Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018FÓLK
SPROTAR
Það kann að koma sumum les-
endum á óvart en hótel og ferða-
skrifstofur víða um heim reiða sig
á gamlan og óskilvirkan hugbúnað.
Sú hlið sem vísar að neytendum;
stórar bókunarvefsíður eins og
Hotels.com, Booking.com eða ís-
lenska ferðaleitarvelin Dohop.com,
er notendavæn og virkar hnökra-
laust, en á hinum endanum má oft
finna eldgömul bókunarkerfi sem
erfitt er að vinna með.
Fólkið á bak við hugbúnaðar-
fyrirtækið Godo kom auga á þenn-
an vanda: „Við sáum að mörg hót-
el voru jafnvel að nota kerfi sem
voru svo gömul að þau voru ekki
einu sinni tengd netinu og ekki í
neinu sambandi við umheiminn.
Úr varð að þróa bókunarkerfi sem
hægt væri að tengja beint inn á
helstu sölusíður, samræma verð og
dagatöl og uppfæra allar upplýs-
ingar í rauntíma til að koma í veg
fyrir yfirbókun,“ útskýrir Haukur
Birgisson, fjármála- og viðskipta-
stjóri Godo.
Bókunargátt fyrir
ferðaskrifstofur
Undanfarin sex ár hefur Godo
einbeitt sér að því að þróa og inn-
leiða bókunarkerfið og aðstoðað ís-
lenska gististaði við að nútíma-
væða hjá sér bókunarferlið. En
annar stór vandi var óleystur:
samskiptin við ferðaskrifstofur-
nar.
Haukur segir hótelbókanir frá
ferðaskrifstofum fara eftir allt
öðrum leiðum en bókanir frá al-
menningi sem berast í gegnum
bókunarvefsíður. Viðskipti við
ferðaskrifstofur fylgi öðrum skil-
málum, verðskrám og þóknunar-
kerfum og fram til þessa hafi
samskipti ferðaskrifstofa og hót-
ela nánast þurft að fara fram
handvirkt. „Í dag er alvanalegt að
ferðaskrifstofa sendi tölvupóst á
gististað og spyrji um framboð á
herbergjum á tilteknum dagsetn-
ingum. Getur tekið allt að 24-48
tíma að fá svar, enda berst hótel-
um heill haugur af tölvupósti dag-
lega, en ekki nóg með það heldur
þarf ferðaskrifstofan þá að senda
annað skeyti til að biðja um að
ganga frá bókuninni ef herbergi
er á lausu. Eins og gefur að skilja
er það engum til gagns að það
geti tekið allt að fjóra sólarhringa
fyrir ferðaskrifstofu að bóka
hótelherbergi.“
Úr varð að smíða n.k. markaðs-
torg fyrir gististaði og ferðaskrif-
stofur. Hugbúnaðurinn hefur
fengið nafnið Travia
(www.travia.is) og fór nýlega í
loftið. „Þar geta ferðaskrifstofur
tengst beint við þá gististaði sem
þær eiga í viðskiptum við eða
bætt nýjum við gististaða-
framboðið sitt. Travia talar beint
við bókunarkerfin og hægt er að
taka frá laus herbergi jafnóðum. Í
raun virkar Travia svipað og aðrir
bókunarvefir á netinu en er bara
ætluð ferðaskrifstofum,“ segir
Haukur en nú þegar býður Travia
upp á tengimöguleika við 300
gististaði.“
Kostnaður og álag hvetja
til tæknivæðingar
Rekstur Godo hefur farið vel af
stað og hefur fyrirtækið Ísland
sem sinn aðalmarkað. Haukur seg-
ir mikil tækifæri fyrir hendi úti í
heimi, enda á það við um gististaði
í öllum löndum að þar mætti gera
miklu betur í notkun nýjustu hug-
búnaðarlausna. Erlend markaðs-
svæði séu, aftur á móti, svo stór,
hugbúnaðarþarfir gististaða svo
ólíkar og mismunandi staðlar á
milli landa að það flæki alla útrás.
„Eitt er síðan að bjóða upp á
góða lausn og annað að fá fyrir-
tæki til að prófa nýja tækni. Við
verðum vör við að margir eru tví-
stígandi þegar kemur að því að
innleiða hugbúnað sem er skilvirk-
ari og hagkvæmari og stór hluti af
vinnu okkar að telja viðskiptavini
á að gefa tækninni tækifæri,“ út-
skýrir Haukur. „Við finnum það
núna að viðhorfið er farið að batna
og fólk í þessum geira orðið opn-
ara fyrir því að skoða góðar
tæknilausnir en ástæðan er m.a.
sú að ferðamannastraumurinn fer
bara vaxandi á sama tíma og laun
og aðrir kostnaðarliðir eru á upp-
leið. Sýna þarf aðhald í rekstri,
ekki hægt að bæta við starfsfólki
endalaust, og eykur mjög á álagið
ef ferðaþjónustufyrirtæki notast
við hugbúnað sem gerir lítið til að
létta þeim vinnuna.“
Morgunblaðið/Hari
Haukur Birgisson segir bókanir frá ferðaskrifstofum berast eftir allt öðrum leiðum en bókanir frá almenningi, enda
unnið út frá öðrum verðskrám og skilmálum. Bókunarferlið hefur verið of hægvirkt og þungt í vöfum.
Létta samskipti
gististaða og
ferðaskrifstofa
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Godo hefur svipt hulunni
af markaðstorginu Travia
þar sem ferðaskrifstofur
eiga mun auðveldara en
áður með að ganga
frá hótelbókunum.
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Að sögn Hauks sjá æ fleiri gististaðir að þeir verða að nýta nýjustu tækni
betur til að hagræða í rekstri. Ferðamenn rýna í kort í miðborginni.
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
nýjungar og sjái betur ávinninginn
af því að taka upp skýjalausn með
mikla sjálfvirkni. „Sum þessara
hótela hafa jafnvel verið með
gamaldags netþjóna inni á skrif-
stofu, sem eru rosalega dýrir í
rekstri, vandasamt að viðhalda,
og með kerfi sem eru alveg lok-
uð.“
Þó ávinningurinn væri mestur
fyrir stórar hótelkeðjur segir
Haukur að stundum sé það þar
sem tregðan við að nútímavæðast
sé mest. „Þar getur innleiðingin
verið flóknari og dýrari, og á viss-
an hátt hjálpar það okkur að ís-
lenski markaðurinn saman-
stendur einmitt aðallega af
tiltölulega smáum fyrirtækjum
sem geta innleitt nýtt bókunarkerfi
á hraðari og einfaldari máta.“
Vanda þarf til verka þegar hótel
skiptir gömlu bókunarkerfi út fyrir
nýtt. Gamla kerfið geymir mikil-
vægar upplýsingar og bókanir
sem geta jafnvel náð nokkur ár
fram í tímann, og má það alls ekki
gerast að þessar upplýsingar glat-
ist. Haukur segir sérfræðinga
Godo gera sér fyllilega grein fyrir
þessu en fyrirtækið hefur búið
hugbúnað sinn þannig úr garði að
tilfærsla upplýsinga þarf ekki að
taka langan tíma og tryggt að ekk-
ert tapist í flutningunum. Segir
hann að fyrir meðalstórt íslenskt
hótel þurfi ekki að taka nema um
hálfan dag að breyta um kerfi.
Haukur bendir á að oft séu
minni gistiheimili og ferðaskrif-
stofur sveigjanlegri að þessu leyti,
eigi auðveldara með að innleiða
Samsetning íslenska
markaðarins hentug