Morgunblaðið - 12.12.2018, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2018
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
ICQC 2018-20
AF LISTUM
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Sviðslistahópurinn 16 elskendur,
sem í ár fagnar 10 ára afmæli, frum-
sýndi upplifunarverkið Leitin að til-
gangi lífsins í upphafi mánaðar, en
undirrituð hafði ekki svigrúm til að
sjá það fyrr en um liðna helgi. Raun-
ar hófst verkið nokkrum dögum áð-
ur en mætt var á sýningarstaðinn í
gömlu húsnæði Læknavaktarinnar á
Smáratorgi í Kópavogi, því aðstand-
endur hringja í alla áhorfendur og
leggja fyrir þá spurningar um lífið,
dauðann og hamingjuna. Á grund-
velli svaranna sérhannar hópurinn,
sem samanstendur af Aðalbjörgu
Þóru Árnadóttur, Brynju Björns-
dóttur, Davíð Frey Þórunnarsyni,
Evu Rún Snorradóttur, Friðgeiri
Einarssyni, Gunnari Karel Mássyni,
Hlyni Páli Pálssyni, Karli Ágústi
Þorbergssyni, Ragnari Ísleifi
Bragasyni, Sögu Sigurðardóttur og
Ylfu Ösp Áskelsdóttur, upplifunar-
ferli fyrir hvern og einn. Af því leiðir
að engir tveir áhorfendur upplifa
það sama á sýningarkvöldi.
Að forminu til minnir Leitin að til-
gangi lífsins um margt á hina frá-
bæru Sýningu ársins sem 16 elsk-
endur settu upp 2012. Þá sneri
rannsóknarspurning hópsins, sem
unnin var út frá skoðunarkönnun
sem leikhópurinn fékk Félags-
vísindastofnun Háskóla Íslands til
að gera, að því hvað áhorfendur
vildu helst og síst sjá í leikhúsi út frá
meðal annars stjórnmálaskoðunum
þeirra, aldri og kyni. Að þessu sinni
rannsakar hópurinn, líkt og titillinn
gefur til kynna, leitina að tilgangi
lífsins. Markmið hópsins er að við
sem áhorfendur getum mætt sjálf-
um okkur og meðal annars hugleitt
hvað geri okkur að okkur, hvað stýri
viðbrögðum okkar, í hverju ham-
ingjan felist og hvernig við öðlumst
hana.
Í ljósi þess að leikurinn á sér stað í
fyrrverandi húsakynnum Lækna-
vaktarinnar er freistandi að sjá
ákveðna samsömun milli meðferðar
hjá lækni sem út frá samtali við
sjúkling og skoðun ákveður hvaða
meðferð er viðeigandi og þess heild-
ræna upplifunarferlis sem 16 elsk-
endur bjóða skjólstæðingum sínum
á grundvelli fyrrnefndra spurninga.
Líkt og þegar komið er til læknis
gera áhorfendur grein fyrir sér með
nafni í afgreiðslunni. Og líkt og á
heilbrigðisstofnun eru allir
rannsakendur/stjórnendur kvölds-
ins klæddir sama einkennisklæðn-
aði, grárri stutterma skyrtu og
rúllukragabol sem víkur reyndar
fyrir persónulegri fötum þegar á
kvöldið líður.
Þegar allir eru mættir eru áhorf-
endur kallaðir inn í minni hópum,
þeim afhent lítið persónulegt kver
fyrir rannsóknarniðurstöður og
verkefni sem þeir bera um hálsinn
sýninguna á enda. Kverið minnir um
margt á passa sem allir þurfa að
hafa við höndina í því ferðalagi sem
boðið er upp á. Áhorfendur eru því
næst leiddir milli ólíkra herbergja í
stærri eða smærri hópum og jafnvel
einir, allt eftir þaulskipulögðu plani
sviðslistahópsins. Og líkt og í heim-
sókn hjá lækni varð biðin hluti af
dagskrá kvöldsins.
Í fyrsta herberginu sem undirrit-
aðri var boðið í beið áhugavert verk-
efni undir handleiðslu Hlyns Páls
sem leiddi hugann að grunnþörfum
okkar sem manneskjur samtímis því
sem hugurinn reikaði óneitanlega til
aðstæðna fólks sem lent hefur í
hremmingum á borð við náttúru-
hamfarir eða stríðsátök sem neyða
marga á flótta – með eða án passa. Í
framhaldinu lá leiðin á nokkurs kon-
ar miðilsfund hjá Aðalbjörgu Þóru, í
danshugleiðslu undir stjórn Sögu,
boðið var upp á hamingjuíhugun og
listsköpun undir handleiðslu Evu
Rúnar og Karls Ágústs, kyrrðar-
stund með Ragnari Ísleifi og loks
persónulegt samtal við Davíð Frey
um þann farangur sem við berum
með okkur í lífinu.
Eins og gengur og gerist voru
herbergin og verkefnin misáhuga-
verð. Þannig varð föndurstundin, í
beinu framhaldi af fyrrnefndri list-
sköpun, aðeins of langdregin, sem
helgast mögulega af því að þar
bauðst lítil sem engin leiðsögn. Þrátt
fyrir að við sem manneskjur eigum
það eitt sameiginlegt eftir að við
fæðumst að við munum deyja er
talsverður munur á því að vera með-
vitaður um eigin forgengileika eða
beinlínis tala um sig sem dauða-
dæmda. Því miður missti undirrituð
sennilega af fyndnustu uppákomu
kvöldsins, sem innihélt litríka auka-
hluti, þar sem lak byrgði sýn. En líkt
og í fyrri sýningum hópsins er húm-
orinn í lykilhlutverki og segja má að
tónninn sé strax sleginn í bráð-
skemmtilegum upphafssöng við
undirleik Gunnars Karels.
Fyrrgreint verkefni undir hand-
leiðslu Hlyns Páls var einstaklega
vel heppnað, sem og persónulega
samtalið við Davíð Frey. Þegar und-
irrituð bar saman bækur sínar við
leikhúsförunaut sinn að sýningu lok-
inni kom í ljós að við höfðum báðar
teiknað sömu myndina þegar við
vorum, í einangrun undir laki og á
sitt hvorum tímanum, beðnar að
teikna óhlutbundna mynd af ham-
ingju okkar! Hverjar eru líkurnar á
því? Lokasena kvöldsins var einnig
afar vel heppnuð og minnti okkur á
að enginn sér inn í framtíðina og því
vitum við í reynd ekki hvað bíður
okkar þó að við reynum sífellt að
skipuleggja hið ókomna. Leitin að
tilgangi lífsins býður ekki upp á nein
áþreifanleg svör, en hvetur áhorf-
endur til að velta vöngum yfir ýms-
um lykilspurningum sem hollt er að
íhuga. Efnið er framreitt af húmor
og hlýju sem gerir það að verkum að
enginn þarf að kvíða þessari heim-
sókn á læknastöðina gömlu.
Hvað gerir okkur hamingjusöm?
» Leitin að tilgangilífsins býður ekki
upp á nein áþreifanleg
svör, en hvetur áhorf-
endur til að velta
vöngum yfir ýmsum
lykilspurningum
sem hollt er að íhuga.
16 elskendur Hlynur Páll, Ragnar Ísleifur, Brynja, Eva Rún, Friðgeir, Aðalbjörg, Gunnar, Davíð Freyr, Saga og Karl Ágúst. Á myndina vantar Ylfu.
Undanfarnar vik-
ur hefur kvik-
mynd mexíkóska
leikstjórans Alf-
onsos Cuaróns,
Roma, verið valin
besta kvikmynd
ársins í vali all-
nokkurra hópa
áhrifamikilla
kvikmyndarýna vestanhafs. Kvik-
myndin er á spænsku, svarthvít og
gerist árið 1970 í Roma-hverfinu í
Mexíkóborg þar sem Cuarón ólst
upp. Hann kvikmyndar hana sjálfur.
Netflix framleiðir kvikmyndina,
sem er sýnd í Bíó Paradís þessa viku,
en verður síðan aðeins aðgengileg á
streymisveitunni. Samkvæmt BBC
er val nefndra rýna vísbending um
að Roma kunni að verða sigursæl við
Óskarverðlaunaafhendinguna. Veð-
bankar vestra telja A Star is Born
enn líklegasta til að verða valin
besta kvikmyndin en Roma er ekki
langt þar á eftir.
Margir velja Roma
Úr Roma.
Leikkonan Kristín
Þóra Haralds-
dóttir er meðal
þeirra tíu leikara
sem valdir hafa
verið í hóp rísandi
stjarna í evrópskri
kvikmyndagerð
og verða kynntir
sérstaklega á
alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í
Berlín á næsta ári. Kristín hlýtur
þessa vegsemd fyrir leik sinn í Andið
eðlilega, kvikmynd Ísoldar Ugga-
dóttur. Hinir leikararnir eru Elliott
Crosset Hove, Rea Lest-Liik, Emma
Drogunova, Aisling Franciosi, Blag-
oj Veselinov, Ine Marie Wilmann,
Dawid Ogrodnik, Milan Maric og
Ardalan Esmaili.
Kristín Þóra ein
rísandi stjarna
Kristín Þóra
Haraldsdóttir
Rúnar Snær Reynisson fréttamað-
ur fór með sigur af hólmi í smá-
sagnasamkeppni um mannréttindi
sem haldin var í tilefni af því að
10. desember voru liðin 70 ár síð-
an Mannréttindayfirlýsing Samein-
uðu þjóðanna var samþykkt af 48
aðildarríkjum SÞ, þar á meðal Ís-
landi.
Að keppninni stóðu sendinefnd
Evrópusambandsins á Íslandi, upp-
lýsingaskrifstofa SÞ fyrir Vestur-
Evrópu, Rithöfundasamband
Íslands og Hugvísindastofnun HÍ
ásamt HÖFN, listamannabústað í
Marseilles, Frakklandi. Dómnefnd
skipuðu Ástráður Eysteinsson pró-
fessor, Gauti Kristmannsson pró-
fessor og Halldóra K. Thoroddsen
rithöfundur. Alls bárust 75 sögur í
samkeppnina.
Í umsögn
dómnefndar um
vinningssöguna
segir: ,,Þetta er
efnismikil og vel
skrifuð framtíð-
arsaga sem
fjallar um gjör-
breyttan heim í
náinni framtíð,
eftir menningar-
hrun og náttúru-
hamfarir. Sykurhúðuð harðstjórn
ræður ríkjum hjá kynslóðinni sem
tekur við völdum eftir hrunið og
refsar hún foreldrum sínum í kerf-
isbundum sýndarréttarhöldum.
Mannréttindi einstaklinga víkja
fyrir heildarhagsmunum.“ Til
stendur að birta söguna á vefnum
esb.is.
Fréttamaður sigraði smásagnasamkeppni
Rúnar Snær
Reynisson
Elskan mín góða hvað það er kalt
úti er yfirskrift jólatónleika Múlans
á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, í
kvöld kl. 21. Þar koma fram söngv-
ararnir Gísli Gunnar Didriksen og
Rebekka Blöndal fram ásamt
hljómsveit og flytja vel þekkt jóla-
lög í bland við lög sem Ella Fitzger-
ald og Louis Armstrong gerðu
fræg. Hljómsveitina skipa trompet-
leikarinn Snorri Sigurðarson,
Kjartan Valdemarsson sem leikur á
píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa
og Scott McLemore á trommur.
Miðar fást í miðasölu Hörpu, á
harpa.is og tix.is.
Jólatónleikar Múlans í kvöld í Hörpu
Dúó Rebekka Blöndal og Gísli Gunnar.