Morgunblaðið - 12.12.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 12.12.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018 Það er virðingarvert hversu veler enn fjallað um nýjar bækur á Íslandi í ýmsum fjölmiðlum.    Ljósvakamiðlarog þá ekki síst Ríkisútvarpið eru mjög vakandi í því.    Vekur þaðundrun og aðdáun hvað margir þar á bæ hafa náð að lesa fjölda bóka út í hörgul á skömmum tíma með öðrum önn- um.    Þarna eiga í hlut best lesnumenn landsins, ekki síst á sviði fagurbókmennta, og virðast hvorki missa úr bók eða blaðsíðu.    Því er skrítið að lítil fjölbreytnií orðavali sé svo einkennandi í þeirri umræðu.    Í mörg ár kom ekki út bók íbetri kanti án þess að hún „kallaðist á“ við hinar og þessar bækur, jafnt innlendar sem erlend- ar, sem sérhver rýnir hafði einnig lesið upp til agna með öllum jóla- bókunum.    Eftir að Guðbergur Bergssongerði þessi tískubundnu bókahróp dálítið hlægileg dró nokkuð úr þeim.    En nú kemur varla út bók, oger í náðinni hjá bókmennta- rýnum, án þess að þær tali nánast hver og ein „inn í sinn samtíma“.    Sjálfsagt eru þær þess vegnahættar að kallast á við bækur um víða veröld eins og þær gerðu ómælt fyrir aðeins örfáum miss- erum. Kallast á samtímis STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samtökin Cruise Iceland hafa verið tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna inn- an geira skemmtiferðaskipa. Tilnefn- ingin er í flokknum „Besti áfanga- staðurinn 2019“. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland er tilnefnt. Verðlaunin nefnast The Wave Awards og að þeim standa helstu fag- tímarit í þessum geira. Tilnefningar- listinn var gerður opinber í gærmorg- un og úrslit verða tilkynnt 7. mars 2019 í London. Auk Íslands eru til- nefnd Barbados, Króatía, Jamaíka, Grikkland og St. Pétursborg. Þeir sem standa að baki Cruise Iceland eru eftirtaldir: Hafnir lands- ins, skipaumboðsmenn, ferðaþjón- ustuaðilar, rútufyrirtæki, birgjar og þjónustuaðilar. Pétur Ólafsson, hafn- arstjóri á Akureyri, er formaður og Erna Kristjánsdóttir, markaðsstjóri Faxaflóahafna, varaformaður. „Þetta er heiður fyrir Ísland. Iðn- aðurinn er greinilega að taka eftir því hversu vel við Íslendingar stöndum okkur í móttöku farþega og hvað landið í heild sinni hefur upp á að bjóða marga fallegar náttúruperlur,“ segir Erna. „Innviðir hafa náð að sinna skipunum og farþegum vel. Nú er það bara okkar Íslendinga að fara að huga að leiðbeiningum fyrir ferða- menn, hvað má gera og hvað ekki.“ sisi@mbl.is Verður Ísland áfangastaður ársins?  Tilnefnt til alþjóðlegra verðlauna innan geira skemmtiferðaskipa Morgunblaðið/RAX Skip Ísland mögulega verðlaunað. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Árekstrarhætta skapaðist rétt fyrir innan innsiglinguna í Reykjavíkur- höfn þegar hvalaskoðunarskipið Eld- ey og frystitogarinn Brimnes mætt- ust þar fyrir rúmu ári. Skipstjórum tókst að koma í veg fyrir árekstur, en aðeins voru nokkrir metrar á milli skipanna þegar minnst var. Þetta er meðal þess sem fram kemur í lokaskýrslu siglingasviðs rannsóknarnefndar samgönguslysa, sem afgreidd var sl. föstudag. Þar kemur fram það álit nefndarinnar að orsök atviksins hafi verið að skip- stjóri Eldeyjar hafi ekki farið að reglum um komu skips og siglingu þess inn til hafnar og innan hennar. Fram kemur að um borð í Eldey voru um 70 farþegar auk fjögurra skipverja, en 22 manna áhöfn um borð í Brimnesi þegar atvikið átti sér stað 10. nóvember í fyrra. Í atvikalýs- ingu kemur fram að Eldey sigldi rétt fyrir framan Brimnesið og til að forð- ast árekstur þurfti skipstjórinn á Brimnesinu að setja á fulla ferð aft- urábak og skipstjórinn á Eldey beygði til bakborða til að afstýra árekstri. Við rannsókn kom fram að skipstjóri Brimness taldi að ekki hefðu verið meira en 3-4 metrar á milli skipanna þegar minnst var, en skipstjóri Eldeyjar taldi það hafa verið 6-7 metra. Vissu ekki hvor af öðrum Skipstjórarnir vissu ekki hvor af öðrum og var Brimnesið á um tveggja hnúta ferð og Eldey á um 10- 11 hnúta ferð þegar leiðir þeirra skárust. Þremur mínútum fyrir at- vikið var Eldey á níu hnúta hraða. Skipstjóri Eldeyjar kvaðst hafa slegið af ferð áður en hann kom í hafnarmynnið en aukið síðan hrað- ann til að koma í veg fyrir árekstur. Samkvæmt ferilskráningu VSS var Eldey á 11 hnúta ferð þegar leiðir skipanna skárust. Í skýrslunni kemur fram að í 34. grein reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál segir: „Á innri höfninni má ekki sigla skipum hraðar en svarar fjórum sjómílum á klst., en þó aldrei hraðar en aðstæður og góð sjó- mennska leyfa.“ Skipstjóri Eldeyjar kvaðst þekkja þessar reglur vel ásamt hlustunarskyldu talstöðva. Fram kom hjá skipstjóra Eldeyjar að þrátt fyrir reglur um komur og brottfarir skipa þá væri það hefð að hvalaskoðunarskip tilkynntu sig úr höfn en ekki inn til hafnar. Hætta á árekstri innan hafnarinnar  Nokkrir metrar á milli skipanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.