Morgunblaðið - 12.12.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Óvenjumörg ný verpandi hafarna-
pör fundust á liðnu sumri, að sögn
Kristins Hauks Skarphéðinssonar,
sviðsstjóra í dýrafræði hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Ís-
lenski arnarstofninn telur nú 82 pör
og urpu 53 þeirra í vor og komu upp
39 ungum.
„Við fundum átta ný pör, sem er
10% aukning á verpandi hafarna-
pörum. Fimm þeirra voru örugg-
lega að verpa í fyrsta sinn. Það hafa
aldrei áður fundist svona mörg ný
pör,“ sagði Kristinn Haukur.
Nýju pörin þéttu varpið á svæð-
um þar sem hafernir urpu fyrir.
Um helmingur þeirra 40 óðala sem
ernir hafa byrjað að verpa á frá
aldamótum eru þekkt sem forn arn-
arsetur. Á þessum tíma hófu ernir
að nýju varp við Húnaflóa og í sum-
ar voru þar sex pör. Nú verpa um
20 hafarnapör við Faxaflóa en þar
hófu þeir aftur varp upp úr 1970.
Kristinn Haukur sagði greinilegt
að hafarnastofninn hefði mikið
styrkst. Sú þróun hefði staðið alveg
frá því að bannað var að bera út eit-
ur fyrir refi árið 1964, en eitrið varð
mörgum haförnum að aldurtila.
Stökkið í varpinu í sumar var
óvenjustórt, að sögn Kristins
Hauks. Hann sagði að hafernir
væru farnir að verpa á óvenjulegum
stöðum. Sum hreiðranna væru rétt
hjá sveitabæjum og heimilisfólk
áttaði sig jafnvel ekkert á því. Sum-
ir ernir væru orðnir óvenjuspakir
og óttalausir við mannabyggð.
Ekki hefur orðið vart við arna-
varp við Þingvallavatn. Þar voru
áður þrír varpstaðir og einn í
Arnarhólma í Álftavatni. Fullorðnir
ernir hafa sést á þessum slóðum og
um allt Suðurland undanfarna vet-
ur og jafnvel nokkrir. Eitt arnapar
verpti eitt vor á óðali á Suðurlandi
fyrir nokkuð mörgum árum en
hvarf svo árið eftir.
Ógna líklega ekki örnunum
Áform um að reisa 35 stórar
vindmyllur á Garpsdalsfjalli norðan
við Gilsfjörð hafa verið í umræð-
unni. Beggja vegna þar við verpa
hafernir. Kristinn Haukur kvaðst
ekki hafa skoðað málið nákvæm-
lega en við fyrstu sýn sýndist hon-
um sem ekki þyrfti að hafa áhyggj-
ur af að örnum myndi stafa mikil
hætta af þessu. Staðsetningin væri
uppi á fjalli og ólíklegt að þar væri
mikil umferð af örnum eða öðrum
fuglum sem máli skipti. Arnapör
verpi þarna sitt hvorum megin við
en á þessu svæði séu þeir ekki mik-
ið. Þeir velji frekar að svífa um dal-
ina.
„Almennt stafar fuglum hætta af
vindmyllum og ernir eru þekktir
fyrir að vera fórnarlömb þeirra því
þeir svífa svo mikið,“ sagði Kristinn
Haukur. Hann sagði að menn hefðu
áhyggjur af umferð gæsa við Búr-
fellslund og það hefði verið kortlagt
á sínum tíma. Hins vegar hefðu ver-
ið settar upp tvær vindmyllur í
Þykkvabæ, sem væri dæmigerður
fyrir stað þar sem slík starfsemi
ætti ekki heima. Þar væri gríðar-
lega mikil umferð af farfuglum,
álftum og gæsum.
Hafarnastofninn hefur styrkst mikið
Óvenjumörg ný hafarnapör urpu
á liðnu sumri 39 ungar komust upp
Morgunblaðið/Golli
Haförn Konungur íslenskra fugla
og tjaldur sjást hér saman á flugi.
Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar sjávarútvegsráðherra til laga
um veiðigjöld var samþykkt á Al-
þingi í gær með 32 atkvæðum. 16
þingmenn stjórnarandstöðunnar
greiddu atkvæði gegn frumvarpinu
og 10 sátu hjá.
Þriðju umræðu lauk í fyrrakvöld
en atkvæðagreiðslu var frestað. Áð-
ur en frumvarpið var borið upp til at-
kvæða var afgreidd tillaga fulltrúa
fjögurra flokka úr stjórnarandstöð-
unni um að fresta málinu og fram-
lengja núgildandi lög um veiðigjöld
til loka næsta árs. Breytingar-
tillagan var felld. 16 þingmenn
greiddu henni atkvæði en 41 var á
móti.
Með frumvarpinu er tekið upp
nýtt fyrirkomulag við álagningu
veiðigjalda. Þau verða afkomutengd-
ari en áður með því að byggt verður
á ársgömlum gögnum í stað tveggja
ára eins og nú. Meðal annarra breyt-
inga má nefna að veiðigjaldsnefnd
verður lögð niður og úrvinnsla gagna
og álagning færð til ríkisskattstjóra.
Ný lög
um veiði-
gjöld sett
Álagningin betur
afkomutengd en áður
Morgunblaðið/Eggert
Veiði Samþykkt með 32 atkvæðum.
„Yfirlýsing Ágústs Ólafs er ekki í
samræmi við málavexti. Hún gerir
mun minna úr því sem átti sér stað
en tilefni var til. Þetta var ekki
bara misheppnuð viðreynsla, held-
ur ítrekuð áreitni og niðurlæging.“
Þetta kemur fram í pistli Báru
Huldar Beck, blaðamanns á Kjarn-
anum, þar sem hún svarar yfirlýs-
ingu Ágústs Ólafs Ágústssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur er farinn í tveggja
mánaða leyfi frá þingstörfum í
kjölfar þess að trúnaðarnefnd
flokksins veitti honum áminningu
vegna framkomu hans í garð Báru.
Bára segir að málsatvikalýsing
Ágústs sé ekki í samræmi við upp-
lifun sína af atvikinu. Þá upplifun
hafi hún rakið fyrir honum og hann
gengist við að hún sé rétt. Auk
þess rakti hún hana fyrir trúnaðar-
nefnd Samfylkingarinnar og Ágúst
Ólafur gerði engar athugasemdir
við hana.
Knúin til að greina frá
„Þeir málavextir eru raktir í
skriflegri niðurstöðu nefndarinnar
og verða þar af leiðandi vart hrakt-
ir,“ skrifar Bára. Hún segist knúin
til að greina frá því sem rangt er í
yfirlýsingu hans vegna þess að
Ágúst Ólafur kjósi að gera minna
úr atvikinu en hann hafi áður geng-
ist við.
„Ágúst Ólafur reyndi ekki að
kyssa mig tvívegis heldur ítrekað.
Hann reyndi það aftur og aftur
þrátt fyrir að ég hefði neitað hon-
um og sett skýr mörk. Í hvert sinn
sem ég neitaði honum þá niður-
lægði hann mig með ýmsum
hætti.“
Bára segir Ágúst ekki hafa yfir-
gefið skrifstofuna, og á þar við rit-
stjórnarskrifstofu Kjarnans, eins
og hún hafi beðið hann um. „Ég
fylgdi honum á endanum ákveðin
út með þeim orðum að ég treysti
mér ekki til að vera í sama rými og
hann. Hann lét samt ekki segjast
og hélt þvingandi áreitni sinni
áfram í lyftunni á leiðinni út,“
skrifar Bára.
Ágúst Ólafur er fyrrverandi
hluthafi í Kjarnanum. Hún skrifar
að það, auk þess að hann hafi verið
í opinberu sambandi með annarri
konu, hefði átt að gera það að verk-
um að hann ætti ekki að geta mis-
skilið aðstæður. Bára skrifar enn-
fremur að það sé ábyrgðarhluti að
senda frá sér yfirlýsingu um mál
sem þetta, eins og Ágúst Ólafur
gerði. Sé slík yfirlýsing skrum-
skæld á einhvern hátt sé hætt við
að röng og jafnvel varhugaverð
skilaboð séu send út í samfélagið.
Standa við bakið á Báru
„Stjórn og stjórnendur Kjarnans
standa, og hafa staðið, 100 prósent
á bak við starfsmann fyrirtækisins
sem var í sumar þolandi áreitni
þingmanns,“ segir í yfirlýsingu
sem Kjarninn sendi frá sér í gær.
Þar segir að eftir að fyrir lá
viðurkenning geranda á því sem
átti sér stað, en enginn sýnilegur
vilji til að bregðast við hegðun
sinni með öðrum hætti, hafi þol-
andi ákveðið að koma vitneskju um
áreitnina á framfæri við stjórn-
málaflokk geranda, þ.e. Samfylk-
inguna.
Dró sig út úr hópnum
Ágúst Ólafur var einn þeirra níu
þingmanna Samfylkingarinnar, Pí-
rata, Viðreisnar og VG sem til-
kynnt var að hefðu óskað eftir því
við forsætisnefnd Alþingis að siða-
nefnd tæki Klausturmálið til at-
hugunar. Ágúst Ólafur hafði ekki
skrifað undir beiðnina þegar hún
barst forsætisnefnd þannig að
beiðnin var ekki send í hans nafni.
Þetta var 29. nóvember en tveimur
dögum áður hafði trúnaðarnefnd
Samfylkingarinnar áminnt hann
eftir umfjöllun um áreitni hans í
garð Báru Huldar Beck.
Fram kom í færslu Rósu Bjark-
ar Brynjólfsdóttur, þingmanns
VG, að beiðnin hefði fyrst verið
send forsætisnefnd í tölvupósti og
um svipað leyti til fjölmiðla. For-
seti þingsins hefði beðið um að fá
erindið skriflegt með undirskrift
allra. Ágúst Ólafur hefði í millitíð-
inni haft samband við sig og óskað
eftir því að nafn hans væri tekið af
listanum. Ástæðan væri persónu-
leg.
Í réttum farvegi hjá flokknum
Þorsteinn Víglundsson, þing-
maður Viðreisnar, sem var einn
þeirra sem stóðu að erindinu til
forsætisnefndar, bendir á, þegar
hann er spurður hvort hann telji
mál Ágústs Ólafs þess eðlis að það
ætti að fara í sama farveg hjá siða-
nefnd þingsins, að siðareglur Al-
þingis miðist við háttsemi þing-
manns sem tengist starfi hans.
„Ég þekki ekki málavexti í þaula
en miðað við þær upplýsingar sem
ég hef séð hefur það mál farið í
réttan farveg innan flokks en fell-
ur ekki undir gildissvið siðanefnd-
ar þingsins. Ég hef ekki óskað eft-
ir að forsætisnefnd taki það fyrir
en hverjum sem er er frjálst að
gera það og það er svo nefndarinn-
ar að meta,“ segir Þorsteinn.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, sem einnig stóð að
erindinu til þingsins, vildi í gær-
kvöldi ekki tjá sig um afstöðu sína
að svo stöddu.
Yfirlýsing Ágústs „ekki
í samræmi við málavexti“
Bára Huld Beck segir lýsingu Ágústs Ólafs ekki í samræmi við sína upplifun
Þingmaður Viðreisnar efast um að málið falli undir siðareglur þingsins
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Bára Huld
Beck
„Misræmið sem hún rekur í
svari sínu byggist á ólíkri upp-
lifun. Ég lagði mikla áherslu á í
okkar samtölum og í framburði
mínum hjá trúnaðarnefndinni
að gangast við minni hegðun.
Hennar upplifun er auðvitað að-
alatriðið í þessu máli,“ segir í
tilkynningu sem Ágúst Ólafur
sendi frá sér í gær. Hann segist
vera að leita sér faglegrar að-
stoðar vegna hegðunar sinnar.
„Ég bið Báru Huld enn og aftur
innilegrar afsökunar á fram-
komu minni og þeirri vanlíðan
sem ég hef valdið henni.“
Segir upplif-
unina ólíka
ÁGÚST ÓLAFUR
Morgunblaðið/Ómar
Austurvöllur „Þetta var ekki bara misheppnuð viðreynsla, heldur ítrekuð
áreitni og niðurlæging,“ segir Bára Huld Beck í pistli sem hún birti.
Frumvarp Silju Daggar Gunnars-
dóttur, þingmanns Framsóknar-
flokksins, um breytingar á lögum
um almannatryggingar hvað varð-
ar barnalífeyri var samþykkt á Al-
þingi í gær með 55 samhljóða at-
kvæðum. Frumvarpið felur í sér
þær breytingar að Trygginga-
stofnun ríkisins geti ákveðið sér-
stakt framlag vegna útgjalda við
skírn barns, fermingu, tannrétt-
ingar, greftrun eða af öðru sér-
stöku tilefni.
Halla Signý Kristjánsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins, mælti
fyrir málinu í 2. umræðu í fjarveru
Silju Daggar.
Frumvarp um barna-
lífeyri samþykkt