Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 GRAFÍSK HÖNNUN Lógó bréfsefni bæklingar myndskreytingar merkingar ofl. Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Sigurð Frey Árnason, lög- giltan skipasala og eiganda skipa- sölunnar S. Á. Firma ehf., til að sæta fangelsi í átján mánuði fyrir fjárdrátt. Hefur Sigurður verið fundinn sekur um að hafa dregið sér króka- aflahlutdeild í þorski og selt án heimildar fyrir 27.123.346 krónur, að meðtöldum sölulaunum og færslugjaldi. Einnig hefur hann verið fundinn sekur um að hafa misnotað sér aðstöðu sína þegar hann leigði án heimildar samtals sjö þúsund kg af krókaaflamarki og dró sér endurgjald leigunnar, 1.234.789 krónur, að meðtöldum sölulaunum og færslugjaldi. Rakið er í dómnum, sem féll 20. nóvember, að Sigurður hafi séð um umsýslu með aflaheimildir fyrir fé- lög fyrrverandi tengdaföður síns, meðal annars á grundvelli tengsla þeirra. Brot hans hafi komið í ljós þegar tengdafaðirinn hugðist selja krókaaflaheimildir í eigu félags síns. Við söluna hafi ljóst orðið að það magn aflaheimilda sem félagið taldi sig eiga var ekki til staðar, þar sem búið var að selja hluta þeirra án vitneskju tengdaföðurins. Í framburði hans hjá lögreglu kom fram að Sigurður hefði haft heimild til að leita tilboða eða finna leigjendur að aflaheimildum, en slíka ráðstöfun hefði hann sjálfur þurft að samþykkja. Þá hefði Sig- urður gengist við því að hafa selt aflaheimildirnar. Alvarleg refsiverð brot framin Tengdafaðirinn mun hafa farið þess á leit við sérstakan saksókn- ara, með bréfi í júlí 2014, að hafin yrði rannsókn á brotum Sigurðar. Einsýnt væri að alvarleg refsiverð brot hefðu verið framin, sem mikil- vægt væri að upplýsa. Rakti hann í kærubréfinu ýmis tilvik um til- færslu krókaaflahlutdeildar milli skipa, án vitundar eða vilja síns. Fyrir dómi viðurkenndi Sigurður að hafa ritað nöfn þáverandi tengdaföður síns og, eftir atvikum, eiginkonu sinnar, á umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflaheimilda. Neitaði hann þó sök og sagðist í skýrslu lögreglu hafa stofnað fyrirtæki sitt, SAFÍR, og séð um færslu kvóta fyrir tengda- föður sinn, sem búsettur væri er- lendis. Flutningur umræddra afla- heimilda hefði verið innan þeirra heimilda sem fyrirtæki hans, S.Á. Firma, hefði haft frá tengdaföð- urnum. Lagði inn á eigin reikning Í niðurstöðum dómsins segir að þessi framburður Sigurðar sé ótrú- verðugur og engum gögnum studd- ur. Fyrir liggi að hann hafi ritað nafn tengdaföður síns á umsóknir til Fiskistofu, og að þeim síðar- nefnda hafi verið ókunnugt um ráð- stafanirnar og ekki samþykkt þær. Sigurði hefði þá borið að ráðstafa söluandvirði kvótans inn á reikning félags tengdaföður síns. Það hefði hann ekki gert, eins og hann hefði sjálfur skýrt frá. Fram kemur að andvirði kvótans var lagt inn á reikning S. Á. Firma ehf. og því ráðstafað í þágu reksturs félagsins að hluta, en að hluta fjármunanna, eða 5.950.000 krónur, hafi Sigurður lagt inn á persónulegan banka- reikning sinn. Sagði Sigurður að félagið hefði staðið illa fjárhags- lega á þeim tíma sem um ræðir. „Engum gögnum studdar“ Fullyrðingar Sigurðar, um að hann hafi ráðstafað krókaafla- hlutdeildinni með vitund og sam- þykki tengdaföður síns, og að upp- gjör eigi eftir að fara fram á milli félaga þeirra beggja, eru í dómnum sagðar „með öllu haldlausar“ og að þær geti ekki staðist, „enda engum gögnum studdar“. Bent er á að brot Sigurðar hafi staðið yfir í átta mánuði, og er full- yrt í dómnum að þau hafi verið „einkar ófyrirleitin“. Ásetningur hans við brotin þykir samkvæmt dómnum hafa verið einbeittur og brot hans stórfelld, en við ákvörð- un refsingar var litið til þess hversu yfirgripsmiklu tjóni brot hans ollu, og hversu styrkur og ein- beittur vilji hans var. Fangels- isrefsing Sigurðar, samtals átján mánuðir, er bundin skilorði til tveggja ára. Seldi aflaheimildir án vitneskju eigandans Skúli Halldórsson sh@mbl.is Löggiltur skipasali seldi aflaheimildir úr félagi tengdaföður síns og ráð- stafaði andvirðinu til nota fyrir eigið félag og inn á sinn persónulega reikning. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Bent er á að brot Sigurðar hafi staðið yfir í átta mánuði, og er fullyrt í dómnum að þau hafi verið „einkar ófyrirleitin“. Afurðaverð á markaði 6. des. 2018, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 319,52 Þorskur, slægður 377,37 Ýsa, óslægð 288,72 Ýsa, slægð 286,63 Ufsi, óslægður 93,12 Ufsi, slægður 149,16 Gullkarfi 276,21 Blálanga, óslægð 188,00 Blálanga, slægð 228,17 Langa, óslægð 188,52 Langa, slægð 196,41 Keila, óslægð 121,62 Keila, slægð 114,07 Steinbítur, óslægður 316,49 Steinbítur, slægður 411,71 Skötuselur, slægður 624,17 Grálúða, slægð 454,51 Skarkoli, slægður 352,04 Þykkvalúra, slægð 747,50 Langlúra, óslægð 190,00 Sandkoli, óslægður 5,00 Bleikja, flök 1.571,47 Gellur 990,00 Grásleppa, óslægð 27,11 Hlýri, slægður 407,83 Hrogn/þorskur 44,00 Lúða, óslægð 356,00 Lúða, slægð 625,11 Lýsa, óslægð 79,85 Lýsa, slægð 93,60 Náskata, slægð 7,33 Rauðmagi, óslægður 106,00 Skata, slægð 92,67 Stórkjafta, slægð 195,00 Tindaskata, óslægð 9,52 Undirmálsýsa, óslægð 174,29 Undirmálsýsa, slægð 186,00 Undirmálsþorskur, óslægður 171,25 Undirmálsþorskur, slægður 180,16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.