Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018FRÉTTIR
Ert þú að spila í
myrkri?
Borgartúni 20
105 Reykjavík
sími 585 9000
www.vso.isV E R K F RÆÐ I S T O F A
©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim.
Af síðum
Verslanir á borð við Target og Wal-
Mart hafa augastað á því 12 milljarða
dala gati sem Toys R Us skildi eftir sig
á leikfangamarkaðinum.
Sárafáir eru á ferðinni í skamm-
tímabúð (e. pop-up store) sem spratt
upp í byggingu þar sem verslun Toys
R Us var áður til húsa. Toy City í Rego
Park, fjölskylduvænu hverfi í Queens í
New York, er ein af 50 verslunum sem
opnuðu tímabundið víðsvegar um
Bandaríkin til að fylla upp í gat sem
myndaðist á markaðinum þegar
leikfangaverslanarisinn fór á hausinn.
Eftir nokkurra mínútna bið birtist
viðskiptavinur með son sinn í eftir-
dragi. „Við eigum nú þegar öll þessi
leikföng,“ segir Kinga Baginska við
son sinn á meðan þau skoða Lego-
deildina, þar sem allt er boðið til sölu
með 20% afslætti. Hún verslaði reglu-
lega hjá Toys R Us áður en búðin lok-
aði fyrr á þessu ári, og segir að
skammtímabúðin – sem nýtir bara eitt
hornið á verslunarrýminu – sé hjóm
eitt í samanburði við leikfanga-
stórmarkaðinn sem var þar áður. Úr-
valið er takmarkað og ekki margt sem
sonur hennar getur fengið að prófa áð-
ur en þau velja hvað þau kaupa. „Það
er ekki hægt að bera verslanirnar
saman,“ segir hún.
Bandarískir foreldrar standa núna
frammi fyrir fyrstu jólunum í manna
minnum þar sem Toys R Us verður
ekki inni í myndinni, en verslunin var
leiðandi á leikfangamarkaðinum þar í
landi allt þar til 5 milljarða dala
skuldafjall reið fyrirtækinu að fullu svo
að óska þurfti gjaldþrotaskipta í sept-
ember 2017. Hundruð verslana héldu
áfram rekstri út síðasta jólatímabil en
allar eignir keðjunnar, sem hafði starf-
að í 70 ár, voru seldar upp í skuldir
fyrr á þessu ári.
12 milljarða biti
Núna þegar mikilvægasti verslunar-
tími ársins er að ganga í garð eru fjöl-
mörg fyrirtæki að reyna að ná til sín
sneið af markaðshlutdeild Toys R Us
en árlega seldi fyrirtækið leikföng fyr-
ir 12 milljarða dala.
Toy City búðirnar – sem stofnaðar
voru af Party City sem er þekktast
fyrir að reka verslanir með hrekkja-
vökuvarning – standa frammi fyrir
gífurlegri samkeppni. John Mulligan,
forstjóri stórverslanakeðjunnar Tar-
get, sem er eitt af fyrirtækjunum í
S&P 500 vísitölunni, sagði fjárfestum
að félagið hygðist „sækja af harðfylgi“
in á leikfangamarkaðinn.
Meira að segja bókaverslanakeðjan
Barnes & Noble, sem glímir við tap-
rekstur og líður fyrir vinsældir Ama-
zon, reynir að grípa gæsina. „Þetta er
verðmætt tækifæri,“ segir Allen
Lindstrom fjármálastjóri félagsins.
Er því enginn hörgull á stöðum þar
sem pabbar og mömmur geta keypt
það sem er á óskalista barnanna þessi
jólin, s.s. veitingahúsabás í barnastærð
frá Melissa & Doug, smábangsana
sem unga fólkið safnar frá Pikmi Flips,
og tónlistarkolkrabbann Rocktopus
fyrir yngstu börnin.
Margir eru kallaðir en enginn býður
upp á sama andrúmsloftið og Toys R
Us sem þótti upplifun fyrir fjölskyldur
að heimsækja; þar sem æsispennt
börn þræddu gangana á meðan sölu-
fólkið veitti foreldrum þeirra ráðgjöf
við dótavalið.
Hægir á sölu leikfanga
Greina má merki þess að hluti af
þeirri leikfangasölu sem hvarf með To-
ys R Us hafi horfið fyrir fullt og allt.
Stjórnendur hjá bæði Mattel, sem
framleiðir m.a. American Girl- og
Tomma togvagns-leikföng; og hjá
Hasbro, framleiðanda Play-Doh, og
Folans míns litla, hafa kennt gjaldþroti
verslanakeðjunnar um samdrátt í sölu.
Heilt á litið hefur sala leikfanga ver-
ið að aukast í aðdraganda jólavertíð-
arinnar, þökk sé þróttmiklu hagkerfi,
en vöxturinn er hægari en á síðasta
ári. Frá ársbyrjun til og með septem-
ber hafa selst leikföng fyrir 11,6 millj-
arða dala og nemur aukningin 2% milli
ára, samkvæmt mælingum NDP. Er
það helmingi hægari vöxtur en árið á
undan. Sala á böngsum, púsluspilum
og íþróttavöru fyrir börn er með róleg-
asta á móti, en dúkkur, dótakarlar og
rafmagnsleikföng seljast betur en áð-
ur. Þau vörumerki sem seljast best eru
Marvel-, Barbie- og Star Wars-leik-
föng.
En markaðsárangur þessa árs mun
ráðast á komandi vikum. Alla jafna á
um það bil helmingurinn af leikfanga-
sölu stóru verslananna sér stað í að-
draganda jóla.
Óhjákvæmilega er mikið af þeim
viðskiptum sem áður fóru til Toys R
Us að færast yfir á netið. Í könnun
sem markaðsráðgjafarfyrirtækið
Critero lagði fyrir 1.100 fyrrverandi
viðskiptavini verslunarinnar sagðist
þriðjungur ætla að færa viðskipti sín
yfir til Amazon.
Þá eru rótgrónar stórverslanir farn-
ar að sækja af auknum krafti inn á net-
markaðinn. Walmart, stærsta versl-
anakeðja heims, hefur hleypt af
stokkunum nýrri vefsíðu sem fyrir-
tækið kallar Toy Lab og lýsir sem
„stafrænum leikvelli“ þar sem börn
eiga að geta prófað leikföng á borð við
dúkkuhús Gurru gríss og töfrasprota
úr heimi Harry Potter.
En neytendakönnum Criteo sýndi
líka fram á hughreystandi gögn sem
lúta að hefðbundnum búðum. Aðeins
5% svarenda kváðust eingöngu ætla að
versla á netinu og nærri því fjórir af
hverjum fimm sögðust ætla að kaupa
leikföng bæði í hefðbundnum búðum
og hjá netverslunum.
„Forundran barnsins þegar það
virðir fyrir sér leikfangaúrvalið er
mikilvægur hluti af upplifun við-
skiptavinarins,“ segir Greg Portell
smásöluráðgjafi hjá AT Kearney.
Leikföngin fá meira vægi
Það minnir á hversu mikilvægir
áþreifanlegir hlutir geta verið á öld
internetsins að Amazon mun senda
prentaðan leikfangabækling til millj-
óna viðskiptavina í aðdraganda jóla.
Bæklingurinn, sem fékk yfirskriftina
„Leikfangahátíðin“ þykir minna um
margt á árlegan leikfangabækling
Toys R Us.
Þá mun Walmart taka frá meira
pláss fyrir leikföng í verslunum sínum,
og margir keppinautar keðjunnar
hyggjast gera slíkt hið sama. Big Lots,
sem rekur um það bil 1.400 verslanir,
ætlar að tvöfalda þann gólfflöt sem
lagður er undir leikföng.
Target hefur „endurhannað frá
grunni“ leikfangadeildir rífleg 100
verslana og bætir þessi jólin við meira
en 2.500 „nýjum leikföngum sem fást
ekki annars staðar“. Leikfangasala hjá
Target á þriðja ársfjórðungi jókst um
20% miðað við sama ársfjórðung í
fyrra.
Geoffrey fann nýja vinnu
Meðal þeirra verslana sem hafa
reynt að endurskapa stemninguna hjá
Toys R Us er matvöruverslunin Kro-
ger. Fyrirtækið ættleiddi lukkudýr
Toys R Us, gírafann Geoffrey, og not-
ar til að selja leikföng í meira en 600
verslunum fyrirtækisins.
Toy City hefur, aftur á móti, hermt
eftir litavali Toys R Us. „Við lítum á
yfirstandandi ár sem prufutímabil sem
við getum lært af upp á framhaldið að
gera,“ segir Ryan Vero yfirmaður
smásölusviðs og eigandi Party City.
„Árangurinn fram til þessa hvetur
okkur til dáða.“
Ef einhverju fyrirtæki tekst að ná
formúlunni rétt, þá væri hægt fylla
varanlega í skarðið sem Toys R Us
skildi eftir – í það minnsta ef nógu
mörg börn og foreldrar þeirra eru jafn
áhugasöm og Baginska-fjölskyldan um
góðan stað til að kaupa leikföng.
Toys R Us-búðin í Rego opnaði
tveimur mánuðum áður en sonur
Kinga Baginska kom í heiminn, og
þeim þótti afskaplega erfitt að sjá á
eftir versluninni. „Hún lék stórt hlut-
verk í lífi okkar,“ segir hún. „Við tók-
um því nánast sem sjálfsögðum hlut
að hafa svona nálægt okkur leik-
fangaverslun sem við gátum heim-
sótt hvenær sem okkur hugn-
aðist.“
Barist um viðskiptavini Toys R Us
Eftir Alistair Gray
Leikfangafyrirtækið Toys
R Us skilur eftir sig gat á
bandarískum leikfanga-
markaði sem verslanir
leitast til við að fylla upp í
með ýmsu móti.
AFP
Fæstir hyggjast færa leikfangakaup sín alfarið til netverslana. Áþreifanlegir hlutir virðast enn eiga upp á pallborðið.