Morgunblaðið - 28.11.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.11.2018, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 ✝ Jón VídalínHalldórsson fæddist á Siglufirði 7. ágúst 1934. Hann lést á Landspítala við Hringbraut 14. nóvember 2018. Foreldrar hans voru Halldór Vída- lín Magnússon, kennari og kaup- maður, f. 15.1. 1898, d. 14.4. 1946, og Guðrún Hólmfríður Jóns- dóttir, húsmóðir, f. 30.3. 1914, d. 13.7. 1998. Alsystkini Jóns eru Magnús Vídalín, f. 21.3. 1936, d. 7.9. 1996, og Alda, f. 3.1. 1939. Sammæðra, sonur Guðrúnar og seinni manns hennar, Björgvins Sigurjónssonar, f. 21.10. 1911, d. 18.7. 1992, er Einar Helgi, f. 6.10. 1949, en fyrir átti Björgvin synina Árna, f. 26.5. 1936, og Steingrím Vikar, f. 31.5. 1941. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Fanndal. Hann hélt til Reykja- víkur í nám við Verzlunarskóla Íslands, þaðan sem hann útskrif- aðist 1954. Um tíma vann hann hjá Heildverslun Davíðs S. Jóns- sonar og síðan hjá Innflutnings- skrifstofu ríkisins. Hann hóf svo störf og varð síðar deildarstjóri hjá Gjaldeyriseftirliti Seðla- bankans þar sem hann vann út sína starfsævi. Jón kynntist Birnu sumarið 1959 á Akureyri þar sem hún var í hjúkrunarnámi. Þau giftu sig 2. desember 1960. Jón og Birna hófu búskap sinn í Reykjavík en fluttust síðar til Hafnarfjarðar þar sem þau hafa búið síðan. Árið 1974 festu þau kaup á sumarbústaðnum Dýja- bakka í Skorradal ásamt fjöl- skyldu Birnu og áttu þar marg- ar góðar stundir. Jón var virkur meðlimur í Lionsklúbbnum Frey og fyrir störf sín hlaut hann Melvin Jones-viðurkenningu, æðstu viðurkenningu sem veitt er í Lionshreyfingunni. Útför Jóns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 28. nóvember 2018, og hefst athöfn- in klukkan 13. Birna Ásmunds- dóttir Olsen, f. 16.2. 1939. Þau eiga sam- an eina dóttur, Guðrúnu Halldóru Jónsdóttur, f. 3.1. 1961, og barnsfaðir hennar er Jakob Lárus Sveinsson, f. 14.12. 1954. Dóttir þeirra er Guðrún Birna Jakobsdóttir, f. 4.9. 1987, og eiginmaður hennar er Sigurður Loftur Thorlacius, f. 30.6. 1990. Jón ólst upp á Siglufirði og lauk þar barnaskóla- og gagn- fræðaprófi. Hann lagði stund á knatt- spyrnu og frjálsar íþróttir, eink- um æfði hann spjótkast og náði langt í þeirri grein. Hann byrj- aði ungur að vinna eins og tíðk- aðist í þá daga og vann hjá Síldarverksmiðju ríkisins og Veiðarfæraverslun Sigurðar Mig langar að minnast elsku afa Nonna með fáeinum orðum. Eins sárt og það nú er að kveðja þá fyllist ég þakklæti að hafa fengið að kynnast jafn góðum og hjartahlýjum manni eins og afa. Frá því ég fyrst man eftir mér hef ég átt öruggt skjól undir væng hjá afa, ýmist að ræða mál- in, leysa krossgátur eða sitja saman í kyrrð og ró. Vináttu okk- ar var nefnilega þannig háttað að það þurfti ekki að fylla þögnina með orðagjálfri, það var nóg að finna nærveruna hans afa. Yfir- leitt sofnaði ég og afi, ætíð jafn tillitssamur, gætti þess að hreyfa sig ekki svo ég gæti sofið. Afi hafði þessi róandi áhrif á fleiri en mig, til dæmis gleymi ég ekki kisunni minni gömlu sem gat verið algert skaðræði á stundum en tók afa ávallt sem litlum kett- lingi, karaði hann og kjassaði. Þessi hlýja og góða nærvera var það sem einkenndi afa. Ekki minnist ég þess að afi hafi hall- mælti nokkrum og aldrei sagði hann styggðaryrði við mig. Afi var alltaf rólegur og alltaf góður. Ég man eftir natninni í afa við að kenna mér að skrifa fallega, lita ekki út fyrir, sýna mér löndin í kortabókinni og fleira til. Það var stolt lítil stúlka sem fylgdi afa sínum í Lions-klúbbinn að ganga frá dagatölum sem áttu að fara í sölu fyrir jólin. Þar man ég eftir afa brosandi í góðra vina hópi. Í stóru prófunum í háskólan- um voru það kjörorð afa sem gáfu mér styrk til að halda áfram: „Þetta hefst, Guðrún mín, þetta hefst allt saman.“ Mér er mjög minnisstætt þeg- ar við Siggi fengum þá flugu í höfuðið að það yrði að setja upp matjurtagarð í Smyrlahrauni. Afi studdi okkur heilshugar í því verkefni þó hann vissi að það myndi að mestu lenda á sér að sjá um garðinn. Í seinni tíð fórum við afi oft saman í bíó á þriðjudagskvöldum í Bæjarbíó Hafnarfjarðar. Þar var stundum verið að sýna myndir frá því í gamla daga og þá fékk ég að heyra frá ýmsum uppátækjum frá því hann var lít- ill strákur á Siglufirði. Mikið var skemmtilegt hjá okkur. Elsku afi minn, þakka þér fyr- ir allar dýrmætu stundirnar okk- ar. Kisurnar Irma og Doppa biðja að heilsa. Við sjáumst aftur seinna. Þín, Guðrún Birna. Bræður eru dýrmætir. Stóri bróðir minn, hann Nonni, er lát- inn, 84 ára að aldri. Hann lést eftir stutta, erfiða legu, miðviku- dagskvöldið 14. nóvember síðast- liðinn, á gjörgæsludeild Land- spítalans við Hringbraut. Það var sárt að kveðja, en ég fann að hans tími var kominn, hann þurfti hvíldina. Öllu er afmörkuð stund og hefur sinn tíma. Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma. Í minning- unni, er ég rita þessar línur, er ég þakklát fyrir þá umhyggju og kærleika sem umvafði hann þetta kvöld frá nærfjölskyldu og fagfólki gjörgæsludeildar. Jón bróðir fæddist á Siglufirði og ólst þar upp til fullorðinsára, að Hvanneyrarbraut 6, Ljóts- stöðum. Það voru forréttindi að alast upp á Siglufirði, í síldar- bænum sem malaði gull fyrir þjóðina. Bæjarlífið var fjölmenn- ingarsamfélag sem iðaði af lífi. Bestu æskuminningar mínar eru þaðan. Þar varst þú, bróðir minn, fyrirmyndin mín sem ég leit mjög upp til. Þú sagðir aldrei neinar vitleysur og allt var í röð og reglu hjá þér. Þegar ég var að burðast við að læra á hljóðfæri eftir nótum spilaðir þú eftir eyr- anu. Áhugamálin þín, smíði skipa- og flugvélalíkana sýndu hversu snjall og vandvirkur þú varst. Síðar, á fullorðinsárum, lá leið þín til Reykjavíkur. Þú vildir afla þér frekari menntunar eftir grunnskólanámið á Siglufirði. Þú eignaðist snemma fjölskyldu og til að fá þak yfir höfuðið stofn- uðuð þið vinnufélagarnir bygg- ingarfélag, byggð voru raðhús og þið félagarnir eydduð öllum stundum utan vinnutíma við byggingavinnu samhliða banka- störfum. Og áfram hélst þú að skapa, í samvinnu við stórfjölskyldu Birnu varð til sælureitur, sum- arbústaður við Skorradalsvatn. Samskipti milli fjölskyldna okkar hafa ætíð verið náin, systkinakærleikur og vinátta í gleði og sorg. Efst í huga mér er þakklæti fyrir samheldnina sem þroskað- ist með árunum. Heimili ykkar Birnu hefur verið mér og okkur fjölskyldunni mikils virði. Þið voruð dugleg að viðhalda hefð- um; afmæli, jólaboð, skötuveislur og áfangar innan fjölskyldunnar styrktu böndin. Það fylgdi ykkur stöðugleiki, einhver föst stærð, bæði huglæg og hlutlæg. Við þiggjum elsku og gefum elsku, þannig höldum við keðju kynslóðanna gangandi þar sem við hugsum hvert um annað og hlúum að dýrmætum tengslum. Vertu nú sæll, elskulegi bróðir minn. Þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og fjölskyldunni alla tíð. Blessuð sé minning þín. Alda Halldórsdóttir. Mig langaði í örfáum orðum að minnast Jóns Vídalíns Halldórs- sonar en hann var með blíðustu og hlýjustu mönnum sem ég hef kynnst. Fyrir rúmum áratug var son- ur okkar svo heppinn að eignast Guðrúnu Birnu Jakobsdóttur fyrir kærustu, en hún er eina barnabarn Jóns heitins. Hún var líf og yndi afa síns og líka ömmu sinnar, sem lifir mann sinn. Eftir það hittumst við á hverju ári við ýmis tilefni og við hjónin urðum þess fljótt áskynja að Sig- urður, sonur okkar, var í miklum metum hjá Jóni. Væntumþykja þeirra var gagnkvæm og traust. Síðastliðið sumar var loks blásið til brúðkaups og það var bjartur og fagur dagur. Við hjónin, foreldrar Sigga, erum afskaplega þakklát að Jón skyldi upplifa þetta, samur og jafn og ekkert að sjá að heilsu hans. Undirliggjandi veikindum hafði verið bægt frá lengi og glettni hlýi glampinn í augunum bar vott um góðan mann, eins og alltaf. Sjálfri er mér það dýrmætt að hafa heimsótt Jón og konu hans, Birnu, á heimili þeirra í Hafnar- firði tvisvar á árinu. Snemma sumars sóttist ég eftir myndaal- búmum til að skanna inn fyrir brúðkaupið og það var auðsótt mál. Fleiri hundruð myndir biðu mín frá Gígju, dóttur þeirra, og vandi að velja úr. Þetta var in- dælt kvöld á fallegu heimili og prúðari hjón en Nonna og Birnu er ekki hægt að hugsa sér. Næstu vikurnar beið mín mik- il vinna að raða myndum bæði í tímaröð og eftir tilefnum og þá fékk ég óvænta innsýn í það hví- líkur augasteinn hún Guðrún Birna, tengdadóttir mín, hafði verið öllu sínu fólki. Svo þegar leið á haustið, hringdi ég aftur í Hafnarfjörðinn og fékk að koma í aðra kvöld- heimsókn til að skila myndunum. Flestar voru enn í albúmi en 100 mynda úrval kom ég með í lausu. Og ég get ekki gleymt því hvern- ig Jón heitinn handlék þessar myndir; hann grandskoðaði hverja fyrir sig með ljúfasta brosi og fletti hægt í gegnum þessi fyrstu æviár dótturdóttur sinnar á meðan konan hans færði okkur kaffi og við spjölluðum um heima og geima. „Nonni minn, þú raðar þessu nú öllu á sinn stað, ekki satt?“ sagði Birna þegar ég baðst af- sökunar á að koma með mynd- irnar í lausu. „O jú, jú, ég dunda við þetta,“ sagði hann kíminn og hlýr og sagðist hafa allan tíma í heimi. Sannleikurinn er samt sá að hann þurfti engum myndum að raða, þær voru allar í hug hans og hjarta og allar jafn mikilvæg- ar. Hann tók þær allar með sér. Missir Birnu er mikill. Einver- an er svo yfirþyrmandi, einkum þegar sá sem horfinn er hafði jafn góða nærveru og hann Nonni. En hún axlar þetta nýja hlutverk af hugprýði. Missirinn er líka mikill fyrir Gígju, sem var í daglegu sam- bandi við foreldra sína. En hann Jón Vídalín Halldórsson fór á sinn kyrrláta og tillitssama hátt, milli brúðkaups og aðventu, eins og Gígja benti mér á. Hann lét ekki hafa mikið fyrir sér frekar en í lífinu yfirleitt og alvarleg veikindin vöruðu aðeins í nokkra daga. Ég veit að hún tengdadóttir mín syrgir sárt, jafn sterk og hún þó er. Þá er mér huggun að vita að hún er í traustum og hlýj- um höndum hjá Sigurði, syni okkar, sem tárfellir ábyggilega á kollinn hennar svo lítið beri á. Jóhanna M. Thorlacius. Kveðja frá Lionsklúbbnum Frey Reykjavík Jón gekk til liðs við Lions- klúbbinn Frey árið l972. Jón starfaði síðustu starfsár sín hjá Seðlabanka Íslands. Hann tók virkan þátt í starfi klúbbsins, var formaður klúbbs- ins, ritari og gjaldkeri ásamt setu í fjáröflunar- og líknar- nefnd. Árið 1980 tók hann að sér að vera heimildaritari klúbbsins, sem meðal annars fólst í því að halda skrá yfir alla félaga klúbbsins, störf þeirra í klúbbn- um o.fl. Það var mikil vinna sem fólst í því að halda utan um allar heim- ildir klúbbsins og félaga og það verk gerði hann með miklum sóma. Jón var sæmdur árið 1991 æðstu viðurkenningu Lions- hreyfingarinnar, Melvin Jones Fellow. Jón hætti störfum í klúbbnum árið 2003 vegna veikinda og var hann þá gerður að heiðursfélaga Freys. Við félagarnir kveðjum Jón með virðingu og þakklæti og sendum eftirlifandi eiginkonu hans, Birnu, og öðrum aðstand- endum innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur J. Helgason formaður. Jón Vídalín Halldórsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SMÁRI SÆMUNDSSON Hverahlíð 9, Hveragerði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans sunnudaginn 25. nóvember. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju föstudaginn 7. desember klukkan 13. Guðríður Gísladóttir Brynjólfur Smárason Kristín Pétursdóttir Guðmunda Smáradóttir Þorsteinn Helgi Steinarsson Sævar Smárason Harpa Dís barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, FERDINAND RÓBERT EIRÍKSSON sjúkraskósmiður, lést mánudaginn 19. nóvember. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 5. desember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarreikning Lækjarsólarsýn, 0327 - 13 - 300562. Guðrún Mjöll Róbertsdóttir Arnar Skúlason Rakel Róbertsdóttir Gísli R. Sævarsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALMA STEFÁNSDÓTTIR frá Dalvík, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju á Akureyri föstudaginn 30. nóvember klukkan 13.30. Gylfi Ægisson Björg Malmquist Garðar Ægisson Bryndís Arna Reynisdóttir og fjölskyldur ✝ Ástkær móðir okkar og amma, elskulegur bróðir okkar og frændi, JENSA KITTY PETERSEN og ÞRÖSTUR VILBERGSSON sem létust sunnudaginn 18. nóvember og miðvikudaginn 21. nóvember verða jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 29. nóvember klukkan 13.30. Pétur Daníel Vilbergsson Jóna Björg Vilbergsdóttir Soffía Vilbergsdóttir Petersen og barnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN BJÖRG BALDVINSDÓTTIR, Lóa, Skálahlíð, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Fjallabyggð, miðvikudaginn 21. nóvember. Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju föstudaginn 30. nóvember klukkan 14. Þorsteinn Haraldsson Jóhanna Pálsdóttir Ólafur Haukur Kárason Ólína Þórey Guðjónsdóttir Jakob Örn Kárason Elín Þór Björnsdóttir Tómas Kárason Dominique Porepp Baldvin Kárason Gróa María Þórðardóttir Ragna Hannesdóttir Kristján Elís Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.