Morgunblaðið - 28.11.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2018
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Ég er staddur í afmælisferð um Bandaríkin, við erum að keyrafrá Dallas til San Francisco og kíkjum á það sem það er á leið-inni,“ segir Jakob Ólafsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæsl-
unni, en hann á 60 ára afmæli í dag. Hann er á ferðalaginu ásamt
eiginkonu og vinahjónum og er vanur svona ferðamáta. „Við höfum
oft gert svona, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Þetta eru hálf-
gerðar óvissuferðir og við sjáum til hvað dagurinn ber í skauti sér.
Við vitum bara hvar við byrjum og hvar við endum.“ Í dag heimsækja
þau bæinn Flagstaff í Arizona og Miklagljúfur. „Þetta verður spenn-
andi en ég hef aldrei séð Miklagljúfur áður.“
Jakob hefur unnið hjá Landhelgisgæslunni frá 1987, var fyrst ein-
göngu á þyrlum en fór yfir á flugvélina fyrir fjórum árum. „Með því
að fara á flugvélina breyttist starfið yfir í eftirlitsflug í stað björg-
unarflugs. Ég hef til dæmis verið að leita að flóttamönnum á Miðjarð-
arhafinu en TF-SIF hefur öðru hverju verið í leigu hjá Landamæra-
stofnun Evrópu.“
Áhugamál Jakobs eru fjölskyldan og að gera upp gamla bíla og á
Jakob þá þó nokkra og mjög gamla. „Þeir elstu eru Ford Model T ár-
gerð 1925 og 1926 og svo á ég líka Ford Model A sem er frá 1929. Sá
yngsti sem ég á er frá 1972.“
Eiginkona Jakobs er Violeta Tolo Torres, verkefnisstjóri á fjár-
málasviði Háskóla Íslands, og dætur þeirra eru Kristín Margrét og
Karen Sif. Barnabörnin eru orðin þrjú.
Bílaáhugamaður Jakob innan um glæsikerrurnar sínar.
Rennir við hjá
Miklagljúfri í dag
Jakob Ólafsson er sextugur í dag
S
igrún Ósk Ingadóttir fædd-
ist í Fagradal í Mýrdal
28.11. 1948 og ólst þar upp.
Hún flutti til Víkur er hún
var 12 ára, var í Barna- og
Unglingaskólanum í Vík og lauk gagn-
fræðaskólaprófi frá Skógaskóla.
Sigrún flutti til Vestmannaeyja og
lauk iðnskólaprófi þar. Hún flutti til
Keflavíkur 16 ára, stundaði þar nám í
hárgreiðslu og kynntist þar eigin-
manni sínum, en þau voru bæði í Leik-
félagi Keflavíkur.
Sigrún heyjaði í Fagradal, vann í
Sláturhúsi K.S. Vík, sinnti verslunar-
störfum og fiskvinnslu og starfrækti
hárgreiðslustofu í Keflavík.
Þau hjónin keyptu sitt fyrsta hús í
Tjarnargötu 12 í Keflavík, seldu það
og keyptu hús í Smáratúni 14, fluttu
síðan í Voga á Vatnsleysuströnd árið
1976 er þau höfðu keypt verslunina
Hábæ, sem þau nefndu Vogabæ. Þau
breyttu versluninni í matvæla-
fyrirtækið Vogabæ, framleiddu Voga-
ídýfur og Vogasósur, kynntu vöruna
og seldu hana síðan um allt land. Þau
keyptu síðan fyrirtækið E. Finnsson
sósur árið 1991, og sameinuðu það
Vogabæ.
Árin 2000-2001 byggðu þau nýtt
fyrirtækjahúsnæði Vogabæjar í
Eyrartröð í Hafnarfirði. Sigrún sá um
vöruþróun og sinnti ýmsum öðrum
störfum í fyrirtækinu.
Árið 2008 seldu þau Vogabæ og árið
2011 keyptu þau Kerfi fyrirtækja-
þjónustu ehf., ásamt miðsyni sínum,
og starfrækja Kerfi enn.
Þau hjónin búa nú á Norðurbakk-
anum í Hafnarfirði.
Sigrún starfaði í sjálfstæðisfélögum
í Keflavík og Vogum, starfar í sjálf-
stæðiskvennafélaginu Vorboða í
Sigrún Ósk Ingadóttir athafnakona – 70 ára
Fjölskyldan Sigrún Ósk og Guðmundur með sonum sínum þremur, Sigurði Ragnari, Inga Guðna og Guðmundi.
Sýndu áfram dáð og dug
drauma þína láttu rætast
Myndarhjón Sigrún og Guðmundur.
Vestmannaeyjar Davíð
Þór Sigurbjörnsson
fæddist 16. janúar 2018
kl. 9.09. Hann vó 3.890 g
og var 53 cm langur. For-
eldrar hans eru Lísbet
Elva Gylfadóttir og Sig-
urbjörn Adolfsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is