Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 24.11.2018, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Sigurdór Sigurdórs-son, fyrrverandiblaðamaður, fagnar 80 ára afmælinu í dag. Sig- urdór fæddist á Akranesi og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaskólaprófi frá Héraðsskólanum í Reyk- holti 1954 og sveinsprófi í prentiðn 1960. Sigurdór var prentari í Ísafoldarprentsmiðju 1960- 61, í Prentsmiðjunni Eddu 1962-71, var íþrótta- blaðamaður á Þjóðvilj- anum 1967-77 og jafnframt almennur blaðamaður þar 1971-86, blaðamaður við DV 1986-97 og fréttastjóri þar um skeið, var blaða- maður við Dag 1997-2001, og var blaðamaður hjá Bændablaðinu 2001-2008. Sigurdór var söngvari með danshljómsveitum á árunum 1958-66 en hann söng m.a. með KK-sextettinum og Hljómsveit Svavars Gests. Þá var hann fararstjóri á Spáni fyrir Ferðaskrifstofuna Útsýn sumrin 1977-87 og síðan af og til í nokkur sumur. Sigurdór skrif- aði bækurnar Til fiskiveiða fóru, afmælisbók um Harald Böðvarsson & Co; Spaugsami spörfuglinn, æviminningar Þrastar Sigtryggssonar skipherra; Það var rosalegt, æviminningar Hákonar Aðalsteinssonar. Hann sat í stjórn Blaðamannafélags Íslands 1987-89. „Þegar ég hætti að vinna og reyndar aðeins fyrir það þá hef ég verið að glíma við fæturna á mér og þurft að láta leggja mig oft inn á spítala. Svo fór að það þurfti að taka annan fótinn af en ég er með gervifót frá Össuri og þeir eru snillingar þar. Á þessum tíma hef ég lesið feikilega mikið og meira en nokkurn tímann á ævinni. Ég hef mest gaman af bók- um um gamla tímann og var að klára Úr farvegi aldanna eftir Jón Gísla- son og var að byrja á bókinni Mannlíf og Mórar í Dölum eftir Magnús Gestsson. Ég hef óskaplega gaman af þessum bókum.“ Sigurdór er núna staddur í Manchester í tilefni afmælisins. „Ég hef haldið með Manchester United í 60 ár, frá slysinu 1958, en er núna í fyrsta sinn að fara á Old Trafford á leik með United,“ en Manchester United spilar við Crystal Palace í dag. Eiginkona Sigurdórs er Sigrún Gissurardóttir, fyrrverandi auglýs- ingastjóri. Þau eignuðust tvær dætur, Halldóru Guðrúnu og Nönnu Dröfn, en Nanna er látin. Barnabörnin eru þrjú. Blaðamaðurinn Sigurdór fyrir 35 árum. Fer á Old Trafford í dag í fyrsta sinn Sigurdór Sigurdórsson er áttræður í dag E inar Hermannsson fæddist í Reykjavík 24.11. 1968 og ólst þar upp, í gamla Vestur- bænum fyrstu árin. Hann gekk í Vesturbæjarskóla, í Gamla Stýrimannaskólanum, í tæp tvö ár en flutti þá með fjölskyldunni til Lúxemborgar er hann var sjö ára og var þar í grunnskóla og mennta- skóla. Einar flutti aftur heim til Íslands 1984. Hann hóf þá störf hjá Flug- leiðum, fyrst á varahlutalager fyrir- tækisins á Keflavíkurflugvelli: „Svo komust þeir að því fyrir hreina til- viljun að ég kunni sex tungumál. Þá var ég tekinn af lagernum og settur í farþegaafgreiðslu Flugleiða innan- lands á Reykjavíkurflugvelli, sem síðar hét Flugfélag Íslands.“ Einar starfaði við innanlands- flugið til ársins 2000, sinnti síðan sölu- og markaðsstörfum hjá Intr- um og hjá Markhúsinu um skeið, en hóf síðan störf hjá AFA JCDecaux: „Þetta er í raun stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum, starfar í 70 löndum og 5.500 borgum, bæjum og sveitarfélögum, víða um heim. AFA JCDecaux sérhæfir sig í Einar Hermannsson, eigandi Útimiðla – 50 ára Á leiðinni til Orlando Einar og Guðríður Inga, ásamt börnunum, tengdabörnum og barnabörnunum tveimur. Ætlar að verða súper- afi í seinni hálfleik Hjá Frökkum Einar og Guðríður Inga. Einar var sæmdur riddarakrossi frönsku heiðursorðunnar 2017 og var forseti Alliance Francaise 2015-2018. Skeljatangi 19 - 270 Mosfellsbær Þrastarhöfði 38 - 270 Mosfellsbær 240 m2 einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Mjög stór timburverönd með heitum potti. Góð bílstæði með hitalögn. Góð staðsetning, stutt í leikskóla, grunnskóla og sundlaug/heilsurækt og er golfvöllurinn rétt við húsið. Fjögur svefn­ herbergi. Tvö baðherbergi. V. 99,7 m. Opið hús þriðjudaginn 27. nóvember kl. 12:00 - 12:30 Laust strax – 94,2 m2, 4ra herbergja íbúð með sér inngangi á 2. hæð. Eignin skiptist í stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsla er við hlið inngangs. Góð staðsetning. Stutt í skóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt. V. 39,9 m. Opið hús sunnudaginn 25. nóvember kl. 13:00 -13:30 Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 fastmos.is // fastmos@fastmos.is Einar Páll Kjærnested Löggiltur fasteignasali S. 899 5159 Svanþór Einarsson Löggiltur fasteignasali S. 698 8555 Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.