Morgunblaðið - 28.11.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 GMC 3500 Sierra SLT
Litur: Summit white, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel.
Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE
hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld
sæti, Z71-pakki heithúðaður pallur og kúla í palli (5th
wheel pakki) og fleira.
VERÐ
10.890.000 m.vsk
2018 GMC Denali 3500
Litur: Onyx black, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, Vel útbúinn bíll t.d.
upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalarakerfi, dual
alternators, upphituð og loftkæld sæti, heithúðaður
pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira.
VERÐ
10.890.000 m.vsk
2018 Nissan Titan XD PRO4X
Litur: Dökkgrár, svartur að innan.
Með nýrri 5,0L V8 Cummins Diesel (310 hö) og Aisin
sjálfskipting.
VERÐ
12.840.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Litur: Red Volcano / svartur að innan (lúkkar meira
brúnn/ dökk rauður). 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra,
375 hestöfl, 470 lb-ft of torque.
LOBO edition, Mojave leður sæti, quad-beam LED
hedlights, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga,
fjarstart, 20” felgur o. fl.
VERÐ
12.775.000 m.vsk
STUTT
● Ríflega 4,2 milljarða velta var á að-
almarkaði með hlutabréf í Kauphöll Ís-
lands í gær. Mest var veltan með bréf
Marel eða 849 milljónir. Lækkuðu bréf
félagsins um 1,07% í viðskiptunum.
Mest lækkuðu bréf Regins eða um
3,77%. Bréf Festi lækkuðu um 3,42%.
Þá lækkuðu bréf Reita um 3,32%, Arion
banka og VÍS um 3,14%. Bréf Icelandair
Group lækkuðu um 2,35% í 433 millj-
óna viðskiptum. Aðeins eitt félag hækk-
aði í viðskiptum dagsins en það var HB
Grandi. Hækkaði félagið um 0,86%.
Talsverðar lækkanir á
hlutabréfamarkaði
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands í gærmorgun ítrekaði Ice-
landair Group að enn hefði ekki
tekist að uppfylla alla fyrirvara
sem settir voru við kaup félagsins
á öllu hlutafé WOW air en samn-
ingur þar að lútandi var undirrit-
aður 5. nóvember síðastliðinn. Af-
létta verður öllum fyrirvörum í
tengslum við viðskiptin fyrir hlut-
hafafund sem boðaður hefur verið í
Icelandair Group á föstudagsmorg-
unn, 30. nóvember.
Meðal þeirra fyrirvara sem um
ræðir er samþykki Samkeppniseft-
irlitsins en stofn-
unin mun nú
vinna hörðum
höndum að rann-
sókn á samruna-
beiðni sem henni
hefur borist í
tengslum við
kaupin.
Aðrir fyrirvar-
ar sem enn hefur
ekki tekist að
greiða úr tengjast samningavið-
ræðum við kröfuhafa WOW air og
leigusala félagsins. Líkt og fram
kom í frétt Morgunblaðsins 18.
ágúst síðastliðinn eru það átta fé-
lög, m.a. á Írlandi, Bermúda og í
Delaware í Bandaríkjunum, sem
leigja WOW air-vélarnar 20 sem
félagið hefur nú í förum milli Ís-
lands og áfangastaða í Evrópu og
Bandaríkjunum.
Fleiri kallaðir að borðinu
Þannig miða samningaviðræður
að því að kröfuhafar, leigusalar,
og eftir atvikum birgjar WOW air,
sem eiga kröfur á hendur félag-
inu, gefi eftir hluta skulda þess
eða geri þær skilmálabreytingar
sem greitt geta fyrir viðskiptun-
um. Þannig mun ekki koma til
greina af hálfu Icelandair Group
að taka við skuldbindingum WOW
air í óbreyttri mynd. Ljóst er að
skuldsetning félagsins, sem um
mitt ár nam tugum milljarða
króna, mun hafa veruleg áhrif á
efnahagsreikning samstæðu Ice-
landair Group, verði af yfirtök-
unni.
Enn sem komið er munu kröfu-
hafar og leigusalar WOW air ekki
hafa gefið skýrt svar um hvort orð-
ið verði við beiðni um þær breyt-
ingar sem liggja til grundvallar
fyrrnefndum fyrirvörum í kaupum
Icelandair Group á félaginu.
Forstjórinn tekur af skarið
Sú staða ásamt þeirri staðreynd
að hluthafar Icelandair Group
munu koma saman til fundar á
föstudagsmorgun til að taka af-
stöðu til kaupsamningsins, varð
þess valdandi að Skúli Mogensen
sendi í gær bréf til þeirra fjárfesta
sem tóku þátt í skuldabréfaútboði
WOW air í september síðastliðn-
um.
Í því bréfi, sem aðeins telur 351
orð, útlistar hann þá þröngu stöðu
sem félagið er í og undirstrikar um
leið að rekstrarhorfur þess hafi
versnað til muna frá því að útboðið
fór fram. Nefnir hann sérstaklega
fjórar ástæður fyrir verri stöðu nú
en í september.
Fjórar meginástæður
Í fyrsta lagi hafi neikvæð um-
ræða um fjárhagsstöðu félagsins,
meðan á skuldabréfaútboðinu stóð
og í kjölfar þess, haft neikvæðari
áhrif á sölu félagsins og skulda-
stöðu en gert hafi verið ráð fyrir
og að fjórði ársfjórðungur komi
verr út en áætlanir voru byggðar
á. Í öðru lagi hafi Primera air orðið
gjaldþrota í október sem hafi leitt
aukna neikvæðni yfir markaðinn.
Þá hafi félagið verið að því komið
að ganga frá sölu og endurleigu á
flugvél/flugvélum sem gengið hafi
til baka en það bakslag hafi haft
tæplega 3,2 milljarða króna nei-
kvæð áhrif á lausafjárstöðu félags-
ins. Í fjórða lagi hafi olíuverð
hækkað gríðarlega á vikunum og
mánuðunum eftir útboðið sem hafi
einnig sett þrýsting á fjárhags-
stöðu félagsins.
Segir Skúli í bréfinu að þessar
aðstæður hafi orðið þess valdandi
að nauðsynlegt hafi reynst að leita
frekari leiða til að tryggja fjár-
mögnun félagsins.
„Það að skrifa þetta bréf er ekki
gert af léttúð af neinu tagi og ég
get fullvissað ykkur um að við er-
um að taka hvert það skref sem
mögulegt er til að tryggja áfram-
haldandi rekstur WOW air,“ segir
Skúli í bréfinu. Í samhengi við það
ítrekar hann að í útboðinu í sept-
ember hafi hann persónulega lagt
félaginu til 5,5 milljónir evra í
reiðufé. En það eru um 11% af
heildarútgáfunni sem hljóðaði upp
á 50 milljónir evra.
Heimildir Morgunblaðsins
herma að með bréfi sínu til lán-
ardrottna WOW air hafi Skúli
gengið eins langt og honum var
unnt í þeirri viðleitni að koma við-
semjendum sínum í skilning um að
grípa þyrfti til drastískra aðgerða
ef bjarga ætti félaginu. Aldrei fyrr
hefur á opinberum vettvangi birst
jafn hispurslaus lýsing stofnanda
félagsins á raunverulegri stöðu fé-
lagsins.
Fækka í flotanum
Þegar klukkan var gengin 20
mínútur í fimm síðdegis í gær
barst tilkynning frá WOW air þess
efnis að félagið hygðist fækka um
fjórar vélar í flota sínum. Var það
sagt aðgerð til að „auka hag-
kvæmni, draga úr árstíðarsveiflu
og hámarka arðsemi“. Þannig hefði
aðgerðin verið hluti af endurskipu-
lagningu á rekstri félagsins. Með
ákvörðuninni hverfa tvær Airbus
A320-vélar úr flota WOW og tvær
A330-breiðþotur. Er bent á að
þessar vélar hafi ekki nýst sem
skyldi í vetraráætlun WOW. Hinn
6. desember næstkomandi hefur fé-
lagið beint flug til Nýju Delí á Ind-
landi en til þess flugs mun félagið
notast við breiðþotur af fyrrnefndri
gerð. Hagræðingin nú er ekki sögð
hafa nein áhrif á þá flugleið félags-
ins. Þegar Morgunblaðið fór í
prentun undir miðnætti höfðu ekki
fengist upplýsingar um hvort af-
hending vélanna fjögurra væri
hluti af samkomulagi við leigusala
félagsins. Hins vegar herma heim-
ildir Morgunblaðsins að hagræð-
ingaraðgerðir WOW air séu til
marks um að unnið sé hörðum
höndum að því að koma félaginu
fyrir vind og skipuleggja fjárhags-
stöðu þess með þeim hætti að kaup
Icelandair Group á félaginu geti
orðið að veruleika.
Flóknar þríhliða við-
ræður ganga hægt
Fleiri við samningaborðið en aðeins Icelandair og WOW
A330-300 Breiðþoturnar eru engin smásmíði og taka tæplega 350 farþega í sæti. Listaverð á nýjum slíkum vélum
er 264 milljónir dollara, jafnvirði 33 milljarðar króna. WOW mun hafa einni slíkri vél á að skipa eftir breytingarnar.
Morgunblaðið/RAX
Skúli
Mogensen
28. nóvember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.27 123.85 123.56
Sterlingspund 158.34 159.1 158.72
Kanadadalur 93.36 93.9 93.63
Dönsk króna 18.763 18.873 18.818
Norsk króna 14.388 14.472 14.43
Sænsk króna 13.611 13.691 13.651
Svissn. franki 123.59 124.29 123.94
Japanskt jen 1.088 1.0944 1.0912
SDR 170.5 171.52 171.01
Evra 140.01 140.79 140.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.5137
Hrávöruverð
Gull 1226.65 ($/únsa)
Ál 1922.0 ($/tonn) LME
Hráolía 58.98 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Launagreiðslur lítilla og meðalstórra
fyrirtækja hafa nær tvöfaldast frá árinu
2010 og námu á árinu 2017 um 550
milljörðum króna. Þetta kom m.a. fram
á opnum fundi Litla Íslands sem fram
fór í gærmorgun og sagt er frá á vef
Samtaka atvinnulífsins. Þar kemur
einnig fram að Litla Ísland sé vett-
vangur þar sem lítil fyrirtæki vinna
saman óháð atvinnugreinum.
Á fundinum ræddu stjórnendur minni
fyrirtækja um stöðu og horfur út frá
eigin rekstri og eins og segir í fréttinni
þá voru þau sammála um að staðan
væri viðkvæm og sögðu að laun á und-
anförnum árum hefðu hækkað hlutfalls-
lega mest hjá minni fyrirtækjum en
launakostnaður vægi þungt í rekstri lít-
illa og meðalstórra fyrirtækja.
„Sjö af hverjum tíu starfsmönnum á
vinnumarkaði vinna hjá litlu eða meðal-
stóru fyrirtæki, alls um 100 þúsund
starfsmenn. Lítil og meðalstór fyrirtæki
greiða 68% af greiddum launum í land-
inu,“ segir á vef SA.
Launagreiðslur tvöfald-
ast frá árinu 2010