Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 19FRÉTTIR
Framleiðum allar gerðir
límmiða af mismunandi
stærðum og gerðum
Thermal
Hvítir miðar
Litamiðar
Forprentaðir
Athyglismiðar
Tilboðsmiðar
Vogamiðar
Lyfsölumiðar
Varúðarmiðar
Endurskinsmiðar
Flöskumiðar
Verðmer
Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is
kimiðar
Límmiðar
Af síðum
Það er oft ekki fyrr en samið er um vopnahlé að hægt er að fá skýra mynd
af því sem hefur gerst á vígvellinum. En milliríkjaviðskipti eru svo grugg-
ug í eðli sínu að stundarfriður milli Bandaríkjanna og Kína nægir ekki til
að skilja nákvæmlega hvar málin standa. Þegar kom í ljós að tollar yrðu
ekki hækkaðir þann 1. janúar tóku bæði hlutabréf bílaframleiðenda og lúx-
usvörufyrirtækja kipp. En rétt eins og það má gera góð kaup þegar mark-
aðurinn er í söluham þá kann að fara svo að hækkanirnar í byrjun vik-
unnar verði skammvinnar.
Í meginatriðum ættu fyrirtæki sem framleiða bíla – vöru sem er mikið
seld á milli landa – að hagnast hvað best á því að dregið hafi úr spennu
milli Bandaríkjanna og Kína. Donald Trump sendi frá sér tíst þess efnis að
Kína hafi samþykkt að lækka tolla á innflutta bíla, en ráðamenn í Peking
hafa þó ekki enn staðfest það.
Ef rétt reynist þá væri um sérdeilis góðar fréttir að ræða fyrir evrópska
bílaframleiðendur sem lentu í miðri orrahríðinni milli austurs og vesturs.
BMW, sem á árinu 2017 flutti inn til Kína 100.000 bíla sem framleiddir
voru í Bandaríkjunum, hefur upplýst að hækkun tolla gæti minnkað hagn-
að fyrirtækisins um 300 milljónir evra. Ef Kína verður búið að lækka toll-
ana sín megin niður í 15% í lok þessa árs þá gæti það bætt rekstrarhagnað
þessa árs um 5%, að mati Citi. Í tilvik Daimler gæti ávinningurinn numið
4%.
Til viðbótar við það ætti minni spenna í viðskiptum þjóðanna að örva
kínverska hagkerfið. Það myndi bæta söluna á bílum, sem stóð í stað í júlí
eftir að hafa aukist nær viðstöðulaust í þrjá áratugi þar á undan.
Hlutabréfaverð lúxusvörufyrirtækja hækkaði líka skarplega á mánu-
dag. Verð hlutabréfa frönsku samsteypnanna Kering og LVMH hækkaði í
fyrstu um nærri því 6%, eða álíka mikið og hlutabréf Daimler og BMW.
En áhrif tollastríðsins á lúxusvörugeirann hafa ekki verið öll á eina vegu. Í
stað þess að hækka tollana greip Kína raunar til þess ráðs í júlí að lækka
innflutningsgjöld á lúxusvarning. Titringur vegna áhrifa tollastríðsins á
hagkerfið kom líka seint fram í lúxusvörugeiranum. Það dró úr tiltrú fjár-
festa í október þegar Louis Vuitton upplýsti að „hægt hefði lítillega á“
aukningu í sölu til kínverskra neytenda. En engu að síður segja lúxusvöru-
fyrirtækin að eftirspurn á meginlandi Kína sé að aukast jafnt og þétt.
Hjálpar þar til að unga fólkið er eyðsluglatt og þökk sé reglum um eitt
barn á fjölskyldu sitja þau ein að gjafmildi foreldra sinna og annarra for-
feðra.
Í augnablikinu er alvarlegasta hættan sú að Kína og Bandaríkin komist
ekki að samkomulagi innan þess 90 daga ramma sem fallist var á, og væri
þá aftur blásið í herlúðrana. En það er fleira sem bílaframleiðendur þurfa
að hafa áhyggjur af, s.s. að Trump hugkvæmist að hækka tolla á bíla frá
Evrópusabandinu. Það þýðir að loftárásunum á bílgreinina væri ekki lokið.
Lúxusvörugeirinn er ekki í jafn mikilli hættu. Ef virðist útlit fyrir að tekist
hafi að stilla til friðar til frambúðar þá ættu hlutabréf lúxusvörufram-
leiðenda að vera með þeim fyrstu til að rísa upp úr skotgröfunum.
LEX
Tollastríð Kína og
BNA: lukkulegur lúxus
Breska fjármálaeftirlitið hefur beint
þeim tilmælum til alþjóðlegra banka
sem eru með starfsemi þar í landi að
þeir hafi hemil á tilfærslu viðskipta-
vina til annarra landa í aðdraganda
Brexit.
Í síðustu viku sendi fjármálaeftir-
litið, Financial Conduct Authority
(FCA), bönkunum erindi þess efnis
að þeir ættu að gera „eins litlar
breytingar og þörf er á“ við tilfærslu
viðskiptavina. Kvaðst stofnunin jafn-
framt „reiðubúin til að grípa inn í ef
útlit verður fyrir að skref hafi verið
stigin sem gætu útsett viðskiptavini
eða markaðinn fyrir óásættanlegri
áhættu“.
Í bréfinu, sem Financial News
greindi fyrst frá, sagði FCA jafn-
framt að stofnunin ætlaðist til þess
að bankar legðu áherslu á „undirbún-
ing fyrir fyrsta dag“ Brexit, og að
þeir reyni að lágmarka alla röskun
„til að forðast það að valda við-
skiptavinum sínum tjóni eða skaða
þá markaði þar sem þeir starfa.“
Enn fremur sagði FCA að „Ekki
ætti að færa þjónustu við viðskipta-
vini út úr Bretlandi fyrr en FCA þyk-
ir fullsýnt að viðkomandi stjórnir og/
eða æðstu stjórnendur hafi að fullu
íhugað hvaða áhrif þær breytingar
sem stefnt er að munu hafa á alla
hópa viðskiptavina, og þar á meðal
hvort að fyrirhugaðar breytingar
þjóni best hagsmunum viðskiptavin-
arins sem í hlut á.“
Starfsmaður svissnesks banka
sagði að þangað hefðu áður borist
sams konar fyrirspurnir frá fjár-
málaeftirlitinu, þar sem „spurt var
hvaða hluta af þjónustunni við við-
skiptavini við hygðumst flytja frá
Bretlandi ... sem virðist brenna mjög
á FCA um þessar stundir.“
Leit umræddur banki svo á að er-
indi FCA „beindist frekar að þeim
sem starfrækja ekki nú þegar dótt-
urfélag ýmist í Bretlandi eða á
meginlandi Evrópu“.
Fulltrúi bandarísks banka sagði að
Englandsbanki væri „mjög liðlegur
hvað snertir það að við þurfum að
færa burtu þjónustu við viðskiptavini
okkar frá ESB“.
Lagaleg og skattaleg atriði
Hvað viðskiptavini frá löndum ut-
an ESB snertir segir FCA að laga-
rammi muni verða til staðar eftir
Brexit sem muni „gera stöðu þeirra
svipaða og viðskiptavina frá ESB27-
löndunum“ og því myndi það að færa
viðskipti þeirra frá Bretlandi útsetja
þá fyrir ákvæðum ólíkra landa um
samninga, ógjaldfærni og skatta.
Gæti það líka haft í för með sér „auk-
inn kostnað og áhættu sem þessir
viðskiptavinir ættu annars ekki að
vera útsettir fyrir.“
„Ef fjármálafyrirtæki hyggjast
gera breytingar ... sem gætu haft
áhrif á viðskiptavini utan ESB27-
landanna þá ættu þeir að ræða þær
breytingar við okkur,“ segir í bréf-
inu.
Undirskrift Megan Butler, yfir-
manns eftirlitsmála hjá FCA, er á til-
mælunum stofnunarinnar.
Þar segir enn fremur: „Við höfum
lagt áherslu á það við fjármálafyr-
irtæki að við ætlumst til að þær að-
gerðir sem þau grípa til í tengslum
við útgönguna úr ESB verði í sam-
ræmi við þau markmið sem okkur
hafa verið sett með lögum, og þar á
meðal að hagsmuna viðskiptavina
verði gætt.“
Undirbúa mars 2019
Stóru bankarnir hafa verið að
setja aukinn kraft í að búa í haginn
fyrir Brexit, s.s. með því að setja á
laggirnar útibú í evrópskum borgum
eins og París, Frankfurt og Dyflinni.
Þeir hafa einnig aukið útgjöld til
Brexit-undirbúnings og miða áætl-
anir sínar við mars 2019, þrátt fyrir
að bresk stjörnvöld hyggist semja
um aðlögunartímabil.
Andrew Bailey, forstjóri FCA,
þvertekur fyrir að afskipti stofnunar-
innar séu af pólitískum meiði, og
sagði hann við nefnd á vegum fjár-
málaráðuneytisins að bréfið hefði
verið fyllilega í samræmi við þau
markmið sem stofnunin starfar eftir.
„Við gerðum þetta ekki til að segja
að enginn megi fara frá Bretlandi,“
útskýrði hann. Það kann að vera að
þrýst sé á fjármálafyritæki að gera
„stór og flókin púsluspil“ til að gera
rekstur sinn sjálfbærari, en „ef það
kemur til greina að færa til viðskipti
aðila utan Evrópu, þá er það ákvörð-
un sem þarf að taka með tilliti til
hagsmuna viðskiptavinarins“.
Þetta mál gæti haldið áfram „að
skrölta“ eins og hann orðaði það, því
stofnanir Evrópusambandsins munu
sætta sig við að fjármálafyrirtæki
geri eins lítið og þarf til að allar
breytingar geti gengið þægilega
fyrir sig eftir Brexit, en að „umræð-
urnar á öðrum degi“ eftir útgöngu,
muni snúast um hvaða umgjörð
þurfi að vera á viðskiptum á megin-
landi Evrópu svo að þau þyki
nægilega sjálfbær.
Bankar fari ekki of
geyst vegna Brexit
Eftir Barney Thompson og
Delphine Straus í London
Breska fjármálaeftirlitið
er á varðbergi gagnvart
tilfærslu viðskiptavina til
annarra landa í aðdrag-
anda Brexit.
AFP
Stóru bankarnir hafa verið að setja aukinn kraft í að búa í haginn fyrir Brexit.
Meðal annars með því að setja á laggirnar útibú í evrópskum borgum.