Morgunblaðið - 27.11.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
Veldu Panodil®
sem hentar þér!
Verkjastillandi og hitalækkan
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra,
Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
d
dreif
eða lyfjafræ
r par
kanir. Sjá nánari up
flur. Innihelduinntö
ðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaver
ku, Panodil Brus freyðitö
i
a, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til kjum. Hitalækkandi.
serlyfjaskra.is.
gum ver
á www.
acetamól. Við væ
plýsingar um lyfið
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fjárfestar á markaði tóku dræmt í
fréttir þess efnis að Icelandair Group
og WOW air tækist ekki að greiða úr
öllum fyrirvörum varðandi kaup fyrr-
nefnda félagsins á hinu síðarnefnda
fyrir komandi mánaðamót. Tilkynn-
ing þess efnis barst frá Icelandair
Group gegnum tilkynningakerfi
Kauphallarinnar í kjölfar þess að
Fjármálaeftirlitið lét stöðva viðskipti
með bréf félagsins uns markaðurinn
hefði verið upplýstur um stöðu fyrir-
hugaðra kaupa. Afar fátítt er að
FME grípi til aðgerða af þessu tagi á
hlutabréfamarkaði. Það hefur raunar
aðeins einu sinni gerst á síðustu árum
en þá var lokað fyrir viðskipti með
bréf tryggingafélaganna þegar afnám
fjármagnshafta var tilkynnt þann 8.
júní 2015 en félögin þrjú vegna mik-
illa umsvifa þeirra á skuldabréfa-
markaði.
Þegar fréttir bárust af stöðvun við-
skiptanna litaðist Kauphöllin nær öll
rauð. Við lokun markaða höfðu þó
bréf Icelandair lækkað langmest eða
um 5,71% í 233 milljóna króna við-
skiptum. Þrátt fyrir fyrirspurnir
Morgunblaðsins hafa forsvarsmenn
Icelandair Group ekki gefið upp
hvaða fyrirvarar það eru sem ekki
verði unnt að fá botn í fyrir mán-
aðamót. Fyirhuguð kaup eru nú til
rannsóknar hjá Samkeppniseftirlit-
inu (SEK). Þegar Morgunblaðið náði
tali af Páli Gunnari Pálssyni, for-
stjóra SEK, vildi hann ekki tjá sig um
stöðu rannsóknarinnar að öðru leyti
en því að stofnunin reyndi að hraða
henni eftir fremsta megni. Í gær var
stefnt að því að ljúka áreiðan-
leikakönnun á starfsemi WOW air
sem lögfræðistofan Logos og endur-
skoðunarfyrirtækið Deloitte hafa
unnið að.
Enn óljóst með kaupverðið
Það verður m.a. á grundvelli þess-
arar áreiðanleikakönnunar sem end-
anlegt kaupverð verður ákvarðað,
gangi viðskiptin eftir. Þannig er
gengið út frá því að Skúli muni fá
víkjandi láni á hendur WOW air
breytt í 1,8% hlut í Icelandair. Þá
muni niðurstaða áreiðanleikakönnun-
ar leiða í ljós hvert kaupverðið verður
að öðru leyti. Það mun geta rokkað
milli 0% og 4,8% hlutar í Icelandair
Group. Stjórn Icelandair stefnir að
því á föstudag að fá kaupin samþykkt
á hlutahafafundi og að samhliða því
verði gefnir út nýir hlutir í félaginu til
að fjármagna kaupin.
Dularfullar viðræður
Mitt í darraðardansinum í Kaup-
höll Íslands sendi Skúli Mogensen,
starfsfólki WOW air tölvupóst þar
sem hann ítrekaði að viðræðurnar við
Icelandair um möguleg kaup á félag-
inu myndu dragast lengur en í fyrstu
var ætlað. Þar sagði hann að þær taf-
ir ættu ekki að koma á óvart, enda
um gríðarlega flókin viðskipti að
ræða.
Það voru hins vegar ummæli í fyrr-
nefndum pósti þess efnis að fleiri fjár-
festar hefðu sýnt félaginu áhuga og
að verið væri að skoða flöt á þeim
áhuga samhliða viðræðunum við Ice-
landair, sem komu ýmsum í opna
skjöldu. Heimildir Morgunblaðsins
herma að í þeim hópi hafi verið for-
svarsmenn Icelandair. Ekki er ljóst
hvaða áhrif ummæli Skúla kunna að
hafa á yfirstandandi ferli sem miðar
að kaupum Icelandair á WOW air.
Viðmælendur sem Morgunblaðið
ræddi við í gærkvöldi segja hins veg-
ar að orð Skúla hljóti að koma til
skoðunar Samkeppniseftirlitsins.
Ljóst sé að stofnunin vilji kanna alla
möguleika umfram þann að heimila
kaup Icelandair, stærsta flugfélags-
ins á heimamarkaði, á stærsta sam-
keppnisaðila sínum.
Í umræðum á Alþingi í gær fullyrti
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnaráðherra, að
stjórnvöld hefðu ekki í hyggju að
stíga inn í rekstur einstakra flug-
félaga eða að taka að sér að reka slík
félög. Hann sagði hins vegar að
stjórnvöld fylgdust náið með stöðunni
á flugmarkaði um þessar mundir.
Högg kom á markaðinn
Morgunblaðið/Eggert
Sviptingar Ekki er enn ljóst hvort verði af kaupum Icelandair Group á WOW.
FME taldi óbirtar upplýsingar eiga erindi við fjárfesta Icelandair hefur ekki
upplýst hvaða fyrirvarar séu enn óuppfylltir varðandi fyrirhuguð kaup á WOW air
aldamót en þá voru frystitogararnir
35 samkvæmt öðrum tölum sem
Morgunblaðið aflaði.
Um helgina bárust fregnir af því
frá Útgerðarfélagi Reykjavíkur
(ÚR) að félagið hygðist selja frysti-
togararann Guðmund í Nesi RE-13
og hefur fyrirtækið í kjölfarið sagt
upp öllum sjómönnum í áhöfn skips-
ins. Runólfur Viðar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri ÚR, segir
rekstrarumhverfið neyða fyrirtækið
í þessar erfiðu ákvarðanir.
„Mér finnst þetta mjög slæm þró-
un. Þetta eru hálaunastörf og góð
og öflug skip. Það er gríðarleg eftir-
sjá að þessum góðu störfum. Mér
finnst það sorglegt, sem Íslend-
ingur, að þau séu að hverfa,“ segir
Runólfur við Morgunblaðið og nefn-
ir að þróunina megi rekja til gjald-
töku stimpil- og veiðigjalda.
Skerðing á lífskjörum
„Þetta er það sem við sögðum árið
2012. Það vill bara enginn trúa okk-
ur,“ segir Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri HB Granda og eigandi ÚR.
„Þetta eru hæst launuðu sjómenn Ís-
lands með besta fiskinn líka og við
vorum að selja hann á hæsta verðinu
út úr landinu. Þetta er skerðing á
lífskjörum þjóðarinnar.“ Hann segir
þörf á samstilltu átaki stjórnvalda,
útgerðaraðila og stéttarfélags sjó-
manna til þess að snúa þróuninni
við. „Í dag eru þessi fyrirtæki bara
ofurskattlögð. Fjármagnið fer bara
annað.“ peturhreins@mbl.is
Útgerðarfyrirtæki hér á landi sjá
sér mörg hver ekki lengur fært að
gera út frystitogara með góðu móti.
Hefur frystitogurum á undan-
förnum árum fækkað verulega en í
byrjun næsta árs má gera ráð fyrir
að þeir verði 11 talsins. Var fjöldinn
síðast á svipuðu róli undir lok 9. ára-
tugarins. Frá því að lög um veiði-
gjöld voru sett árið 2012 mun þeim
því hafa fækkað um 64,5% í byrjun
árs 2019. Árið 2012 voru frystitog-
arar 31 samkvæmt tölum Fiskistofu
en sem stendur eru þeir nú 12 tals-
ins. Mestur var fjöldinn rétt fyrir
Frystitogarar eru óðum að hverfa
Frystitogurum hefur fækkað um
64,5% frá 2012 að mati Fiskistofu
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Togari Guðmundur í Nesi á sölu.
27. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.36 123.94 123.65
Sterlingspund 158.35 159.11 158.73
Kanadadalur 93.15 93.69 93.42
Dönsk króna 18.758 18.868 18.813
Norsk króna 14.366 14.45 14.408
Sænsk króna 13.576 13.656 13.616
Svissn. franki 123.72 124.42 124.07
Japanskt jen 1.0925 1.0989 1.0957
SDR 170.6 171.62 171.11
Evra 140.01 140.79 140.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.3589
Hrávöruverð
Gull 1222.15 ($/únsa)
Ál 1922.0 ($/tonn) LME
Hráolía 62.58 ($/fatið) Brent
Samstæða Orkuveitu Reykjavíkur,
sem samanstendur auk móðurfélags-
ins af Orku náttúrunnar, Veitum og
Gagnaveitu Reykjavíkur, hagnaðist
um rúma 1,7 milljarða króna á þriðja
fjórðungi 2018 samanborið við 3,2
milljarða á sama tímabili í fyrra.
Tekjur jukust á tímabilinu, en þær
námu 10,3 milljörðum á þriðja fjórð-
ungi þessa árs, samanborið við 9,7
milljarða á sama tímabili á síðasta
ári. Það er hins vegar fyrst og fremst
aukinn fjármagnskostnaður sem lit-
ar afkomu félagsins milli ára.
Sé horft til fyrstu níu mánaða árs-
ins þá hagnaðist fyrirtækið um 5,9
milljarða króna en hagnaður sama
tímabils 2017 nam 10,5 milljörðum.
Tekjur jukust um tvo milljarða
milli ára. Þær voru 33,5 milljarðar
fyrstu níu mánuði 2018 en 31,3 millj-
arðar sama tímabil árið á undan.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að þrátt fyrir lækkun á gjald-
skrám fyrir kalt vatn og rafmagns-
dreifingu í upphafi árs hafi tekjur
OR aukist á fyrstu níu mánuðum árs-
ins frá sama tímabili 2017. „Aukin
umsvif í samfélaginu, fjöldi nýbygg-
inga, auknar tekjur af heildsölu raf-
magns og kalt tíðarfar valda því,“
segir í tilkynningunni. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Orka Aukin umsvif í samfélaginu
leiða til aukinna tekna hjá OR.
Minni hagn-
aður OR
Tekjurnar aukast