Morgunblaðið - 28.11.2018, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018 25
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmis smærri
verkefni fyrir
jólin
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-14.30. Foreldramorgnar kl. 9.30,
ALLIR VELKOMNIR. Jóga með Grétu 60+ kl. 12.30. Söngstund kl.
13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bókaspjall með Hrafni kl. 15. Jólahlaðborð
Aflagranda er fimmtudaginn 6. desember, húsið opnað kl. 19, skrán-
ing í síma 411-2701 eða 411-2702.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13
til 16 þar sem boðið er upp á stólaleikfimi með Öldu Maríu íþrótta-
kennara. Einnig mun sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson og Halldór Sighvats-
son leika nokkur lög fyrir okkur. Allir hjartanlega velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Plastpoka-töskugerð kl.12.45-
15.15. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Innipútt opið. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, Allir vel-
komnir. S. 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Leshópur kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á sínum stað á miðvikudögum, í dag
koma börn úr barnakórum Bústaðakirkju og syngja jólalög, haldið
verður áfram með jólaföndur. Kaffi, hugleiðing, bæn og framhalds-
saga. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Dalbraut 18-20 Samverustund með sr. Hjalta Jóni kl. 14, verslunar-
ferð í Bónus kl. 14.40.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Botsía kl. 13.30.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, bókband kl. 9-13,
postulínsmálun kl. 9-12, tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10-11, bókband
kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30,
dansleikur með Vitatorgsbandinu kl. 14-15, Logy fatnaður með sölu á
jólafatnaði í setustofu 2. hæðar. Verið velkomin til okkar á Vitatorg,
Lindargötu 59. Síminn er 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Leir í
Kirkjuhvoli kl. 13. Smiðja Kirkjuhvoli opnuð kl. 11, allir velkomnir.
Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16,15.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30 Útskurður / pappa-
módel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Velkomin!
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Gullsmári Myndlist kl. 9, postulínsmálun / kvennabrids / silfursmíði
kl. 13, línudans fyrir lengra komna kl. 16.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir.
Opin handavinna kl. 9–14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum og inni í Egilshöll, stjórnarfundur
kl. 10 í Borgum félagsfundur Korpúlfa kl. 13 í Borgum, sr. Arna Ýrr frá
Grafarvogskirkju og Ólafía öryggisfulltrúi munu heiðra okkur með
nærveru sinni og áhugaverða fræðslu. Korpusystkin og MPJ tríóið
munu skemmta og fleira gaman. Kaffi verður á könnunni og allir
hjartanlega velkomnir.
Langholtskirkja Samverustund eldri borgara í Langholtskirkju á
miðvikudögum. Samveran hefst í kirkjunni með stuttri notalegri
bænastund kl. 12.10. Sameiginleg máltíð í safnaðarheimilinu, söngur,
spil og spjall. Umsjón er í höndum Helgu Guðmundsdóttur og
Sigríðar Ásgeirsdóttur, hópur sjálfboðaliða reiðir fram ódýra máltíð
og miðdegiskaffi. Öll velkomin.
Seltjarnarnes Ath. glerbræðsla fellur niður í dag en glerlist kl. 13 á
neðri hæð Félagsheimilisins. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut
kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.
Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13.
Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Gaman saman í Selinu í kvöld
kl. 20. Botsía. Á morgun fimmtudag verður félagsvist kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl.
10. ENSKA talað mál kl. 14, leiðbeinandi Margrét Sölvadóttir. AÐ NÁ
TÖKUM Á TÆKNINNI, tölvukennsla kl. 13.30, dagur tvö. Söngfélag
FEB, kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Ræðumaður
Haraldur Jóhannsson.
Allir velkomnir.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Elsku mamma.
Það er svo óskap-
lega margt sem mig
langar til að segja,
en kem ekki orðum
að. Ég hreinlega get ekki vanist
tilhugsuninni um að þú sért farin
frá okkur, en eins og þú bentir
sjálf réttilega á, þá verður lífið að
hafa sinn gang og halda áfram.
Og það skulum við gera. Við höld-
um áfram fyrir þig, við pössum
upp á hvert annað og við geymum
allar fallegu minningarnar með
okkur.
Góða ferð í sumarlandið, elsku,
fallega, mamma mín.
Söknuðurinn er sár, en ég veit
að þér líður vel núna og þú vakir
nú yfir okkur með allri þeirri
óendanlega miklu ást sem þú
hafðir að gefa. Eins og hún nafna
þín myndi segja: Ég elska þig út í
geim og aftur heim og beint í
knúsið á þér.
Ég kveð þig með parti úr gull-
fallegu lagi Friðriks Ómars, sem
hann syngur með Eyþóri Inga,
en báðir voru þeir í miklum met-
um hjá þér og því viðeigandi að
þeir hjálpi mér aðeins við að
segja það sem mig langar að
segja.
Þú ert hetjan mín
þú fegrar og þú fræðir
þú gefur mér og græðir,
er finn ég þessa ást
Þá þurrkar þú tárin sem mega ekki
sjást
mamma ég sakna þín.
Margrét
Bragadóttir
✝ MargrétBragadóttir
fæddist 22. maí
1942. Hún lést 13.
nóvember 2018.
Útförin fór fram
24. nóvember 2018.
Mamma
þú ert hetjan mín.
Þú elskar og þú nærir,
þú kyssir mig og
klæðir,
er brotin ég er þú gerir
allt gott
Með brosi þú sársauk-
anum bægir á brott.
Mamma, ég sakna þín.
(Friðrik Ómar Hjörleifs-
son)
Kristín H.
Kristjánsdóttir
Elsku besta amma.
Vonandi líður þér vel uppi á
himnum. Nú ertu örugglega búin
að hitta alla úr fjölskyldunni sem
eru þar.
Það var svo gaman að vera
með þér. Mér fannst svo notalegt
að kúra hjá þér og vera í ömmu-
kósí. Þú varst alltaf svo góð,
skemmtileg, falleg og sæt. Og
það var æðislegt að vera með þér
þegar við vorum bara tvær. Og
best í heimi að knúsa þig og
kyssa.
Og þegar ég gaf þér koddann
sem ég bjó til í handavinnu þá
varstu svo glöð og það var svo
gaman. Ég elska þig rosalega
mikið og langar mest til að knúsa
þig núna, en það er ekki hægt og
það er svo sárt. En ég samdi ljóð
handa þér.
Elska þig út í geim og aftur heim
Vonandi líður þér vel hjá þeim
Það var gaman með þér og að kyssa
þig
Ég veit að þér þykir vænt um mig
Elsku besta amma
Núna kveð ég þig.
Þín
Margrét Signý.
Hann Jón frændi
hefur átt aðdáun
okkar og virðingu
alla tíð, brosmildi,
vinnusami og góði frændi okk-
ar.
Ýmislegt rifjast upp þegar
við kveðjum hann hinsta sinn.
Þegar við vorum litlar stelpur í
sveitinni á Kastalabrekku og
það fréttist að von var á æv-
intýrafrænku okkar Guðrúnu
Jónu með afa sínum Jóni og
ömmu Nunnu, réðum við okkur
ekki fyrir kæti. Þau komu alltaf
færandi hendi með risa nammi-
poka og spennandi gjafir frá
útlöndum.
Á sumrin dvöldu þau gjarnan
um nokkurra daga skeið og var
þá margt brallað hjá okkur
frænkunum.
Þá daga féll Jóni aldrei verk
úr hendi, vann við að dytta að
og lagfæra það sem til féll
hverju sinni.
Þegar við svo fengum að
heimsækja Guðrúnu Jónu og
fjölskyldu í borgina vorum við
gjarnan vaktar fyrir allar aldir
til að fara með Jóni og Nunnu í
sund og lékum við okkur þá
frjálst meðan Jón synti sína
1000 metra sem hann gerði
daglega lengst af.
Þvílíkur garpur sem hann
var. Við áttuðum okkur ekki á
því fyrr en við urðum aðeins
eldri hversu mikill reglumaður
Jón var og agaður varðandi
hreyfingu og lífstíl almennt.
Jón Sveinsson
✝ Jón Sveinssonfæddist 17.
september 1925.
Hann lést 17.
nóvember 2018.
Jarðarför Jóns
fór fram 26. nóvem-
ber 2018.
Hann lét það ekki
duga að synda
daglega heldur
gekk hann einnig
margra sinna er-
inda til að bæta
heilsuna. Það
þurfti ekkert að
kenna Jóni frænda
hvernig lifa ætti
heilbrigðu og vist-
vænu lífi í borg-
inni.
Fjölskylda Jóns kunni að
halda veislur, því komumst við
að þegar við vorum boðnar í
sjötugsafmæli Jóns sem haldið
var hjá Tótu og Steina. Þvílíkt
fjör, söngur og gleði.
Alla tíð hefur Jón fylgst vel
með því sem við systurnar og
raunar öll okkar fjölskylda
væri að gera – og telst það nú
gott því fjöldinn er orðinn mik-
ill.
Hann spurði alltaf hvernig
gengi með verkefnin okkar og
fyrirtækin, hann sýndi því alla
tíð mikinn áhuga.
Þar áttum við stuðnings- og
hvatamann.
Það var dásamlegt að Jón
gat komið með sinni fjölskyldu
á ættarmót stórfjölskyldunnar í
sumar, stoltur af því að vera
aldursforsetinn á staðnum.
Fólki bauðst þar að eignast
smíðagripi sem hann hafði
útbúið gegnum árin, þvílík
listasmíð og sönn prýði. Jón
var mikill völundur.
Elsku Nunna, Tóta og Steini,
Guðrún Jóna, Ester, Ástþór og
fjölskyldur. Vottum ykkur inni-
lega samúð. Minningin um mik-
inn öðling lifir og gefur okkur
sem eftir lifum gott fordæmi og
hvatningu.
Hjördís og Jóna
Sigurðardætur.