Morgunblaðið - 06.12.2018, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 23FÓLK
Ungir frumkvöðlar kynntu fyrir
nokkrum árum byltingar-
kenndan hjólagaffal sem fékk nafnið
Lauf. Í fyrra kynnti fyrirtækið svo
nýjustu afurð sína sem er malarhjól
sem skilgreina má mitt á milli fjalla-
hjóls og cyclocross-hjóls.
Fyrirtækið hefur vaxið mikið síðustu
misseri og framleiðslan hlotið lof hjá
helstu hjólasérfræðingum heims.
Í vikunni buðu eigendur fyrirtækis-
ins til kynningar þar sem fjárfestar
fengu innsýn í framleiðsluna og
framtíðaráformin.
Fjárfestar kynntu sér
starfsemi Lauf forks
Sigríður Lillý Baldursdóttir og Guðrún S. Eyjólfsdóttir slógu á létta
strengi á kynningunni. Þeim hefur litist vel á vörur fyrirtækisins.
Björn Tryggvason hlýddi á þegar Lauf forks kynnti starfsemi sína á
vel heppnuðum viðburði sem haldinn var í hjólreiðaversluninni Kríu.
FJÁRFESTAKYNNING
WWW. fridaskart.is Fríða skartgripahönnuður fridajewels
Skólavörðustíg 18
SILFURHRINGIR Í KUÐUNGALÍNU
29.000,- 25.000,- 25.000,- 15.500,-
Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf forks, ræðir við Benedikt Skúlason,
stofnanda félagsins, og Inga Karl Ingólfsson. Erla er systir Benedikts.
Páll Þórir Daníelsson og Halldór Björnsson tóku tal saman á kynningunni.
Páll Snæbjörnsson mætti
galvaskur til leiks.
Guðberg Björnsson, annar
stofnenda Lauf forks, ræðir við
Einar Bárðarson um fyrirtækið.
Í baksýn má sjá Benedikt Skúlason,
stofnanda Lauf forks, Inga Karl
Ingólfsson og Eggert Gíslason.
Guðrún Dóra
Gísladóttir mætti
á kynninguna.
Morgunblaðið/Eggert