Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 21
Flest bendir til þess að Bretland muni yfirgefa Evr-ópusambandið (ESB) föstudaginn 29. mars 2019,klukkan 23:00. Þá verða nákvæmlega tvö ár liðin frá því að Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, til- kynnti Donald Tusk, forseta leiðtogaráðs ESB, með form- legum hætti um útgöngu Bretlands úr sambandinu. Sam- kvæmt 50. gr. sáttmálans um Evrópusambandið tekur útganga ríkis úr ESB gildi tveimur árum eftir slíka til- kynningu og skal ESB reyna að ná samningum við út- gönguríkið um skilmála útgöngunnar að teknu tilliti til framtíðarsamskipta innan þess tímaramma. Eins og flestir eflaust þekkja hefur ESB nú samið um útgönguskilmála við Bretland. Evrópuþingið og leiðtoga- ráð ESB hafa samþykkt útgöngusamninginn fyrir hönd ESB og ríkisstjórn Bretlands fyrir hönd Breta. Samning- urinn verður þó ekki skuldbindandi fyrr en eftir að breska þingið hefur gefið samþykki sitt en búast má við því að þingmenn greiði atkvæði um samninginn fljótlega eftir helgina. Útgöngusamningurinn inniheld- ur fyrst og fremst lagalega skuld- bindandi ákvæði um tæknilega framkvæmd útgöngunnar. Samn- ingsákvæðin munu hafa bein rétt- aráhrif innan ESB og í Bretlandi líkt og um hefðbundna ESB- löggjöf væri að ræða. Samningnum fylgir jafnframt stutt pólitísk vilja- yfirlýsing um framtíðarsamskipti Bretlands og ESB. Samningurinn fjallar um réttindi ESB-ríkisborgara sem eru búsettir í Bretlandi til að búa þar áfram og með sama hætti um réttindi breskra ríkisborgara sem búa í að- ildarríkjum ESB. Í því felst meðal annars búsetu- og at- vinnuréttur og aðgangur að velferðarkerfum viðkomandi ríkja. Samningurinn fjallar einnig um það með hvaða hætti Bretland skuli standa skil á fjárhagslegum skuld- bindingum sem ríkið undirgekkst sem aðildarríki ESB. Þá gerir samningurinn ráð fyrir opnum landamærum Írlands og Norður-Írlands. Í þessu felst meðal annars krafa um að breska ríkið standi við skuldbindingar sem það gerði í frið- arsamningunum frá 1998, sem kenndir eru við föstudag- inn langa, og standi vörð um samvinnu milli Írlands og Norður-Írlands. Ef ekki tekst að tryggja opin landamæri með fríverslunarsamningi fyrir árslok 2020 mun Norður- Írland að hluta til viðhalda tollabandalagi við ESB og fylgja áfram ýmsum reglum innri markaðarins. Aðrir kafl- ar samningsins snúast svo um tæknilega úrlausn útgöng- unnar, um stöðu Gíbraltar og um herstöðvar Bretlands á Kýpur. Samkomulagið kveður á um sérstakt aðlögunartímabil sem mun standa frá 30. mars 2019 til ársloka 2020 með möguleika á framlengingu. Aðlögunartímanum er ætlað að gefa stjórnvöldum og atvinnulífinu tíma til að laga sig að breyttum aðstæðum. Þó svo að Bretar muni ekki til- heyra ESB á þessu tímabili munu þeir framfylgja löggjöf ESB og viðhalda öllum réttindum og skyldum sem fylgja aðild. Aftur á móti munu Bretar hvorki hafa aðkomu að stofnunum né ákvörðunartöku ESB. Bretland verður áfram innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) út aðlög- unartímann og því verða viðskipti Íslands og Bretlands með óbreyttu sniði næstu tvö árin. Á aðlögunartímabilinu munu Bretar geta hafið form- legar fríverslunarviðræður við önnur ríki en slíkir samningar mega þó ekki taka gildi fyrr en í fyrsta lagi árið 2021. Bretland mun jafnframt heyra undir lög- sögu Dómstóls ESB (Evrópu- dómstólsins) á aðlögunar- tímabilinu og breskir dómstólar eru sömuleiðis skuldbundnir til að fylgja úrlausnum dómstólsins til ársloka 2020. Það er einnig at- hyglisvert að samkvæmt samn- ingnum ber breskum dómstólum að líta til dóma Evrópu- dómstólsins eftir aðlögunartímann, þótt þeim beri engin skylda til að fylgja fordæmum hans. Útgöngusamningurinn inniheldur einnig nokkuð ítarleg ákvæði um úrlausn deilumála. Ef ágreiningur rís um túlk- un á samningnum verður honum vísað til sameiginlegrar nefndar þar sem fulltrúar ESB og Bretlands eiga sæti. Ef nefndin nær ekki samkomulagi á pólitískum grundvelli verður hægt að vísa ágreiningnum til gerðardóms sem mun kveða upp bindandi úrskurð. Ef ágreiningurinn snýst um túlkun á ESB-rétti skal vísa honum til Evrópudóm- stólsins sem mun hafa lokaorðið þar að lútandi. Formlegar samningaviðræður um fríverslun Bretlands og ESB og aðgengi að innri markaðnum munu þó ekki hefjast fyrr en eftir að Bretar hafa yfirgefið ESB og samningar hafa náðst um útgönguskilmálana. Leiðarlok eru því enn ófyrirséð. Krossgötur en ekki leiðarlok LÖGFRÆÐI Hjalti Geir Erlendsson lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis ” Á aðlögunartímabilinu munu Bretar geta hafið formlegar fríverslunar- viðræður við önnur ríki en slíkir samningar mega þó ekki taka gildi fyrr en í fyrsta lagi árið 2021. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 21SJÓNARHÓLL BÓKIN Hagfræðingar hafa skoðað vand- lega hvaða áhrif það hafði á efna- hagslíf Vesturlanda þegar konur tóku að streyma út á vinnumark- aðinn. Skyndilega jókst framboðið á menntuðu og ómenntuðu starfs- fólki til muna og um leið rauk verðmæta- sköpunin upp. Er ekki skrítið að í þeim löndum þar sem konur hafa ekki sama aðgang að vinnumarkaðinum og karlmenn skuli lífs- kjör alla jafna vera lakari. Saadia Zahidi, sérfræðingur hjá WEF, hefur skrifað áhugaverða bók um þá kvennabyltingu sem er í vændum í múslimaheiminum. Í löndum eins og Egyptalandi eru t.d. í dag álíka margar konur og karlar í háskólanámi, og í Samein- uðu arabísku furstadæmunum eru þrefalt fleiri konur en karlar í há- skóla. Konur eru líka farnar að komast í æðstu valdastöður at- vinnulífs múslimalanda: á síðasta ári varð kona í fyrsta skipti banka- stjóri í Sádi-Arabíu. Á einum ára- tug hefur konum á vinnumarkaði múslimaríkja fjölgað um marga tugi milljóna. Bók Zahidi heitir Fifty Million Rising: The New Gener- ation of Working Women Transform- ing the Muslim World. Hún fjallar bæði um þróunina í stórum dráttum og skoðar líka sögur einstakra kvenna sem þurfa margar að bjóða hug- myndum samfélags, ættingja og vina birginn, til að láta að sér kveða sem frumkvöðlar, stjórnendur og afburðastarfsmenn. Þetta verk gefur svo sannarlega tilefni til bjartsýni fyrir þennan heimshluta, enda hefur reynslan sýnt að körlunum hefur farist það misvel úr hendi að koma þar á friði og hagsæld. Vonandi er röðin núna komin að konunum. ai@mbl.is Virkjum kraft kvenna í múslimalöndum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.