Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
SYN
-11,27%
42,5
ORIGO
+5,56%
23,75
S&P 500 NASDAQ
-1,58%
7.158,426
-1,38%
2.700,06
-0,50%
6.945,17
FTSE 100 NIKKEI 225
6.6.‘18 6.6.‘185.12.‘18
1.800
80
2.345,15
1.971,58
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
63,23
-1,93%
21.919,33
75,0
60
2.400
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
5.12.‘18
Ný og ítarleg greining Þórs Matt-
híassonar þróunarstjóra markaðs-
rannsóknarfyrirtækisins Svarta-
galdurs, á leitarhegðun ferðamanna
á Google, sýnir
skarpa lækkun
nú í október sl. á
áhuga ferða-
manna á Íslandi,
borið saman við
sama tíma á síð-
asta ári. „Þetta
eru samanlagðar
niðurstöður þar
sem ég byggi á
um 1.300 mismunandi enskum ferða-
tengdum frösum sem fólk um allan
heim notar þegar það er að leita að
ferðatengdum hlutum í tengslum við
Ísland,“ segir Þór í samtali við Við-
skiptaMoggann.
Rannsóknin leiðir í ljós að 17%
samdráttur er í október í leitum
ferðamanna að ferðum til Íslands
miðað við október 2017. 480 þúsund
slíkar leitir voru framkvæmdar í
október í fyrra, en í október síðast-
liðnum voru leitirnar mun færri, eða
397 þúsund.
Þá leiðir rannsóknin í ljós að síð-
ustu þrjú ár hefur alltaf verið vöxtur
í leit ferðamanna á milli mánaðanna
september og október, en núna, í
fyrsta skipti í mörg ár, er sam-
dráttur milli þessara tveggja mán-
aða.
„Sem dæmi þá var tæplega 10%
aukning í leit að Íslandsferðum á
milli september og október á síðasta
ári. Nú í ár er um tæplega sex pró-
sent samdrátt að ræða,“ segir Þór.
Tenging við komu ferðamanna
Hann segir að sé rýnt vandlega í
gögnin, þá sýni þau að ferðamenn
nota októbermánuð helst til að leita
að ferðum sem fara á í nú í desem-
ber. „Við sjáum skýra tengingu við
leit að ferðum til Íslands, og svo
hingaðkomu ferðamanna. Það verð-
ur áhugavert að sjá hvernig desem-
ber kemur út.“
Þór hefur greint leitir ferðamanna
eftir löndum, og til dæmis sýnir
rannsókn hans á Google-leitum aftur
í tímann að áhugi Bandaríkjamanna
stórjókst milli áranna 2015 og 2016,
eða um 110%. Ári síðar var aukn-
ingin 40% og nú í ár 18%. „Við sjáum
svo til samanburðar í tölum ISAVIA
að komum Bandaríkjamanna hingað
til lands fjölgaði í svipuðu hlutfalli. Á
meðan 41% aukning varð í Google-
leitum bandarískra ferðamanna
fyrstu 10 mánuði ársins 2017 borið
saman við 2016, þá var 43% fjölgun
bandarískra ferðamanna til landsins.
Sama má segja um árið í ár þar sem
leitir Bandaríkjamanna aukast um
18% og fjölgun ferðamanna er 22%.“
Forspárgildi talnanna er því að
reynast talsvert mikið að mati Þórs,
en hann bætir við að hafa þurfi þann
fyrirvara á að gögn Google kunni að
vera röng.
Eyjafjallajökull stærstur
Með aðferðafræði Þórs er glögg-
lega hægt að sjá hvaða atburðir á Ís-
landi hafa náð athygli heimsbyggð-
arinnar. „Sögulega séð var langmest
leitað að Íslandi á Google í kjölfar
gossins í Eyjafjallajökli árið 2010.
Næst mest var leitað þegar karla-
landsliðið í knattspyrnu komst á EM
í Frakklandi árið 2016 og þar á eftir
kom þátttaka karlaliðsins á HM í
Rússlandi í sumar. Þessir þrír við-
burðir standa upp úr.“
Minna leitað að Íslands-
ferðum á Google en áður
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nákvæm rannsókn á
Google leitarvélinni gæti
bent til að ferðamönnum til
Íslands fækki um 17%
í desember miðað við
sama tíma í fyrra.
Íslandsleitir á Google í október 2015-2018
308
þúsund
503
þúsund
+63%
480
þúsund
-4%
397
þúsund
-17%
Heimild: Google/
Svartigaldur
Iceland
október 2015 október 2016 október 2017 október 2018
VEITINGAÞJÓNUSTA
Nýr veitingastaður á Hótel Holti hef-
ur hafið göngu sína eftir að hafa verið
lokaður frá því í lok ágúst en nú hefur
verið tekin ákvörðun um að hafa
rekstur staðarins í höndum hótelsins
sjálfs. Sólborg Lilja Steinþórsdóttir,
hótelstjóri Holtsins, segir að gestum
verði gefinn kostur á að kynnast sögu
hótelsins og fá leiðsögn um veglegt
málverkasafn stofnanda þess,
hjónanna Þorvaldar Guðmundssonar
og Ingibjargar Guðmundsdóttur, en
verk eftir Jón Stefánsson og Kjarval
prýða m.a. veggi þess. „Frá upphafi
hafa verið metnaðarfullir veitinga-
staðir á Hótel Holti. Við höfum opnað
veitingastaðinn aftur í þeim anda að
veita góða þjónustu og vera með góð-
an mat. Við viljum leyfa fólki að njóta
sögunnar og listarinnar sem Holtið
hefur upp á að bjóða. Þetta er mikil-
vægur menningararfur fyrir okkur
að geta deilt með fólki.“
peturhreins@mbl.is
Málverkin sem prýða veggi veit-
ingastaðarins eru tilkomumikil.
Nýr veit-
ingastaður
á Holtinu
FJÁRFESTINGAR
Erlendar eignir lífeyrissjóðanna
héldu áfram að aukast í október síð-
astliðnum og námu þá 1.140 millj-
örðum króna. Jukust eignirnar um
36 milljarða króna frá september-
mánuði. Eignirnar hafa aukist í
hverjum mánuði frá því í mars síð-
astliðnum. Frá áramótum hafa er-
lendar eignir sjóðanna aukist um
196 milljarða króna.
Langstærstur hluti eigna sjóð-
anna erlendis er bundinn í hlutdeild-
arskírteinum í fjárfestingarsjóðum.
Nema þær 957,2 milljörðum króna
um þessar mundir. Þá er erlend
hlutabréfaeign tæpir 119 milljarðar
króna.
Hlutfall af heildareignum
hefur aukist jafnt og þétt
Hlutfall erlendra eigna af heildar-
eignum sjóðanna hefur einnig aukist
á undanförnum misserum. Nú nem-
ur hlutfallið um 26,8% af eignasafni
þeirra en í byrjun árs var hlutdeildin
23,7%. Heildareignir sjóðanna fóru í
fyrsta sinn yfir 4.000 milljarða króna
í apríl síðastliðnum. Í lok október
stóðu þær svo í 4.260 milljörðum.
Innlendar eignir þeirra námu
3.120 milljörðum í október. Lang-
stærstur hluti þeirra, eða 1.874
milljarðar, er bundinn í innlendum
markaðsskuldabréfum og víxlum.
Innlend hlutabréfaeign þeirra stóð í
428,3 milljörðum og innlán í inn-
lendum innlánsstofnunum námu 172
milljörðum króna.
Erlendar eignir
sjóðanna aukast enn
AFP
Fyrr á þessu ári urðu erlendar eignir
sjóðanna meira en 1.000 milljarðar.
NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin
Opið virka daga kl. 10.00-18.00
Loðfóðraður skófatnaður
fyrir veturinn
Þór
Matthíasson