Morgunblaðið - 27.11.2018, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2018
ICQC 2018-20
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Í blaðinu verður
kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í
boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak
og bættan lífsstíl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir fimmtudaginn 20. desember
fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 2. janúar 2019
Heilsa& lífsstíll
Ítalski kvikmyndaleikstjórinn
Bernardo Bertolucci lést í Róm í
gær, 77 ára að aldri. Banamein
hans var krabbamein. Bertolucci
hlaut fjölda verðlauna á ferli sínum
og þá bæði sem handritshöfundur
og leikstjóri. Þeirra á meðal eru
Óskarsverðlaunin sem hann hlaut
fyrir The Last Emperor frá árinu
1987 og af öðrum þekktustu kvik-
myndum hans má nefna The Last
Tango in Paris, The Conformist og
The Dreamers.
Bertolucci hóf að leikstýra
snemma á sjöunda áratugnum og
varð einn af helstu leikstjórum
ítölsku nýbylgjunnar en af öðrum
slíkum má nefna Michaelangelo
Antonioni, Federico Fellini og Pier
Paolo Pasolini.
Bertolucci hlaut heiðursverðlaun
á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið
2011 og fjórum árum fyrr sambæri-
leg verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Feneyjum. Fyrsta kvikmyndin sem
Bertolucci leikstýrði var Prima
della rivoluzione frá árinu 1964 en
þá hafði hann komið að nokkrum
kvikmyndum sem aðstoðarmaður
og handrithöfundur. Síðasta kvik-
myndin sem hann leikstýrði var hin
ítalska Io e te frá árinu 2012.
AFP
Virtur Bernardo Bertolucci á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2013.
Bertolucci látinn
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Viðhorfsbreytingin er mesta breyt-
ingin sem ég tel að hafi orðið í 40 ára
baráttu samkynhneigðra á Íslandi.
Þegar hún hófst mátti alls ekki ræða
um samkynhneigð og enginn vildi
vita af. Þegar svo Jóhanna Sigurðar-
dóttir, fyrrverandi forsætisráð-
herra, opnaði sína innstu persónu
fyrir alþjóð var það engin frétt á Ís-
landi en þótti mikil frétt annars stað-
ar,“segir Hrafnhildur Gunnars-
dóttir, kvikmyndargerðarkona og
leikstjóri. Heimildarkvikmynd
hennar, Svona fólk sem fjallar um
réttindabaráttu samkynhneigðra
verður frumsýnd í Bíó Paradís í
kvöld. Hrafnhildur segir að upp-
haflega hafi hún aðeins ætlað að
gera heimildarkvikmynd en efnið
sem hún safnaði s.l. 26 ár sé svo mik-
ið að framleiddir voru fimm sjón-
varpsþættir til viðbótar sem sýndir
verða á RÚV í vetur.
Hrafnhildur segir Svona fólk ólíka
öðrum heimildarmyndum. Hún sem
höfundur sé ekki alveg hlutlaus
heldur nýti sjónarhorn sitt og
reynslu sem samkynhneigður ein-
staklingur sem kom út úr skápnum
16 ára.
„Reynsla mín og þekking á kost-
um og göllum baráttu samkyn-
hneigðra rammar þannig inn við-
fangsefnið. Mér fannst það dálítið
erfitt til að byrja með en nú er ég
viss um að það sé heiðarlegasta að-
ferðin. Ég tók snemma þátt í barátt-
unni og var í stjórn Samtakanna 78,
á árunum 1983 til 1985, þar kynntist
ég baráttunni vel og eignaðist góða
vini. Ég fór fljótlega í nám erlendis
og fylgdist þaðan vel með baráttunni
utan frá. Ég kom heim 2001 og tók
nokkrum árum síðar að mér for-
mennsku í tvö ár í Samtökunum 78,“
segir Hrafnhildur og bætir við að
þeir sem opinberi einkalíf sitt séu oft
gagnrýndir fyrir að trana sér fram í
fjölmiðlum. En það sé oft eina leiðin
til þess að fá fólk til þess að hlusta og
kynna sér málin
Að sögn Hrafnhildar fjallar heim-
ildarkvikmyndin um baráttuna frá
1970 til 1985. Fyrsti sjónvarpsþátt-
urinn fjallar hins vegar um árin 1970
til 1978, annar 1978 til 1985. Sá þriðji
fjallar um árin 1985 til 1992, fjórði
1992 til 2000 og síðasti og fimmti
þátturinn frá 2000 til 2016. Alls voru
tekin viðtöl við 40 manns.
Ung í miðju stríði
Hrafnhildur segir að erfiðast hafi
verið að fjalla um tímabilið 1985 til
1992 þar sem sá þáttur fjalli meira
og minna um alnæmi sem sé mið-
punkturinn í öllu saman og í raun
ástæða þess að hún fór af stað að
safna heimildum fyrir 26 árum síðan.
„Ég upplifði það mjög ung að vera
í miðju stríðinu þegar fólk var hrætt
við að smitast og vinirnir dóu.
Stundum fylgdum við vinum okkar
til grafar í hverjum mánuði. Einn
besti vinur minn, Björn Bragi
Björnsson, smitaðist af HIV og lýsir
því í viðtali hvernig samfélagið sner-
ist gegn honum en líka samfélag
samkynhneigðra. Það voru allir
hræddir um að smitast og menn
voru flokkaðir í hreina og óhreina.
Það var í raun þetta ástand sem setti
mig af stað í heimildaröflun í upp-
hafi. Það voru skrýtnir tímar að vita
ekki hjá hverjum mátti sofa og
hverjum ekki. En hommasamfélagið
stóð líka saman og lyfti grettistaki
þegar þeir kröfðust þess að auglýs-
ingar embættis landlæknis yrðu
þannig úr garði gerðar að þær höfð-
uðu líka til samkynhneigðra,“ segir
Hrafnhildur sem upphaflega ætlaði
að klára heimildarkvikmyndina 2005
eða 2006. Á þeim tíma hafi hún verið
í framboði til formennsku í Samtök-
unum 78 og misst föður sinn sem
gerði það að verkum að hún var ekki
tilbúin að halda áfram og klára
heimildarmyndina.
„Ég bað Pál Óskar síðar að koma
inn sem verndara verkefnisins og
hjálpa mér að fjármagna það. Það
sýnir hve heimur samkynhneigðra á
Íslandi er lítill því eitt af viðtölunum
sem ég tók árið 1997 fyrir myndina
var við Pál Óskar. Það eru í raun
færri sem komið hafa að baráttunni
og verið með öll lætin en lítur út fyr-
ir að vera,“ segir Hrafnhildur sem
segir merkilegast að sjá hvernig
baráttan fór fram og þjóðfélags-
breytingarnar sem urðu í kjölfarið.
Megum ekki sofna á verðinum
„Sem ung kona átti ég alls ekki
von á öllum þeim breytingum sem
urðu og tryggðu réttindi samkyn-
hneigðra sem fólk heldur stundum
að hafi alltaf verið fyrir hendi. Þegar
við erum að nálgast endastöð í bar-
áttunni verðum við að passa að það
komi ekki bakslag. Í Danmörku sem
litið hefur verið til þegar rætt er um
réttindi samkynhneigðra virðist
vera komið bakslag og það gæti náð
til okkar ef við sofum á verðinum.“
Hrafnhildur segir miklar tækni-
framfarir hafa orðið á 26 árum.
Fyrsta myndefnið sé tekið upp á 8
mm filmu og fyrstu viðtölin á 8 mm
vídeó en þau nýjustu á 4K mynd-
bönd. Hún segir að þessi mismunur
komi betur út en hún hafi þorað að
vona.
400 klst. af fræðsluefni á vefinn
„Ég ætla að setja yfir 400 klst. af
efni sem ég er búin að fá leyfi til að
birta og nýtist ekki í myndinni inn á
síðuna www.svonafolk.is, sem opin
verður öllum. Lilja Alfreðsdóttir,
menningar- og menntamálaráðherra
opnar vefinn formlega á frumsýn-
ingunni. Á vefnum verður hægt að
ná í textaskjöl og vídeófæla fyrir
komandi kynslóðir sem vilja kynna
sér málefni og baráttu samkyn-
hneigðra á Íslandi,“ segir Hrafnhild-
ur sem framleitt hefur og leikstýrt
fjölda verka og hlotið fyrir þau ýmis
verðlaun. Hrafnhildur hefur auk
baráttumála hinsegin fólks fjallað
um jafnréttismál og mannréttinda-
mál í verkum sínum.
Þess má geta að RÚV sýnir um
þessar mundir þættina Fullveldis-
öldin sem Hrafnhildur leikstýrði.
Flokkaðir í hreina og óhreina
Heimildarkvikmyndin Svona fólk frumsýnd í kvöld Fimm sjónvarpsþættir sýndir á RÚV í
vetur Fylgdu stundum vinum til grafar í hverjum mánuði Páll Óskar er verndari verkefnisins
Morgunblaðið/Eggert
Verklok Hrafnhildur Gunnarsdóttir gerði heimildarmynd um 48 ára réttindabaráttu samkynhneigðra.