Morgunblaðið - 27.11.2018, Page 1
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Tölvupóstur sem Skúli Mogensen,
eigandi og forstjóri WOW air, sendi
frá sér í gær í kjölfar þess að við-
skipti með bréf Icelandair Group
voru stöðvuð í Kauphöll Íslands,
kann að hafa veruleg áhrif á það ferli
sem að var stefnt að ljúka í lok þess-
arar viku og miðaði að því að Ice-
landair keypti allt hlutafé WOW air.
Þetta herma heimildir Morgunblaðs-
ins. Í póstinum fullyrðir Skúli að for-
svarsmenn WOW air eigi í viðræðum
við aðra fjárfesta en Icelandair Gro-
up um mögulega aðkomu að félag-
inu. Það sé gert samhliða framgangi
viðskiptanna við Icelandair. Þær við-
ræður munu hafa átt sér stað án
vitneskju Icelandair. Stjórn Ice-
landair Group hefur boðað hluthafa
félagsins til fundar kl. 8.30 að morgni
föstudagsins af fyrrnefndum ástæð-
um.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að þessi ummæli hafi verið meðal
þeirra atriða sem forsvarsmenn Ice-
landair Group hafi þurft að leggja
mat á í gær en fyrir liggur að stjórn
félagsins hyggst leggja það fyrir
fyrrnefndan hluthafafund að félagið
eignist WOW air að fullu með af-
hendingu hlutabréfa í Icelandair
Group. Viðskiptin með Icelandair
voru stöðvuð að kröfu FME í gær
sem sagðist með því vilja tryggja
jafnan aðgang hluthafa að upplýs-
ingum. Bréf Icelandair Group lækk-
uðu um ríflega 5,7% í viðskiptum eft-
ir að opnað var fyrir þau að nýju eftir
hádegið í gær.
Enn margir lausir endar
Tölvupóstur Skúla Mogensen til starfsfólks WOW air veldur verulegum titringi
FME stöðvaði viðskipti með bréf Icelandair. Bréf félagsins lækkuðu um 5,7%
MHögg kom á markaðinn »16
Stofnað 1913 279. tölublað 106. árgangur
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 8
HLJÓÐFÆRI
MEÐ MIKLA
MÖGULEIKA
ÆVINTÝRI
BOTN-
RÖSSU
MÁTTI ALLS
EKKI RÆÐA
SAMKYNHNEIGÐ
NÝ BÓK 30 SVONA FÓLK 33NÝTT ORGEL GUÐRÍÐARKIRKJU 12
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gröndalshús Endurgerð kostaði 238
milljónir króna. Það stendur í Grjótaþorpi.
Kostnaður við endurbætur á
Gröndalshúsi sem nú stendur í
Grjótaþorpi reyndist 238 milljónir
króna. Upphafleg fjárhagsáætlun
við endurbæturnar hljóðaði upp á 40
milljónir króna, en miðað við upp-
reiknaða byggingarvísitölu frá 2009
er sú upphæð 60 milljónir í dag. Mið-
að við þessar tölur fór verkið 297%
fram úr áætlun. Þetta kom fram á
síðasta fundi borgarráðs en þar ósk-
uðu sjálfstæðismenn eftir skýr-
ingum á þessu.
Gröndalshús er í dag leigt af
menningar- og ferðamálasviði
Reykjavíkurborgar og nýtt fyrir
Bókmenntaborg Reykjavíkur. Þar
er einnig sýning um Benedikt Grön-
dal og aðstaða fyrir fræðimenn. »14
Endurgerð Grön-
dalshúss fór 297%
fram úr áætlun
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Á leið í brotajárn Spilliefni eru
tekin úr bílunum fyrir förgun.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Úrvinnslusjóður áætlar að allt að 12
þúsund ökutækjum verði skilað til
förgunar í ár. Það yrði metfjöldi.
Fyrra metárið var 2017. Þá var um
9.500 ökutækjum skilað til förgunar,
sem var tæplega 50% aukning frá
árinu 2016.
Eftir efnahagshrunið jókst hvat-
inn til að halda gömlum bílum lengur
gangandi. Með auknum kaupmætti
og meira framboði notaðra bíla,
þ.m.t. bílaleigubíla, virðist sem
margir hafi nýtt tækifærið í ár og
látið farga gömlum bílum.
Bílaflotinn að yngjast
Tölur Úrvinnslusjóðs benda til að
meðalaldur bíla sem fara til förgunar
hafi náði hámarki 2016.
Guðlaugur G. Sverrisson,
rekstrarstjóri Úrvinnslusjóðs, segir
styttast í að gjald sem bílaeigendur
greiða fyrir förgunina verði hækkað.
Um 245 þúsund ökutæki voru
skráð hér á landi um síðustu áramót.
Förgun 12 þúsund ökutækja sam-
svarar því 5% flotans. »4
Metfjöldi bíla í pressuna
Útlit fyrir að allt 12 þúsund ökutækjum verði fargað í ár
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Ís-
lands, var á meðal gesta í móttöku á Kjarvals-
stöðum í gærkvöldi við upphaf heimsþings kven-
leiðtoga í Hörpu í dag. Þar koma saman yfir 400
kvenleiðtogar frá um 100 löndum til að ræða
leiðir til að tryggja aukin tækifæri kvenna og
læra af reynslu Íslendinga varðandi árangur í
jafnréttismálum. Katrín Jakobsdóttir ávarpar
þingið í dag.
Yfir 400 kvenleiðtogar hittast í Hörpu
Morgunblaðið/Hari
Glatt var á hjalla í stjórnstöð
NASA þegar geimfarið InSight
lenti á Mars laust fyrir átta í gær-
kvöld. Geimfarið á erfitt sjö mán-
aða ferðalag að baki en það er
fyrsta geimfar sem NASA sendir til
Mars síðan 2012.
Það var sent af stað með það
fyrir augum að afla frekari jarð-
eðlisfræðilegra upplýsinga um
plánetuna en áður hefur verið gert.
Farið mun kanna hitastig í jörðu á
Mars og kanna hvernig plánetan
snýst um möndul sinn. Þá mun það
fylgjast sérstaklega með „Mars-
skjálftum“.
Farið framleiðir eigin raforku og
verður um sinn við rannsóknir á
Mars.
Geimfarið InSight
lenti á Mars í gær
Viðgerð er lokið á leiði Jóns Magnús-
sonar, fyrrverandi forsætisráðherra.
Ný plata á leiði Jóns var sett upp í
Hólavallagarði í gær. Þór Sigmunds-
son steinsmiður var fenginn til að
smíða plötu og var verkið styrkt af Al-
þingi og forsætisráðuneytinu. Viðgerð-
in var annars á vegum Minjastofnunar.
„Þeir brugðust mjög snöggt við og
af stakri fagmennsku,“ sagði Heimir
Janusarson, umsjónarmaður á svæð-
inu. Ánægja ríkir um afgreiðslu máls-
ins en greint var frá því að leiðið væri í
niðurníðslu í Morgunblaðinu fyrr í
mánuðinum. snorrim@mbl.is
Ný plata komin á leiði
forsætisráðherrans
Ljósmynd/Minjastofnun
Viðgerð Hér er ný plata reist upp
við legstein Jóns forsætisráðherra.