Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 14

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 14
Náttúrufræðingurinn 14 því langt goshlé, ef til vill 200 ár, virðist hafa fylgt Eldgjárgosinu. Engin merki um gos á Kötlukerfinu hafa fundist á því árabili og ekkert hefur fundist sem styður Kötlugos (og hlaup) árið 1000 (þeir atburðir eru nú taldir hluti af Eld- gjárgosi, sbr. að ofan). Sigurður Þórar- insson46 bendir á að Höfðárhlaup sem varð skömmu fyrir 1179 kunni að vera kveikjan að frásögn Herberts munks. Má það vel vera, en með umfang Eld- gjárgossins í huga er þó sá kostur ekki síður álitlegur. Ef setningin „þar er nú Hǫfðársandr“ er komin úr elstu gerð Landnámu, sem Sveinbjörn Rafns- son47,48 færir sterk rök fyrir að sé rituð um 1100, þá verður að telja Eldgjárgosið líklegri kost. JARÐSKJÁLFTAR Á FYRSTU ÖLDUM BYGGÐAR Aðrar náttúruhamfarir en eldgos og afleiðingar þeirra hafa skilið eftir um- merki í Rangárvallasýslu á fyrstu öldum byggðar þar. Á nokkuð stóru svæði í Rangárvallasýslu, frá innanverðri Fljóts- hlíð um Þríhyrning og Vatnsdalsfjall og norður fyrir Eystri Rangá, eru gjósku- lögin Eldgjá ~939, Katla ~920, land- námslagið ~877 og stundum gjóskulögin rétt neðan þess röskuð á sérkennilegan máta, skorin sundur með nokkru milli- bili og hafa hnikast til (8. mynd). Þegar flett er ofan af þeim er einna líkast því að jarðvegurinn sem þau eru í hafi verið rifinn í ræmur. Gjóskulögin eru heilleg milli „skurðflatanna“ og þau hljóta því að hafa verið svo til efst í jarðvegi og haldist saman með rótum í torfinu. Eina haldbæra skýringin á sams konar raski á sama tíma á svo stóru svæði er jarð- skjálfti, Suðurlandsskjálfti. Einhvern tímann skömmu eftir Eldgjárgosið hefur jarðskjálfti því riðið yfir Rangár- vallasýslu og jarðvegur rifnað og raskast við hreyfingar á jarðskjálftasprungum og/eða skrið í hlíðum. Hann hefur verið nokkuð stór, en meira verður ekki sagt. Kannski á hann hliðstæðu í landskjálft- anum 1784 eftir Skaftáreldana. GRÍMSVATNAGOS Tíu gjóskulög frá Grímsvatnakerfi finnast í jarðvegi frá fyrstu þrem öldum byggðar í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu. Sjö þeirra eru í sama sniðinu í Núpsstaðaskógi en þar er ekk- ert þeirra þykkara en 5 cm.49 Ekki er hægt að fullyrða að öll gosin hafi verið í Grímsvötnum sjálfum. Þrjú þessara gjóskulaga finnast milli landnámslags- ins frá ~877 og Eldgjárgjósku frá ~939. Það stærsta féll skömmu eftir 900 (~910) og varð allt að 2 cm þykkt í Álftaveri (9. mynd). Áhrif gjóskufallsins hafa lík- lega verið lítil og ekki þótt frásagnar- verð. Hin gjóskulögin eru minni. Á síð- ari öldum hafa jökulhlaup í Skeiðará bæði fylgt Grímsvatnagosum og hleypt gosum þar af stað50,51 en engum sögum fer af vatnagangi á Skeiðarársandi fyrr en á 14. öld. Skeiðarárjökull – og Vatna- jökull – var minni en nú á landnáms- öld. Á líkanmynd Helga Björnssonar52 er jaðar hans fyrir 1.000 árum um 5 km innar en nú, á móts við Súlutinda. Skeið- arárhlaup, ef einhver voru, hafa þá lík- lega verið minni en nú og breitt minna úr sér, enda náði byggð út á það svæði þar sem nú er sandur.50 Landnáma geymir sögn sem gæti lýst hlaupi af völdum goss á Gríms- vatnakerfinu, þó ekki í Grímsvötnum sjálfum. Eyvindur karpi nam land milli Almannafljóts og Geirlandsár, en Al- mannafljót mun vera það vatnsfall sem nú heitir Hverfisfljót. „Áðr Almannafljót hlypi, var þat kallat Raptalœkr.“25 Nafn- breytingin er orðin gömul þegar Land- náma er færð í letur. Hverfisfljót fær vatn frá Síðujökli. Hann var miklu minni en nú fyrir 1.000 árum samkvæmt líkanmynd Helga en landslag undir jökli bendir til að vatn frá honum hafi leitað til sömu svæða. Því má vel vera að gos undir jökli suðvestan Grímsvatna hafi valdið vatnavöxtum og hugsanlega breytt farvegum þannig að meira vatn rann eftir það í farveg Raftalækjar, sem þá fékk nafnið Almannafljót. Fimm of- angreindra gjóskulaga eru eldri en ætl- aður ritunartími Landnámu, en hvert gosanna olli hlaupinu – ef nokkurt – verður ekki sagt. HEKLUGOS Á 12. OG 13. ÖLD. Eftir Eldgjárgosið varð hlé á stór- gosum á Suðurlandi í rúm 160 ár. Næsta stóra gos var Heklugosið 1104, en nú voru upptökin nánast í túnfæti efstu býla á Rangárvöllum og Landi. Fyrsta gos Heklu eftir landnám, eða Heklufells eins og fjallið er nefnt í elstu heimildum, varð nánast örugglega árið 1104.53 Ekki er vitað um nein gos á Heklukerfinu frá landnámi um 870 til þess tíma. Gosið 9. mynd. Gjóskulag úr gosi í Grímsvötnum eða nágrenni ~910. – Tephra layer erupted in Grímsvötn (or vicinity) ~910. 1104 er mesta þeytigos Heklu á sögu- legum tíma og súra hvíta gjóskan sem féll á landi var um 1,5 km3 nýfallin sam- kvæmt niðurstöðum Sigurðar Þórar- inssonar.53 Nýrri mælingar benda til heldur minna rúmmáls.54 Gjóskufalls- svæðið náði til rúmlega helmings lands- ins. Þykktarásinn stefnir nálægt norðri og næst fjallinu er geirinn mjór þótt þykktin sé mikil (10. mynd). Í Rangár- vallasýslu urðu skemmdir af gjóskufall- inu því á tiltölulega afmörkuðu svæði, en jafnframt viðkvæmu gagnvart gróðri og jarðvegsgerð með tilliti til rofs. Áhrif gjóskufallsins 1104 voru því mun víð- tækari vestan Þjórsár í uppsveitum og á afréttum Árnessýslu. Og í þetta sinn slapp Vestur-Skaftafellssýsla alveg við skemmdir. Næstu Heklugos, 1158, 1206 og 1222, voru ekki stórgos, nýfallin voru þau um 0,33 km3, 0,4 km3 og 0,04 km3.56 Ekkert tjón hefur orðið af þeim í byggð í Rang- árvallasýslu því þykktarásar gjóskulag- anna stefna norðaustur og suðaustur (10. og 11. mynd). Heklugosið 1206
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.