. Um- hyggja, dugnaður og einskær áhugi á því sem við tókum okkur fyrir hendur var einkennandi fyr- ir hana. Hún var fyrirmynd for- eldra okkar, okkar sjálfra og barna okkar. Þegar litið er til baka eru svo margar minningar sem vakna. Allar eiga þær það sameiginlegt að hún amma naut þess að taka á móti fjölskyldunni. Samveru- stundir sem einkenndust af hlýju og hlátri. Stórfjölskyldan samein- aðist hjá ömmu Lóu og afa Geira, hvort sem um var að ræða virka daga eða um helgar, um páska eða jól. Við vorum alltaf velkomin. Það er sérstakt að hugsa til þess að jólahátíðin, hátíð þar sem fjöl- skyldan sameinast, er á næsta leiti og í þetta skiptið getum við ekki notið samverunnar með henni. Það syrgjum við. Amma Lóa hefur verið órjúf- anlegur hluti af jólahaldinu frá barnæsku okkar og hún verður það áfram. Fjölskylduhefðir okk- ar byggja að miklu leyti á sam- veru með ömmu Lóu og afa Geira. Nú er komið að því að amma Lóa verji jólahátíðinni með afa Geira. Þau fylgdust náið að og verða nú samferða á ný. Ekkert fær þau aðskilið aftur. Við erum þess fullviss að amma Lóa og afi Geiri muni halda áfram að fylgjast með okkur eins og þau gerðu alltaf. Amma Lóa var þeim eiginleik- um gædd að fólki leið vel í kring- um hana og hún tók vel á móti þeim sem leituðu til hennar. Frá því að við munum eftir okkur eig- um við minningar um veisluborð sem svignuðu undan tertum og öðrum veitingum, hvort sem það var í Hraungerði, Mýrarveginum eða í sælureit hennar og afa í Vaglaskógi. Segja má að í seinni tíð hafi verið vissara að koma ömmu Lóu á óvart og líta í heimsókn án þess að gera boð á undan sér, svo að amma færi ekki af stað að setja á tertur. Þrátt fyrir það var úrvalið alltaf nóg þegar við komum í heimsókn. Þó svo að sárt sé að kveðja er ljúft að minnast þessara stunda. Við kveðjum ömmu Lóu með miklum söknuði en eftir stendur þakklætið fyrir samveruna og all- ar góðu stundirnar sem við áttum. Minningar um einstaka og ljúfa konu munu ávallt lifa. Amma Lóa verður alltaf með okkur. Elvar Knútur, Sigurgeir, Inga Lind og Sigrún Eva Valsbörn. Eva Aðalsteinsdóttir Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.