Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Gospeblúsinn höfðar til nokkuð
breiðs hóps fólks. Hann höfðar til
þeirra sem fíla blús, rokk og gospel
sem tónlist og gospel sem trúar-
legan boðskap. Við höfum fengið þau
viðbrögð við diskinum að fólk vissi
ekki að það gæti verið svona
skemmtilegt að hlusta á blús,“ segir
Þollý Rósmundsdóttir, söngkona
Blússveitar Þollýjar sem sendi ný-
verið frá sér gospelblúsdiskinn
Sacred Blues.
Þollý segir það gefa meira að
syngja gospelblús en venjulegan
blús. „Í hefðbundnum blús er fjallað
um vandamál og erfiðleika daglegs
lífs en gospelblúsinn gefur með text-
um sínum örlítið meiri von,“ segir
Þollý, sem sungið hefur blús, djass
og gospel frá unglingsárum.
„Nafnið á diskinum, Sacred Blues,
sem á íslensku útleggst helgur blús,
vísar til sérstöðu Blússveitar Þollýj-
ar og gospelblúsins þar sem textarn-
ir eru á trúarlegum nótum og fetað
er í fótspor ýmissa frumherja blús-
ins, Blind Willies Johnsons til að
mynda,“ segir Þollý, sem stofnaði
sveitina árið 2003. Hún er jafnframt
söngkona hljómsveitarinnar. Auk
hennar spilar rokksöngvarinn Sig-
urður Ingimarsson á ryþmagítar,
Fúsi Óttarsson á trommur og Jonni
Richter á bassa.
„Árið 2014 gekk Friðrik Karlsson
gítarleikari úr Mezzoforte til liðs við
blússveitina en hann hefur spilað
með mörgum þekktustu tónlistar-
mönnum heims. Friðrik kemur með
meiri gæði inn í hljómsveitina og ég
var satt að segja alveg hissa hversu
vel hann tók lögum sem ég samdi og
við settum á diskinn. Lög sem öðr-
um tónlistarmönnum fannst ekki
nógu góð,“ segir Þollý og bætir við
að Friðrik hafi sagt það opinberlega
að blús sé honum að skapi því í hon-
um fái hann mikið frelsi til túlkunar.
Á Sacred Blues eru 12 lög, fimm
frumsamin eftir Þollý, „Every now
and then“, We all have the blues
from time to time“, „Ain’t got no
place“, „Ain’t doin’’ too bad“ og
„Why do I have to?“. Friðik Karls-
son samdi lagið „I get up“ en text-
ann sömdu þau Þollý saman.
Lag Sigurðar Ingimarssonar,
„Oh, Lord“, prýðir einnig diskinn en
önnur lög á honum eru: „Who will be
next?“ eftir Burnett, „Shake it off“
eftir Liz Isabell, „Every time I feel
the Spirit“ eftir Mahaliu Jackson, „I
have a friend“ eftir T.R. Frye og V.
Davies og „Albatross“ eftir Green.
Blússveit Þollýjar verður með
tónleika á Hard Rock Café í Lækjar-
götu á morgun, 13. desember, þar
sem flutt verða blúsuð jólalög í bland
við lög af nýja diskinum.
Úgáfutónleikar voru haldnir á
sama stað í október þar sem mikil
stemning ríkti að sögn Þollýar, sem
er ánægð með viðtökurnar sem disk-
urinn hefur fengið. Hún segir að
blússveitin sé meira bókuð en áður
og hluti af því sé að fylgja diskinum
eftir.
Ljósmynd/Ásta Magg
Stuð Þollý með blússveit sinni á tónleikum, Blússveit Þollýjar.
„Gefur meira
að syngja
gospelblús“
Blússveit Þollýjar gefur út plötu og
heldur tónleika á Hard Rock Café
Ítarlega er fjallað um nýja ljós-
myndabók Ragnars Axelssonar –
RAX – á vef The New York Times.
Bókin nefnist Jökull, Glacier á
ensku, og í henni eru svarthvítar
loftmyndir Ragnars af hopandi
jöklum og jöklalandslagi hér á
landi, formhreinar ljósmyndir sem
hafa hlotið mikið lof, hér sem er-
lendis. Rætt er við Ragnar um verk
hans og jöklana, sem hann hefur
myndað síðan á unglingsárum, auk
þess sem birtar eru 14 ljósmyndir.
Greinarhöfundur dáist að hinum
ýmsu andlitum og furðuverum sem
hann sér birtast í formum mynd-
anna og Ragnar segir það enga til-
viljun, hann vilji gjarnan að fólk sjái
þessi fyrirbæri í ljósmyndunum.
Sagt er að Jökull sé fyrsta bókin
af nokkrum um heimskautin sem
Ragnar hyggst senda frá sér ásamt
félögum sínum í útgáfufélaginu
Qerndu, þeim Einari Geir og
Heiðari Guðjónssyni, en í þeim
megi sjá breytingar sem eigi sér
stað vegna hnattrænnar hlýnunar.
Jökulheimur Upphaf umfjöllunarinnar
um RAX á vef The New York Times.
Myndir RAX í The
New York Times
Face of Winter
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 20.00
Anna and the
Apocalypse
Metacritic 72/100
IMDb 6,6/10
Bíó Paradís 22.10
Suspiria
Metacritic 64/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 22.00
Roma
Metacritic 95/100
IMDb 8,6/10
Bíó Paradís 19.30
Svona fólk
Bíó Paradís 20.00
Erfingjarnir
Metacritic 82/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 18.00
Mæri
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 78/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 22.00
Cold War
Metacritic 90/100
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 17.30
Heart is not a
servant
Bíó Paradís 18.00
Creed II 12
Hinn nýkrýndi heimsmeist-
ari í léttþungavigt, Adonis
Creed, berst við Viktor
Drago, son Ivan Drago, og
nýtur leiðsagnar og þjálf-
unar Rocky Balboa.
Metacritic 67/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Álfabakka 18.00,
19.30, 20.30, 22.10, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 19.30,
22.10
Sambíóin Akureyri 19.30,
22.10
Sambíóin Keflavík 19.30,
22.10
The Old Man and the
Gun 12
Metacritic 80/100
IMDb 7,3/10
Háskólabíó 18.10, 21.00
Widows 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 84/100
IMDb 7,5/10
Smárabíó 19.35, 22.20
Háskólabíó 17.50, 21.00
Overlord 16
Metacritic 52/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
The Sisters
Brothers 16
Á sjötta áratug nítjándu ald-
arinnar í Oregon er gulleit-
armaður á flótta undan hin-
um alræmdu
leigumorðingjum, the Sis-
ters Brothers.
Metacritic 78/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 19.50, 22.30
Smárabíó 17.00, 19.40
Lof mér að falla 14
Þegar Magnea 15 ára kynnist
Stellu 18 ára breytist allt.
Stella leiðir Magneu inn í
heim fíkniefna sem hefur al-
varlegar afleiðingar fyrir þær
báðar.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,8/10
Háskólabíó 20.30
Venom 16
Eddie er sífellt að reyna að
ná sér niðri á snillingnum
Carlton Drake. Árátta Eddie
gagnvart Carlton hefur haft
vægast sagt slæm áhrif á
starfsferil hans og einkalífið.
Morgunblaðið bbnnn
Metacritic 35/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 19.50, 22.30
Ralf rústar
internetinu Sugar Ruch spilasalurinn er í
rúst, og Ralph og Vanellope
þurfa að bregða sér á inter-
netið til að endurheimta hlut
sem nauðsynlegur er til að
bjarga leiknum.
Metacritic 71/100
IMDb 7,6/10
Laugarásbíó 17.20
Sambíóin Álfabakka 18.00,
20.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 17.00,
22.15
Sambíóin Akureyri 17.00,
22.20
Sambíóin Keflavík 22.20
Smárabíó 15.00, 17.30
The Grinch Trölli lætur það fara í taug-
arnar á sér þegar fyrrverandi
nágrannar hans byrja að
skreyta fyrir jólin, kaupa
gjafir og gleðjast.
Laugarásbíó 17.30
Smárabíó 15.10, 17.20
Háskólabíó 18.20
The Nutcracker and
the Four Realms
Það eina sem Clara vill er
lykill - einstakur lykill sem
mun opna kassa með ómet-
anlegri gjöf frá móður henn-
ar heitinni.
Metacritic 39/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Bönnuð börnum yngri en 9 ára.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 57/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.15
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 22.15
Sambíóin Akureyri 19.30
Sambíóin Keflavík 19.30
Fantastic Beasts: The Crimes
of Grindelwald
A Star Is Born 12
Kvikmyndastjarna hjálpar
ungri söngkonu og leikkonu
að slá í gegn, þó svo að ferill
hans sjálfs sé á hraðri niður-
leið vegna aldurs og áfengis-
neyslu.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.40
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00
Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30
Bohemian Rhapsody 12
Sagan um Freddie Mercury og árin fram að Live Aid tón-
leikunum árið 1985.
Morgunblaðið
bbbbn
Metacritic 49/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 19.50, 22.30
Smárabíó 16.00, 16.40,
19.00, 20.10, 22.00,
22.30
Háskólabíó 18.00, 20.50
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio