Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 19

Morgunblaðið - 28.11.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 Æfing Þúsund starfsmenn í Norðurturni við Smáralind þurftu að rýma vinnustaði sína þegar brunaviðvörunarkerfi turnsins fór í gang kl. 14 í gær. Æfingin var liður í Eldvarnaátaki LSS. Árni Sæberg Enn einu sinni er deilt um sjávarútveg í þingsölum. Þegar þetta er skrifað er annarri umræðu um frumvarp sjávar- útvegsráðherra um veiðigjöld ekki lokið, þótt vonir hafi staðið til að það tækist áður en þriðjudagurinn væri allur. Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Viðreisn, Pírötum og Samfylkingunni fara mikinn. Krefjast hærri veiðigjalda, leggja fram tillögu um að kollvarpa aflamarkskerfinu, kvarta síðan und- an samráðsleysi og að verið sé að „keyra“ málið í gegnum þingið með óeðlilegum hætti og hraða. Í liðlega 60 daga hefur þingið haft frumvarp um veiðigjöld til um- fjöllunar og í gær voru tveir mán- uðir frá því að ráðherra mælti fyrir málinu. Atvinnuveganefnd hefur haldið ellefu fundi og fengið til sín yfir 50 gesti, frá hagsmuna- samtökum, fyrirtækjum, sveitar- félögum, launþegasamtökum og op- inberum stofnunum. Nefndinni bárust 39 skriflegar umsagnir. Ráð- herra fór hringferð um landið og hélt ellefu opna fundi til að kynna frumvarpið, taka þátt í umræðum og eiga skoðanaskipti við fundar- gesti. Í rúmlega tvo mánuði hafa þingmenn haft tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum og móta tillögur til breytinga. En stjórnarandstaðan er ósátt og leggur til að frumvarpinu verði vís- að frá. Til vara hafa forystumenn Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar lagt fram tillögur til breytinga. Þar glittir í gamla drauga. Búa á til gamaldags millifærslusjóð – „Uppbyggingarsjóð landshlutanna“ – og boðuð er einhvers kon- ar útfærsla á fyrningu aflahlutdeilda. Árið 2011 kom fram stjórnarfrumvarp er gerði ráð fyrir að kvótinn yrði innkall- aður – fyrningarleið – samhliða stórhækkun veiðileyfagjalds. Frumvarpið náði ekki fram að ganga. Einn ráðherra þeirrar rík- isstjórnar sagði síðar að hug- myndin hefði verið „eins og bíl- slys“. Eigið fé étið upp Árið 2010 vann dr. Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði, greinargerð um áhrif fyrningar- leiðar á afkomu og rekstur sjávar- útvegsfyrirtækja að beiðni nefndar um endurskoðun á stjórnkerfi fisk- veiða undir forystu Guðbjarts heit- ins Hannessonar. Daði Már sagði meðal annars: „Aflamarkskerfið hefur skapað mikil verðmæti gegnum hagræð- ingu og verðmætari afurðir. Stærstur hluti hlutdeildarinnar í heildaraflamarki, varanlegu veiði- heimildanna, hefur skipt um eig- endur síðan kerfinu var komið á. Sá umframhagnaður sem afla- markskerfið skapaði hefur því þeg- ar verið fjarlægður að mestu úr fyrirtækjunum með sölu aflaheim- ildanna. Nýir eigendur aflaheimilda hagnast ekki meira en eðlilegt er miðað við áhættuna í rekstri út- gerðarfyrirtækja. Þetta takmarkar mjög tækifæri ríkisins til að auka gjaldtöku á útgerðinni án þess að það feli í sér eignaupptöku og hafi veruleg neikvæð áhrif á rekstrar- skilyrði hennar. Fyrning aflaheim- ilda felur í sér mjög mikil neikvæð áhrif bæði á efnahag og rekstur út- gerðarfyrirtækja. Það sem að óat- huguðu máli gæti litið út fyrir að vera óveruleg fyrning hefur í raun afar mikil neikvæð áhrif, enda er verið að svipta útgerðarfyrirtækin lykileignum með varanlegum hætti. Niðurstöður þessarar greinar- gerðar benda til þess að línuleg fyrning umfram 0,5% á ári mundi þurrka út hagnað útgerðarinnar. Fyrning umfram það er líkleg til þess að valda viðvarandi taprekstri. Slík lág fyrning mun einnig draga verulega úr eigin fé útgerðarfyrir- tækjanna. Samkvæmt þessari greiningu mundi um 1% línuleg fyrning á ári eyða að fullu eigin fé útgerðarinnar.“ Daði Már benti einnig á að fyrn- ing aflaheimilda hefði ýmis önnur neikvæð áhrif. Í fyrsta lagi dreifist álögur á útgerðina ekki jafnt á byggðir landsins heldur leggist þær mun þyngra á svæði þar sem út- gerðin er umfangsmikill hluti at- vinnulífs. Í öðru lagi dragi fyrning úr hvata útgerðarinnar til góðrar umgengni um auðlindina, því hags- munir hennar snúast ekki lengur um hámörkun langtímavirðis veið- anna heldur hámörkun skamm- tímagróða. Í þriðja lagi fjarlægir fyrning fjármagn úr virkri nýtingu hjá útgerðarfyrirtækjum til ríkis- ins, þar sem arðsemi er oft mun minni. Brimbrjótur tækniframfara Auknar álögur, fyrningarleiðir eða aðrar hugmyndir um að koll- varpa stjórnkerfi fiskveiða munu ekki aðeins koma niður á sjávar- útvegsfyrirtækjum. Sú fullyrðing að sjávarútvegur- inn sé uppspretta annarra auðlinda verður illa hrakin. Fjölmörg fyrir- tæki sinna margvíslegri þjónustu við sjávarútveg. Glæsileg fyrirtæki, sem sum hver eru leiðandi á sínu sviði í heiminum, eiga rætur í þjón- ustu við veiðar og vinnslu. Afrakst- ur af samstarfi hátæknifyrirtækja og sjávarútvegs hefur skotið fleiri stoðum undir íslenskt efnahagslíf, aukið fjölbreytni og skapað þús- undir starfa. Framsækin hátækni- fyrirtæki með vel menntuðu starfs- fólki hafa orðið til vegna fjár- festinga sjávarútvegsfyrirtækja. Samkvæmt greiningu Deloitte námu viðskipti íslenskra sjávar- útvegsfyrirtækja við tæknifyrirtæki tæpum 50 milljörðum króna árið 2016. Útflutningur á tæknibúnaði og þekkingu í sjávarútvegi er um- svifamikill og í stöðugum vexti. Það er því ekki tilviljun að dr. Ásgeir Jónsson, prófessor í hag- fræði, haldi því fram að sjávar- útvegur hafi verið brimbrjótur tækniframfara og nýsköpunar hér á landi. Sjávarútvegur er eina at- vinnugreinin þar sem við Íslend- ingar getum lýst yfir alþjóðlegri forystu! Einn fremsti fræðimaður heims á sviði stofnanahagfræði, dr. Þráinn Eggertsson prófessor, telur að umræðan um kvótakerfið sé „óheilbrigð þráhyggja“. Hann hefur fært rök fyrir því að fiskveiði- stjórnunarkerfið sé merkilegasta framlag Íslands í skipulagsmálum. Aðrar þjóðir líta til skipulags ís- lensks sjávarútvegs sem fyrir- myndar í viðleitni þeirra til að hverfa frá umfangsmiklum ríkis- styrkjum fyrir fiskveiðar og -vinnslu. Ef það hreyfist Í heild greiddi sjávarútvegurinn um 105 milljarða króna í tekju- skatt, tryggingagjald og veiðigjald á fimm árum frá 2013 til 2017. Engin önnur atvinnugrein greiddi meira í sameiginlegan sjóð lands- manna. Á sama tíma og tekist er á um það á Íslandi hversu þungar byrðar eigi að leggja á sjávarútveg eru fiskveiðar flestra annarra þjóða á opinberu framfæri. Íslenskur sjávarútvegur hefur staðist ríkisstyrkta samkeppni á er- lendum mörkuðum. En í stað þess að taka þátt í að renna enn styrk- ari stoðum undir atvinnugreinina eru margir stjórnmálamenn og jafnvel heilu stjórnmálaflokkarnir uppteknir af því að kollvarpa stjórnkerfi fiskveiða og draga úr samkeppnishæfni með ofursköttum og -gjöldum. Ronald Reagan, fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna, lýsti þessari hugmyndafræði ágætlega: Ef það hreyfist, skattleggðu það. Ef það heldur áfram að hreyfast, settu lög. Ef það stoppar, settu það á ríkis- styrk. Eftir Óla Björn Kárason » Í heild greiddi sjávarútvegurinn um 105 milljarða króna í tekjuskatt, trygginga- gjald og veiðigjald frá 2013 til 2017. Engin at- vinnugrein greiddi meira. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Ef það stoppar, settu það á ríkisstyrk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.