Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Íslenskur læknir í Svíþjóð, Hildur
Helgadóttir, yfirlæknir í krabba-
meinslækningum á Karolinska
sjúkrahúsinu, var fengin til að vera í
beinni útsendingu Sænska sjón-
varpsins SVT frá afhendingu Nób-
elsverðlaunanna í Stokkhólmi í
fyrrakvöld.
Í útsendingunni lýsti Hildur
ónæmishvetjandi meðferðum sem
veittar eru krabbameinssjúklingum
á Karolinska og rannsóknum hennar
á því sviði en þær byggjast á upp-
götvunum vísindamannanna
tveggja, sem deila með sér Nóbels-
verðlaununum í læknisfræði í ár.
Byltingarkenndar uppgötvanir
James P. Allison frá Bandaríkj-
unum og Tasuku Honju frá Japan
fengu Nóbelsverðlaunin í læknis-
fræði 2018 fyrir byltingarkenndar
uppgötvanir við meðferð krabba-
meina, þar sem ónæmiskerfið er
virkjað á þann hátt að það ræðst
gegn krabbameinsfrumum. Ótrú-
lega góður árangur hefur náðst með
þessum ónæmismeðferðum. Lífs-
horfur eða lifun margra krabba-
meinssjúklinga sem svara þessari
meðferð, hefur lengst, jafnvel um
fjölda mörg ár, og gætu þeir mögu-
lega náð fullum bata.
Uppgötvanir Allison og Honjo eru
á sérsviði Hildar, sem hefur þegar
notað þessar meðferðir sem krabba-
meinslæknir sjúklinga á Karolinska
í nokkur ár og stundar hún auk þess
rannsóknir sem tengjast þeim.
Hún segir í samtali við Morgun-
blaðið að þessar nýju meðferðir sem
byggjast á uppgötvunum Honju og
Allison feli vissulega í sér byltingu í
meðferð krabbameinssjúklinga.
Ekki síst eru framfarirnar miklar
fyrir sjúklinga sem eru með sortu-
æxli en Hildur hefur unnið mikið
með þeim á Karolinska.
Sortuæxli ná að dreifa sér um lík-
amann og eru krabbamein sem hef-
ur svarað illa lyfjameðferð. Hún seg-
ir að þar til þessar nýju meðferðir
komu til sögunnar hafi læknar haft
fátt til ráða fyrir sjúklinga með
dreifð sortuæxli og líkur á að þeir
lifðu stuttan tíma. Nýja meðferðin
hefur hins vegar skilað mjög góðum
árangri. ,,Það er um helmingur sjúk-
linga sem svarar þessari meðferð og
það finnst okkur vera rosalega stórt
skref miðað við ástandið eins og það
var áður,“ segir Hildur.
Hún segir að Allison og Honju
hafi uppgötvað og lýst svonefndum
innbyggðum bremsum á ónæmis-
kerfinu, sérstaklega tengdum
T-frumum í ónæmiskerfinu og fundu
því til viðbótar ásamt öðrum aðferð
til þess að setja á svokallaða hemla
sem virkja svörun ónæmiskerfisins á
þann hátt að það getur ráðist á
krabbameinsfrumur og heft vöxt
þeirra.
Spurð um meðhöndlun og lífs-
horfur krabbameinssjúklinga með
sortuæxli sem eru komin á alvarlegt
stig en gangast undir þessar nýju
meðferðir segir Hildur að mikill ár-
angur hafi náðst ef litið er á hóp
sjúklinga í rannsóknum hennar og
félaga hennar á Karolinska. Áður
hafi kannski tæplega fjórðungur
sjúklinga verið á lífi að einu ári liðnu
en eftir að þessar nýju meðferðir
komu til skjalanna séu um 75 til 80%
sjúklinganna enn á lífi eftir fyrsta
árið.
Skjáskot af útsendingu Sænska sjónvarpsins SVT.
Sjónvarpsviðtal Hildur Helgadóttir (t.h.) yfirlæknir í krabbameinslækningum á Karolinska sjúkrahúsinu í útsendingu Sænska sjónvarpsins frá afhendingu
Nóbelsverðlaunanna í fyrrakvöld. Hildur hefur um árabil starfað við lækningar og rannsóknir á meðferðum sem veittar eru krabbameinssjúklingum.
Lýsti ónæmismeðferð í út-
sendingu frá Nóbelsathöfninni
Hildur Helgadóttir er yfirlæknir í krabbameinslækningum á Karolinska
Skjáskot af útsendingu sænska sjónvarpsins SVT.
Læknir Hildur segir lífshorfur krabbameinssjúklinga hafa batnað mikið.
Afhending Nóbelsverðlaunanna
fór fram við hátíðlega athöfn í
Stokkhólmi í fyrrakvöld og var
bein útsending í Sænska sjón-
varpinu. Þar voru m.a. veitt
verðlaun fyrir framlag til lækn-
isfræði og fékk sjónvarpsstöðin
Hildi Helgadóttur krabbameins-
lækni í útsendinguna þar sem
hún hefur stundað rannsóknir
um árabil á ónæmismeðferðum
sem byggjast á uppgötvunum
vísindamannanna og var hún
beðin að lýsa reynslunni af
þeim á Karolinska sjúkrahúsinu.
Hátíðleg
athöfn
NÓBELSVERÐLAUNIN
Tilboð hafa verið opnuð í næsta
áfanga Urriðaholtsskóla í Garðabæ.
Lægstu tilboð voru talsvert undir
kostnaðaráætlun, en sex tilboð bár-
ust.
Lægsta tilboð í framkvæmdirnar
var frá E. Sigurðsson ehf. og hljóð-
aði það upp á rúmlega 660 milljónir
króna. Því tilboði var hins vegar
hafnað því bjóðandi uppfyllti ekki
kröfur, þar sem fram kemur að
bjóðandi skuli á síðastliðnum 10 ár-
um hafa lokið við a.m.k. eitt sam-
bærilegt verk að því er fram kemur
í fundargerð bæjarráðs Garða-
bæjar.
Því var samþykkt að taka tilboði
næstlægstbjóðanda, Eyktar ehf.,
með fyrirvara um að uppfylltir væru
allir skilmálar útboðsins. Tilboð
Eyktar var upp á 667 milljónir, en
kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
tæpar 860 milljónir. Hæsta tilboð
var upp á 995 milljónir króna.
Urriðaholtsskóli stendur við
Vinastræti ofarlega í hverfinu. Leik-
skóladeild tók til starfa í byrjun
apríl síðasta vor og í haust hófst
kennsla í 1.-4. bekk. aij@mbl.is
Vinastræti Starfsemi hófst í
Urriðaholtsskóla fyrr á þessu ári.
Tilboð tals-
vert undir
áætlun
Pétur M. Jónasson, 98 ára, prófessor
emeritus við Kaupmannahafnar-
háskóla, og dætur hans, Margrét og
Kristín, hafa fært Náttúruminja-
safni Íslands einkar veglega bóka-
gjöf. Pétur og dætur hans gáfu safn-
inu um 500 titla af fræðiritum um
náttúru, einkum vatnalíffræði, eftir
evrópska náttúrufræðinga frá ofan-
verðri 17. öld og fram á síðustu ár. Í
tilkynningu frá Náttúruminjasafn-
inu segir að mörg verkin séu mikið
fágæti og afar dýrmæt, sem fá söfn
geta státað af.
Bókagjöfinni, sem fyllir þrjú vöru-
bretti, var veitt viðtaka í Veröld,
húsi Vigdísar 2. desember að við-
stöddum Pétri og fjölskyldum dætra
hans, frú Vigdísi Finnbogadóttur og
Lilju D. Alfreðsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, og fleiri
gestum.
Við athöfnina afhenti Pétur Hilm-
ari J. Malmquist, forstöðumanni
safnsins, bókina Anatome Animal-
ium frá 1681.
Vegleg
bókagjöf