Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 46

Morgunblaðið - 24.11.2018, Page 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is Árlegir hausttónleikar Karlakórs Grafarvogs verða að þessu sinni haldnir með kvennakórnum Söng- spírurnar, en stofnandi beggja kór- anna er Íris Erlingsdóttir sem jafn- framt stjórnar báðum kórunum. Tónleikarnir verða í Grafarvogs- kirkju í dag, laugardag, og hefjast klukkan 16. Á fjölbreyttri efnisskrá tónleikanna er að finna fjörlegar söngvasyrpur sem kórarnir munu flytja í sameiningu. Þar má nefna syrpu úr söngleiknum My Fair Lady og einnig syngja þeir saman syrpu laga úr smiðju Andrew Lloyd Web- ber sem óþarft er að að kynna. Loks munu kórarnir syngja hvor um sig þekkt íslensk og erlend lög. Tónleikar í Grafarvogi Kórinn Karlakór Grafarvogs kemur fram með Söngspírunum í dag. Aðventan er á næsta leiti og því komið að því að rithöfundar lesi upp úr nýjum bókum á Gljúfra- steini. Þetta er í fjórtánda sinn sem gestum er boðið að hlýða á upp- lestur á aðventunni í stofu Halldórs og Auðar Laxness á Gljúfrasteini. Fyrsti höfundahópurinn mætir til leiks á morgun og hefst lestur stundvíslega klukkan 16. Þórunn Jarla Valdimarsdóttir les úr bók sinni Skúli fógeti: Faðir Reykjavík- ur – Saga frá átjándu öld, Ragnar Helgi Ólafsson les úr Bókasafn föð- ur míns, Ófeigur Sigurðsson les úr skáldsögunni Heklugjá – leið- arvísir að eldin- um og Eva Rún Snorradóttir les úr ljóðabók sinni Fræ sem frjóvga myrkrið. Fleiri höfund- ar mæta til leiks og lesa á Gljúfrasteini fyrstu þrjá sunnudaga í desember. Höfundar lesa upp á Gljúfrasteini Ragnar Helgi Ólafsson Selkórinn og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna efna til hátíð- artónleika kl. 16 í dag, laugardag, í Seltjarnar- neskirkju. Tón- leikarnir eru þeir síðari á árinu í tilefni þess að í ár er hálf öld lið- in frá því konur í kvenfélaginu Sel- tjörn stofnuðu kórinn. „Þessir seinni hátíðar- tónleikar eru á klassískum nótum, öfugt við þá fyrri þegar kórinn söng popplög eftir þekkta Seltirninga,“ segir Oli- ver Kentish, kórstjóri og hljómsveitarstjóri. „Enda getur kórinn vel sungið bæði létt lög og klassísk,“ bætir hann við. Á efnisskrá tónleikanna, sem jafnframt eru tileinkaðir 100 ára fullveldi Íslands, er Missa Tempore Belli eftir Joseph Haydn. Í verkinu, sem oft er nefnt Pákumessa, syngja, auk kórsins, einsöngv- ararnir Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran, Egill Árni Pálsson tenór og Ágúst Ólafsson bassi. Eftir Pákumessuna syngur kórinn nokk- ur ættjarðarlög og síðan þjóðsöng- inn í lokin. Meðal ættjarðarlaganna er tón- verkið Mitt land, sem Oliver útsetti fyrir kór og hljómsveit í tilefni tímamótanna við ljóð eftir Sigurð Ingólfsson. „Tónverkið verður frumflutt á tónleikunum í dag. Sig- urður samdi mjög fallega ljóðabók með 52 þakkarbænum, sem ég hafði samið nokkur lög við. Mér fannst því liggja beinast við að biðja hann að yrkja fyrir mig ljóð sem ég gæti útsett fyrir hátíðartónleikana. Von- andi nær lagið einhverri útbreiðslu og þá getum við kallað það ættjarð- arlag framtíðarinnar,“ segir Oliver, sem fimmta árið í röð stjórnar Sel- kórnum. Aðspurður segist hann hafa verið viðloðandi Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna frá stofnun árið 1990, fyrst sem sellóleikari og síðan hafi hann verið fenginn til að stjórna einstaka tónleikum. Fyrir fimmtán árum hafi hann svo tekið að fullu við stjórnartaumunum. Selkórinn var upphaflega kvennakór en fljótlega bættust nokkrir karlar í kórinn og hefur hann síðan verið blandaður kór. „Karlarnir mættu að ósekju vera fleiri. Það er klassískt vandamál á Íslandi að fá karla í aðra kóra en karlakóra. Þótt við séum ágætlega sett erum við alltaf að leita að yngri röddum,“ segir Oliver. vjon@mbl.is Víðförull kór Selkórinn hefur á hálfri öld ferðast víða um heim og haldið tónleika ásamt því að syngja á ýmsum stöðum innanlands, bæði einn og með öðrum kórum, og átt samstarf við fjölda íslenskra tónlistarmanna. Vonandi ættjarðarlag framtíðarinnar  Hátíðartónleikar Selkórsins í Seltjarnarneskirkju í dag Oliver Kentish Kvennakórinn Hrynjandi blæs til söngskemmtunar og syngur nokk- ur vel valin lög í Aðventkirkjunni í Reykjavík, Ingólfsstræti 19, á morgun, sunnudag, klukkan 15. Stjórnandi kórsins er Jón Svavar Jósefsson. Í tilkynningu segir að Hrynjandi ætli að kveðja haustið og syngja inn jólin með lögum eftir Jórunni Við- ar, Hildigunni Rúnarsdóttur, Mad- onnu og Sigvalda Kaldalóns, svo einhverjir séu nefndir. Aðgangur á tónleikana er ókeyp- is og í boði verða léttar veitingar gegn vægu verði, te, kaffi, safi og piparkökur, og til sölu verða Heimaeyjarkerti í aðventukransinn og jólasveinaspil til styrktar fram- tíðarsöng um ókunnar lendur. Kvennakórinn Hrynjandi hefur verið starfræktur síðan 2011 og hefur bæði sungið á hefðbundnum tónleikum, árshátíðum og afmælum en einnig tekið þátt í gjörningum, svo sem í Leikhúsi listamanna, Glæðingamessum með hljómsveit- inni Evu og messu Gjörninga- klúbbsins. Kvennakórinn Hrynjandi syngur í Aðventkirkjunni á sunnudag Kvennakór Hrynjandi hefur starfað frá 2011 og fytur fjölbreytilega tónlist. Menntaskóli í Tónlist (M.Í.T.) held- ur nú um helgina söngsýningu til heiðurs söngvaskáldinu Magnúsi Þór Sigmundssyni. Er hún haldin í hátíðarsal F.Í.H., Rauðagerði 27, undir yfirskriftinni Sú ást er heit, og hefst sýningin bæði á laugardag og sunnudag klukkan 15. Fram koma 12 söngvarar og 11 manna hljómsveit, allt nemendur skólans, undir stjórn Agnars Más Magnússonar píanóleikara. Á efnis- skránni er fjölbreytt úrval tónlistar frá ferli Magnúsar, sem var sjötugur á dögunum, lög sem landsmenn þekkja. Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir: söngkennari segir lengi hafa verið rætt innan skólans að gera sýningu með tónlist Magnúsar Þórs og nú er hann hylltur á afmælisárinu. „Fjölbreytilegur hópur nemenda tekur þátt, allt frá nemendum sem hófu nám í haust til þeirra sem héldu útskriftartónleikara í síðustu viku,“ segir Guðlaug Dröfn og segir aðal- lega um einsöngslög að ræða, og raddað með. „Undirbúningur hefur staðið síðan í haust,“ segir hún og nú er komið að uppskerunni. Magnús Þór hylltur á söngsýningu Söngvararnir Flestir nemendanna sem koma fram á tónleikunum. Leikarinn Ingvar E. Sigurðsson verður í nefnd EFP, European Film Promotion, sem sér um að velja rísandi stjörnur úr röð- um leikara sem kynntir verða á kvikmyndahátíð- inni í Berlín á næsta ári. Á hverju ári velur EFP tíu unga og efnilega evrópska leik- ara sem fá viðurkenningu á kvik- myndahátíðinni. Með Ingvari í val- nefndinni eru fjórir aðrir, m.a. makedónski leikstjórinn Teona Strugar Mitevska. Af íslenskum leikurum sem kom- ist hafa í raðir rísandi stjarna má nefna Heru Hilmarsdóttur og Atla Óskar Fjalarsson. Ingvar velur rísandi stjörnur Ingvar E. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.