Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 JÓLAHUMARINN ER KOMINN Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn N FRÁ STÓR KANADÍSKUR HUMARGLÆNÝ LÚÐA ÞORSKHNAKKAR NÝLÖGUÐ HUMARSÚPA SALTFISKHNAKKAR LÖNGUNAKKAR Í JAPÖNSKUM RASPI Oft er einkennilegt hvernig opinberum fjármunum er varið. Á undanförnum áratugum hafa ýmsir stjórnmálamenn talið það vera skyldu sína að greiða sem best fyrir stóriðju á Ís- landi. Ótakmörkuðu fé hefur verið varið til opinberra fram- kvæmda til þess að greiða fyrir því að hér verði reistar álbræðslur og önnur stórfyrirtæki. Náttúru Ís- lands hefur oft verið fórnað án minnstu miskunnar og nægir að nefna umdeilda ákvörðun um bygg- ingu Kárahnjúkavirkjunar á sínum tíma. Ein afleiðingin og hliðin á því máli var gífurleg þensla í efnahags- málunum sem kynti undir spákaup- mennsku sem átti verulegan þátt í efnahagshruninu haustið 2008. Nýjasta dæmið er opinber fram- kvæmd við gerð jarð- ganga norðan við Húsavík. Þessi fram- kvæmd kostaði ríkis- sjóð um 4 milljarða sem verður að teljast óskiljanleg sóun sem ekki nýtist neinum nema því fyrirtæki sem þarna á hlut að máli. Þessi fyrirtæki eru meira og minna með suma stjórn- málamenn í vasanum sem ætíð eru tilbúnir að sýna hagsmunum þeirra mikinn skilning. Og þessi fyrirtæki útnýta sér all- ar mögulegar skattasmugur til þess að skjóta hagnaðinum af rekstr- inum úr landi án þess að skatta- yfirvöld nái að koma á eðlilegri skattálagningu hagnaðarins. Þessir sömu stjórnmálamenn virðast hins vegar ekki sýna þeim sem minnst mega sín í samfélaginu, tekjulágu fólki eins og öryrkjum, barnafólki, leigjendum og eldri borgurum skilning að neinu leyti. Og samt eru þessir menn kosnir aftur og aftur. Alltaf skal þeim tak- ast ætlunarverk sitt að afvegaleiða og blekkja fjöldann og eru kosnir aftur og aftur! Þetta eru einnig sömu aðilarnir sem þverskallast við því að hér verði sett ný stjórnarskrá. Sú gamla sem að meginstefnu er frá 19. öld og einkennist af valdboði fremur en mannréttindum og lýð- ræði er sögð vera fullgóð handa landi og lýð. Grundvallarstoðir nútíma- samfélags sem nú þykir sjálfsagðar byggjast á jafnræði og mannrétt- indum og eru viðurkenndar innan Evrópusambandsins sem þessum stóriðjusinnum er mikil grýla í aug- um og sjá því allt til foráttu. Við Íslendingar höfum allt of lengi látið ofbeldið viðgangast gagnvart náttúrunni og skoðana- kúgun gagnvart okkur sjálfum. Breytum þessu! Við þurfum fyrst og fremst stjórnmálamenn sem bera hag allra Íslendinga fyrir brjósti en ekki nokkurra útvalinna auðmanna sem nóg hafa fyrir! Einkennileg ráðstöfun opinbers fjár Eftir Guðjón Jensson Guðjón Jensson » Við þurfum fyrst og fremst stjórnmála- menn sem bera hag allra Íslendinga fyrir brjósti. Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. Tilefni þess að ég skrifa þessa grein er að ég heimsótti fyrrver- andi heimalandið mitt, Þýskaland, og hitti þar góða gamla vini. Marg- oft var ég spurð um hvers vegna það væri ennþá verið að veiða hvali á Íslandi og hvort menn væru nú ekki loksins að hætta þessu. Mér vafðist stöðugt tunga um tönn í þeirri tilraun að finna eitthvað jákvætt við að réttlæta hvalveiðar hér á landi. Eftir ríkulega umhugsun er niður- staða mín að hvalveiðar ættu að heyra sögunni til og ekki sé hægt að réttlæta þær lengur. 1. „Íslendingar hafa alltaf stundað hvalveiðar og þetta er partur af menn- ingunni okkar“. Rangt! Aðrir þjóðir veiddu hvali hér við Íslandsstrendur lengi en Íslendingar sjálfir fóru ekki að veiða hvali fyrr en um miðja síðustu öld. 2. „Við verðum að nýta auðlindirnar okkar“. En í hverju eru auðlindirnar okkar fólgnar? Það er miklu meiri ávinningur í því að skoða hvali en að drepa þá. Hvalaskoðun er vinsæl hjá ferðamönnum og jafnvel tilefni sumra til að koma hingað. En að við séum að drepa hvali setur ljótan stimpil á Ís- land sem ferðamannaland og skaðar ímynd okkar út á við. 3. „Hvalveiðar skapa atvinnu“. Að vísu unnu um 150 manns við þessa iðju en hvalaskoðun veitir fleirum vinnu. Einungis á Reykjavíkursvæðinu vinna hátt í 200 manns við hvalaskoðun. Svo leyfi ég mér að fullyrða að vinnan við að kynna land okkar og náttúru sé margfalt skemmtilegri og meira uppbyggjandi en að drepa háþróuð dýr og búta þau í sundur. Það þarf að rannsaka betur hversu skaðlegar hval- veiðar eru fyrir ferða- þjónustu. Allavega hef ég í starfi mínu sem leið- sögumaður heyrt margar neikvæðar raddir um hvalveiðar. 4. „Það er allt í lagi að skjóta dýr, þetta eru bara skepnur“. Er það svona einfalt? Í dýraverndunarlögum er hægt að lesa að dýr skuli aflífa á skjót- an og sem minnst sársaukafullan hátt. En það er vitað að hvalur sem fær skutul í sig er að þjást og kveljast lengi áður enn hann deyr. Og svo erum við ekki einu sinni að tala um að hvalir séu mjög háþróaðar lífverur. Í sumar komu fréttir um að oft séu kálffullar langreyðarkýr veiddar. Svo var talað um að tvisvar sinnum hafi verið drepn- ir svonefndir blendingar (afkvæmi langreyðar og steypireyðar) og það sé allt í lagi því einungis steypireyðar eru alfriðaðar. En um er að ræða mjög sjaldgæft fyrirbæri sem ber að vernda. 5. „Hvalaafurðir eru eftirsóttar og seljast vel“. Ó nei! Birgðirnar af hvala- kjöti hafa safnast fyrir í frystihúsum því enginn markaður er fyrir slíku. Nema kannski í Japan. En til að koma hvalkjötinu þangað þarf að yfirstíga margar hindranir, til dæmis hafa skip- in ekki fengið leyfi að leggja að landi í Hvers vegna hvalveiðar? Eftir Úrsúlu Jünemann Úrsúla Jünemann Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.