Morgunblaðið - 28.11.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Rótarsjúkdómar sem hafa verið að breið-
ast út í Evrópu eru nýjasta ógnin í ræktun
trjáa og runna hér á landi,“ segir Halldór
Sverrisson, plöntusjúkdómafræðingur hjá
Skógræktinni. Hann segir að einn þessara
sjúkdóma hafi fundist í gróðrarstöð hér á landi
í fyrra, en ekki er talið að smitaðar plöntur
hafi farið í dreifingu. Halldór kallar eftir end-
urskoðun á reglugerð um innflutning plantna.
Kartöflumygla þekkt dæmi
Umræddir rótarsjúkdómar eru af ættkvísl
sem á fræðiheitinu kallast Phytophthora. Þeir
voru lengi skilgreindir sem
sveppasjúkdómar, en hafa
nú fengið sjálfstæða grein-
ingu að sögn Halldórs.
Hann segir að hér á landi
sé kartöflumygla þekkt
dæmi um skaðlegan sjúk-
dóm þessarar tegundar.
„Við höfum staðfest
dæmi frá síðasta ári um
Phytophthora í trjáplöntum
hér á landi,“ segir Halldór.
„Ekki er talið að þær hafi
farið í dreifingu, en ég hef grun um að hingað
geti verið komnar fleiri tegundir. Þessir nýju
rótarsjúkdómar hafa verið að breiðast út í
Evrópu og hafa farið illa með japanslerki á
Bretlandseyjum, en geta farið í margar teg-
undir af trjám og runnum. Um er að ræða
þræði sem vaxa inn í ræturnar, en geta einnig
farið í stofn trjáa. Þetta er lúmskt því meðan
sjúkdómurinn er í rótunum er erfitt að greina
hann.“
Halldór segist lengi hafa bent á nauðsyn
þess að endurskoða reglugerð um innflutning
á plöntum. Í grunninn sé reglugerðin frá 1990
og þó svo að síðan hafi verið bætt í hana og
hún gerð strangari hafi sjúkdómum fjölgað
mjög og eins hafi flutningur á milli landa auk-
ist verulega.
Hafa farið illa með japanslerki
„Þessir rótarsjúkdómar leggjast á alls kon-
ar gróður og hættan er sú að þeir fari með
plöntum í garða eða skóga. Á Bretlandi hefur
Phytophthora farið sérstaklega illa með jap-
anslerki og þó svo að hér á landi ræktum við
einkum rússalerki þá skilst mér að sjúkdóm-
urinn geti lagst á allt lerki,“ segir Halldór.
Á fræðslufundi hjá Garðyrkjufélagi Árnes-
inga í síðustu viku fjallaði Halldór um skað-
valda í trjágróðri, bæði um ógnina af rótar-
sjúkdómum og skordýr á trjám; lirfur fiðrilda,
bjöllur og ryð. Margir skaðvaldanna eru ný-
legir landnemar hér á landi og er talið að sum-
ir þeirra geti hafa borist til landsins með inn-
fluttum plöntum.
Halldór segir að birkikemba haldi áfram að
breiðast út og sé komin um allt land að Vest-
fjörðum undanskildum. Hún skemmi birkilauf
framan af sumri, en á Suðvestur- og Suður-
landi taki birkiþéla þá við af henni. Kemban og
þélan eru atkvæðamestar á höfuðborgarsvæð-
inu, en síður í náttúrulegu birkikjarri. Ekki er
ljóst hver áhrifin verða til framtíðar.
Halldór segir að bjallan asparglytta hafi
farið mjög illa með víðitegundir á höfuðborg-
arsvæðinu, einkum viðju. Hún virðist hins veg-
ar ekki valda miklu tjóni á alaskaösp hér á
landi.
„Ofuraspir“ í fjölgun
Þar er asparryðið mun alvarlegra og hefur í
nokkur ár verið unnið að því að rækta klóna
sem hafa mótstöðu gegn ryðinu og eru hrað-
vaxta. Nú eru slíkir klónar „ofuraspa“ að fara í
fjölgun og er ætlunin að byggja á þeim í fram-
tíðinni. Asparryð hefur í mörg ár verið árvisst
á Suðurlandi, en í ár var talsvert um það í
Eyjafirði og austur á Héraði.
Birkifeti hefur verið samur við sig síðustu
ár og m.a. lagst á bláberjalyng á Snæfellsnesi
og Vestfjörðum. Síðustu ár hafa fiðrildalirfur
farið illa með birkiskóga á Austurlandi og hafa
aflaufgað trén, þar hafa tígulvefari, birkivefari
og birkifeti m.a. átt hlut að máli.
Rótarsjúkdómar nýjasta ógnin
Hafa verið að breiðast út í Evrópu Gætu verið ógn í ræktun runna og trjáa Staðfest dæmi í
gróðrarstöð hér á landi á síðasta ári Kallar eftir endurskoðun á reglugerð um innflutning plantna
Ljósmynd/Halldór Sverrisson
Lerkitré á Síðu Rótarsjúkdómur hefur farið illa með japanslerki á Bretlandseyjum, en ekki er
vitað til þess að sjúkdómurinn hafi skaðað rússalerki hérlendis.
Halldór
Sverrisson
LAND ROVER Discovery 5
TD6 HSE Luxury
Nýskr. 2/2018, ekinn 9 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 15.890.000 kr.
Rnr.103826.
LAND ROVER Discovery
Sport SE.
Nýskr. 8/2016, ekinn 22 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.290.000. kr.
Rnr. 103736.
LAND ROVER Discovery 5 SE
Nýskr. 5/2017, ekinn 44 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.590.000 kr.
Rnr. 145415.
RANGE ROVER Evoque
HSE Dynamic
Nýskr. 2/2016, ekinn 40 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.990.000 kr.
Rnr. 103733.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar semmerktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
8
9
1
RANGE ROVER Sport HSE
Nýskr. 6/2017, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 11.500.000 kr.
Rnr. 103773.
RANGE ROVER Evoque
Autobiography
Nýskr. 1/2017, ekinn 21 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.990.000 kr.
Rnr. 450002.
LAND ROVER
Discovery Sport HSE
Nýskr. 4/2016, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 103786.
LAND ROVER Discovery 4 SE.
Nýskr. 5/2015, ekinn 103 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.290.000 kr.
Rnr. 430014.