Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 6

Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Karlmennirnir tveir sem ákærðir eru fyrir grófa líkamsárás á dyra- verði við skemmtistaðinn Shooters aðfaranótt sunnudagsins 26. ágúst sl. hafa játað sök í öðrum tveggja ákæruliða. Er þeim þar gefið að sök að hafa framið sérstaklega hættu- lega líkamsárás á dyraverði, sem fól í sér ítrekuð hnefahögg og hnéspörk í andlit. Málið var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Mennirnir komu fyrir héraðsdóm í fylgd lögreglu. Annar þeirra, sá sem borinn er þyngri sökum, hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að hann var fyrst handtekinn. Er sá vistaður á Litla-Hrauni en hinn gengur laus. Mennirnir eru báðir íslenskir rík- isborgarar af erlendu bergi brotnir og er annar þeirra um þrítugt en hinn á fertugsaldri. Sá sem borinn er þyngstum sökum á yfir höfði sér langan fangelsisdóm verði hann fundinn sekur. Báðir hafa þeir játað árás á annan brotaþola, þann sem ekki hlaut lífshættulega áverka. Bótakrafan 123 milljónir kr. Öðrum ákærulið var hafnað af hin- um handteknu en þó gekkst annar mannanna, sá sem sakaður er um al- varlegri brot, við að hafa veitt dyra- verði þeim hnefahögg í andlit. Sá sem fyrir höggunum varð er lamaður fyrir neðan háls. Bótakrafa vegna þeirrar árásar hljóðar upp á 123 milljónir króna. Verjendur mann- anna skila greinargerð á næstu vik- um en aðalmeðferð hefst 11. janúar. Báðir játa árás á dyraverði í miðbæ Reykjavíkur  Aðalmeðferð hefst fyrir héraðs- dómi 11. janúar nk. Morgunblaðið/Eggert Ofbeldi Annar árásarmannanna sést fyrir miðju ganga inn í þingsal. Framkvæmda- stjórn Sósíalista- flokks Íslands hefur ákveðið að setja framlag Reykjavíkur- borgar til flokksins í sjóð til styrkingar hagsmuna- baráttu verr settra hópa. Sjóðurinn heitir Maístjarnan og fer framkvæmdastjórn flokksins með rekstur hans. Fram kemur í tilkynningu frá Sósíalistaflokknum að framlagið frá borginni hafi verið 900 þús- und krónur í ár. Þá mun Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgar- fulltrúi flokksins, styrkja Maís- tjörnuna með 100 þúsund króna mánaðarlegu framlagi af borgar- fulltrúalaunum sínum. Sósíalistar stofna Maístjörnuna Sanna M. Mörtudóttir Lögreglan á Suðurnesjum hefur stöðvað um 50 ökumenn á undan- förnum dögum vegna sérstaks eftirlits með ölvunarakstri á að- ventunni. „Er skemmst frá því að segja að allir voru ökumennirnir með allt sitt á hreinu, utan einn sem var ekki með ökuskírteinið meðferðis. Farþegi í þeirri bifreið tók við akstrinum,“ segir í dagbók lögregl- unnar. Allir með sitt á hreinu nema einn Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hluti stjórnarandstöðunnar á Al- þingi er afar ósáttur við áform stjórn- arflokkanna um að afgreiða sam- gönguáætlun fyrir jól. Hótuðu sumir þeirra málþófi þegar þeir tóku málið tvisvar upp í gær undir liðnum um- ræða um fundarstjórn forseta. Reynt er að ná samkomulagi. Stjórnarand- staðan er samkvæmt heimildum Morgunblaðsins reiðubúin að hafa samgönguáætlanir sem forgangsmál eftir áramót, ef afgreiðslu þeirra verður frestað nú. Þingsályktunartillögur samgöngu- ráðherra um samgönguáætlun til fimm ára og lengri tíma hafa verið til umfjöllunar í umhverfis- og sam- göngunefnd þingsins frá því í lok september. Málið hefur tekið þá stefnu á þessum tíma að stuðningur hefur vaxið við hugmyndir um flýt- ingu vegaframkvæmda með lántöku og innheimtu veggjalda. Jón Gunnarsson, starfandi formað- ur umhverfis- og samgöngunefndar, segir að meirihluti samgöngunefndar hafi farið í mikla vinnu við að breyta tillögu að samgönguáætlun í þessa átt. „Þetta mun valda byltingu í sam- göngumálum og verður framfara- skref. Ný samgönguáætlun svarar betur kalli þjóðarinnar eftir bættum vegum og öruggari samgöngum,“ segir Jón. „Vinnunni er svo gott sem lokið og málið er að verða tilbúið til úttektar hjá nefndinni,“ segir Jón þegar hann er spurður um stöðuna í nefndinni. Nefndin mun funda í dag og á morg- un. Þarfnast meiri umfjöllunar Komið hefur fram hjá mörgum þingmönnum úr stjórnarandstöðunni að þeir gera ekki endilega mikinn ágreining um efni málsins. Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að við umfjöllun um þingsálykt- unartillöguna hafi orðið veruleg breyting á málinu. Í því ljósi þurfi að tryggja að það fái vandaða umfjöllun. Þingmenn úr stjórnarandstöðunni ræddu stöðu málsins í umræðum um fundarstjórn forseta við upphaf þing- fundar í gær. Þar kom skýrt fram að ef meirihlutinn taki málið út úr nefndinni og þingforseti setji það á dagskrá þingfundar með það fyrir augum að afgreiða það fyrir jól muni þeir tala um það á meðan beðið væri umsagna frá sveitarfélögum, hags- munaaðilum og fólkinu í landinu. Þeir hömruðu á því sama eftir kvöldmat- arhlé. Gæti raskað störfum Síðasti þingfundur fyrir jól á að vera nú á föstudaginn, samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Samgöngu- áætlun gæti raskað því. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir að vel líti út með störf þingsins að öðru leyti. Búið sé að afgreiða fjárlög og lög um veiðigjöld. Hann telur enn raunhæft að ljúka störfum nálægt settu markmiði, en viðurkennir að lít- ið megi út af bera. Reynt að ná samkomulagi um frestun  Þingmenn úr stjórnarandstöðu hóta málþófi verði reynt að afgreiða samgönguáætlun fyrir jól  Vinnu að ljúka í umhverfis- og samgöngunefnd  Þrír starfsdagar eftir í þinginu fyrir jólahlé Morgunblaðið/Eggert Ráðherrar Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra setur Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra inn í eitthvert mál á Alþingi. Grýla gamla og jólasveinarnir hennar sóttu rak- arastofuna við Dalbraut í Reykjavík heim í gær, en tilgangurinn var einkum sá að afhenda, fyrir hönd Jólasveinaþjónustu Skyrgáms, Hjálpar- starfi kirkjunnar rúmlega eina milljón króna. Því næst fékk hópurinn snyrtingu fyrir jólin. Grýla mætti með strákana sína í snyrtingu Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.