Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018FRÉTTIR
bækur og greinar, bæði á mínu fagsviði og al-
mennt um stjórnhætti en sæki einnig fyrirlestra
sem ég tel að geti aukið þekkingu mína eða veitt
mér innblástur.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég stunda kraftlyftingar og hef gert það síðast-
liðin níu ár. Kraftlyftingarnar krefjast mikillar
einbeitingar og gefa mér orku og styrk til að tak-
ast á við verkefni og áskoranir í starfi og leik.
Þetta hefur reynst mér besta líkamsræktin. Það
er líka bónus hvað þetta er skemmtilegt og frábær
félagsskapur þó svo þetta sé einstaklingsíþrótt.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Ég myndi bæta við mig námi í stjórnenda-
fræðum og stafrænni hugsun/framtíð. Ég hef
einnig áhuga á því seinna meir að læra olíumálun
og listasögu. Ég sótti nokkur námskeið hjá Mynd-
listaskóla Reykjavíkur og það hefur alltaf heillað
mig.
Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?
Fjölskylda, vinir og samstarfsfólk mitt er verð-
mæt uppspretta orku og innblásturs. Ég fylgist
einnig með þróun á alþjóðlegum vettvangi á mínu
sviði en það má læra margt af því frábæra starfi
sem er unnið hjá systurstofnunum okkar erlend-
is.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráð í einn dag?
Í dag er mér mjög hugleikið að breyta heiti
Einkaleyfastofunnar í Hugverkastofuna. Í því
felst betri tenging við hagsmunaaðila og þá sem
vilja nýta sér þjónustu okkar. Einkaleyfastofan
er þröngt heiti sem nær ekki að fanga öll við-
fangsefni stofnunarinnar. Ég leyfi mér því að
setja það á oddinn þar sem breyting á lögum sem
myndi breyta heitinu væri kannski einföld í eðli
sínu, en myndi vera til mikilla hagsbóta fyrir fyr-
irtæki og iðnað á Íslandi.
SVIPMYND Borghildur Erlingsdóttir forstjóri Einkaleyfastofunnar
Fær orku og styrk í kraftlyftingum
Morgunblaðið/Hari
STOFUSTÁSSIÐ
Margir Íslendingar hafa það fyrir
sið í desember að bæta eins og ein-
um gylltum jólaóróa frá Georgi Jen-
sen við safnið. Svo eru hinir sem
vilja frekar jólaskrautið frá Ros-
endahl, hvort sem það ræðst af
smekkvísi eða af einskærum vilja til
að vera aðeins öðruvísi.
En hvað með að gefa Danina alveg
upp á bátinn og skreyta heimilið í
staðinn með frönskum lúxus?
Tískuveldið Louis Vuitton býður
til sölu nokkuð snoturt jólaskraut (e.
Christmas Monogram Flowers) sem
byggist á frægu mynstri fyrirtæk-
isins. Ekki fæst gefið upp hversu
stórt skrautið er, en af myndum má
ráða að það geti passað vel á grein á
jólatré og ætti gyllingin og silfur-
húðin, að ríma vel við grænt grenið.
Er þá eins gott að velja Louis Vu-
itton-jólaskrautinu áberandi stað á
trénu, því vestanhafs kostar settið
460 dali, eða um 56.000 kr. En hver
veit svosem hvað jólasveinninn setur
í skóinn hjá þeim lesendum sem hafa
verið einstaklega prúðir og góðir í
ár. ai@mbl.is
Í jólaskapi með
Louis Vuitton
Dásamlegir dropar
í sturtunni þinni
www.sturta.is | Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði | s 856 5566
NÁM: Stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1989;
nám í arkítektúr við Southern
California Institute of Archi-
tecture 1990-1992; Lögfræð-
ingur frá Háskóla Íslands
1997; LL.M. Law, Science
and Technology frá Stanford
Law School 2007.
STÖRF: Forstjóri Einkaleyfa-
stofunnar frá 2010; formaður
stjórnar Nordic Patent Insti-
tute frá 2012; stjórn fram-
kvæmdaráðs European Pa-
tent Office 2015-2018 og sit
nú í framkvæmdaráði Euro-
pean Patent Office; formaður
vinnuhóps EFTA á sviði hug-
verkaréttinda. Stundakennari
og síðar aðjúnkt við laga-
deild HÍ 2005-2015.
ÁHUGAMÁL: Ég er aldrei
hamingjusamari en í faðmi
fjölskyldunnar og góðra vina,
hvort sem það er heima eða
á ferðalögum. Ég hef mikinn
áhuga á kraftlyftingum og
íþróttum almennt en ég hef
einnig brennandi áhuga á
hugverkarétti sem kemur sér
vel í vinnunni. Ég hef líka
gaman af því að teikna og
mála og einhvern tíma ætla
ég að halda áfram að æfa
mig að spila á píanó.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift
Viðari Lúðvíkssyni hæstarétt-
arlögmanni. Fjögur börn:
Arnhildur Anna 26 ára, Viðar
Snær 18 ára, Hildur Theo-
dóra 17 ára og Lúðvík Orri 10
ára.
HIN HLIÐIN
Atvinnulífið er að breytast hratt með nýrri tækni,
og verndun hugverka verður æ veigameiri þáttur í
að stuðla að hagvexti og atvinnusköpun. Borghild-
ur Erlingsdóttir hjá Einkaleyfastofunni fylgist vel
með þessari þróun.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Tækniframfarir hafa haft mikil áhrif á íslensk-
an iðnað og samfélag og því fylgja stórar áskor-
anir fyrir Einkaleyfastofuna. Við þurfum að
breytast í takt við íslenskan iðnað, íslenskt sam-
félag og þarfir íslenskra fyrirtækja í þessu nýja
umhverfi til að hjálpa þeim að halda utan um sín
verðmæti. Það er einnig stöðug en skemmtileg
áskorun að auka vitund almennings og atvinnulífs
um hugverkaréttindi og eðli þeirra.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
eða ráðstefnan sem þú sóttir?
Ég sótti verðlaunaafhendingu Design Europa
2018 í Varsjá í síðustu viku sem haldin er af Hug-
verkastofu Evrópusambandsins (EUIPO). Við-
burðurinn var mjög áhugaverður og það var frá-
bært að sjá hvernig iðnhönnun getur skipt
lykilmáli í að skapa samkeppnisforskot og verð-
mæti fyrir fyrirtæki í Evrópu.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Bókin Lífsreglurnar fjórar sem byggist á lífs-
speki Tolteka-indjána er mjög góður leiðarvísir í
starfi og leik. Ég mæli einnig með Edison in the
Boardroom, en það er bók sem ætti að vera á nátt-
borði allra fyrirtækjastjórnenda á 21. öld.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
um líf þitt og afrek?
Hún er reyndar látin enda var hún upp á sitt
besta á 5. áratugnum. En ef það væri engin fyr-
irstaða þá myndi ég vilja að leikkonan Hedy Lam-
arr myndi taka að sér hlutverkið. Hún var nefni-
lega einnig virk uppfinningakona með mörg
einkaleyfi á sínu nafni og átti stóran hlut í þráð-
lausri samskiptatækni.
Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?
Það er alltaf mikið um að vera í hugverka-
réttindaheiminum og því er nauðsynlegt að vera á
tánum til að halda þekkingunni vel við. Starf mitt í
dag er þess eðlis að í því felst mikið alþjóðlegt
samstarf þar sem stöðugt er verið að takast á við
nýjar áskoranir og hugsa til framtíðar. Ég les
Borghildi þætti upplagt að breyta
nafni Einkaleyfastofunnar og taka
í staðinn upp nafnið Hugverka-
stofan, sem er meira lýsandi fyrir
viðfangsefni stofnunarinnar.